Dagur - 20.07.1999, Page 9
4=
8 -ÞRIÐJUDAGU R 20. JÚLÍ 19 9 9
FRÉTTASKÝRING
Thgtr
ÞRIÐJUD AGUR 20. JÚI.Í 199 9 - 9
FRÉTTIR
Fyrsta morðið í um tvö ár
Clinton lokað með
skipiilagsbreytmgu
Það sló mikinu óhug á
íslendinga þegar
fregnir bárust af
morðinu á Agnari W.
Agnarssyni, en morð á
íslandi hafa ætíð vak-
ið mikla athygli meðal
landsmanna.
Manndráp eru sem betur fer ekki
algeng hér á landi en þó eru til
nokkur þekkt morðmál í Islands-
sögunni. Má þar helst nefna
manndrápið á Snorra Sturlusyni í
Reykholti árið 1241. Einnig er
það þekkt þegar Gísli Súrsson
drap Þorgrím, mág sinn, eftir að
Vésteinn, fóstbróðir Gísla, hafði
verið drepinn. Jóni Gerrekssyni,
biskup, var drekkt í Brúará árið
1433. Axlar-Björn mun hafa
drepið 18 manns á 16. öld. Jón
Hreggviðsson var dæmdur fyrir
morðið á Sigurði böðli á 17. öld
en þá mælti Jón hinu fleygu orð:
„Hvenær drepur maður mann og
hvenær drepur maður ekki
mann.“ Sjöundármorðin áttu sér
stað árið 1802 en þá myrtu Bjarni
og Steinunn maka sína. Natan
Ketilsson var drepinn af Friðriki
og Agnesi en það morð Ieiddi til
síðustu aftöku á Islandi árið
1830.
Lögreglan á íslandi hefur upplýst hvert einasta morðmál á síðari tímum íslandssögunnar utan eitt.
Eitt óupplýst
A þessari öld hafa verið framdir
nokkrir tugir morða. Leigubíl-
sljóramorðið frá árinu 1968 er
eina óupplýsta morðið á þessari
öld, en hinn grunaði f því máli var
sýknaður fyrir dómstólunum. Án
efa eru Guðmundar- og Geir-
finnsmálin ein þekktustu morð-
málin í Islandssögunni en fyrir
þau voru sex einstaklingar dæmd-
ir árið 1980 í fangelsi frá 1 ári í
16 ár. Hvorki Iík Guðmundar né
Geirfinns hafa fundist. I engilsax-
neskum rétti, þ.e. í Bandaríkjun-
um og Bretlandi, er nánast úti-
lokað að dæma mann fyrir morð
finnist líkið ekki, en ekkert slíkt
er að finna í norrænum rétti. Það
er meginregla í íslenskum rétti að
dómstólar hafa fijálst mat á sönn-
unum og bendi gögn morðmáls
til sektar án þess að Iík finnist
getur dómari samt dæmt einstak-
ling fyrir morðið eins og sást í
Guðmundar- og Geirfinnsmál-
inu.
Þórir Oddsson, vararíkislög-
reglustjóri, sagði hins vegar í
samtali við Dag að sér fyndist það
ólíklegt að menn yrðu dæmdir
fyrir morð nú á dögum án þess að
hafa lík. „Mikið hefur breyst frá
þessum tíma í réttarfarinu og ég
er ekki viss um að sama niður-
staða fengist í dag fyrst það vant-
aði Iíkin,“ segir Þórir.
Síðast morð árið 1997
Stóragerðismorðið er ránsmorð
frá árinu 1990 og átti það sér stað
á bensínstöð í Reykjavík. I því
máli voru tveir aðilar dæmdir.
Arið 1993 framdi einstaklingur
annað morðið sitt á 10 árum, en
á nýársnótt árið 1983 hafði hann
stungið annan mann til bana.
Þessi einstaklingur fékk lengsta
dóm sem Hæstiréttur hefur kveð-
ið upp, eða 20 ára fangelsi.
Krísuvíkurmorðið átti sér stað
árið 1996 en þá var maður skot-
inn með haglabyssu. Þar fékk
morðinginn 10 ára fangelsi. Síð-
asta morðið á undan morðinu á
Agnari í síðustu viku var tví-
buramorðið í Heiðmörk frá árinu
1997, en þá myrtu tvíburar mið-
aldra mann sem þeir höfðu hitt á
nektarstað í borginni. Annar tví-
burinn fékk 16 ára fangelsi en
hinn fékk 12 ára fangelsi í
Hæstarétti.
Manndráp af ásetningi
Ekki eru til mörg stig manndráps
hér á Iandi eins og sums staðar er-
Iendis. Hér er annaðhvort talað
um manndráp af gáleysi eða
manndráp af ásetningi. Hins veg-
ar er gáleysi metið sem stórfellt
eða einfalt. Asetningurinn getur
einnig verið metinn og getur m.a.
verið um beinan ásetning eða lík-
indaásetning að ræða. I 211.
grein almennra hegningarlaga
segir að hver, sem sviptir annan
mann lífi, skal sæta fangelsi, ekki
skemur en 5 ár, eða ævilangt. Hér
er átt við manndráp af ásetningi
en í hegningarlögunum er aldrei
talað um morð.
2. málsgrein 218. greinar sömu
laga er einnig oft notuð við mann-
dráp af ásetningi, en þar segir að
hljótist stórfellt líkams- eða
heilsutjón af árás eða brot er sér-
staklega hættulegt vegna þeirrar
aðferðar, þ.á m. tækja, sem notuð
eru, svo og þegar sá, er sætir Ifk-
amsárás, hlýtur bana af atlögu, og
varðar brot þá fangelsi allt að 16
árum. 1 215. grein almennra
hegningarlaga segir hins vegar að
ef mannsbani hlýst af gáleysi ann-
ars manns, þá varði það sektum
eða fangelsi allt að 6 árum. Þetta
ákvæði er t.d. notað við banaslys í
umferðinni. Sérákvæði eru í
hegningarlögunum um líknar-
dráp, fósturdráp og sjálfsvíg.
Morðum fer fækkandi
I nýútkominni skýrslu Samein-
uðu þjóðanna kemur fram töl-
fræði yfir morð á hverja 100.000
íbúa fyrir árið 1994. I Danmörku
voru 4,9 morð á hverja 100.000
íbúa, í Noregi var talan 2,1 og í
Svíþjóð voru 9,5 morð árið 1994.
I Finnlandi voru tilvikin 10,1, í
Frakklandi 4,7, í Hollandi 14,8
og f Sviss 2,3. Irland hafði árið
1994 aðeins 0,7 tilvik. Hvorki ís-
land né Bandaríkin eru í þessum
samanburði í skýrslunni, en sam-
kvæmt upplýsingum frá embætti
Ríkislögreglustjóra voru 0,9 mann-
dráp á ári miðað við 100.000 íbúa
árið 1994 á íslandi. Árið 1999
hafði tilvikunum fækkað niður í
0,33 og er það með því allra Iægsta
í heiminum. I Reykjavík var ekkert
manndráp í fyrra en árið 1997 átti
sér stað ein manndrápstilraun.
Eins og fyrr segir var heldur ekkert
morð framið á landsvísu í fyrra, en
árið 1997 átti tvíburamorðið í
Heiðmörk sér stað.
„Morðtíðni hefur farið lækkandi
og hafa síðustu fimm árin verið
með lægri tíðni en á sfðustu 20
árum,“ segir Guðmundur Guð-
jónsson, yfirlögregluþjónn hjá Rík-
islögreglustjóra. Þórir Oddson,
vararíkislögreglustjóri, segir að
morðmál hafi sem betur fer verið
yfirleitt tiltölulega fá hér á landi en
þó nefnir hann árið 1988 sem var
óvenjuslæmt ár hvað þetta varðar.
„Þetta eina ár komu fimm til sex
mál þar sem bani hlaust af til
skoðunar hjá Iögreglunni," segir
Þórir.
Mannshvarf
Stundum vill það til að menn
hverfa sporlaust og vakna þá oft
ýmsar getgátur um hugsanleg
morð, en einnig er það til í dæm-
inu að menn rífi sig upp frá öllu og
hefji nýtt Iíf í öðru Iandi án þess að
láta nokkurn mann vita. Síðan er
sjálfsvíg möguleiki í svona málum.
Atburðarás Leifsgötimtorðsins
Þriðjudagur 13. júlí, um kl. 20:00.
Gestir Agnars W. Agnarssonar yfirgefa
íbúð hans að Leifsgötu 28 í Reykjavfk. Þór-
hallur Ölver Gunnlaugsson hafði ekki verið
meðal gesta.
Þriðjudagur 13. júlí, um kl. 24:00.
Einn kvengestanna kemur aftur til Agnars
til að sækja gleraugu sín sem hún hafði
gleymt. Agnar mætti til dyra í náttfötunum
og afhenti konunni gleraugun sem síðan fór.
Þá var ekki að sjá að Agnar hefði neytt
áfengis.
Miðvikudagur 14. júlí, um kí. 01:50.
Nágrannar vakna við læti úr íbúð Agnars.
Miðvikudagur 14. júlí, kl. 02:01.
Þórhallur er stöðvaður á Skúlagötu vegna
gruns um ölvunarakstur. Klæðnaður hans
var blóðugur og gaf Þórhallur þá skýringu að
hann hefði lent í slagsmálum \ið Qóra karl-
menn á Vesturgötunni.
Miðvikudagur 14. júlí, um kl. 17:30.
Þórhalli er sleppt úr haldi lögreglunnar
þar sem lögreglan taldi ekki vera grundvöll
til áfTamhaldandi vistunar.
Miðvikudagur 14. júlí, um kl. 23:30.
Þórhallur flýgur til Kaupmannahafnar.
Fimmtudagur 15. júlí, ld. 12:27.
Lögreglan finnur lík Agnars í íbúðinni
hans. Mörg stungusár voru á hinum látna
og fannst morðvopnið í fbúðinni.
Fimmtudagur 15. júlí, kl. 18:06.
Fjölmiðlum er tilkynnt um morðið og Iög-
reglan auglýsir eftir Þórhalli og bíl hans.
Fimmtudagur 15. júlí, um kl. 21:00.
Bíll Þórhalls finnst við Leifsstöð.
Fimmtudagur 15. júlí, um kl. 22:00.
Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra lýsir eftir
Þórhalli í öllum Evrópulöndunum í gegnum
Interpol.
Föstudagur ló.júlí, kl. 16:07.
Niðurstaða krufningar leiðir í ljós að Agn-
ari var ráðinn bani með hníf.
Laugardagur 17. júlí, um kl. 24:00.
Þórhallur er handtekinn á aðaljárnbraut-
arstöðinni í Kaupmannahöfn af dönsku lög-
reglunni.
Sunnudagur 18. júlí.
Þórhallur er leiddur fyrir danskan dómara
og er úrskurðaður f fimm daga gæsluvarð-
hald.
Mánudagur 19. júlf.
Islenskir lögreglumenn fara til Kaup-
mannahafnar til að fylgja Þórhalli til Is-
lands.
ÁGÚST
ÓLAFUR
ÁGÚSTSSON
SKRIFAR
Nýlegasta dæmið um mannshvarf
er Ragnar Siguijónsson sem hvarf
sporlaust í Bretlandi nú í vetur.
Fyrir nokkrum árum hvarf Valgeir
Víðisson og ekkert hefur til hans
spurst sfðan þá. Ymislegt benti á
tengsl Valgeirs við fíkniefnaheim-
inn og hefur það ýtt undir þær sög-
ur að hugsanlega hafi hann verið
myrtur, en samkvæmt lögreglu var
ekki talin ástæða að skrá rannsókn
málsins sem morðrannsókn. Fjöldi
mannshvarfa á Islandi er ekki mik-
ill en um annað hvert ár á óútskýrt
mannshvarf sér stað.
Morðrannsóknir eru flóknar
Ómar Smári Ármannsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn, segir að venju-
lega komi margir aðilar að rann-
sókn morðmála enda er að mörgu
að hyggja. „Við munum hins vegar
aldrei lýsa því hvernig sjálf aðferð-
arferðin \dð rannsókn svona mála
er uppbyggð enda er það hluti af
þessu starfi að halda því Ieyndu."
Að sögn Guðmundar Guðjóns-
sonar, geta morðrannsóknir verið
mjög flóknar og ýtarlegar. „Morð-
rannsóknir krefjast ætíð ákveðinna
viðbragða en svo geta kringum-
stæðurnar auðvitað verið mjög
mismunandi. Stundum eru sýni
send út til útlanda og hafa DNA-
sýni yfirleitt verið send út til Nor-
egs. Áður fyrr sá Rannsóknarlög-
regla ríkisins yfirleitt um þessi mál
fyrir allt landið, en nú sjá lögreglu-
embættin á viðkomandi stað um
rannsóknina. Embætti Ríkislög-
reglustjóra er þó tilkynnt um morð-
mál og veitir stuðning og aðstoð ef
lögregluembættin óska eftir því.
Morðið á Agnari er fyrsta morð-
rannsóknin sem rannsóknardeild
lögreglunnar í Reykjavík rannsakar
síðan sú deild var stofnuð 1. júlí
1997,“ segir Guðmundur.
Þórir Oddsson telur að lögreglan
sé ágætlega undirbúin fyrir rann-
sókn morða. „Rannsókn í morð-
málum er ekkert ósvipuð og rann-
sókn við hvert annað ofbeldisbrot
og í eðli sínu ekki flóknari. Hins
vegar eru þessi mál vitaskuld mun
alvarlegri og samkvæmt því er oft
meira lagt í þessi mál. Ymsir sér-
fræðingar koma nálægt þessum
málum en við getum m.a. leitað til
rannsóknarstofa Háskólans í Iyfja-
fræði og réttarlæknisfræði. Síðan
erum við í góðu samstarfi við rann-
sóknarstofur á Norðurlöndunum
og á Bretlandi sem við nýtum okk-
ur hiklaust,“ segir Þórir.
Reykjavíkurborg hyggst breyta
skipulagi í miðborginni, sem fel-
ur í sér að vínveitingarekstur
verður óheimill í bakhúsi Aðal-
strætis 4 (4b), og þar með mun
nektardansstaðurinn Club Clint-
on ekki fá staðfestingu á bráða-
birgðaleyfi sínu.
„Eg átti viðræður við húseig-
endur Aðalstrætis 4 og þar kom
fram að þeir myndu ekki gera at-
hugasemdir við að rekstur vín-
veitingahúss verði óheimill í bak-
húsinu. í því felst að eigendurnir
munu ekki gera bótakröfu fyrir
skerðingu á eignaréttindum.
Þetta skapaði nýja stöðu og f dag
(gær) fjallar skipulagsnefnd um
breytingu á Kvosarskipulaginu
sem gerir óheimilt að reka vín-
veitingahús í bakhúsum við Aðal-
stræti. Við viljum gjarnan hafa
miðborgarstarfsemi í húsunum
við Aðalstræti, en ekki í bakhús-
unum sem standa inni í Grjóta-
þorpinu og henta því augljósleg
ekki undir slíka starfsemi," segir
Helgi.
Markaðshlutfall
Akoplastos verður imi
38% eftir að verk-
smiðjan verður öll
komiii til Akureyrar,
en Eyþór Jósefssou er
fjarri því að vera
ánægður með það
markaðshlutfall.
Hafist verður handa við 2200
fermetra viðbyggingu við Þórs-
stíg 4 á Akureyri í sumar, en um
er að ræða stálgrindarhús norðan
við núverandi húsnæði Rafveitu
Akureyrar, sem selt hefur verið
Akoplastosi á Akureyri. Um ára-
mótin á að vera lokið við flutning
inn í húsið en flutningur starf-
seminnar verður fluttur í húsið í
áföngum á sama tíma og verk-
Helgi Hjörvar: Skipulagi breytt
með samþykki eigenda hússins
þar sem nektardansstaðurinn
Clinton er rekinn.
Hann segir Club Clinton hafa
bráðabirgðaleyfi að óbreyttu, en
að til meðferðar sé umsókn um
fullt vínveitingaleyfi. „Verði þessi
breyting á skipulaginu samþykkt
má gera ráð fyrir að hún hafi
áhrif á þá leyfisveitingu." Helgi
telur annað mál gegna um Kaffi-
smiðja fvrirtækisins í Garðabæ
verður lögð niður. Starfsemin í
Garðabæ verður þar fram i októ-
bermánuð, en fæst af því starfs-
fólki sem starfar í verksmiðjunni
í Garðabæ flytur norður við þess-
ar breytingar. I dag starfa 40
manns fyrir sunnan en 35 fyrir
norðan, en um áramót, þegar
framleiðslan á öll að vera komin
norður, verður heildarstarfs-
mannaíjöldinn 63, þar af 51 á
Akureyri en 12 á höfuðborgar-
svæðinu við sölustörf, skrifstofu-
hald o.fl.
Eyþór Jósefsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Akoplastos,
segir að teikningar af viðbygging-
unni við Þórsstíg 4 verði frá-
gengnar um helgina, og byrjað
verði á framkvæmdum strax eftir
verslunarmannahelgi en sjálft
stálgrindarhúsið kemur í endað-
an ágústmánuð og verður þá
strax hafist handa við að reisa
það. Vélakostur er á báðum stöð-
leikhúsið, sem sé miðborgar-
starfsemi sem falli vel að Grjóta-
þorpinu. „Auðvitað fylgir mið-
borgarstarfsemi alltaf eitthvert
ónæði en á meðan starfsemin
uppfyllir Iög og reglur eru ekki
gerðar athugasemdir við Kaffi-
leikhúsið, frekar en annan far-
sælan rekstur þarna um slóðir á
borð við Fógetann."
Óttast borgin dómsmál frá
Club Clinton? „Nei! Þegar þessi
rekstur fór af stað lágu fyrir yfir-
lýsingar borgaryfirvalda um að
þau teldu fullreynt með rekstur
vínveitingahúss á þessum stað.
Einnig lá fyrir andstaða borgaryf-
irvalda við rekstri nektardans-
staða í íbúðahverfum. Rekstrar-
aðilinn sem hóf starfsemi sl. jan-
úar mátti því vera Ijóst frá fyrsta
degi að hann væri að tefla á tvær
hættur með því að heíja þennan
rekstur. Hann er ekki eigandi
húss og lands, hefur aðeins tíma-
bundinn leigusamning og því eru
hagsmunir hans hverfandi í mál-
inu,“ segir Helgi. - FÞG
um eins og er, en þegar hafa
þrjár vélar verið teknar norður en
hinar verða fluttar norður eftir
því sem starfsfólk verksmiðjunn-
ar í Garðabæ fær vinnu annars
staðar og hættir störfum. Jafn-
hliða verður ráðið starfsfólk á Ak-
ureyri. Þannig þurfa vélarnar
ekki að detta úr vinnslu nema í
mesta lagi þijá daga en kaupa
þarf fleiri vélar, m.a. pokavél frá
Italíu og prentvél.
Eyþór segir að markaðshlutfall
Akoplastos verði um 38% eftir að
verksmiðjan verður öll komin til
Akureyrar, en hann sé fjarri því
að vera ánægður með það mark-
aðshlutfall. Því verði ráðist í
markaðsátak. Gríðarlegt tap hef-
ur verið á þessum rekstri, bæði
hjá Plastos og Plastprenti en
reksturinn hjá Akoplasti hefur
verið í járnum. Með sameiningu
verksmiðjanna á Akureyri verður
hægt að skera niður kostnað og
auka hagkvæmnina. - GG
Hættu að raka d þér fótleggina!
Notaðu One Touch húreyðingarkrem! Sársaukalaus ogfljótleg
aðferð sem skýrir vinsældir One Touch á íslandi í 12 ár.
1
Svo einfalt er það
Rúllið kreminu yfir hársvæðið og strjúkið
það síðan afmeð rökum þvottaklút.
(Sjá leiðbeiningar.)
Htíðin verður mjtík,
ekki Jtrjúf!
One Touch
er ofnæmisprófað
Margra ára reynsla segir sína sögu!
Fæst t apótekum og stórmörkuðum.
Sensitive
fyrir
viðkvæma
húð
Bikini
fyrir
Mkini'’
svæði
Starfsmöimuin Akoplastos
á Akureyri fjölgar iim 30