Dagur - 01.05.1999, Page 12
12- LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999
ÍÞROTTIR Á SKJÁNUM
Laugard. 1. maí
EBM3
Kappakstur
Kl. 10:55 Formula 1
Tímataka í San Marino.
Fótbolti
Kl. 13:25 Þýska knattspyrnan
Leverkusen - Hertha Berlin
Handbolti
Kl. 15:25 Þýski handboltinn
Nettelsted - Kiel
Glíma
Kl. 16:45 Islandsglíman
STÖÐ 2
Fótbolti
Kl. 12:00 Alltaf í boltanum
Kl. 13:45 Enski boltinn
Man. United - Aston Villa
Körfubolti
Kl. 12:30 NBA-tiIþrif
S'
Hnefaleikar
Kl. 22:45 Hnefaleikar
Sýnt frá hnefaleikakeppni í
Bandaríkjunum. Á meðal
þeirra sem mætast eru
þungavigtarkapparnir Ike
Ibeabuchi og Chris Byrd.
Einnig mætast Kirk Johnson
og A1 Cole sem sömuleiðis
keppa í þungavigt.
Sunnud. 2. maí
Kappakstur
Kl. 11:30 Formula 1
Bein útsending frá San Marino.
Fótbolti
Kl. 00:00 Markaregn
Mörkin úr þýska boltanum.
Körfubolti
Kl. 12:30 NBA-leikur vikunnar
Houston Rockets - Utah Jazz
Endursýnt frá föstudegi.
Fótbolti
Kl. 14:00 ítalski boltinn
Udinese - Lazio
Akstursíþróttir
Kl. 16:00 Daewoo-Mótorsport
S
Fótbolti
H. 14:45 Enski boltinn
Arsenal - Derby
Kl. 18:00 ítölsku mörkin
KJ. 21:50 ítalski boltinn
AC Milan - Sampdoria
Golf
Kl. 17:00 Golfmót í Evrópu
PGA-mótaröðin.
Körfubolti
KI. 19:30 NBA-leikur vikunnar
San Antonio Spurs - Utah Jazz
íslaudsmótið í vélsleðaakstri
ÍÞRÓTTIR
UM HELGINA
Laugard. 1. maí
■ FÓTBOLTI
Deildarbikarkeppni kvenna
Akranes:
Kl. 14:00 ÍA - FH
Borgarnes
Kl. 14:00 Leiftur - Skallagr.
Keflavík
Kl. 14:00 Þróttur R - Keflav.
KR-völlur
Kl. 14:00 KR - Grindavík
■ ALMENNINGSHLAUP
1. maíhaup Ungmennafélags
Akurevrar
Hefst ld. 13:00 við Sportver.
Vegalengdir: 4 km og 10 km með
tímatöku og flokkaskiptingu bæði
kyn: 6 ára og yngri (1 km), 7-9 ára,
10-12 ára, 13-14 ára, 15-16 ára (2
km), 17-39 ára, 40 ára og eldri (4
km eða 10 km). Utdráttarverðlaun.
Skólakeppni.
1. maíhlaup Fiölnis og Olís
Hefst kl. 14:00 við íþróttamið-
stöðina Ðalhúsum í Grafarvogi.
Skráning ftá kl. 12:00-13:45.
Vegalengdir: 1,6 km og 10 km með
tímatöku. Flokkaskipting bæði kyn:
lOára ogyngri, 11-12 ára, 13-14
ára, 15-18 ára, 19 ára og eldri
hlaupa (1,6 km), 18 ára og yngri,
19-39 ára, 40 ára og eldri (10 km).
Vímuvarnarhlaup Lions í
Hafriarfirði
Hefst kl. 11:00 á Víðistaðatúni í
Hafnarfirði. Skráning frá kl. 9:00 í
skátaheimilinu við Víðistaðatún.
Vegalengdir: 2,2 km og 4,5 km án
tímatöku. Allir sem ljúka keppni fá
verðlaunapening. Útdráttarverð-
laun.
Önnur og þriðja umferð íslands-
mótsins í vélsleðaakstri,
„snjócrossi", fer fram á Ólafs-
firði um helgina. Þar munu
keppa allir öflugustu sleðar og
ökuþórar landsins, auk þess sem
Svíþjóðarmeistarinn og fyrrum
Norðurlandameistari verður
meðal keppenda. Önnur um-
ferðin hefst ldukkan 17:00 í dag
og sú þriðja klukkan 9:00 í fyrra-
málið.
SDagpr
KNATTSPYRNA
Sir Alf Ramsey látinn
Sir Alf Ramsey, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, Iést
í gær á áttugasta aldursári. Ramsey sem var einn sigursælasti Iandsliðs-
þjálfari Englands, naut mikillar virðingar um allan heim og var dáður
af þjóð sinni fyrir einstakan persónuleika.
Ramsey sem á árum áður lék með Ipswich Town, leiddi Englendinga
til sigurs í heimsmeistarakeppninni 1966, sem er þeirra eini HM-titiII
til þessa. Sjálfur lék Ramsey 31 Ieik með enska landsliðinu, áður en
hann tók við þjálfun þess, en hann þjálfaði Iiðið frá 1963 til 1974.
Mark Bosnidi settur út úr liði Aston
ViUa
Ástralski markvörðurinn Mark Bosnich hefur að öllum líkindum spilað
sinn síðasta Ieik fyrir Aston Villa, en Johan Gregori, framkvæmdastjóri
félagsins, setti hann út úr liðinu fyrir Ieikinn gegn Manchester United
á morgun.
Gregory neitaði Bosnich ennfremur um að ferðast með rútunni sem
flutti leikmenn liðsins til Manchester, en liðið Iagði af stað til
Manchester í gær. Eins og flestir vita hefur Bosnich verið undir smá-
sjánni hjá Alex Ferguson, framkvæmdastjóra United, sem arftaki Peter
Schmeichels fyrir næstu leiktíð, en samkvæmt Bosmanreglunni fær
hann frjálsa sölu.
Bosnich hefur þegar Iýst þvi yfir að hann sé tilbúinn til að yfirgefa
Aston Villa og meira en tilbúinn til að ganga til liðs við United. John
Gregory er ekld ánægður með þessa framkomu markvarðarins á miðju
leiktímabili og þessi ákvörðun Bosnichs hefur sett hann í mikinn vanda
þegar Iitið er til næsta leiktímabils. Málið hefur líka dregist óþægilega
á langinn og því hefur verið mikil óvissa um framtíð Bosnichs hjá Villa.
En nú hefur Gregory misst þolinmæðina og mun varamarkvörðurinn
og fyrrum markvörður 21-árs landsliðs Englendinga, Michael Oakes,
taka stöðu hans í markinu. Oaks er ekki óvanur að leika með liðinu, því
hann leysti Bosnich af á meðan hann átti við meiðsl að stríða í vetur og
leysti hann einnig af í síðasta leik gegn Nottingham Forest, vegna smá
meiðsla.
Þegar John Gregory var spurður um það hvers vegna hann hefði sett
Bosnich út úr liðinu, þegar aðeins hálfur mánuður væri eftir af deild-
arkeppninni, þá sagðist hann aðeins velja þá menn í liðið, sem væru að
öllu leyti með hugann hjá félaginu.
„Því miður fyrir Bosnich, þá varð ég að taka þessa ákvörðun og hana
tók ég með velferð félagsins í huga. Oakes átti frábæran leik gegn For-
est um síðustu helgi og ég treysti honum og þriðja markverði okkar,
Peter Enchelman, mjög vel,“ sagði Gregory.
BRIDGE
Öruggur sigur Ómars og Bryndísar
BJORN
ÞORLAKS-
SON
SKRIFAR
íslandsmótið í paratvímenningi
var spilað um næstsíðustu helgi
og tóku alls 45 pör þátt í mótinu
sem tókst í alla staði vel undir
styrkri stjórn Hermanns Lárus-
sonar keppnisstjóra og Trausta
Harðarsonar reiknimeistara. Is-
landsmeistarar eru Bryndís Þor-
steinsdóttir og Ómar Olgeirsson,
en þau leiddu mótið lengst af og
unnu með fádæma yfirburðum.
Lokastaða efstu para:
1. Bryndís Þorsteinsdóttir
- Ómar Olgeirsson 379
2. Sigríður Hrönn Elíasdóttir
- Oskar Elíasson 250
3. Hrafnhildur Skúladóttir
- Jörundur Þórðarson 215
4. Björk Jónsdóttir
- Jón Sigurbjörnsson 191
5. Arngunnur Jónsdóttir
- Jakob Kristinsson 161
Sumarbridge 1999
Eins og mörg undanfarin ár verð-
ur óskað eftir tilboðum í sumar-
bridge. Utboðsgögn liggja frammi
á skrifstofunni. Skriflegum til-
boðum skal skilað á skrifstofu
BSÍ í síðasta lagi þriðjudaginn 4.
maí kl. 16.00.
Tapað-fundið
Karlmanns giftingarhringur
fannst í Þönglabakkanum fyrir
nokkrum vikum. Eigandinn getur
vitjað hringsins á skrifstofunni.
FráBA
Tveimur kvöldum af þremur er
Iokið í þriggja kvölda lokatví-
menningi vetrarstarfsins sem
nefnist Alfreðsmótið. Kunnar
bridgekempur fóru vel af stað og
leiða með yfirburðum. Staða
efstu para eftir fyrsta kvöldið:
1. Stefán Stefánsson
- Sigurbjörn Haraldsson 92
2. Sveinn Pálsson
- Bjarni Sveinbjörnsson 60
3. Örn-Hörður 50
4. Bjöm Þorláksson
- Reynir Helgason 47
5. Pétur Guðjónsson
- Stefán Ragnarsson 46
6. Páll Pálsson
- Þórarinn B. Jónsson 44
Eftirfarandi spil kom upp í
mótinu:
Vestur/Allir á hættu
* KT42
* ÁK3
* GT32
* G2'
* DG95
r 94
* Á
* ÁKD763
* 763
y 87
♦ D974
*T985
* Á8
y DGT652
* K865
* 4
Einu sinni var!
Þessa mynd rakst umsjónarmaður á í myndasafni Dags. Hún var tekin í denn af unglingalandsliði íslendinga í bridge.
Ólafur Lárusson var liðsstjóri en aföðrum frægum kempum þekkja menn Ragnar Magnússon, Jakob Kristinsson,
Júlíus Sigurjónsson og fleiri. Takið eftir bindinu hjá Júlíusi.
Eins og sjá má standa 4 hjörtu
með bravúr í NS en Ieiða má lík-
um að því að fyrsta sögn vesturs
hafi átt töluverðan þátt í að stela
toppnum. Þannig gengu sagnir:
Vestur Norður Áustur Vestur
lgrand! pass pass 2hjörtu
31auf 3hjörtu 4lauf pass
pass pass
Vissulega gátu NS doblað 4
lauf og uppskorið í besta falli 500
en það hefði nánast þýtt sama
botninn og að gefa samninginn
eftir ódoblað. Grandsögn vesturs
lofaði að sjálfsögðu jafnskiptum
spilum og punktafjöldinn var 15-
17. Eftir þessa byrjun er erfitt fyr-
ir NS að sjá að 4 hjörtu vinnist.
Suður gat verið að koma fárveikt
inn á (ballansera) og norður þorir
ekki að taka af skarið. Báðir eiga
líka ágætis vörn.
Sá sem hér skrifar hefur ftrekað
orðið vitni að þvf við spilaborðið á
undanfömum árum, að mjög vel
getur gefist að opna á grandi með
ás eða kóng blankan í láglit (vissu-
lega er betra að eiga ásinn blank-
an). Teikna má upp sagnröð þar
sem svarhöndin keyrir spilið í von-
lausa Iáglitaslemmu á 6-1 sam-
legu en kostirnir eru mildu fleiri.
Hindrunargildið er ótvfrætt sem
dæmi, en að sama skapi er ekki
heppilegt að eiga ás blankan í há-
lit. Það er vegna þéss að hálita-
geim eru tíðum spiluð eftir opnun
á grandi en láglitageim aðeins ör-
sjaldan. Því mælir ofanritaður
með þessari opnun með þessa
skiptingu, en það væri gaman að
fá einhver mótrök frá lesendum.