Dagur - 21.05.1999, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999 - 1S
LANDBUNAÐUR
Haukur Júlíusson, framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Jörva í Borgarfiröi, einn forsvarsmanna sýningarinnar Ýtur í iífi þjóðar, sem verður á Hvanneyri
74. - 75. ágúst nk. - mynd: ohr
Ýturílífiþjóðar
Hvanneyri hejurlengi
skipað stóran sess í ís-
lenskum landbúnaði
vegna rannsókna- og
kennslustaifs sem þar
hefurfariðfram. Á
seinni árum erstaður-
inn í enn ríkari mæli
að höfða til almenn-
ings með hvers kyns
kynningum á hinum
ýmsu þáttum landbún-
aðarins ogþarhefur
Búvélasafnið staðið
framarlega íflokki.
í fyrra var D-dagur á Hvanneyri,
eða Dráttarvéladagurinn þar sem
sýndar voru fjölmargar og fjöl-
breyttar dráttarvélar frá ýmsum
tímum og í sumar verða sýndar
jarðýtur á Hvanneyri. Dagana
14.-15. ágúst nk. verður sýningin
„Ýtur í lífi þjóðar."
Þar verða sýndar jarðýtur frá
ýmsum tímum og nokkur fylgi-
áhöld þeirra. Ennfremur verður
sögusýning þar sem dregin verða
fram atriði úr sögu þessara tækja
í texta og myndum. Það eru þeir
Bjarni Guðmundsson og Haukur
Júlíusson sem eru driffjaðrirnar á
bak við þessa sýningu.
Tilgangurinn með sýningunni
er að rifja upp og kynna áttatíu
ára sögu beltavéla og jarðýtna í
íslensku þjóðlífi, einkum hlut
þeirra í framförum landbúnaðar-
ins og byltingu i samgöngum
landsmanna. Einkum er höfðað
til áhugamanna um vinnuvélar
og bútækni, ekki síst eldri
ýtukarla og áhugamanna um
þennan þátt þjóðlegs fróðleiks.
Jafnframt verður reynt að kynna
þeim sem yngri eru þessi merki-
legu tæki og sögu þeirra .Sýning-
in verður haldin með atbeina
verktakafyrirtækisins Jörva hf í
Borgarfirði, Heildverslunarinnar
Heklu hf., Vegargerðar ríkisins
og áhugahóps um jarðýtusögu.
A fimmta tug þessarar aldar
varð bylting í túnrækt íslenskra
bænda. Skurðgrafan opnaði mýr-
lendi til túnræktar og jarðýtan
kom í kjölfarið. Bændur kunnu
sér ekki læti. Og ekki aðeins
bændur; Árni G. Eylands lýsti
beltavélabyltingunni m.a. þannig:
„Notkun beltatraktora með
ýtum hefur reynzt svo mildlsverð
nýjung á landi, að fátítt er. Jarð-
ýturnar hafa á fáum árum ger-
breytt aðstöðu og getu við vega-
gerð og framkvæmd margs konar
mannvirkja. Kapphlaup varð um
að fá beltatraktora með jarðýt-
um, og fengu langtum færri en
vildu. Þessi nýjung, sem stofnað
var til í þágu Iandbúnaðarins,
varð fyrr en nokkrum gat til hug-
ar komið orðin svo að segja óska-
ráð fleiri atvinnuvega þjóðarinn-
ar við ótrúlega margar fram-
kvæmdir."
Það var árið 1919, fyrir réttum
80 árum - sem fyrstu beltavélarn-
ar bárust til landsins; tvær
Cleveland-vélar sem Vegagerð
ríkisins keypti frá Bandaríkjun-
um. Það leið fullur fjórðungur
aldar áður en beltavélarnar slógu
í gegn hérlendis en þá var líka
komin á þær ýtutönn.
A sýningunni mun ýtukörlum
allra sveita gefast tækifæri til að
hittast og sameinast um áhuga-
mál, sem margir fleiri deila með
þeim. Með framtakinu er líka
verið að bjarga söguþáttum og
minjum um einstakt umbrota-
skeið á fyrstu árum lýðveldisins,
eins konar sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar fyrir matbjörg og
bættum samgöngum.
Aðstandendur sýningarinnar
leita til lesenda sem kunna að
vita af eða hafa í fórum sínum
gripi, myndir eða annað fróð-
leiksefni sem gæti átt erindi á
sýninguna. Það er þegið til sjri-
ingar með þökkum. Til að koma
slíku á framfæri er best að hafa
samband að Hvanneyri (s. 437
0000), og ræða t.d. við Bjarna
Guðmundsson eða Hauk Júlíus-
son.
Á Hvanneyri verður að sjálfsögðu hægt að skoða ýturnar í krók og kring.
Fyrsta
Claas
þreski-
vélin
Fyrsta nýja þreski-
vélin ofgerðinni
Claas er væntanleg
til landsins ogfer
hún í Landeyjamar.
Eyjólfur Pálmason sölu-
stjóri landbúnaðartækja hjá
Ingvari Helgasyni segir það
stórt skref, en fyrirtækið
flytur einnig inn Massey
Ferguson þreskivélar sem
hafa verið nánast einráðar á
þeim markaði hérlendis
hingað til.
Þreskivél frá Claas.
„Við erum einnig að
kynna nýja Claas rúlluvél.
Þetta er fyrsta nýja vélin í
sjö ár. Hún er með 25%
meiri þjöppun en eldri vélin
og stærra baggahólf. Sóp-
Ný rúllubindivél frá Claas er
komin á markað hérlendis
vindan er af nýrri gerð.
Einnig er fáanleg rafstýring
fyrir allar helstu aðgerðir í
gegn um rafbox. Onnur nýj-
ung er
aftur á
bak snún-
ingur á
sópvindu
til að losa
stíflu ef
hún stífl-
ast. Þetta
er mjög
skemmti-
leg vél og
kemur til
með að vera alger nýung fyr-
ir okkur,“ segir hann.
Nýjar
sláttuvélar
Þá er komin á markað ný
tegund sláttuvéla frá Vicon
með beinu drifi. „Svo Ieggj-
um við meiri áherslu á
Kuhn sláttuvélar sem eru
með beinni driftengingu og
vökvaþrýstibúnaði sem þýð-
ir að hægt er að stjórna
þrýstingnum niður á svörð-
inn. Það er mjög gott í
grænfóðri til dæmis. Þessi
vél kom mjög vel út í próf-
unum á Hvanneyri." Stór-
baggavæðingin heldur einn-
ig áfram og eru fjórar nýjar
stórbaggavélar seldar þetta
vorið.
-OHR
Rafstýring fyrir
rúllubindivélina.
-OHR