Dagur - 04.09.1999, Síða 4
4r'~ LAUGARUAG.V-R -4. S E P T-E.M-B E R- 199 9 .
FRÉTTIR
L.
I^HT'
KUABÆNDUR
Afuxöastöövar í eigu mjólkurfram-
leiöenda
Aðalfundurinn ályktaði að LK hafi alla tíð lagt áherslu á mikilvægi
þess að afurðastöðvar í mjólkuriðnaði væru í eigu og undir stjórn
mjólkurframleiðenda til að tryggja hagsmuni kúabænda. Gildi þeirrar
stefnu sannaðist eftirminnilega þegar bændur í Suður-Þingeyjarsýslu
lentu í hremmingum vegna þrenginga Kaupfélags Þingeyinga. Jafn-
framt hafa komið fram sterkari vísbendingar en áður um að lagaleg-
ar forsendur séu fyrir því að innleggjendur mjólkursamlaga á vegum
kaupfélaga eigi eignarréttarlegt tilkall til mjólkursamlaganna. Því fel-
ur fundurinn stjórn LK að stuðla að því að mjólkursamlög sem enn
eru starfrækt innan kaupfélaga, komist formlega í eigu framleiðenda
og undir stjórn þeirra. Er stjórninni heimilað að styðja samtök mjólk-
urframleiðenda, eða einstaklinga í umboði þeirra, með fjárframlögum
eða á annan hátt ef nauðsynlegt reynist að fara með slík mál fyrir
dómstóla.
Staðan á kjötmarkaði
Aðalfundurinn hvetur stjórn LK til að fylgjast vel með stöðu á kjöt-
markaði og grípa til verðuppbóta á slátraða ungkálfa ef ástæða þykir
til. Einnig hvetur fundurinn stjórn til að beita sér fyrir öflugu átaki í
markaðsmálum nautakjöts. Fundurinn minnir á fyrri samþykktir um
niðurfellingu tolla af innfluttum kjarnfóðurblöndum og felur stjórn
að fylgja málinu fast eftir. Fundurinn lýsir einnig þungum áhyggjum
yfir samdrætti í sölu mjólkurafurða. Telur fundurinn nauðsynlegt að
legga enn aukna áherslu á sölu- og markaðsstarf til að snúa þeirri þró-
un við. Skipuð var þriggja manna nefnd til að undirbúa nauðsynleg-
ar breytingar í tilraunastarfsemi greinarinnar. Óskað er eftir að
nefndin starfi með Fagráði í nautgriparækt. í nefndinni sitja Jón
Gíslason, Lundi, Sigurður Loftsson, Steinsholti og Sigurgeir Hreins-
son, Hríshóli.
Leiðbeiningaþjónusta
Aðalfundur LK vísar tilstefnumörkunar aðalfundar 1998 varðandi
leiðbeiningaþjónustu. Þar sem fljótlega má vænta niðurstöðu
RANNIS-verkefnisins, sem fjallar m.a. um þennan þátt, telur fund-
urinn augljóst að frekari vinna við stefnumörkun á þessu sviði bíði
hennar. Félag kúabænda í Austur-Hún. óskaði eftir því að aðalfund-
ur LI< 1999 tæki afstöðu til hvort leiðbeiningaþjónustan eigi að vera
áfram á vegum búnaðarsambanda og fjármögnuð með líku sniði og
nú er þ.e. að mestu meö hluta af búnaðargjaldi og framlögum frá því
opinbera eða hvort leiðbeiningaþjónustan færist til búgreinafélag-
anna og hver búgrein ákveði fyrir sig hvernig þessari þjónustu verði
háttað og hvernig hún verði fjármögnuð.
Sorpa styrkir liknarfélög
- mynd: hilmar þór.
Nýlega afhenti Sorpa 600 þúsund króna styrk til handa Þjónustu-
setrinu, Tryggvavötu 26, sem starfrækt er af 6 líknarfélögum. Tilefn-
ið var 5 ára samstarfsafmæli Sorpu og líknarfélaganna og einnig það
að nytjamarkaður Sorpu fékk nýtt nafn, Góði hirðirinn. Afhending
styrksins fór einmitt fram hjá Góða hirðinum, Hátúni 12. Hér tekur
Jón Guðnason, forstöðumaður Þjónustusetursins, (t.h.) við styrkn-
um úr hendi Ögmundar Einarssonar, framkvæmdastjóra Sorpu.
Hugbmtaðarsýnmg
Eftir nelgina fer fram tveggja daga hugbúnaðarsýning í Reykjavík er
ber yfirskriftina „AutoCAD EXPO 1999“. Finnur Ingólfsson iðnaðar-
ráðherra mun opna sýninguna á Grand Hótel nk. mánudag. Megin-
uppistaða sýningarinnar er hugbúnaður frá Autodesk, sem er fjórði
stærsti framleiðandi hugbúnaðar í heiminum og framleiðir eingöngu
forrít lyrir hönnuði og tæknimenn. Auk sýningarinnar verða fluttir
fyrirlestrar. Umboðsaðili Autodesk hér á landi er Hugbúnaður hf. í
Kópavogi.
Aðgerðir Seðiabankans virðast því á góðri leið með að ná þeim markmiðum að bæta lausafjárstöðu lánastofnana.
24 miUjörðum
neðan við strik
Lausafjárreglumar á
góðri leið að ná tilætl-
iiðinii iiiarkiiiiðuiii.
Lausafjárstaða innlánsstofnana,
innlend og erlend, rýrnaði um
röska 30 milljarða króna á síð-
asta ári og var orðin neikvæð um
tæpa 24 milljarða (sem svaraði
11 % heildarinnlána) í lok janúar
sl. þegar hún náði lágmarki. I
júlílok hafði hún aftur batnað
um tæpa 17 milljarða. „Aðgerð-
ir Seðlabankans virðast því á
góðri leið með að ná þeim mark-
miðum að bæta lausafjárstöðu
lánastofnana, lækka erlendar
skammtímaskuldir og draga úr
miklum vexti útlána,“ segir í nýj-
ustu hagtölum Seðlabankans,
þar sem teldn eru fyrir áhrifin af
lausaljárreglunum sem bankinn
setti til að reyna að draga úr
hinni taumlausu útlánaaukn-
ingu sem hófst um mitt ár í fyrra
og var að stórum hluta fjármögn-
uð með erlendum skammtíma-
lánum.
Margfalt áhyggjuefiii
„Hraður útlánavöxtur getur, að
mati Seðlabankans, falið í sér
vissar hættur fyrir efnahag lána-
stofnana í framtíðinni auk þess
sem útlánaþensla magnar inn-
lenda eftirspurn. Þá var mikil
aukning erlendra skammtíma-
lána Iánastofnana sjálfstætt
áhyggjuefni þar sem slík lán geta
reynst hverful ef slær í bakseglin
í rekstri einstakra lánastofnana,"
segir Seðlabankinn. Þegar ljóst
varð að fortölur dugðu ekki til
ákvað Seðlabankinn að grípa til
þess ráðs að leggja kvaðir um
Iaust fé á lánastofnanirnar, sem
varð þeim vægast sagt lítið fagn-
aðarefni. En „trikkið" virðist
hafa virkað.
Útlán banka og sparisjóða
námu um 372 milljörðum í júlí-
lok og höfðu þá aukist um liðlega
101 milljarð á tólf mánaða tíma-
bili, eða um þrisvar sinnum
meira en innlánin. - HEI
Langfl est sýni frá
Reykjagaroi sýkt
Samkvæmt samantekt rannsóknastofu Hollustuverndar
ríkisins, sem Dagur hefur undir höndum, greindust 15 af
18 sýnum úr kjúklingum frá Reykjagarði með
campylobacter-sýkingu á tímabilinu 1. janúar 1998 til 1.
ágúst í ár.
Samkvæmt samantekt
rannsóknastofu Holl-
ustuverndar ríkisins,
sem Dagur hefur undir
höndum, greindust 15
af 18 sýnum úr kjúkling-
um frá Reykjagarði með
campylobacter-sýkingu
á tímabilinu 1. janúar
1998 til 1. ágúst í ár.
Þessi skýrsla rannsókna-
stofunnar er dagsett 1 1.
ágúst 1999 og var hún
send öllum heilbrigðis-
eftirlitssvæðum lands-
ins.
Um er að ræða saman-
tekt yfir greiningar á
campylobacter f sýnum
frá eftirlitsaðilum. A
umræddu tímabili voru
greind 18 sýni af kjúklingum frá
Reykjagarði, þar af úr einum
kalkúni. Af þessum 18 reyndust
15 sýni jákvæð, eða í 83% til-
fella. Greind voru 6 sýni frá
Ferskum kjúldingum og helm-
ingur þeirra var með
campylobacter. Sama tíðni var á
kjúklingasýnum frá kjúklinga-
framleiðandanum Móum, eða 5
af 10 sýnum greindum, en af 7
sýnum frá Isfugli reyndust öll
neikvæð, þ.e. ekki með
campylobacter sýkil.
Ekki í svína-, nauta-
eða laxnbakjöti
Campylobacter mældist
ekki á þessum tíma í sýn-
um frá þremur framleið-
endum svínakjöts, þrem-
ur framleiðendum
nautakjöts og tveimur
framleiðendum lamba-
kjöts. Fimm sýni af
hverri kjöttegund komu
til greiningar á umræddu
tímabili, 1. janúar í fyrra
til 1. ágúst á þessu ári.
Þá voru 8 sýni tekin til
greiningar úr neyslu-
vatni á alifuglabúum og
ekkert þeirra reyndist
með campylobacter. Af
62 sýnum sem tekin
voru vegna meintra hóp-
sýkinga reyndust 2 sýni inni-
halda umræddan sýkil og f báð-
um tilfellum er um að ræða
neysluvatnssýni sem tengdust
„Iítilli hópsýkingu", eins og það
er orðað í samantektinni, sem
kom upp á síðasta ári. — bjb