Dagur - 21.05.1999, Page 2

Dagur - 21.05.1999, Page 2
2 - FÖ STUDAGUR 2 1. MAÍ 1999 .Tfc^ur LANDB ÚNAÐUR Mestu nýjungar ísögunni „Það hafd aldrei veríð eins miklar nýjungarhjá okkur eins og núna, “ segir Exjólfur Pálmason sölustjóri landbúnaðarvéla hjá Ingvari Helgasyni. Þar ber hæst að fyrirtækið er komið með umboð fyrir Fendt dráttan'élarnar. „Nýj- ungarnar þar eru í fyrsta lagi 309 C lína sem var kynnt í fyrra og 700 vélin sem fékk fyrstu verðlaun á Fendt 700 verðiaunavélin. Sima landbúnaðarsýning- unni í Frakklandi fyrir tækninýjungar og framúr- skarandi hönnun. I Massey Ferguson erum við með nýja 6200 Iínu sem Massey Ferguson 6180 framhald af 6100 línunni en tæknivæddari og stærri vél. Þar erum við með mjög breytta vél, bæði innviðir og útlit. Vélarnar eru mun straumlínulagaðri en áður og með Dynashift og kúpl- ingslausan vendigír. En það er kúpling líka í vendigírs- stönginni sem er vinstra megin við stýrið. Þar er aft- urábak og áfram og fjögur kúplingslaus hraðastig í hvora átt. Onnur nýjung hjá Massey Ferguson er í 4200 Iínunni sem hefur verið helsta sölulínan. Sú lína er nú einnig boðin með kúpl- ingslausum vendigír og það virðist ætla að koma gríðar- lega vel út. Það er gaman að geta kynnt það fyrstir í þess- ari stærð af traktorum. Það er hægt að velja um 12 gíra afturábak og áfram kúplingslaust og 24 gíra með milligír. Önnur nýjung er rafmagnsbeisli með skynjurum vegna plógs. Svo bjóðum við enn þá upp á hefðbundinn hand- virkan vendigír. Við gerum miklar vænt- ingar til sölunnar á þessum vélum. Svo erum við að kynna líka minni vélar sem eru frá 47 upp í 64 hestöfl, vélar sem eru einfaldar og tiltölu- lega ódýrar. OHR Þorvaldur Guðmundsson, bóndi á Laugarbökkum, mjólkar mun fieiri ferðamenn en kýr í sama fjósinu. íjjósinu á Laugar- bökkum í Ölfushreppi ergertfleira en mjólka kýr. Þangað koma hóp- ar afferðamönnum til að fylgjast með mjölt- um,þiggja veitingar, læra línudans ífóður- ganginum og setjast á Sóleyjarbarínn í hlöð- unni. „Ég er með 24 kýr, nokkur hross, nokkrar hænur og nokkrar rollur," segir Þorvaldur Guð- mundsson bóndi á Laugarbökk- um sem mjólkar mun fleiri ferða- menn en kýr í sama fjósinu. „Það hefur farið vaxandi. Það virðist vera mikill áhugi hjá fólki að komast í sveitina og sjá hvað er að gerast." Það er augljóst um leið og samtalið hefst að það er stutt í glettnina hjá Þorvaldi. Útlendingar tíðir gestir Erlendir hópar eru tíðir gestir í ferðamannafjósinu á Laugar- bökkum auk þess sem það er vin- sæll áningarstaður innlendra ferðamanna. Ferðamanna- móttakan varð þriggja ára nú um páskana hjá Laugarbakkabænd- um. „Þetta hefur vaxið hraðar en gert var ráð fyrir," viðurkennir Þorvaldur. Hann segir þetta hafa byrjaði þannig að annaðhvort hafi þurft að leggja niður búskap- inn eða gera eitthvað. „Þessi jörð stendur við ákaflega bílvænan veg. Það er ekki hægt að fjárfesta í fjósum í dag, það er ekkert vit í því. Þá datt mér í hug hvort það væri ekki möguleiki að nýta bygg- inguna á tvennan hátt og nýta saman landbúnaðinn og ferða- mennskuna, vera ekki í sitt hvoru heldur flétta þetta saman. Það hefur alveg verið hægt.“ Fjósið var byggt í þeim tilgangi að þjóna ferðamanninum jöfnum hönd- um. Fólk getur setið inni í veit- ingasalnum og horft á mjaltirnar öðru megin og mjólkina renna eftir veggnum og yfir í mjólkur- húsið hinu megin. Hugmyndm vaknaði á Dalalif „Þeir sem ekki vilja fjósalykt geta fylgst með þessu án þess að fá fjósalykt. En ég segi nú stundum fólki að hugmyndin hafi vaknað þegar ég fór á myndina Dalalff og sá Sigga Sigurjóns reka niður staurana með Iúkunum og moka skítinn með höndunum og heyrði hann segja: „I love it!“ Það er það sem fólk er að upp- lifa í dag, það finnst mörgum óskaplega gaman að finna fjósa- lykt. Fólki finnst líka öðru vísi að koma á sveitabæ eða fara t.d. í dýragarð. Því finnst það ekki sambærilegt. Við erum Iíka að brydda upp á nýjungum t.d. að kenna fólki linudansa í fóður- ganginum og stundum leyfum við fólki að syngja Karakoee í hlöðunni innan um hvanngræna töðuna,“ segir Þorvaldur. Klassísk tónlist gefur klassíska mjólk Hann segir að kýrnar taki þessu mjög vel og glettnin tekur snöggvast völdin. „Þeir hafa verið mjög hrifnir af þessu hjá Mjólk- urbúinu. Ef við spilum mikið klassíska tónlist þá fáum við klassíska mjólk og eins ef við erum í rokkinu þá fáum við rokk- aða mjólk. Þetta er það sem vant- ar á markaðinn, einhverja til- breytingu." Þorvaldur segir Sóleyjarbarinn meira fyrir augað en að hann sé raunverulegur bar. Barinn er skorinn út úr heystálinu og ætl- aður til að skapa aðdráttarafl. „Þetta er fullmótaður bar, aðal- lega fyrir fólk til að stilla sér upp til að láta taka myndir af sér. Þetta er hálfgerður Geysir hjá mér, það var hugmyndin. Ef menn vilja hafa með sér staup þá fá þeir glös til að gera myndina betri." Gestunum fjölgar stöðugt á Laugarbakka. „Við vorum að stefna að því að taka á móti tíu þúsund gestum á þessu ári. En við erum á því núna að það verði ekki liðið Iangt á árið þegar sú tala er sprungin, miðað við það sem komið er þegar. Ég býst við að gestirnir það sem af er árinu séu á milli fimm og sex þúsund. Það var t.d. sprengjuhelgi hjá okkur um síðustu helgi, það voru hjá okkur tæp sex hundruð manns á einum degi. Ég held að við höfum líka slegið met í línu- dansakennslunni því við kennd- um tæplega þrjú hundruð manns í einu. Það varð reyndar að gera það undir berum himni, hópur- inn komst ekki fyrir í Qósinu." Húsfreyjan kennir Hnudans Fjölskyldan sér um þjónustuna, húsfreyjan kennir línudansinn. „Við sjáum um þetta allt saman hérna og börnin koma til þegar á þarf að halda. Ég sé nú mest um að labba í kringum þetta því ég er óðalsbóndinn," segir Þorvaldur og er grunnt á hlátrinum. „Svo Iátum við fólk drekka mjólk ótakmarkað, það er nóg til af henni. Við höfum alltaf mjólk í kútum og leyfum fólki að smakka." Þorvaldur segist kunna vel við þessa starfsemi, hún Iífgi upp á sveitalífið. „Þetta gefur okkur líka visst aðhald til að hafa snyrtilegt í kringum okkur. Okk- ar auglýsing er umgengnin um húsið, að fjós sé fyrirmyndarmat- vælaframleiðslustaður. Það er okkar þema í þessu. Fólki finnst ótrúlegt hvað húsið er snyrtilegt. Nú er það ekkert öðruvísi um gengið en önnur fjós, það er bara reynt að hugsa vel um það.“ -OHR

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.