Dagur - 20.07.1999, Qupperneq 4

Dagur - 20.07.1999, Qupperneq 4
4- PRIDJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999 FRÉTTIR T>^*r Dlltieinumhlút andlitsvatn - andlitsmjólk - augnfarðahreinsir blauthlútar fyrir augn- og andlitsfarða Ómissandi í ferðalagið COMODYNES $ SUZUKI Komdu i reynslu- aksturl SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is Hefur þú séð svona verð á 4x4 bíl? • Mest seldi bíllinn í Japan(l), annaðárið í röð. • Öruggur Suzuki fjölskyldu- og fjölnotabíll. • Skemmtilegur bíll meomiklum staðalbúnaði: ABS hemlaTæsivörn (4x4), rafdrifnu aflstýri, samlæsingu, o.m.fl Ódýrasti 4x4 bíllinn á Islandi mmiimimmiimimiiiiimiiiimiimiii GL 1.099.000 KR. GL 4x4 1.299.000 KR. mmmmmmmmmmmmmmimim Lögreglan hafði afskipti af tveimur piitum sem skutu úr loftbyssu á aðra tvo piita. Litlu munaði að illa færi og lögreglan tekur skýrt fram að loftbyssur, eins og sést á þessari mynd, séu engin teikföng. Fyrir þær þurfi sérstakt leyfi. mynd: teitur. Pörupiltar í loftbyssustríði Helgin 16. til 19. júlí var fremur auuasöm hjá lögregluuui í Reykjavík þótt lítið haíi verið um slys og alvarleg óhöpp. Alls voru bókuð 620 verk- efni í dagbókma góðu. Að mati lögreglunnar var of mikið um hraðakstur um helgina en 53 voru stöðvaðir þess vegna. Sextán voru teknir fyrir meinta ölvun við akstur. Aðfaranótt Iaugardags valt bif- reið á Vesturlandsvegi í Mosfells- bæ. Ekki urðu slys á fólki en öku- maður var grunaður um ölvun við akstur. Mjög mikil umferð var um Vesturlandsveg áleiðis til borgar- innar síðdegis á sunnudag og nokkrar tafír urðu. Fjðldaslagsmál í austiirborgmni Kona fótbrotnaði í Lækjargötu að- fáranótt laugardags og var hún flutt á slysadeild til aðhlynningar. Maður slasaðist á hóteli er hann rann til í bleytu í eldhúsi. Hann hlaut skurð á augabrún. Tilkynnt var um fjöldaslagsmál við hús í austurborginni aðfara- nótt sunnudags. Þar reyndust tveir menn vera að slást og var annar fiuttur á slysadeild en hinn vildi sjá um sig sjálfur. Óláusöm börn og nnglingar Á föstudagskvöld sprakk gos- drykkjatæki framan í dreng í heimahúsi. Hann hlaut áverka á vör og var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Drengur féll niður um hlera og niður á teppalagt gólf fyrir neðan. Hann fékk höfuðhögg og var flutt- ur á slysadeild. Tveir ungir piltar skutu úr Ioft- byssu á aðra tvo og fékk annar piltanna skot í læri og háls en hinn í nefið um sentimetra frá auganu. Ekki var um alvarlega áverka að ræða en óvíst hvað hefði gerst ef skotið hefði lent í augan- um. Að sögn lögreglu koma svona tilfelli upp öðru hvoru. „Virðist fólk ekki átta sig á því að loftbyss- ur eru ekki leikföng og alfarið bannaðar fyrir aðra en þá sem hafa fyrir þeim sérstakt leyfí,“ seg- ir m.a. í dagbók Iögreglunnar. Drengur féll niður af bílskúrs- þaki við Rauðalæk á sunnudag. Hann kenndi til eymsla í baki og hendi og var fluttur á slysadeild. Tilkynnt um 19 innbrot Tilkynnt var um 19 innbrot um helgina og var nokkur hluti þeirra í bifreiðar. Ur þeim var stolið hljómtækjum, skilríkjum, farsíma og húslyklum. Tvisvar sinnum gerðist það um helgina að maður kom inn f sölu- turn til að kaupa vindlingalengjur. t stað þess að borga vöruna var hún gripin og hlaupið út. Málin eru í rannsókn. Stimpingar í miðbænum Maður kvartaði yfir því við Iög- reglu að fyrrverandi kona hans léti hann ekki í friði. Er lögreglan kom á staðinn átti fólkið í átökum. Lögreglan kom á friði. Aðfaranótt laugardags var frem- ur róleg f miðborginni þrátt fyrir talsverðan mannfjölda þar. Nokk- uð var um stimpingar og pústra manna á milli en ekki alvarleg meiðsli, þó voru þrír fluttir á slysa- deild. Tilkynnt var um mann sem var að hátta sig og búast til sunds í Tjöminni. Þegar Iögreglan kom á staðinn var maðurinn að klæða sig aftur svo minna hefur orðið úr sundinu en ætlað var. Tilkynnt var um mann að skjóta úr loftbyssu. I Ijós kom að þetta var svokölluð gormabyssa og var hún haldlögð. Kveiktí jólatré Mikill fjöldi fólks var á veitinga- stöðum í miðborginni aðfaranótt sunnudags. Talsverður erill var hjá lögreglu við ýmis verkefni þar, þrír handteknir vegna tveggja lík- amsárása og tveir fluttir á slysa- deild. Einn var handtekinn vegna rúðubrots. Astandið var þó nokk uð gott miðað við mannfjöldann, að sögn lögreglu. Tilkynnt var um eld utandyra í austurbænum á sunnudagskvöld. Þar hafði verið kveikt í olíu á mal- biki og slökkti lögreglan eldinn. Einnig var kveikt í jólatré á svæði Sorpu. Struku af Hrauninu Tveir fangar, sem struku af Litla- Hrauni um kvöldmatarleytið á laugardag, voru handsamaðir á sunnudagskvöld, en þeir höfðu sloppið út um neyðarlúgu í fang- elsinu. Annar mannanna var að afplána 15 mánaða dóm fyrir al- varlegt ofbeldisbrot. Leitað var að föngunum frá ld. 22.20 á laugardag, þar til þeir fundust í Breiðholti kl. 20.26 á sunnúdagskvöldið. Talið er að þeir hafí stolið bát á Stokkseyri, siglt honum til Þorlákshafnar, stolið þar bíl og komið sér til Reykjavík- ur. Meðan á leitinni stóð bárust misvísandi fréttir af þvf hvort fangarnir teldust hættulegir eða ekki; í fyrstu fféttum var hvorugur talinn hættulegur öðru fólki, en síðar var sagt að annar þeirra gæti verið hættulegur. Eldri svo öruggt að... Aðspurður um hvemig strokið gat átt sér stað, miðað við þær miklu breytingar sem átt hafa sér stað á fangelsinu með stórefldu eftirliti og búnaði, segir Erlendur S. Bald- ursson, deildarstjóri hjá Fangelsis- málastofnun, að ekkert fangelsi sé svo öruggt að ekki sé hægt að sleppa út. „Enginn hafði strokið frá Litla- Hrauni síðan 1995 og ég lít svo á að Litla-Hraun sé mjög rammgert hvað flótta snertir. Staðreyndin er sú að ef fangelsið væri þannig uppbyggt að 100% öruggt væri að flótti gæti ekki átt sér stað þá er ég ekki viss um að margir kæmu lif- andi út úr því,“ segir Erlendur. Búast má við því að mennimir verði beittir agaviðurlögum innan fangelsisins og verði ákærðir fyrir báts- og bílstuld, en einnig má bú- ast við hegningarlagaákæru sann- ist að þeir hafi sammælst um að stijúka. FÞG

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.