Dagur - 15.07.1999, Blaðsíða 8

Dagur - 15.07.1999, Blaðsíða 8
8 - FIM M TÍIDAGUH 1 S . J V L í 19 9 9 LKgttr FIMMTUDAGUR 1S. JÚLÍ 1999 - 9 FRÉTTA SKÝRING Gcymdur grænn bankastjórastóll FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDS- SON SKRIFAR Seðlabaiikastjórastóll í eigu Framsóknar- flokksius hefur staðið auður í þrettáu máu- uði. Hætt var við að fækka bankastjórum og hermt er að HaUdór Guðhjamasou fái græna stóUun. And- staðau gegu ráðagerð- fuui fer vaxaudi, jafn- vel innan Framsóknar- flokksins. I Seðlabankanum ríkir nú sú óvenjulega staða, að það hefur vantað einn bankastjóra uppá að Iögum sé fullnægt, þeir hafa verið tveir í rúmt ár eftir að Steingrím- ur Hermannsson lét af störfum í júní í fyrra. Það einkennilega við þessa stöðu er að það virðist ekki bitna á rekstri bankans á nokkurn hátt að Steingrímur hafi hætt og enginn sest í stólinn hans. Sem aftur hefur ýtt undir þá kenningu að öldungis nóg sé að hafa einn Seðlabankastjóra frá og með þeim tíma að ráðningartími núverandi bankastjóra rennur út eða þegar Birgir Isleifur Gunnarsson lætur af störfum, en hann er nú 63 ára að aldri. Seðlabankinn hefur um árabil verið umdeild stofnun og stjórn- arherrar þar oft fengið yfir sig harða gagnrýni og háðsglósur. A stundum hefur Seðlabankinn ver- ið kallaður Lífsnautnamusterið við Arnarhól og því haldið fram að lífið þar snúist að minnsta kosti jafn mikið um söfn, skógrækt, sumarhús í keyptum dal og heilsurækt og um efnahagsmál. Einnig hefur verið sagt að eina raunverulega efnahagsmál Seðla- bankans sé að prenta seðla og slá mynt í stað þeirra peninga sem úreldast. Slíkar fullyrðingar eru að sjálfsögðu einfaldar alhæfing- ar, en fara vel með staðhæfing- unni um að nóg sé að hafa einn Seðlabankastjóra. Og landsstjórn- endur hafa vissulega skoðað vel þann möguleika að fækka banka- stjórunum. Það gerðu núverandi stjórnar- herrar fyrir tveimur árum. Frum- varp var smíðað og er til, en horf- ið var frá ráðagerðinni. A síðasta ári spurði Agúst Einarsson, Finn Ingólfsson, bankamálaráðherra, að því hvort hann teldi ekki tíma- bært að fækka Seðlabankastjórum í tilefni af brotthvarfi Steingríms Hermannssonar og þá sagði Finn- ur: Finnur á móti lækkun „Þrátt fyrir að verkefni Seðla- bankans séu eitthvað að minnka tel ég ekki fært að fækka banka- stjórum vegna þess að ég tel að það séu næg verkefni eftir fyrir þá þrjá bankastjóra sem þarna verða að störfum og ég tala ekki um þegar mikill verkmaður er að yfir- gefa seðlabankastjórastólinn... mun ég ekki styðja tillögu sem Sumir draga i efa að þörf sé á þremur Seðlabankastjórum, t.d. sé aðeins einn í Bandaríkjunum og Bretlandi. Aðrir telja efnahagsmál lands og heims svo margþætt að ekki veiti af þremur bankastjórum. Að óbreyttu finnur Finnur mann í auða stólinn og í kjölfarið flyst Seðlabankinn undir regnhlíf forsætisráðuneytisins. fram kæmi um það að fækka bankastjórum Seðlabankans frá því sem nú er... Hins vegar kemur að því að seðlabankalögin eins og önnur lög sem hafa verið í sí- felldri endurskoðun um fjár- magnsmarkaði munu verða tekin til endurskoðunar en engin ástæða er til þess að vera með vangaveltur um það á þessari stundu til hvaða niðurstöðu sú endurskoðun mun leiða... og ég tel eðlilegt að innan tíðar verði farið að huga að því með nefndar- starfi hvort ekki sé rétt að taka ákveðna hluti og fram fari heild- arendurskoðun á Iögunum um Seðlabanka Islands.“ Enn bólar ekkert á endurskoð- uninni og stjórnarherrarnir hafa ekki frekar en forverar þeirra staðið upp úr þeim fasa sem þessi stólamál hafa verið í; Seðlabanka- stjórar eru flokkspólitískt skipaðir og gjarnan eru þeir svokallaðir „uppgjafapólitíkusar". Þessa stað- reynd kallaði Jón Baldvin Hanni- balsson eitt sinn „hreint glapræði", en fékk engu um breytt í ráðherratíð sinni. Seðlabankinn varð til „sem skúffa í Landsbankanum" árið 1957 og þá stýrðu bankanum Vil- hjálmur Þór, framsóknarmaður og Jón G. Maríusson, sem var „sér á kvisti" og óflokksbundinn, en sagður hallur undir Sjálfstæðis- flokkinn (sat í bæjarstjórn Jsa- fjarðar 1928-30 fyrir hægri- menn). Þeir komu báðir frá Landsbankanum. Bankinn varð þó til í núverandi mynd með Iög- um árið 1961 og þá bættist Jó- hannes Nordal í bópinn og var hann sagður framlag Alþýðu- flokksins. Vilhjálmur Þór hætti 1964 og við af honum tók Sigtryggur Klemenzson, miðstjórnarmaður úr Framsóknarflokknum. Það framsóknarsæti Iosnaði 1971 og í það settist Svanbjörn Frímanns- son, einnig með grænt flokksskír- teini. Hann sat í tvö ár en þá riðl- aðist jafnvægið með sögulegri undantekningu þegar sósíalistinn Guðmundur Hjartarson settist í stólinn sem merktur var Fram- sóknarflokknum. Það leiðréttist ekki fyrr en árið 1984 að Tómas Arnason settist í stólinn. Stein- grímur Hermannsson fékk stólinn 1994 en lét hann af hendi f júní 1998. Það pláss hefur enn ekki verið fyllt þrettán mánuðum sfðar. F.inn fagmaður og tveir pólitíkusar Stóll Jóns G. Maríassonar Iosnaði 1967 og í hann settist Davíð Olafsson, viðurkenndur sjálfstæð- ismaður. Geir Hallgrímsson, fv. formaður Sjálfstæðisflokksins, tók við af honum 1986 og frá 1991 hefur setið í þessum stól Birgir ísleifur Gunnarsson, fyrr- um borgarstjóri, þingmaður og ráðherra flokksins. Hvað þriðja stólinn varðar er erfiðara að segja til um pólitíska stimpilinn. Jóhannes Nordal var uppástunga Alþýðuflokksins, en síðar ríldu vinstri menn miklu frekar telja Jóhannes til sjálfstæð- ismanna. Hitt er annað mál að þegar Jóhannes hætti 1993 settist í stólinn kratinn Jón Sigurðsson. Hann staldraði þó stutt við og 1994 settist í stólinn Eiríkur Guðnason, sem lengi hafði starf- að í Seðlabankanum sem hag- fræðingur og síðan aðstoðar- bankastjóri. Hans skipan er al- mennt talin fagleg frekar en póli- tísk. Og kannski á við sú fullyrð- ing eins viðmælanda blaðsins, að um langt árabil hafi þess verið gætt að „ávallt sé einn fagmaður við hlið uppgjafapólitíkusanna tveggja" og átti þá við Jóhannes, Jón og nú Eirík. Finnur Ingólfsson, bankamálaráð- herra: „Ég tel að það séu næg verkefni eftir fyrir þrjá bankastjóra... mun ég ekki styðja tillögu sem fram kæmi um það að fækka bankastjórum Seðlabankans frá því sem nú er.“ En það er sem sagt Framsókn- arflokkurinn sem „á“ lausa stólinn sem Finns er að fylla í. Lengi hef- ur verið altalað að ástæða þess að ekki hafi verið skipað í stólinn svo mánuðum skiptir, sé sú, að stóll- inn hafi verið frátekinn fyrir Hall- dór Guðbjarnason og fullyrða sumir heimildarmanna blaðsins að Halldór hafi Ioforð frá Finni uppi í erminni. Finnur hafi lofað Halldóri þessu þegar Halldór sté upp úr stól Landsbankastjóra. Síðan hafi menn einfaldlega verið að bíða eftir niðurstöðunum í rannsókn Landsbanka- og Lindar- mála. Nú sé niðurstaðan ljós, Halldór sagður með hreinan skjöld og því ekkert því til fyrir- stöðu að auglýsa stöðuna og skipa Halldór. En tíminn læknar ekki alltaf öll mein og nú herma fregnir að and- stöðu við skipan Halldórs, sé ekki bara að finna meðal pólitískra andstæðinga, heldur einnig innan Framsóknarflokksins. Þar er nú verið að ræða aðra möguleika og tvö nöfn nefnd til sögunnar; dr. Amar Bjarnason og Leó Löve. Finnur Ingólfsson, bankamála- ráðherra, er síðan í þeirri stöðu að verða að fylla upp f éýðuna áður en stjórnarsamþykkt sú tekur gildi, sem hljóðar uppá að Seðla- bankinn færist undir forsætis- ráðuneytið (Davíð Oddsson), en að í staðinn komi Byggðastofnun. Jóhanna: Fullknminn dónaskapur Asta R. Jóhannesdóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, flutti á síð- asta þingi (fyrir sumarþing) frum- varp til laga um Seðlabankann, sem gerði ráð fyrir fækkun banka- stjóranna í einn, en frumvarpið náði ekki fram að ganga og um Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmaður: „Það hlýtur líka að vera fjarstæða að hér á landi þurfi fleiri en einn bankastjóra til þess að stýra dag- legum rekstri Seðlabankans og má til samanburðar nefna að í Banda- ríkjunum og í Bretlandi nægir einn bankastjóri til þess að stýra marg- falt umfangsmeiri rekstri." það varð aðeins örstutt umræða að bankamálaráðherra fjarstödd- um og tók enginn stjórnarþing- manna til máls. I greinargerð mef frumvarpinu sagði Ásta meðal annars: „Stóll bankastjóra við Seðla- banka Islands hefur nú verið laus um margra mánaða skeið án þess að staðan hafi verið auglýst, enda hefur rekstur bankans síður en svo gengið verr þótt eigi sé fyllt lögmælt tala bankastjóra. Það hlýtur líka að vera fjarstæða að hér á Iandi þurfi fleiri en einn bankastjóra til þess að stýra dag- legum rekstri Seðlabankans og má til samanburðar nefna að í Banda- ríkjunum og í Bretlandi nægir einn bankastjóri til þess að stýra margfalt umfangsmeiri rekstri. Því er hér lagt til að sú staða sem nú er laus verði ekki fyllt og fækkað verði um einn bankastjóra þegar skipunartími seðlabankastjóra rennur næst út, en þeir eru nú skipaðir til fimm ára eins og kunn- ugt er.“ Jóhanna Sigurðardóttir tjáði sig á dögunum um meinta ákvörðun um að skipa Halldór Guðbjarna- son í stöðu Seðlabankastjóra og fann henni allt til foráttu. I sam- tali við Dag segir Jóhanna að það eigi að stefna að því að fækka bankastjórunum, en ekki fjölga. „Eg satt að segja hélt að það væri stefnan sem uppi væri og vísa ég til Landsbankans í þeim efn- um. En það er reglan frekar en undantekningin að Framsóknar- flokkurinn og Sjálfstæðisflokkur- inn skipti á milli sín toppembætt- unum í þjóðfélaginu. Eg skal ekki fullyrða hvort ráðherra sé búinn að taka ákvörðunina um Halldór, en það hefur gerst áður að ákvörð- un hafi verið tekin burt séð frá auglýsingum og umsóknum. Sem er fullkominn dónaskapur gagn- vart þeim sem hugsa sér að sækja um slíkar stöður," segir Jóhanna. Framsóknarmaöur mun standa sig vcl Davíð Aðalsteinsson, bóndi að Arnbjargarlæk og fyrrum þing- maður, er fulltrúi Framsóknar- flokksins í bankaráði Seðlabank- ans og hann segir aðspurður að lög geri ráð fýrir þremur banka- stjórum og að hann telji fulla þörf á þeim fiölda. „Það getur vel komið til greina að breyta lögunum hvað þetta snertir, ef skoðun á málinu leiðir slíkt í Ijós. Málið var skoðað, en frumvarp í þessa veru hefur ekki komist áfram. Það má segja að stærri peningastofnanir Hafi ein- faldari stjórnkerfi, en stjórnun bankans hefur gengið alveg ágæt- lega með þessari þrískiptingu. Þarna hafa verið góðir menn, þrautreyndir á sviðum sem hafa gagnast þessu mjög vel, mjög kunnugir í völundarhúsi stjórn- sýslunnar og stjómkerfisins. Ollu má breyta, en á meðan em lögin óbreytt og ráð fyrir því gert að þriðji bankastjórinn bætist við." Davíð segir að það sé viðskipta- ráðherra sem hafi allan veg og vanda í málinu og að engar form- legar meldingar hafí verið milli ráðherra og bankaráðs um þetta mál. „Hins vegar tölum við við- skiptaráðherra saman. En það er ekki allt borið á torg. Eg gef ekk- ert út á vangaveltur um að stóllinn sé frátekinn og að hann sé eign Framsóknarflokksins. Það er vissulega ákveðin hefð í gangi í þessum málum, þarna voru Tómas Árnason og síðan Stein- grímur Hermannsson og þeir stóðu sig vel. Sem segir mér að ef það ræðst í þetta framsóknarmað- ur þá muni hann standa sig vel! Eg mun gera mitt til að hann geri það! En almennt talað þá ræður enginn við umræðu í opnu þjóðfé- lagi. Fólk má ræða og skrifa um hvað sem er. Það getur vel verið að þeir sem ráða taki á endanum eitt- hvert tillit til þess sem rætt er, en það verður bara að fá að koma í Ijós," segir Davíð Aðalsteinsson. Einn er sá maður sem hefur far- ið heilan hring í pólitískri úthlut- un á toppstöðum; Sverrir Her- mannsson, sem var þingmaður og ráðherra, en var síðan skipaður Landsbankastjóri, þar til hann neyddist ásamt kollegum sínum til að segja af sér á síðasta ári. hvað finnst Sverri um umræðuna um Seðlabankastjórastól Framsóknar- flokksins? Stjónunálamcim ekki óalandi og óferjandi „Það getur vel verið að það verði framtíðin að einn bankastjóri sé yfir Seðlabankanum, en ég tel það ekki tímabært núna. Þetta er margþætt starf og ég sé ekki að rök séu fyrir fækkun nú. Sérhæf- ing verður æ meiri í þjóðfélaginu og í fjármálum lands og heims eru verkefnin orðin geysilega viðamik- il og þess vegna held ég að veiti ekki af þremur mönnum uppi í Seðlabanka. Annað mál er hvort menn vilji beina þessu meira inn á þær brautir að hér sé um algjör- lega faglegt mat að tefla við ráðn- ingar." Sverrir telur ljóst að í gangi sé valdabarátta milli embættismanna og stjórnmálamanna. „Embættis- mannaliðið er alltaf að sækja á og hefur sótt svo á að ráðuneytaemb- ættismannalýðurinn og fram- kvæmdavaldið hafa gjörsamlega gengið yfir Alþingi. Það þarf að snarsnúa þessu við og gera Alþingi að köngulónni í vefnum á ný, en ekki afgreiðslustofnun. Við höfum ekki lengur þingbundna stjórn heldur stjórnbundið þing." Sverrir gefur ekki mikið fyrir umræðuna um að uppgjafapóli- tíkusar veljist í þetta. „Við höfum það kerfi, að fólk velur menn til pólitískrar forystu í landinu og það er okkar lýðræðisfyrirkomulag. Að sömu menn eigi, vegna reynslu sinnar í pólitík, að teljast óalandi og ófeijandi til að gegna þýðingar- mestu störfum í þjóðfélaginu er með ólíkindum," segir Sverrir. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki að ná tali af Finni Ing- ólfssyni vegna þéssarar greinar, né heldur af Halldóri Ásgrímssyni, formanni Framsóknarflokksins, eða Davíð Oddssyni, forsætisráð- herra. Allar þrær fullar á Eskifirði. Eskifj ardarhöfn dýpsta höfnin Eskiljarðarhöfn er orðin dýpsta höfn landsins, en 10 metra dýpi er við nýtt 120 metra stálþil, sem þar er nýlokið við að reka niður. Eftir á að fylla að þilinu og ganga frá þekju, en þessi hluti hafnar- innar verður formlega tekinn í notkun á haustmánuðum. Þar með geta stærstu nótaskipin með mestu djúpristuna auðveldlega lagst þar að með fullfermi, sem og stór skemmtiferðaskip, en von- ir standa til að þessi framkvæmd muni laða stór skemmtiferðaskip til Eskifjarðar. Allar þrær eru nú fullar hjá Hraðfrystihúsi Eskiljarðar. Miklu er landað af kolmunna þar til bræðslu og svo hafa færeyskir síldarbátar landað þar afla, sem fengist hefur í íslensku fiskveiði- Iögsögunni. Færeyingar eiga enn töluvert óveitt af sínum kvóta úr norsk-íslenska síldarstofninum, andstætt Islendingum, sem veitt hafa allan sinn kvóta meðan fitu- prósenta síldarinnar var Iægri og síldin þar með verðminni. Eitt stærsta nótaskip flotans, Hólmaborg, sem er í eigu Hrað- frystihúss Eskiíjarðar, er í véla- skiptum í Danmörku, en í skipið verður sett 7500 ha vél, sem ger- ir það mun hæfara til kolmunna- veiða en verið hefur. Einnig verð- ur skipt um skrúfu sem og tog- og flottrollsvindur skipsins og kosta þessar breytingar allt að 300 milljónir króna. Hólmaborgin er væntanleg til Eskifjarðar um 20. júlí nk. — GG Stórlækkun hjá Orkubúi Vestfjarða Rafmagn til húshitiui ar er 28% ódýrara hjá Rafveitu Akureyrar en hjá RARIK og 25% ódýrara en hjá Orku- húi Vestfjarða. Vegna niðurgreiðslna er raf- magn til húshitunar 30% ódýrara hjá RARIK en á Akureyri og 36% ódýrara á Vest- íjörðum en á Akureyri. Oðru hvetju gjósa upp umræður um að réttast væri að sameina Orkubú Vestíjarða, Landsvirkjun eða Rafmagnsveitur ríkisins, og einnig eru margir þeirrar skoðunar að á Islandi ætti aðeins að vera starfrækt eitt orkuframleiðslu- og orkusölufyrirtæki, Islandsveita, e’ a eitthvað í þeim dúr. Þessi um- ræða snertir einnig oft ýmsar bæj- arveitur, s.s. Rafveitu Hafnarljarð- ar og Rafveitu Akureyrar. Sé hins vegar skoðuð þróun gjaldskrár Orkuveitu Vestíjarða annars vegar og Landsvirkjunar hins vegar, hljóta þær raddir að Iækka. Almennur taxti Orkuveit- unnar hefur lækkað um 0,7% á síðustu liðlega 10 árum meðan gjaldskrá Landsvirkjunar hefur hækkað um 39,4% á sama tíma. Afltaxti Orkuveitunnar hefur hins vegar hækkað um 17,6% og hús- hitunartaxti um 27,2% en síðast- nefndu hækkuninni hefur að mestu verið mætt um auknum niðurgreiðslum úr ríkissjóði. Al- mennur taxti Orkubús Vestfjarða er 17% lægri en hjá RARIK en 2% hærri en hjá Orkuveitu Reykjavík- ur. Afltaxti Orkubús Vestfjarða er 21% Iægri en hjá RARIK og 9% lægri en hjá Orkuveitu Reykjavík- ur. Húshitunartaxti Orkubúsins er 8% lægri en hjá RARIK en 40% hærri en hjá Orkuveitu Reykjavík- ur. Rafmagn fyrir heimili, iðnað, verslanir, skrifstofur, skóla og alla almenna notkun er um 25% ódýr- ari á Akureyri en hjá RARIK. Gjaldskrá fyrir heimili og fyrirtæki er 5,43 krónur lyrir kWh hjá Raf- veitu Akureyrar auk 2.495 króna fastagjalds en 7,03 krónur fyrir kWh hjá RARIK auk 4.130 króna fastagjalds. Húshitun hjá Rafveitu Akureyrar með 29.000 kWh notk- un á ári kostar 95.959 krónur en 132.820 krónur hjá RARIK. Nið- urgreiðslur á húshitun til við- skiptavina RARIK nema hins veg- ar 2,26 kr./kWh þannig að notk- unin kostar 67.570 krónur sem er 28.389 krónum lægri en hjá Raf- veitu Akureyrar. Rafmagn til hús- hitunar er því um 28% ódýrara á Akureyri en hjá RARIK, en vegna niðurgreiðslna er rafmagn til hús- hitunar um 30% ódýrara hjá RARIK en á Akureyri. Heitt vatn til húshitunar er einnig niðurgreitt hjá RARIK. Ef borin er saman verðskrá Raf- veitu Akureyrar og Orkubús Vest- fjarða kemur í ljós að rafmagn fyr- ir heimili, iðnað, verslanir, skrif- stofur, skóla og alla almenna notk- un er 12% ódýrara á Akureyri en á Vestfjörðum. Gjaldskrá fyrir heim- ili og fyrirtæki á Vestfjörðum er 5,99 krónur fyrir kWh auk 3.563 króna fastagjalds. Húshitun á VestQörðum með 29.000 kWh notkun á ári kostar 126.702 krón- ur en niðurgreiðslur til húshitunar viðskiptavina Orkubús Vestfjarða nema 2,24 kr./kWh þannig að þeir greiða 61.742 krónum lægra en viðskiptavinir Rafveítu Akureyrar greiða. Rafmagn til húshitunar er því um 25% ódýrara á Akureyri en á Vestfjörðum, en vegna niður- greiðslna er rafmagn til húshitun- ar um 36% ódýrara á til viðskipta- vina Orkubús Vestfjarða en til við- skiptavina Rafveitu Akureyrar. Heitt vatn til húshitunar er einnig niðurgreitt á Vestfjörðum. — GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.