Dagur - 12.06.1999, Síða 5
LAUGARDAGUR 12.JÚNÍ 1999 - S
FRÉTTIR
Friðbert Traustason, formaður bankastarfsmanna: Samið til skamms tíma á skyn-
sömum nótum með veruiegum bótum.
Bankastarfsmenn fá 80 þúsund
króna eingreiðslu á næstu dög-
um, samþykki þeir nýjan kjara-
samning sem Samband íslenskra
bankamanna hefur gert við
samninganefnd bankanna. 80
þúsundirnar eru einhvers konar
bætur eða uppbót vegna þess
álags sem starfsmenn hafa orðið
fyrir og verða fyrir á næstu mán-
uðum við að fyrirbyggja slys af
völdum 2000 vandans svokallaða
í tölvuumhverfinu.
2000-álagið er 80 þúsund
miðað við fullt starf, en stöðu-
gildi SIB-fólks í bankabransan-
um eru um 2.600, en það þýðir
að bankarnir þurfa að punga út
200 til 210 milljónum króna
vegna þess álags sem 2000 vand-
inn veldur bankastarfsmönnum.
Samningar bankastarfsmanna
áttu að renna út í september en
með þessum samningi fram-
Iengjast kjarasamningar til árs-
loka 2000. Laun hækka um
0,3% þann 1. júlí næstkomandi
og um 3,5% um næstu áramót.
„Með fyrirvara um samþykkt fé-
laganna má segja að þarna hafi
verið samið til skamms tíma á
skynsömu nótunum með veru-
legum bótum. Þar á ég við ein-
greiðsluna, sem kemur hinum
tekjulægstu best og með fram-
faraskrefum í fæðingarorlofs-
málum,“ segir Friðbert Trausta-
son, formaður SIB.
Þar á Friðbert við ákvæði
samningsins með nýmælum um
fæðingarorlof foreldra. „Þarna er
að finna einsdæmi á Islandi, ekki
síst gagnvart feðrum. Með þessu
er verið að tryggja nær full laun í
fæðingarorlofi, með yfirvinnu og
öllu. Þetta þýðir að kona með
meðallaun er að fá 100 til 150
þúsund krónum meira í orlofinu
en áður fékkst og karl, með t.d.
200 þúsund á mánuði, fær 72
þúsund frá ríkinu og 80% af 128
þúsund króna mismuninum frá
vinnuveitandanum og svo fá allir
að auki 36.600 króna fæðingar-
styrk frá bönkunum," segir Frið-
bert. -FÞG
INNLENT
Sigur Rós í út-
flutningi
Hljómsveitin Sigur Rós hefur
gert samning við breska út-
gáfufyrirtækið Fat Cat um út-
gáfu á þriggja laga plötu sem
kemur út í Bretlandi um mán-
aðamótin ágúst-september.
Þessa dagana er hljómsveitin
að gefa út stóra plötu sem ber
heitið Agætis byrjun, en plöt-
unni verður dreift í verslanir
ytra. I gærkvöld var hljóm-
sveitin með útgáfuteiti þar
sem boðið var upp á kaffi,
kamjravín, bjór og pönnukök-
ur. I kvöld heldur hún svo út-
gáfutónleika í Islensku óper-
unni. Mikill áhugi er á tón-
leikunum og seldust miðarnir
á þá upp á einum degi. Frést
hefur af því að fólk ætli að
safnast saman á Kaffi Akureyri
og Orminum á Egilsstöðum til
þess að hlýða á tónleikana sem
verða í beinni útsendingu Rás-
ar 2.
íslandsflug tók í notkun nýja Boeing þotu í gær afgerðinni 737 300. Vélin tekur 126 farþega í sæti og verður m.a. í
leiguflugi í sumar til Kaupmannahafnar, Gautaborgar, Rímini og Madrídar. Á sama tíma tók íslandsflug í notkun nýja
flugfreyjubúninga en þeir voru hannaðir afítölskum, frönskum og íslenskum hönnuðum. -mynd: hilmar þór
Tölvuormur flakkar
iun heiniiim
Vísar^agn-
rýniabug
Axel Gíslason,
forstjóri VÍS,
vísar gagnrýni
forsætisráð-
herra og ann-
arra aðila á bug
hvað varðar
óeðlilega miklar
hækkanir á bif-
reiðaiðgjöldum í
kjölfar nýrra
skaðabótalaga. „Við höfum átt
fund með Fjármálaeftirlitinu og
veitt allar upplýsingar sem þeir
þurfa á að halda. Við höfum
ekkert að fela,“ segir A\el.
Umræðan um gildan bótasjóð
tryggingafélaganna, sem reyndar
eru bókfærðir sem vátrygginga-
skuld, er á misskilningi byggð að
sögn Axels: „Bótasjóðirnir eru
stofnaðir til að gera upp tjón
vegna liðins tíma. Tjón framtíð-
arinnar verður að greiða af ið-
gjöldum framtíðarinnar. Ef það
tjón ætti að greiðast af einhverj-
um öðrum peningum, væri verið
að millifæra peninga milli for-
tíðar og framtíðar. Ef iðgjöldin
yrðu of lág á einum tíma myndi
það bitna á tryggingatökum
framtíðarinnar sem ekki er
hægt. Það hvílir á okkur mjög
stíf krafa um að iðgjöldin standi
undir tjónakostnaði og kostnaði
við rekstur félaganna,“ segir
Axel. - BÞ
Símtöl lækka
Landssíminn hefur ákveðið í til-
raunaskyni að lækka verð á sím-
tölum til Bandaríkjanna frá 1.
júlí til 31. ágúst. Nemur lækk-
unin um 20% á dagtaxta þannig
að mínútugjald lækkar úr 40 kr.
í 32 kr. Næturtaxti verður sá
sami og dagtaxti. Hugmyndin er
að gera könnun á áhrifum þess-
arar lækkunar á símnotkun.
„Þetta er bara byrjim-
in,“ segirAtliMár
Guðmimdsson veiru-
sérfræðingur.
Skæðar tölvuveirur fara reglu-
lega á kreik um heiminn og get-
ur tjón þeirra oft verið gífurlegt.
Nú f vor hafa tvær skæðar veirur,
Melissa og Chernobyl, herjað
allillilega á landann og ollu þær
nokkru tjóni. Nú eru Iíkur á að
enn einn skaðræðisgripurinn,
Worm.ExpIore.Zip, komi til
landsins en að þessu sinni er það
ekki veira heldur ormur. Veirur
smita hluti en ormar gera það
ekki. Hins vegar geta ormar far-
ið um allt kerfið og fjölgað sér
þar. Atli Már Guðmundsson hjá
Friðriki Skúlasyni ehf. segir að
þessi ormur færist á milli PC-
tölva sem viðhengi í tölvupósti.
„Ormurinn þurrkar ekki út skrána
á harða disknum heldur breytir
stærð hennar niður f núll og þá
myndast hættan á því að stýri-
kerfi tölvunnar skrifi yfir gögnin
sem eru á skránni," segir Atli.
Ormurinn getur einnig sent sig
sjálfur áfram í gegnum ólesinn
póst viðkomandi. Upphaf orms-
ins má rekja til Israels og núna
hefur hann dreifst út um allan
heim og valdið usla. Að sögn Atla
er hægt að sækja uppfærslur á
orminum á veirugagnagrunni
sem er á complex.is en veiru-
gagnagrunnur Friðriks Skúla-
sonar ehf. er með um 40.000
veirur. Með sívaxandi notkun á
Netinu má gera ráð fyrir að mun
fleiri ormar og veirur fari á flakk
um heiminn á næstu misserum.
„Þetta er bara byijunin," segir
Atli. -ÁÁ
Búast má við mikilli aðsókn í
Húsdýragarðinn um helgina.
Selkópiir í Hús-
dýragarðmiun
Sá sjaldgæfi atburður gerðist í
Húsdýragarðinum í Laugardal
f fyrrinótt að urtan Kobba
kæpti „Iitlum og sætum"
selkóp, eins og forsvarsmenn
garðsins orðuðu það í fréttatil-
kynningu. Það sjaldgæfa er
nefnilega að urtur kæpi í dýra-
görðum. Tímasetningin er ein-
nig skemmtileg því selkópsurt-
an Rán fæddist 11. júní fyrir
ári síðan. Þau í Húsdýragarð-
inum hvetja alla til að koma
og skoða kópinn unga.
Guirnax næsti
skólafuUtrúi
Skólanefnd Akureyrar hefur
samþykkt að mælast til þess
við bæjarstjórn Akureyrar að
Gunnar Gíslason, skólastjóri
Valsárskóla á Svalbarðsströnd,
verði ráðinn sem næsti skóla-
fulltrúi grunnskóladeildar Ak-
ureyrarbæjar. Bæjarstjórn
fjallar um málið þriðjudaginn
15. júní. Aðrir umsækjendur
voru Sturla Kristjánsson, sál-
fræðingur á Akureyri, og Karl
Erlendsson, skólastjóri Þela-
merkurskóla. Guðmundur Þór
Asmundsson, sem gegnt hefur
starfinu undanfarin ár, hverf-
ur nú innan tíðar til starfa hjá
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur-
borgar. -GG