Dagur - 12.08.1999, Blaðsíða 6
6 -JflMMTUDAGVR 12.. HiG ihS T 19 9 9
-Ðagnr
ÞJÓÐMAL
«**
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
Adstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Simar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Netfang auglýsingadeildar:
Símar auglýsingadeildar:
Símbréf auglýsingadeildar:
Símbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.800 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
omar@dagur.is
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYR 1)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
460 6161
460 6171(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Mannleg eymd
í fyrsta lagi
Islendingar voru í hópi þeirra Qölmörgu sem gátu farið út úr
húsi og fylgst með sólmyrkvanum í gær. Hér var að vísu einung-
is svokallaður deildarmyrkvi - það er tunglið þakti aðeins veru-
legan hluta sólarinnar en ekki hana alla. Víða annars staðar
horfðu milljónir manna á almyrkva af því tagi sem Islendingar
sáu síðast árið 1954. Þeir sem ekki voru staddir á þeim stöðum
á jörðinni þar sem sólmyrkvinn sást, eða sáu ekkert fyrir skýj-
um, gátu fylgst með í beinum útsendingum á alþjóðlegum sjón-
varpsstöðvum. Þetta var því einn af þeim atburðum sem stór
hluti mannkyns gat sameinast um að fylgjast með og ræða um.
í öðru lagi
Slíkir viðburðir ættu að vera mönnunum kærkomin tilbreyting
frá jarðbundnum hversdagsleika þar sem smávægileg vandamál
verða gjarnan stór. Að horfa á mikilfenglegt sjónarspil himin-
tungla ætti að minna alla á örsmæð okkar í alheiminum - ekki
bara íslensku þjóðarinnar heldur jarðarinnar í heild sinni. Og
um leið að gera öllum Ijóst hversu hjákátlegt það er af mann-
inum að líta á sig sem herra veraldarinnar og æðsta stig sköp-
unarinnar. Andspænis sigurverki alheimsins verður ófullkom-
leiki mannanna nefnilega yfirþyrmandi og endalausar deilur
þeirra grátbroslegar.
1 þriðja lagi
Því miður hefur manninum ekki tekist að þróa með sér samfé-
lag þar sem samhugur, samhjálp og virðing fyrir lífinu er höfð
að leiðarljósi. Þvert á móti hafa „framfarirnar" gjarnan leitt
margháttaðar hörmungar yfir þjóðir og einstaklinga. Við lok
þessarar blóðugustu aldar í sögu mannkynsins eru fjölmargar
styrjaldir þannig enn háðar af mikilli grimmd. Maðurinn hefur
vissulega náð svo langt á tæknibrautinni að hann gæti útrýmt
hungri og mörgum þeim sjúkdómum sem kalla víðtækar hörm-
ungar yfir milljónir manna. En það er ekki nægur vilji til að
nýta þá þekkingu til að leysa þessi alvarlegu vandamál. Þvert á
móti er hún alltof oft notuð fyrst og fremt í því skyni að auka
á misrétti og hörmungar í heiminum.
Elías Snæland Jónsson.
Lenínistar og end-
ur sko ðnnar sinnar
Ein af áhrifamestu bókum V.I.
Leníns sáluga, heitir „Heims-
valdastefnan - efsta stig kapít-
alismans11. Þessi bók og sú
þjóðfélagsgreining sem í henni
er hefur oft verið notuð sem
prófsteinn á það hvort menn
geti talist lenínistar eða ekki.
Bókin er afskaplega Ieiðinleg
aflestrar, mest einhverjir efna-
hagsreikningar stórfyrirtækja
víða um heim og setningarnar
eru minnst hálf blaðsíða á
lengd. Megin boðskapurinn er
þó sá að samkeppnin í kapítal-
ismanum sé svo mikil og hörð
að þeir stóru yfirtaki þá smáu
og samþjöppun
valds og eigna
leiði af sér enn
frekari sam-
þjöppun valds og
eigna. Á heims-
valdastigi sínu er
kapítalisminn
loks orðinn að
einokunarkapít-
alisma sem er skoðunarsinni.
þróaðasta og ill-
skeyttasta stig þessa þjóðfé-
lagsskipulags. Samkvæmt
Ienínistum er kapítalisminn í
dag einmitt kominn á þetta
einokunarstig - eða að komast
á það og það er ekkert sem get-
ur komið í veg fyrir það. Þetta
er nefnilega lögmál - efna-
hagslögmál.
Maxgir lenínistar
Garri er að sjálfsögðu gamall
lenínaðdáandi þótt hann hafi
ekki hátt um það svona hvers-
dags - enda kannski ekki alltaf
á hinni kórréttu lenínísku
Iínu. Hins vegar hefur Garra
þó hlýnað um hjartarætur síð-
ustu daga þegar í ljós hefur
komið að hver Ienínistinn á
fætur öðrum kemur út
skápnum. Nú er það greinilega
Davíð Odds-
son, endur-
að verða fínt að vera Ienínisti.
Garri vissi alltaf að tími
Leníns myndi koma - aftur.
Það sem vakið hefur Lenín úr
dvala er vitaskuld FBA málið
og spurningin um hina dreifðu
eignaraðild. Þar skiptist þjóðin
algerlega í tvo flokka,
lenínistana og endurskoðunar-
sinnana.
Tímamót
Lenínistarnir eru trúir kenn-
ingum Leníns um lögmálið og
segja ógerlegt að koma í veg
fyrir þróun þjóðfélagsins í átt
að einokunarkapítalisma. Lög-
mál sé Iögmál og
það sé helber
kleppsvinna að
streitast á móti
því sem hlýtur að
gerast. Endur-
skoðunarsinn-
arnir hins vegar
eru þeir sem vilja
beija höfðinu við
steininn og end-
urskoða reglurn-
ar til að halda uppi a.m.k. ein-
hverjum vörnum gegn einok-
unarþróuninni. Flokkakerfið
stendur því á tímamótum.
Fjórflokkurinn er dauður en
tvíflokkurinn að rísa í hans
stað. Endurskoðunarsinnar vs.
Ienínistar. Foringjaefnin eru
mörg í báðum herbúðum. Hjá
Endurskoðunarsinnum má
nefna Davíð Oddson, Margréti
Frímanns, Styrmi Gunnars-
son, Steingrím J. og Sigurð
Gísla Pálmason. Hjá lenínist-
um er foringjasveitin jafnvel
enn fjöbeytilegri. Þar eru Hall-
dór og Finnur, Vilhjálmur Eg-
ils, Jón Olafsson í Skífunni,
Hreinn Loftsson og síðast en
ekki síst Sighvatur Björgvins-
son. GARRI
Halldór Ás-
grímsson
lenínisti
JÓHANNES
1 . SIGURJÓNS-
SON
skrifar
Dreifíng er alit sem þarf
Tiltekin hugtök skjóta annað
veifið upp kollinum í samfélag-
inu og tröllríða umræðunni
nokkrar vikur. Allir leggja orð í
belg en fæstir vita um hvað er
verið að fjalla. Eftir nokkra orra-
hríð um hríð fellur allt í ljúfa löð
og hið margumrædda hugtak
fellur í gleymsku og dá.
Um þessar mundir er hin svo-
kallaða „dreifða eignaraðild“ mál
málanna og fjölmiðlar uppfullir
með fróðleik um fyrirhærið.
Stjórnmálamenn og peninga-
menn rita lærðar greinar um
dreifða eignaraðild og almenn-
ingur gín að sjálfsögðu yfir Iost-
ætinu og sporðrennir spekinni
án þess þó að nærast verulega af
vitsmunum og skilningi á því
sem á borð er borið.
Kommiínisiiii?
Þó fær maður það á tilfinning-
una að dreifð eignaraðild að
bönkum og fjármálafyrirtækjum
sé svona heldur af hinum góða.
Að það sé betra að margir eigir
Fjárfestinga-
banka atvinnu-
lífsins en fáir.
Með öðrum orð-
um að það sé
óæskilegt að
eignir og pen-
ingavald safnist á
fárra hendur.
Ráðherrar og
þingmenn stjórn-
ar og stjórnarand-
stöðu hafa margir
tjáð sig um máíið
og talað fyrir
dreifðri eignarað-
ild að FBA.
Gott óg vel! En með Ieyfi að
spytja, er dreifð eignaraðild ekki
einhverskonar kommúnismi?
Snérist kommúnisminn ekki
eitthvað um það að verkalýður-
inn ætti að eiga framleiðslutæk-
in, að allir ættu jafhan rétt og að
enginn væri öðrum ríkari af ver-
aldlegum auði?
Eru Davíð Odd-
son og félagar að
boða endurreisn
kommúnisma á
Islandi?
Dreift þéttbýli
Ef við gerum því
skóna að dreifð
eignaraðild að
FBA sé æskileg
og góð, hlýtur
það þá ekki að
gilda um fleiri
fyrirbæri? Hvað
um kvótann? Er þá ekki sjálfsagt
að dreifa eignaraðild að kvótan-
um, sem ku reyndar þegar vera
sameign landsmanna? Eiga ekki
allir að eiga eitt tonn af þorski í
stað þess að allur kvótinn sé á
fárra höndum?
Og hvað um landið sjálft, af-
rétti og heimalönd? Þurfum við
ekki að dreifa eignaraðild að
landinu í stað þess að bændur
eigi miklu stærri skika en við
hin? Svo ekki sé talað um stór-
eignamenn. Er ekki eðlilegt að
dreifa eignaraðild að stóreignum
í Iandinu? Fara í dálítinn Hróa
Hattar Ieik, klípa ögn af þeim
ríku og færa þeim fátæku og
tryggja þannig dreifða eignarað-
ild að heildareignum Iands-
manna?
Það þarf að dreifa eignum og
örbirgð. Það þarf að dreifa þétt-
býlinu meira en orðið er og þétta
dreifbýlið. En fyrst og fremst
þarf að drepa öllum málum á
dreif. Og sú verður örugglega
raunin með hina núheilögu og
síumtöluðu dreifðu eignaraðild.
svairað
Er hægt að tryggja
dreifða eignaraðild við
sölu ríkisins áfjármála-
fyrírtækjum?
Ragnar Tómasson
lögmaður.
„Það er óþægilegt
hugboð mitt að
stjórnmálamenn
spyrji í þessu
máli fyrst hver sé
að kaupa og ef
þeir vita ekki
hver kaupandinn
er, eða um „rangan" aðila“ er að
ræða, þá hættir mönnum til að
fá sting fyrir hjartað. Slíkar per-
sónulegar vangaveltur eru afleit-
ur vegvísir við stjórn atvinnulífs-
ins. Telji menn að kostir frjáls
markaðar séu meiri en ókostirn-
ar þá er rökrétt áframhald af
þeirri skoðun að láta markaðinn
vinna eftir sfnum eigin lögmál-
Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir
þingmaðurSamJylkingar.
„Það held ég að
verði mjög erfitt
og nánst ekki
hægt. Verðbréfa-
markaðurinn á
Islandi er frjáls
og tilraunir til að
tryggja dreifða
eignaraðild eða aðrar hömlur í
þá veru myndu leiða til þess að
hlutur ríkisins, það er almenn-
ings, í fjármálafyrirtækjum ein-
sog til dæmis Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins myndi lækka stór-
lega í verði. Greinilegt er þó að
Kolkrabbinn er uggandi yfir
stöðu þessa máls.“
Sveinn TorfiL Pálsson
aðstoðarframkvæmdastjóri Kaupþings
Noiúurlands.
„Á frjálsum
markaði verður
aldrei hægt að
stjórna því hvetjir
eiga bréf í þeim
fyrirtækjum sem
skráð eru á hluta-
bréfamarkaði.
Það gengur aldrei að einhverjar
hömlur séu á meðferð skráðra
hlutabréfa og ég held að ekki sé
hægt að koma f veg fyrir að ein-
stakir aðilar eignist meira en ein-
hver ákveðin mörk í tilteknum
félögum.“
Sverrir Hermannsson
þingmaðurFijálslyndaflokksins
„Það er erfitt, en
hægt er áreiðan-
lega með auð-
veldum hætti að
sporna gegn því
að bankarnir fari
á örfáar hendur.
Hinsvegar er ekk-
ert hægt að gera ef menn halda
sig við þá stefnu að þjóðarauður-
inn sjálfur, fiskurinn í sjónum, sé
á höndum örfárra einstaldinga.
Þetta sem uppá kemur núna
með Fjárfestingarbanka atvinnu-
lífsins er frjálshyggja í fram-
kvæmd. Sjónarmið um annað er
yfirskin og friðþæginartal manna
sem eru vissir um að fallið komi
ekki fyrr en eftir þeirra dag.“