Dagur - 16.07.1999, Qupperneq 1
ölmilljóniir
rádherraiieftum
Ráðherramir hðfðu
hátt í hundrað milljón-
ir króna til frjálsrar
ráðstðfunar á síðasta
ári og eyddu 81 milljón
í ýmsa styrki. Bjðm
Bjamason á toppnum
eu Davíð Oddsson
eyddi næstum engu.
10 ráðherrar ríkisstjórnarinnar
eyddu samtals 81 milljón króna á
síðasta ári samkvæmt heimild um
ráðstöfunarfé ráðherra á fjárlögum
1998. Heimildir voru þó ekki allar
nýttar og ekki óh'klegt að talan eigi
eftir að hækka við afgreiðslu fjár-
aukalaga. Samkvæmt svörum ráð-
herra fer megnið af ráðstöfunarfé
þeirra í málefni sem tengjast mála-
flokkum ráðuneyta þeirra, en á
þessu eru þó nokkrar undantekn-
ingar.
Skiptingin á ráðstöfunarfé ráð-
herra var nokkuð jöfn milli stjórn-
arflokkanna, þar sem Framsóknar-
flokksráðherrarnir fimm eyddu
41,6 milljónum og Sjálfstæðis-
flokksráðherrarn-
ir fimm 39,7
milljónum. Má
segja að helm-
ingaskiptin geti
vart verið jafnari.
Er Bjöm Gins-
berg-aðdáandi?
Hver ráðherra
hafði því að með-
altali 8 milljónir
króna til fijálsrar
ráðstöfunar, en
þeir voru þó með
töluvert misháar
heimildir. Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
stóð uppi á toppnum í árslok með
17,4 milijóna króna ráðstöfunarfé
ráðherra, en lægstur var Davíð
Oddsson forsætisráðherra með að-
eins 500 þúsund krónur. Björn
ráðstafaði megninu af sínu fé í
mennta- og menningartengd verk-
efni, en sumt var á mörkunum hjá
honum. Nefna má ESB-ferð fjöl-
brautarskólanema (130 þúsund),
minningarathöfh í New York um
AUen Ginsberg (80 þúsund), rit
um sögu Loftleiða/Flugleiða í Lux-
emburg (150 þúsund) og dvöl rit-
höfundar í Visby
(50 þúsund).
Björn hirðir síðan
ekki um að sund-
urgreina hjá sér
liðinn „ógreidd
loforð“ upp á 810
þúsund krónur.
Hófsemi Dav-
íðs vekur athygli.
Hann hafði fimm
milljónir til ráð-
stöfunar, en ráð-
stafaði aðeins
500 þúsund
krónum. Náð fyr-
ir augum hans
hlutu nautgriparækt á Grænlandi,
Iþróttasamband lögreglumanna og
Björgunarsveitin Fiskaklettur
vegna fjallgönguleiðangurs á Ama
Dablam.
Biblíukaup og ráðstefna sam-
kynhneigdra
Hæstur framsóknarmanna og í
öðru sæti allra ráðherra var Finnur
Ingólfsson iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra með 11 milljónir króna,
en þar af fóru nær sex milljónir
króna í tækjakaup vegna upplýs-
ingamála og heimasíðugerðar á
vegum iðnaðarráðuneytisins.
Finnur var síðan duglegur að út-
hluta styrkjum samkvæmt öðrum
fjárlagalið, til nýsköpunar og mark-
aðsmála, þar sem meðal annars
ýmis menningarverkefni hlutu
styrki. A svipuðum slóðum með 11
milljónir var Þorsteinn Pálsson
dóms- og sjávarútvegsráðherra, en
þar af fóru fimm milljónir í ýmis
verkefni sjálfs dómsmálaráðuneyt-
isins.
Næstur í röðinni kom Guð-
mundur Bjarnason landbúnaðar-
og umhverfisráðherra með 10
milljónir króna. Þá vekja ýmsar út-
hlutanir Halldórs Asgrímssonar
utanríkisráðherra athygli, en hann
styrkti meðal annars biblíukaup
Gideonsmanna um 100 þúsund
krónur, fræðsluferð sjúkraliða um
50 þúsund, kynnisferð ASI til
Brussel um 250 þúsund og veitti
20 þúsund króna styrk vegna
YGLYO, alþjóðlegrar ráðstefnu
samkynhneigðra í Hollandi.
Fyrir utan Ijárlagaliðinn ráðstöf-
unarfé ráðherra hefur hvert ráðu-
neyti útgjaldalið fyrir ráðstöfun
ósldptra liða og þar er einnig að
finna margvíslegar styrkveitingar.
- FÞG
Björn Bjarnason eyddi mestu af
ráðstöfunarfé síðasta árs.
Nýtt
Bláalón
Ný aðstaða Bláa lónsins var vígð í
gær að viðstöddu fjölmenni og eru
allar aðstæður nú betri en fyrir
var. Forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, flutti ávarp við vígslu
hinnar nýju heilsulindar Bláa
lónsins og sagði meðal annars við
það tækifæri að viðstaddir væru
þar vitni að undraverki. „Við sjá-
um hvernig atorka og einbeitni,
máttur samtaka og samvinnu, inn-
sæi og hugvit, hafa fært okkur
mannvirki sem eru glæsileg sam-
tvinnan á sköpunarverki náttúr-
unnar og þörf mannsins fyrir heil-
brigði og heilsubót," sagði Olafur
Ragnar í ávarpi sínu. Hann sagði
að embætti forseta Islands og öðr-
um hafi með Bláa lóninu verið
færður nýr áfangastaður fyrir gesti
þjóðarinnar.
Úlafur Ragnar Grímsson ásamt forráðamönnum Bláa lónsins, þeim Edvard Júlíussyni stjórnarformanni og Grími
Sæmundsen framkvæmdastjóra við vígslu nýja lónsins í gær. - mynd: pjetur
Manns var leitað í Leifsstöð vegna
rannsóknar málsins.
Morðí
Reykjavík
Eftir hádegi í gær fannst karl-
maður á fimmtugsaldri látinn í
íbúð sinni sem er í nálægð mið-
borgarinnar. Samkvæmt óstað-
festum upplýsingum bjó maður-
inn við Leifsgötu. Af áverkum að
dæma má ætla að honum hafi
verið ráðinn bani. Maðurinn bjó
einn í íbúð sinni. Samkvæmt
heimildum Dags hafði hinn látni
komið lítillega við sögu Iögregl-
unnar áður.
Um Ieið og hinn látni fannst
hafði Lögreglan í Reykjavík sam-
band við Keflavíkurflugvöll og
aðra sambærilega staði. Starfs-
fólk Leifsstöðar var beðið að vera
á varðbergi gagnvart manni sem
lögreglan sýndi starfsfólkinu
mynd af. Svo virðist vera sem um
lögreglumynd hafi verið að ræða
þannig að ætla má að hann hafi
komið við sögu lögreglunnar
áður. Lögreglan fór í Leifsstöð
og spurði flugfreyjur spjörunum
úr um málið og hvort þær hefðu
orðið varar við umræddan mann,
sem samkvæmt heimildum
blaðsins er rauðbirkinn en að
mestu sköllóttur. Hann leit út
fyrir að vera á fertugsaldri.
Saknað í einn dag
Samkvæmt fréttatilkynningu
Lögreglunnar í Reykjavík var
leitað í gærkvöld að rúmlega fer-
tugum manni vegna málsins.
Einnig var leitað að bifreiðinni
VI 536 sem er grá Renault 19
Chamande fólksbifreið árgerð
1992. Ómar Smári Ármannsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn segir
að hinn látni hafi fundist þegar
vinafólk var farið að hafa áhyggj-
ur af honum en að sögn Omars
hafði mannsins verið saknað í
um einn dag. Samkvæmt heim-
ildum Dags er talið að maðurinn
hafi látist aðfaranótt miðviku-
dags. Maðurinn og bifreiðin voru
ófundin þegar Dagur fór í prent-
un í gærkvöld. — ÁÁ
Venjulegirog
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524
WOfiWW/OE EXPRESS
EITT NÚMER AÐ MUNA
5351100