Dagur - 16.07.1999, Síða 8

Dagur - 16.07.1999, Síða 8
8- FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1999 Tk^iir FRÉTTASKÝRING ísland lækkaði úr 5. niður í 9. sæti á lífs- gæðalista Sameinuðu þjóðanna m.a. vegna lækkandi meðalaldurs kvenna. Islendinga lækkuðu niður í 9. sæti úr því 5. í fyrra á lífsgæða- listanum í skýrslu Sameinuðu þjóðanna, þar sem 174 þjóðum er raðað eftir lífsgæðum og mannréttindum í löndum þeirra. Smávegis lækkun meðalaldurs á þar einhvern hlut að máli, en líka breyttar reiknireglur. Skýrsl- an miðast við upplýsingar frá ár- inu 1997. Grundvöllur lífsgæða- matsins er: lífslíkur, menntun, og raunveruleg þjóðarfram- leiðsla á mann, þ.e. þjóðarfram- leiðsla umreiknuð í dollara, mið- að við kaupmátt í hverju landi (PPP$). Tekjulega í 12. sæti Árið 1997 höfðu 11 þjóðir höfðu kaupmáttarmeiri þjóðarfram- Ieiðslu á mann en íslendingar. Luxemborg (2,2 milljónir kr.) og Brunei (2,1 m.) voru efst á blaði, sem dugði þeim þó aðeins f 17. og 25. sæti á lífsgæðalistanum. Bandaríkin (2,1 m.) og Singapúr (2 m.) voru líka langt ofan við aðra. 1 Kuwait, Sviss, Noregi, Hong Kong, Japan og Danmörku jafngilti upphæðin 1,7 til 1,8 millj. kr. Belgar, íslendingar og Kanadamenn voru með um 1,6 milljónir á mann, sem dugði Kanada í efsta sæti lífsgæðalist- ans. Meðaltalið í iðnríkjum var tæplega 1,7 millj. kr., en meðal- talið í þróunarríkjunum sam- svaraði um 230 þús.kr. á mann. Kína var nærri því meðaltali en Indverjar helmingi Iægri. I þess- um tveimur löndum bjuggu 2,2 milljarðar manna 1997, eða næstum 2/5 af íbúum jarðarinn- ar. Vaxandi ójöfnuður Tekjubilið milli fátækra og ríkra, bæði innan þjóða og milli þeirra, hefur haldið áfram að breíkka, m.a. í nær öllum OECD ríkjum. Um 1960 hafði ríkasti fimmt- ungur fólks í heiminum 30-fald- ar tekjur fátækasta fimmtungs- ins - en árið 1997 var munurinn orðinn 74-faIdur. I fyrrum Sovétríkjum og A-Evrópu hefur ójöfnuðurinn aukist meira en nokkurs staðar og nokkru sinni fyrr og mest í Rússlandi. Þessi þróun fjölgar fátæklingum, líka í allra ríkustu löndunum. Með minna en fimm-faldan mun á tekjum hæst Iaunaða fimmtungs þjóðarinnar og lægst launaða og innan við 7% undir fátæktarmörkum stendur Sví- þjóð sig best og síðan Hollend- ingar og Þjóðverjar (upplýsingar vantar fyrir Island). Meðal iðn- rfkja eru fátæklingarnir hins veg- ar flestir í Bandaríkjunum, þar sem 20% eru undir fátæktar- mörkum og tekjumunurínn ní- faldur. í þessu ríkasta Iandi heims hefur 1 af hverjum 7 minna en 14 dollara á dag til framfærslu, þ.e. minna en 32.000 kr. á mánuði. Næstiun öll launin í mat Tekjumunurinn er samt margfalt meiri í mörgum þróunarland- anna, t.d. 25-30-faldur í Brasilíu og mörgum Iöndum S-Ameríku. I um 40 þróunarlöndum, eink- um í sunnanverðri Afríku og S- Ameríku, eru tekjur á mann lægri en fyrir 20 árum. Fátæk- lingarnir verða að nota meira en 80% tekna sinna fyrir mat og dugar ekki til, því nærri þriðj- ungur allra 5 ára barna og yngri f þróunarlöndunum eru of létt og vannærð, m.a. meira en helmingur allra barna á Indlandi en sjötta hvert barn í Kína. íslenskir karlar halda uppi heiðrinum Meðalaldur íslendinga, 79 ár, er ennþá 2. hæstur, en Japanir lifa árinu lengur. Tíu þjóðir eru al- veg á hælum okkar. Aðeins 8% Islendinga falla frá fyrir 60 ára afmælið, þar sem við erum á toppnum ásamt Japan og Möltu. En 13% Dana og Bandaríkja- manna eru látnir fyrir þau tíma- mót. Meðaltal iðnríkja er 11% en 28% í þróunarlöndum, en mun- urinn gífurlegur. Aðeins 18% Kínverja ná ekki sextugsaldri en 80% í Zambíu, þar sem vart nema einn og einn nær íslensk- um lífeyrisaldri. Að íslenskar konur verði „allra kerlinga elstar“ heyrir sögunni til, því þeirra 81,3 ára lífslíkur við fæðingu, eru bara rétt yfir meðaltali iðnríkja. Konur í Jap- an, Frakklandi, Sviss, Kanada, Spáni og Hong Kong verða eldri en íslenskar. Aftur á móti eru ís- lenskir karlar orðnir allra karla elstir, ásamt japönskum, með 76,8 ára lífslíkur. Mlsstu 5 æviár með kommúnismanum Almennt lifa konur 3-6 árum lengur en karlar. Undantekning- arnar eru Indland og Bangla- desh, þar eru karlarnir heldur langlífari og fjölmörg S-Afríku- ríki þar sem karlarnir lifa 3-5 árum Iengur en konurnar, sem fæstar komast langt yfir fertugt. I 31 Iandi hefur meðalævin lengst um meira en fimmtung síðan 1975. Á sama tíma hefur meðalævin styst stórlega í 10 Afríkuríkjum, vegna HIV- farald- ursins og spár segja að þessar þjóðir muni hafi misst 17 ár af meðalævi sinni árið 2010. Árið 1998 smituðust 6 milljónir af HIV og 33 milljónir smit- aðra/veikra voru þá á lífi. Af öðr- um orsökum hafa meðalævilíkur líka styst um heil 5 ár eftir fall kommúnismans í 7 af 18 lönd- um A-Evrópu og fyrrum Sovét- ríkja. Fáir í framhaldsskóla Hlutfall innritaðra í framhalds- skóla á Islandi, 88%, þykir til- tölulega lágt. I Danmörku, sem er næstlægst Norðurlandanna, er sama hlutfall um 95% og meðaltal iðnríkjanna er ennþá hærra. Enda flokkast 12 þjóðir með hærri „menntunarvísitölu" en ísland. Opinberar fjárveit- ingar til menntamála hækkuðu hér úr 4,9% af þjóðarframleiðslu 1985 upp f 5,4% árið 1996, sem samsvarar hálfum þriðja millj- arði króna. I iðnríkjum er meðaltalið 5,1% af þjóðarframleiðslu og óbreytt frá 1970. Svi'ar og Danir eru þar efstir á blaði, rúm 8%, en einnig eru fjárveitingar yfir 7% í Finn- landi, Noregi, Kanada, Nýja-Sjá- landi, Israel og Barbados. I Hong Kong, Singapúr, Japan, Grikklandi og Belgíu er hlutfall- ið aðeins um 3%. Sum þróunar- ríki verja hlutfallslega miklu til menntamála, t.d. kringum 10% þjóðarframleiðslu í Botswana, Moldavíu og Namibíu og hlut- fallið er líka mjög hátt í Uz- bekistan, Suður-Afríku, Swa- sílandi og Lesotho. Helmingur ræður ekki við nám Afrakstur af 90-99% framhalds- skólagöngu virðist þó oft grát- lega lítill: Rannsóknir í OECD- ríkjum sýna, að næstum helm- ingur fólks í nær öllum þessum Iöndum hefur ekki næga náms- getu til að læra til þeirra starfa sem nú fjölgar hvað mest, sem víða veldur miklum skorti á menntuðu starfsliði á tímum út- breidds atvinnuleysis. Um einn af hverjum sex íbúum þessara landa er m.a. raunverulega ólæs, þ.e. er ekki einu sinni fær um að fylla út atvinnuumsókn. Af þess- um sökum vantar starfsfólk í 500.000 störf í tengslum við upplýsingatæknina í Evrópusam- bandinu einu, sem virðist svolít- ið á skjön við alla tölvueignina og Net-útbreiðslu-fréttirnar. Netið - mest til leikja? Árið 1998 voru um 80 af hverj- um 1.000 Islendingum með tengingu við Netið, 7 sinnum fleiri en f Japan og ríflega tvöfalt fleiri en að meðaltali meðal 45 þróaðra þjóða. Einungis Finnar og Bandaríkjamenn voru þá Net- tengdari en við. Samkvæmt skýrslunni fjölgaði tölvum, bein- tengdum við Netið, úr 100 þús- und árið 1988 í meira en 36 milljónir 1998. Net-notendur eru nú taldir 150 milljónir og spáð að þeim fjölgi í 700 milljón- ir árið 2001. Bent er á að 80% allra Net-síða séu á ensku en að- eins 10% íbúa heimsins séu enskumælandi. Lélegir hllstjórar Tíðni umferðarslysa er hlutfalls- lega há á Islandi, með 550 slas- aða og látna á hverja 100.000 íbúa, segir f skýrslunni. Þetta er9 t.d. um tvöfalt hærra hlutfall en í Noregi, Svíþjóð, Frakklandi, Danmörku og Póllandi, þrefalt hærra en í Tyrklandi og næstum 7 sinnum hærra hlutfall en í Hollandi, þar sem aðeins um 80 af 100.000 slasast í umferðinni á ári hverju. í Bandaríkjunum slasast og deyja miklu fleiri í um- ferðinni en í nokkru öðru Iandi, um 1.270 af hverjum 100.000 íbúum, eða yfir 3,4 milljónir manna á ári. Israelar eru þeim næstir og slysatíðnin í Belgíu, Kanada, Portúgal og Austurríki er Iíka hærri en hér á landi. í fátækari löndum skaðast miklu færri í bílslysum en víða mjög margir í náttúruhamförum. Á árunum 1970-93 urðu að jafn- aði 63 milljónir Indverja fyrir slíku ár hvert, 24 milljónir Kfn- verja, 11 milljónir manna í Bangladesh og kringum 2 millj- ónir manna að meðaltali í Eþíóp- íu, á Filippseyjum, Brasilíu og í Víetnam. 140 milljón farandverkamenn Flóttamenn telur skýrslan vera um 12 milljónir. Um 22% þeirra búa í iðnríkjunum, þar af meira en ein milljón í Þýskalandi, ríf- lega hálf milljón í Bandaríkjun- um og 100-200 þúsund i' Sví- þjóð, Frakklandi, Kanada.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.