Alþýðublaðið - 14.02.1967, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 14.02.1967, Qupperneq 4
Bitstjórar: Gytfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. - RitstjórnarfulK tröi: Ei'ður Guðnasón — Símár: 1490014903 — Auglýsingasími: 14906, ■Aðsetur Alþýðuhúsið Við Hverfisgötu, Beykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu- (blaðsins. — Áskriftargjald kr. 105.00. — í lausasölu kr. 7.00 eintakið, Útgefandi Aiþýðuílokkurinn. •——-........-.........'......... .........................— ......... 111.1 ... UtcNw'tkismálanefnd 1JTANRÍKISMÁLANEFND ALÞINGIS hefur verið m;ög til umræðú undanfarnar vikur, Hefur komið frkm -gagnrýni á þeirri skip'an mála, að utanríkisráð- fedrra skuli lítið ráðgast við nefndina og hún ekki gegha- því hlutverki sem henni er ætlað. Hefur Éihil Jónsson utanríkisráðherra hlotið nokkra gagnrýni fyr- ir þetta mál, sérstaklega af hálfu ungra framsóknar- inl mna. í aðalatriðum eru allir sammála þessari gagnrýni. Pí ð ber a-ð harma, að um langt árabil skuli ekki hafa verið trúnaðarsamband milli stjórnarráðsins og ut- an ríkismálanefndar, og er ástæða til að bæta úr því. ] íétt er að minna á, að Guðmundur I. Guðmundsson va r ekki sá utanríkisráðhen’a, sem sleit samstarii við ut jnríkismálanefnd, ef svo má að orði komast. Þeg- ar Guðmundur tók við ráðherrastörfum 1956, hafði ut mríkisráðherra árum saman sniðgengið nefndina og gert hana áhrifalausa. Hófst þetta ástand, þegar kaíída stríðið stóð sem hæst, skömmu eftir að Atlants hs fsbandalagið var stofnað, og var um tíma búin til sérstök undirnefnd til að ganga frámhjá sjáífri utan- i íkismálanefnd eða, réttar sagt, einum flokki. Það er ekki von, að hinir ungu framsóknarmenn, sem nú gagnrýna Emil Jónsson, viti um þessa forsögu málsins. En héreftir verða þeir að hiuna, að eyðimerk urganga utanríkismálanefndar hófst skömmu eftir 1950 í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins og Framsókhar flokksins, að sjálfsögðu með fullu samþykki fram- sóknarráðherra þeirra, er þá sátu. Komið hafa þau tímabil, er nefndrn vaknaði til l'ifs og starfaði eins og henni er ætlað. Veturinn 1958-59 gerði nefndin til dæmis mikið og undirbjó þá ályktun um landhelgismálið og landgrunnið, sem stefna rík- isins byggist enn á. Þetta gerðist í ráðherratíð Guð- mundar í. Guðmundssonar og sýnir, að honum var síður en svo um geð, að nefndin starfaði, ef flokkarn ir sýndu það gagnkvæma traust, sem til þess þurfti. Utanríkismálanefnd getur ekki starfað að gagni, nema hægt sé að ræða málin í fullri leynd og ráðherra geti trúað henni fyrir ýmsum upplýsingum, sern ekki mega ber- ast út. Sem dæmi má nefna, að Ðanir hafa lögfest þagnarskyldu nefndarmanna, og væri ástæða til -að gejra Það hér til að forðast tortryggni. Ástæðan til þess, að utanríkismálanefnd okkar hefur orðið óstarf h^f, er að sjálfsögðu kald-a stríðið. Stjórnaraudstæð- ingar hafa jafnan sótt mál sitt af slíkum ákafa, að þ€ ir hafa ekki alltaf gætt sín, og erfitt var að ræða in iri mál Atlantshafsbandalagsins á fundum, þar sem S'varnir Moskvukommúnistar áttu sæti. Nú er friðvænlegra í okkar hluta heims og ýmsar breytingar og gerast í milliríkjamálum. Emil Jónsson htífur lýst yfir, að hann sé reiðubúinn til samstarfs vi 5 nefndina, ef þagnarheiti er lofað. 4 14. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ EINSTÆÐ HLJÓMPLÖTU- OTSALA Ttu plötur í húnti á kr. 100,— búntið. Tólf laga plötur frá kr. 100,— islenzkar 2|a laga plötur kr. 20,— ÚTSALAN HEFST 1 FYRRAMÁLIÐ H LIÓÐFÆRAVERZLU H SIGRÍÐAR HELGADÓTTUR VESTURVERI - SlMI 11315. á krossgötum 53ESSS ★ STUDENT SKRIFAR. Það er athyglisvert, hversu mik- ið er ura alls konar fundi nú á dögum, ekki til að i’ífast og pexa, heldur öllu fremur til að fræða. Pyrir fáum árum hefði verið óhugsándi, að Ey- steinn Jónsson eða Gylfi Þ. Gíslason mættu á Heímdallarfundum til að réeða í bróðerni við and- stæðihga sína um flokka og málefni. Aukið frjáls- lyndi Ríkisútvarpsins er áberandi og það er að yerða stofnun sinnar samtíðar, en ekki „hlutlaus” forngripur. Menntaskólarnir hafa undanfar- ið hoðið til sín leiðtogum stjórnmálaflokkanna til að hlýða á erindi þeirra og leyfa nemendum að spyrja þá. Er því augljóst, að stúdentar Háskólans eigi að fara svipað að, enda eru þeir að ýmsu leyti bi-autryðjendur á þessu sviði lýðræðisins. Mér þótti því girnilegt, að stúd- entar skyldu fá að hlýða á utanríkisráðherra á lokuðum fundi innan Háskólans og ræða við hann um utanríkismál. Korau margvíslegar upplýsing- ar fram á fundirium, sem fengur var að fyrir stúdenta, og er ekkert við því að segja, þótt sum- ir gengju hart að ráðherranum í spurningum sín- um — meðan þa'ð var heiðarlega og kurteislega gert. En því miður verður það ekki sagt um ailan þátt stúdenta í þessum fundi. Einn framsóknarmaður hegðaði sér eins og dóni og varð sér og okkur öllum til hneisu. Þá hefur komið í Ijós, að agentar pólitísku flokkanna, sem lengi hafa verið virkir í Háskólanum, gátu ekki látið hjá líða að nota þennan fund til pólitískra árása á ráðherrann í blöðum sínum. Þarmeð var fundur- inn ekki lengur einkamál stúdenta, heldur aðeins lota í almennum, pólitískum skollaleik — vegna frekju og Vanþroska stjórnarandstöðuflokkanna. Það ætti að vera hægt að halda fróðlegan umræðufund í hópi stúdenta án þess að hann sé dreginn inn í skollaleik flokkanna og blaða þeirra. Ef þess er ekki kostur, fást menn ekki til að ræða við stúdenta. Þeir kjósa þá auð- vitað að berjast á öðrum vettvangí. Það skiptir miklu máli, hvernig stjórnmálafræðsla og stjórnmálaumræður fara fram í þröskuðu lýðræðisríki. Þess vegna er það skref í öfuga átt, þegar grunnhyggnir agitatorar spilla tilráunúm, sem samtök stúdenta gera í þessa átt. Á þeim fundum, sem stjórnmálamenn hafa sótt að beiðni menntaskólanema (í öllum skólunum þrem- ur), hafa komið fram margir athyglisverðir hlutir, ekki sízt í svörum við spurningum. Sem betur fer hafa flokksblöðin aldrei sagt frá þessum fundum, enda mundu þeir fljótlega úr sögunni, ef þeir ættu að jafngilda blaðamannafundum. Það er skólaæskunni mikilsvert að hafa lifandi samband við ráðamenn þjóðarinn- ar á þann hátt, sem hér hefur verið rætt um. Það cr slæmt, að ofstækið skuli stefna þeirri starfsemi í hættu. — Stúdent. Áskriftasími AlþýðublaBsins er 14900

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.