Dagur - 04.09.1999, Síða 10
10- LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999
Dmjut
FRÉTTIR
Er afar undrandi á
vÉðbrogðum Váls
Fymun stjómarfor-
maður íslenska ut-
varpsfélagsins segir
skyndilega neitun ís-
landsbanka og Lands-
banka um lán vera
undarlega í ljósi já-
kvæðra umsagna um
rekstur félagsins.
Sigurður G. Guðjónsson hæsta-
réttarlögmaður sagðist í samtali
við Dag vera undrandi á þeim
viðbrögðum Vals Valssonar,
bankastjóra Islandsbanka, að vísa
grein sinni á bug sem rakalaus-
um dylgjum og að bankinn hefði
tekið faglega afstöðu í þessari
lánsbeiðni sem öðrum. I grein-
inni sagði Sigurður meðal annars
frá því er Islandsbanki neitaði Is-
lenska útvarpsfélaginu um 300
milljóna króna lán vegna mynd-
Iyklakaupa. Bankinn hefði gefið
félaginu það loforð er Ingimund-
ur Sigfússon, mágur Vals, var
stjórnarformaður þess. Eftir að
Ingimundur hafi misst stjórnar-
sæti í íslenska útvarpsfélaginu
hafi íslandsbanki án skýringa aft-
urkallað lánsloforð sitt.
Sigurður sagði að sér kæmi það
á óvart að menn töluðu nú um að
Islenska útvarpsfélagið hefði ver-
ið skuldsett á þessum árum, það
er 1993-1994, þegar myndlykla-
kaupin voru á dagskránni. Sig-
urður sagðist hafa undir höndum
fundargerð 90. stjórnarfundar fé-
lagsins frá 12. október 1993. Þar
hefði Ingimundur Sigfússon, þá-
verandi stjórnarformaður, greint
frá ferðum hans og Páls Magnús-
sonar fréttastjóra og Bjarna
Kristjánssonar, þáverandi sjón-
varpsstjóra, í Búnaðarbanka og
Islandsbanka. Báðir bankarnir
hefðu Iýst yfir ánægju með þróun
mála í rekstri IU og veri5 velvilj-
aðir í garð félagsins.
„íslandsbanki treysti sér hins
vegar ekki til að koma með neina
skriflega yfirlýsingu að svo
stöddu en Búnaðarbankinn sendi
yfirlýsingu sem er svohljóðandi:
Stjórnendur Stöðvar 2 hafa
kynnt bankastjórum Búnaðar-
banka Islands lauslega hugmynd-
ir fyrirtækisins um endurnýjun
myndlykla á næstunni. Banka-
stjórn Búnaðarbankans metur
mikils þann mikla árangur sem
náðst hefur í rekstri fyrirtækisins
á liðnum misserum og vill af því
tilefni lýsa því yfir að hún er
reiðubúin til samstarfs um þetta
verkefni, hvort heldur ein sér eða
í samstarfi við annan viðskipta-
banka,“ sagði Sigurður og vitnaði
þar til fundargerðarinnar.
Sigurður sagði að síðan hefði
komið bréf frá Islandsbanka,
dagsett 26. nóvember 1993, sem
enginn af þáverandi stjórnar-
mönnum og þáverandi sjónvarps-
stjóri gat skilið á annan veg en
þann að Islandsbanki væri búinn
að skuldbinda sig til að leggja
fram tæplega 300 milljónir í
myndlyklaverkefnið.
„Óskðp fátt um svör“
„Eina breytingin sem varð á
þessu var sú að Ingimundur Sig-
fússon hvarf úr stóli stjórnarfor-
manns 2. júlí 1994 og ég tók við.
Þá snerist allt í höndunum á Is-
landsbanka. Þegar menn eru að
tala um að við höfum verið
skuldsettir árið 1994 þá vorum
við ekki skuldsettari en það að
einn af stærstu bönkum heims,
Chase Manhattan, kaus að end-
urljármagna þetta fyrirtæki og
lánaði tæpa 2 milljarða ef ég man
rétt. Þeir sýndu fagleg vinnu-
brögð, enda ekki í pólitík á Is-
Iandi,“ sagði Sigurður.
Hann sagði Ragnar Önundar-
son hjá íslandsbanka hafa
„kippt" sér og Bjarna Kristjáns-
syni, inn í „litla herbergið í Hús
verslunarinnar" og sagt að félag-
ið fengi ekki Iánið. „Við spurðum
hann hvers vegna en það var
ósköp fátt um svör;“ sagði Sig-
urður
Stutt svar Landsbauka
Islenska útvarpsfélaginu barst
einnig neitun um lán frá Lands-
banka. Sigurður sagði það bréf,
sem dagsett væri frá 28. júlí
1994, ekki vera efnismikið. Það
væri eftirfarandi: „Bankastjórn
Landsbanka Islands hefur ljallað
um beiðni yðar um lánsviðskipti.
Niðurstaða þeirrar umfjöllunar
er að fallast ekki á beiðnina.
Þetta tilkynnist yður hér með.“
„Svo mörg voru þau orð,“ sagði
Sigurður G. Guðjónsson. - BJB
Grillmeistarar í glasi
eru áhættuþáttur
Karlar sem ekki eru vanir að búa til mat dags daglega og eru að grilla,
geta verið áhættuþáttur í kampýlóbaktersýkingum - sérstaklega ef grill-
meistararnir eru í glasi.
Sóttvamarlæknir ott-
ast að griUmeistar-
amir sem koma til
skjalanna á siunrin
geti verið áhættuþátt-
ur við útbreiðslu
kampýlóbakter.
„Já, við höldum að það hafi sín
áhrif að þá (á grilltímanum)
koma til skjalanna grillmeistarar,
karlarnir sem ekki eru vanir að
búa til mat svona dags daglega.
Og ef þeir fá sér í glas með eins
og stundum vill við brenna þá
getur tilkoma þeirra verið
áhættuþáttur," segir Haraldur
Briem sóttvarnarlæknir í samtali
við Læknablaðið um geysilega
fjölgun kampýlóbaktertilfella,
einkum í júlímánuði. Júlí-tilfell-
um hefur fjölgaði úr 9 upp í 103
á tveim árum. Eftir verslunar-
mannahelgina virtist heldur
draga úr faraldrinum, í kjölfar
háværra umræðna, en tilfellun-
um fjölgaði síðan á nýjan leik.
Hlutfallslega segir Haraldur fjöl-
da sýkinga hér langt umfram það
sem gerist á Norðurlöndum.
Umræðan út og suður
„I umræðunni hefur mér fundist
á það skorta að hún hafi snúist
um kjarna málsins sem hlýtur að
vera sá, að það er fjöldi fólks að
veikjast illa af kampýlóbakter.
Það hefur skort á skilning á því
að hér er alvarlegt heilsufars-
vandamál á ferðinni. Þaá er ekki
eins og að fá venjulegt kvef að fá
slíka iðrasýkingu. Við höfum
fengið fréttir af fólki sem fær
fylgikvilla á borð við liðabólgu
sem er mjög bagalegt. Það hefur
alveg vantað í umræðuna að
benda á þetta, hún hefur frekar
snúist um tækniatriði og það
hvort einhver hafi Iekið trúnaðar-
upplýsingum eða aðrir séu sakað-
ir um eitt og annað með ómak-
legum hætti,“ segir sóttvarnar-
læknir.
Smitaðtr 10-20 simiuin fleiri
Spítalainnlagnir í kjölfar
kampýlóbakter segir hann orðnar
19 á þessu ári, fleiri en allt árið
1998 og tvöfalt fleiri 1997.
„Þetta sýnir hvað alvarlegt mál er
á ferðinni því fólk er orðið veru-
lega veikt þegar það treystir sér
ekki til að vera heirna," segir
Haraldur.
Hátt á þriðja hundrað tilfelli
hafa þegar greinst á þessu ári -
60-70 fleiri en allt síðasta ár.
„Einkennin geta verið mismikil
og við teljum að í raun hafi 10-20
sinnum fleiri smitast en greinst
hafa með sýkingu," segir Harald-
ur - sem gæti þá þýtt allt að 4-
5.000 sýkta það sem af er árinu.
Hvað veldur þessari miklu fjölg-
un í ár segir hann alls ekki Ijóst.
Kjúklingar komi að vísu oft við
sögu þegar starfsfólk sýkladeildar
Landspítalans hafi spurt þá sem
þangað Ieita um hugsanlegar
ástæður fyrir sýkingu. En vin-
sældir þeirra hafi líka aukist mik-
ið svo líkurnar á kjúklinganeyslu
dagana áður en fólkið veiktist séu
meiri en áður. - HEI