Dagur - 04.09.1999, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999 - 9
Ougur.
breytni tekur gildi um áramótin.
Þá er í undirbúningi gerð þjón-
ustusamninga um tvö viðfangs-
efni sjúkrahúsanna, öldrunar-
þjónustu og endurhæfingu:
„Unnið er að því þessar vikurnar
að skilgreina starfsemina og af-
marka hvaða þjónustu eigi að
veita og hvernig. I þessu felst í
sjálfu sér að skipuleggja að nýju;
þjónustu, rekstur, fjármuni,
ábyrgð og stjórnun. Við vonumst
til að samningarnir taki einnig
gildi um áramót."
Vill erlendan samanburð
Magnús kvaðst hafa spurt for-
ystumenn á sjúkrahúsunum hvort
ekki væri timabært að leggja starf-
semi sjúkrahúsanna á alþjóðlegar
vogaskálar og gera minna úr sam-
anburði innanlands: „Það er
áhugavert fyrir landsmenn og fag-
fólk að vita að árangur okkar á
j- syiði hjartask^Ufðlsekninga og end-
urhæfingar heilablóðfallssjúk-
linga, svo eitthvað sé nefnt, er
jafn góður, ef til vill betri, en
þeirra sem við veljum til viðmið-
Nýtt fyrirtæki tekur
við þjóiiusturaim-
sóknum ríkisspítal-
auua.
unar. A öðrum sviðum stöndum
við okkur verr. Slíkan samanburð
vildi ég gjarnan sjá í sem flestum
læluiisgreinum.
Eg tel að samanburður hér inn-
anlands sé í sjálfu sé heimóttar-
legur og að okkur væri mun gagn-
legra, að fá staðfestingu þess, að
við stöndumst alþjóðlegan saman-
burð. Eitt af verkefnum haustsins
verður því að velja sjúkrahús ytra
sem við getum kinnroðalaust bor-
tel ég að við eigum að hafa eitt
sjúkrahús norrænt, annað vestur-
evrópskt og það þriðja í vestur-
heimi. Því hefur löngum verið
borið við hér á landi að saman-
burður á milli sjúkrahúsa sé ekki
mikils virði því sérstaða sé svo
mikil. Grunngögn eru véfengd og
ályktanir því ekki taldar brúklegar.
Ég held að þetta sé faglegri um-
ræðu ekki til framdráttar."
Mönnim veróur erfiöari
Hann sagðist lengi hafa geðjast
illa að því að „stilla starfsemi
sjúkrahúsanna í Reykjavík upp
gegn því sem gerist út um land.
Oft er sagt að góð heilbrigðisþjón-
usta sé þáttur í því að tryggja
dreifða byggð sem ég dreg ekki í
efa. Á móti kemur að krafist er
bestu þjónustu sem völ er á þegar
á þarf að halda.
Upp á síðkastið hefur verið ein-
kennandi að heilbrigðisþjónustan
f landinu hefur átt á brattann að
sækja þegar kemur að ráðningu
faglærðs starfsfólks. Uti á landi er
borið við rökum einangrunar, Iít-
illa faglegra tengsla o.s.frv. Á höf-
uðborgarsvæðinu hafa það ekki
síst verið laun sem hafa valdið því
að margir leita starfa hjá einkaað-
ilum. Mér sýnist sjúkrahúsin eiga
nokkra samleið hér. Um árabil
hafa ýmsir læknar stóru sjúkra-
húsanna hlaupið undir bagga út
um land til þess að þeir sem þar
starfa komist í leyfi, bæði lögmælt
orlof og einnig til endurmenntun-
ar. Ég spái því að mönnun sjúkra-
húsanna, einkum úti um land,
eigi eftir að verða enn erfiðari en
hún er núna.“
Sérþekking út um land
Magnús sagði það verðugt verk-
efni að koma á mun meiri hreyf-
ingu heilbrigðisstarfsmanna milli
staða en verið hefur: „Ég tel t.d.
að nýgerðir samningar Sjúkrahúss
Reykjavíkur, FSA og Heilbrigðis-
stofnunar Sauðárkróks séu gott
dæmi um þetta. Þar er brotið blað
að því leyti að starfsmenn stóru
sjúkrahúsanna færa sína sérþekk-
ingu skipulega út um land. Við
eigum að gera meira af þessu og á
vissum svæðum hefur það verið
gert um árabil. En það þarf fleira
að koma til. Gefa þarf starfsfólki á
Iandsbyggðinni færi á að taka þátt
í starfsemi sjúkrahúsanna á Akur-
eyri og í Reykjavík og koma þar til
vinnu og náms um lengri eða
skemmri tíma. Slík tilhögun eykur
ekki bara á færni manna heldur
Ieiðir það til þess að viðfangsefnið
verður sameiginlegt.
Af hálfu sjúkrahúsanna í
Reykjavík tel ég fullan vilja til
þess að leggja nokkuð af mörkum
í þessu efni.“
Ekki góð staða
Magnús sagði það hafa komið
bersýnilega í Ijós á þessum áratug
að margar ákvarðanir sem teknar
hafa verið um uppbyggingu heil-
brigðisþjónustunnar - eða sam-
drátt - hafa ekki alltaf verið ýkja
faglegar.
„Staða sjúkrahúsanna í Reykja-
vík er langt í frá að vera góð,“
sagði Magnús og taldi helstu or-
sakirnar launaþróun sem ekki var
fyrirséð, aukningu útgjalda vegna
lyfja og hjúkrunarvöru og ýmsar
stjórnvaldsákvarðanir svo sem um
vinnutímatilhögun, kostnaðar-
þátttöku sjúklinga í lyfjum og
,rannsóknum, , , ,
FRÉTTIR
Bensín hækkar
um 6 prósent
Við hækktm hensín-
verðs nú um mánaða-
mótin hækkuðu
skuldir heimilanna
um milljarð.
Rúmlega 6% hækkun á bensín-
verði núna um mánaðamótin
þýðir ekki aðeins stóraukin út-
gjöld á bensínstöðinni. Heldur
veldur hún 0,24% hækkun á vísi-
tölu neysluverðs - sem aftur
hækkar skuldir heimilanna um
milljarð. Alls hefur bensínverðið
nú hækkað um tæpan fjórðung
á hálfu ári, eða síðan í mars.
Bensínið er nú orðið kringum
4,6% af heildarútgjöldum meðal-
heimilisins, eða t.d. álíka upp-
hæð og samanlagt fer í mánaðar-
legu gluggabréfin; hitann, raf-
magnið og símann, til samans.
Hækkun - lækkun - stór-
hækkun
En þrátt fyrir gífurlegar hækkan-
ir að undanförnu hefur bensínið
ekki hækkað meira en vísitalan í
heild, fyrr en núna í september-
mánuði. Þannig hækkaði bæði
bensínverðið og vísitalan í heild
um 6,5% frá því vísitölugrund-
völlurinn var síðast settur á
= 100, í mars 1997 og þar til vísi-
talan var síðast reiknuð út núna
í ágúst. Meðalverð á bensíni var
til dæmis nánast það sama núna
í júlí s.l. og það var mánuðina
október-desember árið 1997.
En eftir það lækkaði bensínverð
jafnt og þétt í heilt ár - alls um
rúmlega 12% - og stóð síðan í
stað fyrstu þrjá mánuði þessa
árs. En eftir þessa nýjustu hækk-
un er verðið orðið næstum 10%
hærra en haustið 1997.
Þróun bensínverðs, samkvæmt
mælingum Hagstofunnar í byij-
un hvers mánaðar, frá því
grundvöllur visitölu neysluverðs
var síðast settur =100 í mars
1997.
Ár: 1997: Bensínverðsvísitala:
Apríl 100,0
Maí 100,0
Júní 100,1
Júlí 100,1
Ágúst 99,8
September 102,5
Október 102,3
Nóvember 103,3
Desember 102,2
1998
Janúar 99,8
Febrúar 98,0
Mars 96,7
Apríl 95,7
Maí 95,7
Júní 95,4
Júlí 97,1
Ágúst 97,3
September 96,6
Október 96,7
nóvember 96,3
Desember 93,9
1999
Janúar 90,8
Febrúar 90,8
Mars 90,8
Apríl 93,3
Maí 95,2
Júní 101,5
Júlí 103,0
Ágúst 106,5
September 113,0
Stofna Ferða-
málasetur
í dag verður undirritað-
ur samstarfssamningur
um Ferðamálasetur Is-
Iands sem staðsett
verður á Akureyri. Það
eru Háskóli Islands og
Háskólinn á Akureyri
sem standa að þessu
nýja setri. Samkvæmt
upplýsingum frá Þor-
steini Gunnarssyni,
rektor Háskólans á Ak-
ureyri, er markmið
þessa samstarfs að efla
rannsóknir og mennt-
un á sviðið ferðamála, bæta
tengsl háskólastarfs og atvinnu-
h'fisins og auka þekkingu í grein-
um tengdum ferðamálum.
Ferðamálasetrið verður þannig
miðstöð rannsókna, fræðslu og
samstarfs í greinum sem tengjast
Þorsteinn Gunnars-
son, rektor Háskól-
ans á Akureyri.
ferðamálum, greinum
sem einu nafni hafa
verið kölluð ferðamála-
fræði.
Þorsteinn segir að
meðal helstu verkefna
hins nýja seturs verði
að efla rannsóknir,
stuðla að samstarfi
innlendra og erlendra
rannsóknaraðila, gefa
út fræðirit og kynna
rannsóknaniðurstöður
og veita ráðgjöf og
standa fyrir námskeið-
um.
Rektorar háskólanna tilnefna
hvor um sig tvo menn í stjórn, en
auk þess hefur verið farið fram á
að Samtök ferðaþjónustunnar og
Hólaskóli tilnefni hver sinn full-
trúa í stjórnina.
En þrátt fyrir gífurlegar hækkanir að undanförnu hefur bensínið ekki
hækkað meira en vísitalan í heild, fyrr en núna í septembermánuði.
!