Dagur - 16.07.1999, Blaðsíða 5
ar
FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 16.
■;; t. <;;; r ■:
JÚLÍ 1999
Jj-
50 mjlljóiijr í ferða-
þi ónustu í Ólafsfírði
-< *
Nýju bjálkahúsin setja sérstæðan svip á nágrenni Óiafsfjarðar og minna svoiítið á útiönd. Þau valda byitingu í
ferðaþjónustu í bænum. - mynd: brink
Asgeir Asgeirsson og
Sæunn Axels eru stór-
huga í framkvæmdum
fyrir ferðamenn í
Ólafsfirði. Ásgeir við-
urkennir þó að hjónin
hafi meira vit á útgerð.
Bylting verður á framboði gisti-
rýmis í Olafsfirði innan skamms
þegar átta ný bjálkahús fyrir ferða-
menn verða tekin í gagnið. Fram
til þessa hefur Ólafsfjörður aðeins
getað hýst liðlega 20 ferðamenn á
hóteli bæjarins en eftir nokkra
mánuði verður hægt að bjóða allt
að 60 ferðamönnum upp á gist-
ingu. Asgeir Ásgeirsson og Sæunn
Axelsdóttir standa í þessum miklu
framkvæmdum en þau hafa verið
betur þekkt sem útgerðareigendur
til þessa.
Um ræðir átta bjálkahús sem
standa við Ólafsíjarðarvatn og eru
fjögur þeirra hugsuð sem viðhót á
gistirými Hótels Ólafsfjarðar. Hin
verða leigð út sjálfstætt. Ásgeir og
Sæunn keyptu hótelið árið 1996
en Ásgeir taldi 11 tveggja manna
herbergi vera fullknappt framboð í
gistiþjónustu, enda engir keppi-
nautar á þeim markaði í bænum.
„Við tókum á leigu Iand fyrir
smábátahöfn hér við vatnið og
grófum fyrir henni í fyrra. I fram-
haldinu skipulögðum við svo
bjálkahúsasvæðið. Fjögur hús-
anna eru fyrir hótelið en tvö meira
fyrir fjölskyldur og svo önnur tvö
stærst, með þremur svefnher-
bergjum. Síðan erum við að smíða
sjö róðrarbáta sem fólk getur feng-
ið til að veiða f vatninu,” segir Ás-
geir.
Smiða bátana líka
Sex húsanna eru þegar fullbyggð
og er von á fyrstu gestunum næsta
sunnudag. Síðustu tvö verða
smíðuð fyrir haustið og þá nemur
heildarljárfestingin um 50 millj-
ónum króna að sögn Ásgeirs. Ekki
er nóg með að Ásgeir og Sæunn
hafi haldið uppi útgerðinni í bæn-
um og hin síðari ár verið í burðar-
hlutverki í ferðaþjónustu, heldur
smíða þau sjálf bátana sem fýrr
greinir frá. Bátarnir eru smíðaðir á
lóð Hótels Ólafsfjarðar á bíla-
plani.
Haft hugann við físktnn
Framkvæmdirnar eru fjármagnað-
ar með Iánum úr ferðamálasjóði
og Sparisjóði Ólafsfjarðar. t>ar
sem Ólafsfjörður hefur ekki verið í
hópi eftirsóknarverðustu ferða-
mannastaða landsins hljóta út-
gerðarhjónin að taka dálitla
áhættu eða hvað? Ásgeir segist
ekki geta sagt nákvæmlega um
vaxandi vinsældir Ólafsljarðarbæj-
ar sem ferðamannastaðar enda
hafi hann meira verið upptekinn
við fiskverkunina! Hins vegar séu
möguleikamir miklir og ekki síst
yfir vetrartímann. „Héðan er mjög
stutt í skíðabrekkuna og svo eru
gönguslóðir troðnar hér um allt
bara eins og minkaslóðir. Þetta
svæði má einnig kalla snjósleða-
paradís og ég sé því ekkert til fyr-
irstöðu að við sjáum ferðamönn-
um fyrir afþreyingu allan ársins
hring,“ segir Ásgeir. — BÞ
Kristján Þór Júlíusson.
Hörð gagn-
rýni a SH
Bæjarráð Akureyrar ályktaði
harðlega í gær gegn Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna. Á fundi
ráðsins var tekið fyrir bréf bæj-
arstjóra tii SH sem sent var fyr-
irtækinu 4. júní að ósk bæjar-
ráðs. I bréfinu var stjórn SH
krafin svara við því á hvern hátt
stjórnin hygðist efna þau loforð
sem gefin voru bæjarstjórn með
bréfi, dagsettu 23. janúar 1995,
en nú hefur reyndin orðið sú að
SH hefur lokað skrifstofu sinni
á Akureyri. Lagt var fram svar-
bréf stjórnar SH frá 29. júní og
undirritað af stjórnarformanni
SH. Bæjarráði hugnast ekki
skýringar stjórnarformannsins
og ályktar eftirfarandi:
„Bæjarráð undrast svar stjórn-
arinnar, rökstuðning og afstöðu.
Ljóst er af svari stjórnarinnar að
félagið hyggst ekki standa við
þau fyrirheit sem gefin voru á
sínum tíma. Bæjarráð átelur
þessi vinnubrögð harðlega og
telur þau félaginu til lítils sóma
og ekki til þess fallin að vekja
áhuga á samskiptum við félag-
ið.“ - BÞ
Helmingur ráð-
herra í sumarfríi 1
INNLENT
Júli er tími sumarfrí-
auna og helstu ráða-
ineim þjóðarinnar eru
þar engin undantekn-
ing.
Helmingur ríkisstjórnar Davíðs
Oddssonar er í fríi þessa dagana,
ýmist hér á landi eða erlendis.
Davíð er sagður í frfi hér heima til
mánudags og er hann um leið
staðgengill Geirs Haarde, fjár-
málaráðherra, sem verður í fríi
næstu þijár vikurnar, og Sólveigar
Pétursdóttur, dóms- og kirkju-
málaráðherra, sem er í fríi til 26.
júlí. Sturla Böðvarsson, sam-
gönguráðherra, er erlendis í fríi
fram yfir helgi og staðgengill hans
á meðan er Árni M. Mathiesen,
sjávarútvegsráðherra. Björn
Bjarnason, menntamálaráðherra,
er einnig til staðar f sínu ráðu-
neyti þessa dagana.
Davíð Oddsson.
Minna er um sumarfrí hjá ráð-
herrum Framsóknarflokksins.
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráð-
herra, er kominn til starfa hér
heima fyrir eftir miklar annir
vegna formennsku í Evrópuráð-
inu. Finnur Ingólfsson, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, verður í fríi
meira og minna út þennan mán-
uð. Hann hefur verið í ferðalög-
um um hálendið, væntanlega að
hluta til í vettvangskönnun vegna
fyrirhugaðra stóriðju- og virkjana-
framkvæmda.
Páll Pétursson, félagsmálaráð-
herra, er á leið í frí eftir að hafa
verið að störfum í ráðuneytinu
samfara endurhæfingu á Reykja-
lundi síðustu vikurnar. Aðrir ráð-
herrar Framsóknarflokksins eru
að störfum, þau Ingibjörg Pálma-
dóttir, heilbrigðisráðherra, Siv
Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra
og Guðni Ágústsson, Iandbúnað-
arráðherra. Siv hefur verið burtu
einn og einn dag í mánuðinum og
Guðni er nýlega kominn úr
þriggja vikna fríi.
Um það er kveðið í lögum að
ráðherra þurfi að skipa sér stað-
gengil ef hann er erlendis eða get-
ur ekki sinnt störfum sínum sök-
um veikinda. Ef hann tekur sér frí
hér heima fyrir þarf ekki að skipa
sérstakan staðgengil. - BJB
ísfugl án sýkinga
I ljósi nýlegra frétta um matarsýkingar vegna camphylobacter og
gruns um að sýkingar megi rekja til kjúklinga hefur stjórn Isfugls ehf.
sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að margendurteknar
sýnatökur hjá fyrirtækinu og framleiðendum sem við það skipta hafi
allar reynst neikvæðar, það er að engin sýking hafi greinst. „Það er
afar mikilvægt að þeir framleiðendur sem vinna ötullega að sínum
gæðamálum og uppfylla skilyrði um sjúkdómaeftirlit njóti þess í um-
ræðunni um hugsanlega orsök sýkinga," segir meðal annars í yfirlýs-
ingu stjórnarinnar. - HI
Viðskipti með bréf í Básafelli
stöðvuð
Viðskipti með bréf í Básafelli hf. á Isafirði voru stöðvuð í gær. Svanur
Guðmundsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins telur að upplýsingum
sem byggt er á í ítarlegri frétt í DV í gær hafi verið stolið af skrifstofu
fyrirtækisins. Svanur hefur óskað eftir rannsókn lögreglu á málinu.
Um ræðir vinnuplagg úr fundargerðarbók og minnispunkta sem tekn-
ir voru saman í lok júní. I frétt DV eru raktar tillögur um eignasölu
og tölur úr rekstri en upplýsingar sem þessar er skylt að tilkynna fyrst
til Verðbréfaþings Islands áður en þær eru gerðar opinberar. Sjón-
varpið greindi frá þessu í gær.
Minni úthafskarfi
Fyrstu vísbendingar í nýafstöðn-
um bergmálsmælingum Hafrann-
sóknastofnunar í sameiginlegum
leiðangri Islendinga, Þjóðverja og
Rússa, benda meðal annars til að
samanborið við fyrri ár haldi út-
hafskarfinn sig mun sunnar og
vestar nú en áður. Einnig virðist
karfinn halda sig á meira dýpi en
á árunum 1991-94.
Sjávarhiti mældist nokkru
hærri nú en á undanförnum árum
og má hugsanlega rekja breytta
dýpisdreifingu úthafskarfans, sem
fram kom við mælingar, til hærri
sjávarhita. Samkvæmt sambæri-
legum mælingum 1996 var út-
hafskarfastofninn 1,6 milljónir
tonna, sem talið var vanmat á
stofninum. Árið 1994 mældist
stofninn 2,2 milljónir tonna í
leiðangri Islendinga og Norð-
manna. Samkvæmt fyrstu niður-
stöðum nú bendir ýmislegt til að
úthafskarfastofninn sé heldur
minni en fyrr var ætlað en þó er
erfitt að fullyrða um slíkt fyrr en
nákvæmur samanburður á gögn-
um þátttökuþjóðanna hefur verið
gerður.
Sæstrengur truflaði netsamband
Talsverðar truflanir voru á netsambandi og gagnaflutningum til og frá
landinu í gær og fyrrinótt vegna bilunar í sæstrengnum CANTAT3 í
fyrrakvöld. Talið er að bilunin hafi verið norðan við Færeyjar, á s\ip-
uðum stað og þar sem strengurinn bilaði í febrúar síðastliðnum.
Fljótlega eftir bilunina komst netsamband á aftur um vesturleið
strengsins til Ameríku. Talsímasamband rofnaði ekki og fór um jarð-
stöðina Skyggni. Áformað var að flytja sambönd af CANTAT3 yfir á
gervihnetti um næstu helgi, þar sem þá átti að hefjast reglubundið
\iðhald á sæstrengnum. Gera má ráð fyrir að viðgerð á strengnum
taki styttri tíma en ella, þar sem kapalskip er hvort sem er á leiðinni
til að sinna þessum viðhaldsverkefnum.