Dagur - 12.06.1999, Page 1
Laugardagur 12. júní 1999
Verð í lausasölu 200 kr.
82. og 83. árgangur - 109. tölublað
Greióslustöðvun KÞ
til Hæstaréttar
Úr dómsal Héraðsdóms Norðurlands eystra á
Akureyri í gær. Þar ríkti nokkur spenna.
mynd: brink
Kaupfélag Þiugeyinga
hefur fengið greiðslu-
stöðvuu í 3 mánuði.
Úrskurði Héraðsdóms
um framlengingu hef-
ur verið áfrýjað til
Hæstaréttar.
Lögmaður þeirra aðila sem eiga alls
55 milljóna króna kröfu á Kaupfé-
lag Þingeyinga hafa ákveðið að
áfrýja til Hæstaréttar þeim úrskurði
Héraðsdóms Norðurlands eystra
frá því í gærkvöld, að framlengja
greiðslustöðvun KÞ í 3 mánuði, eða
til 10. september næstkomandi. As-
geir Pétur Ásgeirsson héraðsdómari
kvað upp úrskurðinn.
I úrskurðinum segir m.a. að KÞ
hafi fullan vilja að efna skuldbind-
ingar sinar að fullu. „Þó svo að
hann geti ekki nú efnt þær þá er
ljóst að unnið er að því að afsetja
eignir. Þó svo að eignastaðan sé
neikvæð að hans mati þá er ljóst að
gangi áætlanir hans eftir
mun greiðslustaða hans
batna verulega," segir í
dómnum og tekið er tillit
til umfangs reksturs KÞ.
Ragnar Baldursson
lögmaður flutti málið fyr-
ir hönd nokkurra kröfu-
hafa og eigendur við-
skiptavíxla. Kröfur um-
bjóðenda hans námu um
55 milljónum, eins og
fyrr greinir, og krafðist
Ragnar þess að greiðslu-
stöðvunin yrði ekki fram-
lengd en skuldir KÞ eru metnar á
149 milljónir umfram eignir. Gísli
Baldur Gunnarsson, lögmaður KÞ,
sagði ennþá nokkra óvissu um
stöðu félagsins og endanlegt upp-
gjör. Því þyrfti KÞ lengri tíma.
Loft var þrungið spennu í dómsal
Héraðsdóms Norðurlands eystra á
Akureyri í gær enda varðaði úr-
skurðurinn ekki bara hagsmuni
lánadrottna heldur stóran hluta al-
mennings á Norðurlandi eystra.
Meðal viðstaddra var Sigurður Sig-
urgeirsson, útibússtjóri Landsbank-
ans á Akureyri, en hagmunir
Landsbankans eru verulegir í þessu
máli.
I máli sóknaraðila kom fram að
stór hluti kröfuhafa sætti sig ekki
við áframhaldandi greiðslustöðvun.
Gísli Baldur Gunnarsson sagði á
hinn bóginn að eigendum yrði að
gera kleift að koma eignum í verð
og endursldpuleggja sín mál til að
tjón lánadrottna yrði sem minnst.
Sóknaraðili vitnaði í handbók um
gjaldþrotaskipti þar sem segir að
greiðslustöðvun geti ekki átt við
nema skuldarinn ætli sér áfram-
haldandi tilvist. Ljóst er að matsat-
riði er hvort eða í hvaða mynd KÞ
starfar áfram.
„Gjaldþrot eðlilegast“
Ásgeir Pétur Ásgeirsson tók sér
góðan tíma í gær að kveða upp úr-
skurðinn. Ljóst er að úrskurðurinn
er með erfiðari úrlausnarefnum
sem hann hefur fengist við. Sér-
fræðingar í gjaldþrotamálum sem
Dagur ræddi við voru einhuga um
að eðlilegast hefði verið að dæma
KÞ gjaldþrota. Virtur lögmaður
sagði: „I þessu máli er engum skil-
yrðum fullnægt fyrir áframhaldandi
greiðslustöðvun. Fyrirtækið er
gjaldþrota og tilgangur greiðslu-
stöðvunar er að menn komi skikk á
sín fjármál. Ekki til að stoppa, selja
eignir og leggja þær niður.
Greiðslustöðvun er til að mönnum
gefist færi á að ná andanum. Til að
vita hverjir skulda, hveijir ekki og
hvað sé hægt að gera.“ -BI>/njB
Varlalíft
vegha hita-
oyl^ju
Mestur hiti á þessu ári mældist á
Iandinu í gær. Á Akureyri komst
hitinn í 23° klukkan 3 á löggiltum
mæli Veðurstofunnar. Sami hiti
mældist einnig á Neskaupstað en
óopinberir mælar sýndu mun
hærri tölur víða á landinu. I Garði
í Kelduhverfi steig hitinn þó hæst
samkvæmt upplýsingum sem bár-
ust frá veðurathugunarstöð þar.
Kukkan 16.00 voru 25° í Keldu-
hverfinu. 24° voru á Dalvík.
Ef strekkingsvindur hefði ekki
leikið um Norðlendinga hefði
mörgum þótt nóg um. Ibúi á
Bakkafirði hringdi í Veðurstofuna
og sagði 27° á sínum mæli í for-
sælu. Hann sagði þorpsbúa alls
ekki halda sig í sólinni nema í
neyðartilvikum því það væri „varla
Iíft utan forsælunnar".
Hitamælir Veðurstofunnar á Ak-
ureyri er staðsettur hjá lögreglunni.
Vaktmaður sagði að þeir hefðu varla
upplifað annað eins eftir stríð! — B!>
Samlíf Græna hersins og veðurguðanna var með eindæmum gott á Akureyri í gær. Steikjandi hiti hafði ekki áhrif á
klæðaburð hermannanna í göngugötunni á Akureyri og höfðu vegfarendur gaman af. - mynd: bilu
Haraldur
Higi
erhættur
„Því er ekki að neita að fyrstu árin
hér voru ansi erfið að þessu leyti
til. Því að hér á Akureyri var til ör-
smá klíka sem var afskaplega aft-
urhaldssöm og einangrunarsinn-
uð. Mín hugsjón gekk alltaf út á
það að opna bæinn, sem hafði
verið harðlokaður í myndlistar-
Iegu tilliti," segir Haraldur Ingi
Haraldsson, sem er að hætta sem
forstöðumaður Listasafnsins á
Akureyri. Haraldur Ingi ræðir
málefni safnsins og stöðu listar-
innar fyrir norðan í ítarlegu opnu-
viðtali í Lífinu í landinu.
Ekki hægt að bíða
„Samfylkingin getur ekki beðið
eftir því að Ingibjörg Sólrún Ijúki
setu sinni í borginni og valið sér
þá Ieiðtoga. Samfylkingin verður
að velja sér Ieiðtoga mjög fljótlega
og Ingibjörg Sólrún er einfaldlega
ekld tilbúin til að verða sá Ieið-
togi. Ef hún ætlaði sér Ieiðtoga-
sætið eftir að hafa gengið frá sín-
um málum
hjá borginni
yrði hún að
velta Mar-
gréti úr sessi
eða öðrum
kjörnum
leiðtoga
Samfylking-
arinnar," segir Árni Mathiesen
meðal annars í viðtali við Kol-
brúnu Bergþórsdóttur.
Hvað varð um dúxana? Þeirri
spurningu er svarað með forvitni-
legum viðtölum við dúxa úr
nokkrum skólum. Þeir hafa gerst
verkfræðingar, hagfræðingar, tölv-
unarfræðingar, jafnvel lagt tón-
listina fyrir sig og plumað sig vel.
Þá er rætt við tvo unga menn
um vináttuna í Breiðholtinu,
ítalskur matur er kynntur og 16
einstaklingar fengnir til að til-
nefna fallegasta íslenska orðið.