Dagur - 20.07.1999, Qupperneq 3

Dagur - 20.07.1999, Qupperneq 3
D^ur ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999 - 3 FRÉTTIR Öskubuskan og ljóti andarunginn Stjómvöld gagnrýnd fyrir að hafa ekki séð N áttúrugripasafni íslands fyrir boðlegu húsnæði. Náttúrugripasafn Islands og Hið íslenska náttúrufræðifélag héldu nýlega upp á 110 ára afmæli sitt, en félagið var stofnað þann 16. júlí 1889 til að koma safninu á fót. I afmælismóttöku hélt Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Nátt- úrufræðistofnunar Islands, ávarp þar sem hann gagnrýndi m.a. stjórnvöld fyrir að hafa ekki séð safninu fyrir sæmandi hús- næði. Hann sagði húsnæðismál- in ætíð hafa verið safninu íjötur um fót, að undanskildum þrem- ur fyrstu áratugum aldarinnar er safnið var til húsa í Safnahúsinu við Hverfisgötu. „Þrátt fyrir ötula baráttu margra góðra manna, margar samþykkt- ir Alþingis og ríkisstjórna, 14 eða 15 stjórnskipaðar nefndir, er Náttúrugripasafnið það eina af gömlu söfnum þjóðarinnar sem aldrei hefur fengið bót meina sinna. Landsbókasafnið gamla naut skilnings og sama er að segja um Þjóðminjasafnið, en Náttúrugripasafnið er ösku- buskan og litli ljóti andarung- inn. Orð Arna Friðrikssonar, fiskifræðings, um safnið á 50 ára afmæli þess árið 1939, um „sorglegt ástandið", eiga því miður enn við,“ sagði Jón Gunnar m.a. í ávarpi sínu. Eim í bráðabirgðahúsnæði Hann rakti raunagönguna í hús- næðismálum safnsins til þessa dags en safnið hefur sl. 40 ár verið til húsa við Hlemm í húsa- kynnum Náttúrufræðistofnunar. Arið 1959 var talað um „bráða- birgðahúsnæði" en safnið er þar enn. Jón Gunnar sagði að hefði safnið þróast og dafnað með eðlilegum hætti ættu Islendingar „stórt og öflugt" náttúrugripa- safn sem væri heimsótt af 80- 100 þúsund gestum á ári. Nú væru þeir aðeins um 6 þúsund árlega. Biðstaða hefur verið í húsnæð- ismálum sl. sjö ár eða frá því að ríkið sagði síg úr samstarfi \að borgina og háskólann um ný- byggingu fyrir safnið. Jón Gunn- ar sagði fjárlaganefnd Alþingis hafa neitað framlagi til sam- keppni meðal arkiteka um teikn- ingu af húsinu. Síðan þá hafi rík- isstjórnir árlega samþykkt að ráða bót á þessu ófremdará- standi en án árangurs. „Eg er þó bjartsýnn og trúi því að úr muni rætast fyrr en síðar. Ekki síst vegna þess að við höfum fengið nýjan, ferskan og öflugan um- hverfisráðherra, sem ég bind miklar vonir við,“ sagði Jón Gunnar ennfremur og beindi orðum sínum til Sivjar Friðleifs- dóttur sem viðstödd var athöfn- ina. Ekki náðist í Siv í gær vegna þessa máls. -BJB Fjórir hafa sótt um stöðu sóknar- prests á Akureyri sem losnar þeg- ar sr. Birgir Snæbjörnsson lætur af störfum. Þrjár konur viljabrauð áAkureyri Fjórar umsóknir bárust um starf sóknarprests í Akureyrarpresta- kalli, en umsóknarfrestur rann út 15. júlí sl. Sr. Birgir Snæbjöms- son lætur af prestskap I. septem- ber nk. og þá tekur sr. Svavar A. Jónsson við hans starfi en hann hefur verið aðstoðarprestur sr. Birgis, og því vantaði sóknarprest í hans stað. Umsækjendur eru Arna Yr Sig- urðardóttir, guðfræðingur á Akur- eyri; Jónína Elísabet Þorsteins- dóttir, sem vígð er til embættis fræðslufulltrúa kirkjunnar á Norðurlandi með aðsetur á Akur- eyri; sr. Lilja Kristín Þorsteins- dóttir, sóknarprestur á Raufar- höfn og sr. Magnús Björn Bjöms- son, meðferðarfulltrúi á ung- lingageðdeild Landspítalans, en hann hefur ekki starfað sem prestur að undanförnu. Sr. Magnús var vígður árið 1979 til Seyðisfjarðarprestakalls og starf- aði þar til ársins 1986. GG Kærdur fyrir ólöglegar veiðar Norska nótaskipið Österbris við bryggju á Akureyri. Utan á því liggur varðskipið Óðinn. Norska nótaskipið Österbris frá Bergen, sem er stærsta og nýjasta loðnu- og síldarskip norska flot- ans, um 1772 brúttótonn, var fært til hafnar á mánudaginn af varðskipinu Óðni. Skipið er met- ið á liðlega milljarð íslenskra króna. Við eftirlit varðskips- manna mældust möskvar í poka loðnunótar skipsins að meðaltali 17,4 mm, sem er 11,2% undir löglegri möskvastærð, en lág- marksstærð möskva skal vera samkvæmt reglugerð 19,6 mm. Österbris var statt um 80 sjómíl- ur norður af Grímsey, eða um 46 sjómílur innan íslensku lögsög- unnar. Skýrslutaka hófst hjá sýslumannsembættinu á Akur- eyri í morgun. Lögreglurannsókn lauk síðdegis í gær og sagði Björn Jósef Arnviðarson, sýslu- maður, að gefin yrði út ákæra í málinu sem þá snýst um ólögleg- ar veiðar norska skipsins í ís- lensku fiskveiðilögsögunni. Málið verður síðan tekið fyrir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag og má vænta dómsniður- stöðu í dag. Verði skipstjórinn sakfelldur, má búast við allhárri sekt þar sem upphæð hennar er metin út frá verðmæti skipsins, veiðarfæra og afla, en loðnuafli skipsins var heldur lítill þegar varðskipsmenn fóru um borð til möskvamælingarinnar. Þess má geta að systurskip Österbris, sem heitir Hargun, er einnig við bryggju á Akureyri, en það kom þangað aðfaranótt laugardagsins með bilaða vél, en sakir þess að skipið er aðeins nokkurra mán- aða gamalt er viðgerðin væntan- lega á ábyrgð tryggingafélags skipsins. Vonir standa til að Hargun komist aftur út á mið- vikudag. GG Siunarfrí tefur formaimsmálið Vegna sumarfría hefur for- mannahópurinn svokallaði ekki getað fundað síðustu daga vegna tillögunnar um formann nýrra Samtaka atvinnulífsins. Til stóð að kynna tillöguna í byrjun þessarar viku en að sögn eins úr hópnum gæti endanleg ákvarðanataka dregist eitthvað á langinn. Mörg nöfn hafa verið nefnd í þessu máli en formannahópurinn hefur verið þögull sem gröfin þeg- ar Ijölmiðlar hafa gengið á hann. Einar Benediktsson, forstjóri OIís, er eitt af síðustu nöfnurn sem upp hafa komið. Þegar Dagur reyndi að ná tali af honum fyrir helgi fengust þau skilaboð að hann vildi ekki ræða þessi mál viö Ijölmiðla. Formannahópurinn hefur komið að tali við hann og hefur hann verið undir feldi að hugsa málið. -BJB Jökulsá á Sólheimasandi að sjatna Hlaup sem hófst í Jökulsá á Sólheimasandi aðfaranótt sunnudagsins virðist vera í rénun en um tíma á sunnudag var umferð um brúna bönnuð en þá vætlaði áin um brúargólfið. Orsök hlaupsins er ókunn en stór sigketill, um 1,5 km í þvermál og 50 metra djúpur, hefur myndast í Mýrdalsjökli. Vísindamannaráð Almannavarna ríkisins tel- ur ekki útilokað að sviðpaður atburður geti átt sér stað fljótlega. Talið er að annað hvort lítið eldgos eða breyting á jarðhitavirkni síðustu vikur eða mánuði hafi valdið jökulhlaupinu. Almannavarnir ríkisins hafa beint því til almennings og ferða- manna í kringum Mýrdalsjökul að hafa vara á sér og fylgjast með gos- mekki, brennisteinsfnyk eða óvenjulegum vexti í ám. Ekki síst er þessari ábendingu beint að ferðafólki sem gengur um „Laugaveg“ þessa dagana, en nú eru Hnsældir þess einmitt að nálgast hámark. Helga Þorbergsdóttir, oddviti Mýrdalshrepps, sagði síðdegis í gær að engrar aukinnar virkni væri vart. Þó hefði orðið vart aukinnar virkni í Eyjafjallajökli. Jökulsá á Sólheimasandi virtist vera að ná eðli- Iegu rennsli en Almannavarnanefnd Mýrdalshrepps hefði allan vara á. Helga sagði að ferðafólk væri varað við að tjalda nálægt jökulám en töluvert er um ferðafólk á þessum slóðum, m.a. á vélsleðum á jöklin- um. Rennsli hefur aukist töluvert í Múlakvísl sem rennur úr austur- hluta Mýrdalsjökuls. Um miðnætti aðfaranótt mánudags fannst þar megn brennisteinslykt. GG 200 milljónir í skautahöll Framkvæmdir við skautahöllina, sem verið er að byggja á Akureyri, munu kosta rétt rúmar 200 milljónir. Þetta er heldur meira en Iagt var upp með til hliðsjónar í byrjun, og hljómar mismunurinn upp á 47 milljónir. Það var svo samþykkt af bæjarráði, þann 15. júlí síð- astliðinn, að \4sa tillögu framkvæmdanefndar um viðbótarfjárveit- inguna til endurskoðunar fjármálanefndar. Asgeir Magnússon, forseti bæjarráðs, segir að þessi hækkun stafi ekki af því að framkvæmdir hafi farið fram úr fjárhagsáætlun held- ur hafi verið ákveðið að byggja stærra og betra hús en í upphafi var tekin ákvörðun um. Hann segir að rnálið hafi verið Iátið lfta mjög illa út í útvarpinu í síðustu viku, þar sem það hljómaði eins og það væri verið að biðja um 47 milljónir til viðbótar við það, sem hafði áður verið beðið um, og vildi hann leiðrétta þann misskilning. „Það er búið að ákveða að byggja skautahús, sem kostar 200 milljónir. Hins vegar er það inni á fjárveitingu ársins 1999, þar sem ekki er gert ráð fyrir því að framkvæmdir við skautahúsið kosti svona mik- ið. Það þarf því meiri peninga á þessu ári,“ sagði Asgeir. AÞM

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.