Dagur - 12.08.1999, Page 4
4- FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999
jya^ur
FRÉTTIR
Skila skýrslu í íikuuui
Stýrihópurinn, sem Siv Friðleifsdóttir skipaði til ráðgjafar um aðgerðir
varðandi olíulelcann úr E1 Grillo á botni Seyðisfjarðar, stefnir að því að
skila skýrslu um málið í þessari viku. „Við erum að skoða þetta og erum
að vinna þetta hratt,“ sagði Einar Sveinbjörnsson, aðstoðarmaður um-
hverfisráðherra, í samtali við blaðið í gær. Hann er á ferð eystra ásamt
ráðherra til að kynna sér aðstæður og heyra sjónarmið heimamanna.
„Stýrihópurinn ætlar að skila sínum tilíögum til ráðherra mjög fljótlega.
Við skulum segja að við ætlum að skila þessu af okkur í þessari viku. Að-
gerðimar, hveijar sem þær verða, eru síðan háðar því að fjármunir fáist
í að gera það sem gera þarf. Það er þörf á ákveðnum hlutum þarna en
umhverfisráðuneytið hefur ekki fé á fjárlögum til þessa verkefnis þannig
að umhverfisráðherra þarf að leggja næstu skref fyrir ríkisstjórnina,"
sagði Einar.
MTCHELL SC-60
AUÐVELD SPOLUSKIPTI
EINFALDA VEIÐISKAPINN
Nýtt spólukerfi - CONCEPT
3 spólur fylgja hverju hjóli
Stór línu-rúlla
Kúlulega í haus
Fellanleg sveif
Innspólun 0,85 metrar
Hagstætt verð
MITCHELL
Mávahlíð 41, Rvík, sími 562 8383
OG SÖLUAÐILAR UM ALLT LAND
SPORTVORU
GERÐIN HF.
T
Nemendur frá tuttugu löndum stunda nú eðlisfræðinám á Akureyri. Á innfelldu myndinni er Lárus Thorlacius.
AlJjjúólegur eðlls-
fræðiskóli á Akureyri
Tveggja vLkna edlis-
fræðiskóli hófst á Ak-
nreyri í vikimni.
Merkir fyrirlesarar,
nemendur frá tuttugu
löndum.
„Við erum að ræða það nýjasta
sem hefur verið að gerast í þess-
um greinum á undanförnum
árum og jafnvel mánuðum," segir
Lárus Thorlacius, einn af að-
standendum tveggja vikna eðlis-
ffæðiskóla sem nú stendur yfir í
Menntaskólanum á Akureyri.
Skólinn er styrktur af NATO,
Norfag, sem er norrænn vísinda-
sjóður og Nordita, sem er sam-
norræn eðlisfræðistofnun í Kaup-
mannahöfn.
„Þetta er eðlisfræðiskóli, nánar
tiltekið er hér fjallað um öreinda-
fræði, það er sú grein eðlisfræð-
innar sem fæst við minnstu bygg-
ingareiningar eðlisheimsins og
hvernig þær víxlverka hver við
aðra,“ segir Lárus. „Okkur gekk
mjög vel að fá fjármagn í þetta og
töluðum við fyrirlesara sem við
höfðum áhuga á að fá, við góðar
undirtektir. NATO hefur lengi
verið með vísindanefnd sem hef-
ur ákveðna fjárveitingu og notað
hana til að örva vísindasamstarf í
aðildarríkjunum og núna er
áherslan á samstarf við Austur-
Evrópu."
Kaffitímamtr miMlvægir
Mjög vel gekk að fá þekkta fyrir-
lesara og meðal annars eru þarna
eðlisfræðingar frá Stanford,
Harvard, M.I.T. og fleiri virtum
skólum í Bandaríkjunum og Evr-
ópu. Nemendur eru frá tuttugu
iöndum og eru flestir á lokastig-
um doktorsnáms, sumir hafa Iok-
ið doktorsnámi og eru í rannsókn-
arstöðum en nokkrir starfandi
prófessorar einnig. „Kannski er
mesta gildi svona sumarskóla
fólgið í því að það kemur saman
hópur mjög efnilegra vísinda-
manna, sem kynnast og eiga von-
andi eftir að eiga samvinnu og
samstarf í framtíðinni. Jafnframt
erum við líka með fyrirlesara í
fremstu röð sem geta miðlað af
sinni þekkingu í umhverfi þar
sem nemendur hafa betri aðgang
að þeim, því hér eru allir saman í
tvær vikur. Kaffitímarnir eru
kannski ekki síður mikilvægir en
fyrirlestrarnir," segir Lárus Thor-
lacius, en hann og Þórður Jóns-
son eru á meðal fyrirlesara á skól-
anum. — HI
16 ventla vél með fjölinnsprautun, 85-96 hestöfl
Vökva- og veltistýri • Hæðarstillanleg kippibelti
Rafstýrðar rúður og speglar • Öryggisloftpúðar
Samlæsing • Krumpusvæði að framan og aftan
Þjófavörn • ABS hemlar • Styrktarbitar í hurðum
Upphituð framsæti • Útvarp með segulbandi
Rafstýrð hæðarstilling framljósa
Litaðar rúður • Samlitaðir stuðarar
$ SUZUKI
—■^4* ---
Ertu að hugsa um:
• Rými?
• Þægindi?
• Öryggi?
• Gott endursöluverð?
• Allt þetta sem stáðalbúnað:
Bfll sem er algjörlega hannaður fyrir þig.
Og það leynir sér ekki...
Fæst í tískulitnum í ár: aluminium silver metallic.
Renndu við hjá okkur í dag
og reynsluaktu Suzuki Baleno.
Hann kemur þér þægilega á óvart.
TEGUND:
1.3 GL 3d
1.3 GL4d
1,6 GLX 4d, ABS
1,6 GLX 4x4, 4d, ABS
1,6 GLX WAGON, ABS
1,6 GLX WAGON 4x4, ABS
VEKÐ:
1.195.000 KR.
1.295.000 KR.
1.445.000 KR.
1.575.000 KR.
1.495.000 KR.
1.675.000 KR.
Sjálfskipting kostar 100.000 KR.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00
Heimasíða: www.suzukibilar.is