Dagur - 12.08.1999, Síða 3
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 - 3
FRÉTTIR
Opinber stðrf út á
land í fj arvinnslu
Fjarvinnsla er að verða áberandi lausnarorð í þjóðfélagsumræðunni og á föstu-
dag byrjar fjarvinnsla á Stöðvarfirði.
Unuið að skilgrein-
ingu starfa til flutn-
ings á vegum forsæt-
isráðuneytis. Fjar-
vinnsla opnuð á
Stöðvarfirði. Sveitar-
félög áhugasöm. Já-
kvæð margfeldisáhrif.
Svo virðist sem sveitarstjórnar-
menn og stjórnvöld bindi miklar
vonir við ijarvinnslu til að efla at-
vinnuástandið á landsbyggðinni.
A n.k. föstudag hefst Qarvinnsla
á Stöðvarfirði á vegum Islenskrar
miðlunar og í lok mánaðarins á
Suðureyri við Súgandafjörð og
líklega á sama tíma á Þingeyri.
Um mánaðamótin september-
október hefst svo fjarvinnsla á
Isafirði. Þá er áhugi á að fá fjar-
vinnslu til Bolungarvíkur og
Vopnafjarðar, en fyrsta fjar-
vinnslan úti á landi á vegum Is-
Ienskrar miðlunar hófst fyrir
nokkru síðan á Raufarhöfn.
Jákvæð margfeldisáhrif
Svavar Kristinsson, fram-
kvaemdastjóri Islenskrar miðlun-
ar, segir að fyrir tilstuðlan for-
sætisráðuneytisins sé m.a. verið
að vinna að skilgreiningu á því
hvaða störf á vegum hins opin-
bera sé hægt að flytja út á land í
tengslum við útrás fyrirtækisins.
Fyrir utan atvinnuuppbygging-
una sem þessu sé samfara, sé
alltaf eitthvað um búferlaflutn-
inga tæknifólks út á land. Síðast
en ekki síst sé það mat sveitar-
stjórnarmanna að þessi atvinnu-
grein muni stuðla að hækkun
fasteignaverðs á stöðunum auk
annarra jákvæðra margfeldisá-
hrifa. Þá sé flutningsgetan á
gögnum enn nægjanleg fyrir
þessa starfsemi í það heila tekið.
A sama tíma og hvert starf í
framleiðslugreinum sé talið kosa
um 3 milljónir króna kostar það
ekki nema 1200-1500 þúsund í
íjarvinnslunni. Auk þess gefur
Ijarvinnslan hámenntuðu fólki
tækifæri til að flytja heim á ný
eftir að hafa dvalið langdvölum
erlendis eða á höfuðborgarsvæð-
inu, þar sem staðsetningin skipt-
ir ekki máli.
Margar gættir opnast
Svavar segir að á vegum fyrirtæk-
isins sé verið að setja upp fimmt-
án starfsstöðvar víðs vegar um
Iandið. Hann segir að það sé
mikil ásókn í verkefni, auk þess
sem „margar gættir opnigt,“ við
það að flytja þessa starfsemi út á
Iand. Um 12-13 manns vinna við
fjarvinnsluna á hverjum stað;
fimm manns í dagvinnu frá 9-17
og aðrir fimm frá klukkan 18-22.
Við þetta bætist framkvæmda-
stjóri, tölvumaður og einn í ræst-
ingum. I þessari útrás sé einnig
verið að flytja verkefni út á land
sem áður hafa verið unnin í höf-
uðstöðvum Islenskrar miðlunar í
borginni. Helstu verkefni Ijar-
vinnslunnar á Iandsbyggðinni
séu m.a. ýmsar úthringingar og
vinna við gerð skoðanakannana.
Þessutan sé vaxandi eftirspurn
‘éftir hjálparsímum og annarri
símaþjónustu meðal fyrirtækja.
Simstðð Íslandssíma
Við opnun stöðvarinnar á Stöðv-
arfirði verður m.a. kynntur
samningur sem gerður hefur ver-
ið á milli Islenskrar miðlunar og
Íslandssíma. Samkvæmt honum
verður Islensk miðlun einskonar
símstöð fyrir Islandssíma. Svavar
segir að þau störf sem skapast
við það verði úti á landi. Það
þýðir að þegar hringt er í Is-
Iandssíma verður sá eða sú sem
svarar jafnvel á Suðureyri við
Súgandafjörð. - GRH
Enn þurfa notendur Hvalfjarðarganga
að bíða eftir verðlækkun í göngin.
Nýgjald
skrafrest-
ast eim
Ný gjaldskrá Spalar í Hvalfjarð-
argöngin er ekki enn komin til
framkvæmda þar sem samþykki
hefur ekki borist frá aðallán-
veitandum, John Hancock
tryggingarfélaginu. Upphaflega
átti gjaldskráin að taka gildi um
síðustu mánaðamót. Að sögn
Stefáns Reynis Kristinssonar,
framkvæmdastjóra Spalar, er
ástæða seinkunarinnar ekki sú
að gjaldskráin standi í forráða-
mönnum tryggingarfélagsins.
Sumarfrí hafi tafið afgreiðslu
málsins. Stefán á von á að gjald-
skráin taki gildi síðar í þessum
mánuði eða um mánaðamótin
næstu.
Samkvæmt áætlunum hefur
ný gjaldskrá í för með sér tekju-
lækkun um 13%. Það ætti þó
ekki að skaða afkomuna veru-
lega þar sem tekjur á þessu ári
fóru 30-40% fram úr áætlunum.
- BJB
Ýmir á réttan kjöl
Um miðjan dag í gær tókst að
rétta togarann Ymir við að mestu
eftir að hann hafði nær sokkið í
Hafnarfjarðarhöfn daginn áður
þegar verið var að dæla olíu í
skipið. Nær tómt var í öðrum
tönkum skipsins og því hallaðist
það á stjórnborðshliðna og sjór
flæddi inn um slóglúgu skipsins
sem var opin. Viðar Þórðarsson,
hafnarvörður, sagðist vonast til
að menn væru komnir fyrir vind
í aðgerðum sínum til bjargar
skipinu. Um 40-50 manns hafa
unnið að björgun Ymis. Talið er
að tjón útgerðarinnar hlaupi á
einhveijum hundruðum milljóna
króna.
Forvitnir vegfarendur
A fjöru í fyrrinótt mistókst að
rétta skipið við með því að dæla
sjó út úr skipinu. Hafist var
handa við dæla úr því þegar fjar-
aði um hádegisbilið í gær. Þá
voru menn líka reynslunni ríkari
eftir nóttina. Viðar Þórðarson,
hafnarvörður, segir að gríðarleg
umferð fólks hafi verið um hafn-
arsvæðið í gær og einnig í fyrra-
kvöld. Hann segir að umferð bíla
hafi einnig verið mikil og líkir
henni við það sem gerist í örtröð-
inni við Gullinbrú á álagstímum.
Hinsvegar hafi lögreglan girt af
svæðið í grennd við Ymi til að
koma í veg fyrir að forvitnir veg-
farendur trufluðu björgunar-
menn að störfum. - GRH
Framtíðarhúsnæðis leitað
Haraldur Sumarliðason, formað-
ur Samtaka iðnaðarins, sagði við
Dag að tillögur um Finn og Ara
hefðu verið samþykktar mótat-
kvæðalaust og almenn ánægja
ríkti með ráðningu þeirra. „Við
erum einhuga um að þetta sé góð
skipan í báðum tilvikum," sagði
Haraldur.
Fram að stofnfundi í septem-
ber þarf að vinna að ýmsum öðr-
um verkefnum. Meðal annars
þarf að ganga frá stofnun undir-
samtaka, þ.e. hjá fjármálafyrir-
tækjum og verslunar- og þjón-
ustuaðilum, sem standa að Sam-
tökum atvinnulífsins. Einnig
þarf að ganga frá skipan 100
manna trúnaðarráðs, sem til-
nefnt er af formönnum aðildar-
félaganna. Ur þeim hópi á að
skipa 20 manna stjórn sem að
lokum velur 7 manna fram-
kvæmdastjórn. Einnig er í gangi
samkeppni um merki samtak-
anna sem kynnt verður í tengsl-
um við stofnfundinn.
Til að byrja með verða Samtök
atvinnulífsins til húsa í höfuð-
stöðvum VSI í Garðastrætinu.
Það er ekki framtíðarlausn og
stendur leit yfir að hentugu hús-
næði. Búið var að gera tilboð í
hús Islenskra sjávarafurða í Sig-
túni en samkomulag náðist ekki
um það. - BJB
Engin þensla á Húsavík
Stjórn Verkalýðsfélags Húsavíkur hefur sent frá sér ályktun vegna
frétta í Ijölmiðlum um hugmyndir stjórnvalda um að slá á þensluna
í þjóðfélaginu, með þvf meðal annars að fresta framkvæmdum við
Húsavíkurhöfn. Stjórnin tekur undir áskorun hafnarnefndar Húsa-
víkur til stjórnvalda og þingmanna kjördæmisins um að falla frá hug-
myndum sem uppi kunna að vera um frestun hafnarframkvæmda á
Húsavík og að ríkið stuðli frekar að uppbyggingu atvinnulífs í bæn-
um með því að flýta þeim framkvæmdum eins og unnt er. Vakin er
athygli á því að þensla sé eitthvað sem farið hafi framhjá Iandsbyggð-
arfólki og því komi hugmyndir sem þessar verulega á óvart. - hi
„2 lyrir l46 á Götukorti Virkisins
Meðferoarheimilið Virkið gefur í dag út svokallað Götukort, sem er
ný leið til að afla Ijármagns til rekstrarins. Kortinu fylgja „2 fyrir 1“
tilboð frá 14 fyrirtækjum. Kortið kostar 1.500 krónur og afslátturinn
í því nemur 20 þúsund krónum. Það verður m.a. til sölu á bensín-
stöðvum Esso á höfuðborgarsvæðinu.
Viuningshafi í ferðagetraim
Dregið hefur verið í síðustu ferðaget-
raun Dags og Islandsflugs. Sem fyrr
sendi mikill íjöldi Iesenda Dags inn
svör við ferðagetrauninni en í boði er
flugfar fyrir tvo í innanlandsflugi fram
og til baka með Islandsflugi.
I síðustu getraun var spurt: * Hvar
fellur Lagarfljót til sjávar? Svar: í Hér-
aðsflóa. * Hvað heita byggðarlögin tvö
sem standa sitt á hvorum bakka Lag-
arfljóts? Svar: Egilsstaðir og Fellabær.
Dregið var úr innsendum lausnum
og vinninginn hlýtur: Ester Sigurðar-
dóttir, Hafnarstræti 86a, 600 Akur-
eyri. Ester hefur þar með unnið sér inn gjafabréf frá Islandsflugi upp
á ferð fyrir tvo, fram og til baka frá einhveijum áætlunarstaða Is-
Iandsflugs. Við óskum henni innilega til hamingju með vinninginn og
segjum: Góða ferð!
Margrét Kröyer, starfsmaður
Dags, dregur úr innsendum
lausnum.