Alþýðublaðið - 14.02.1967, Síða 9
AÐALFUNDUR GARÐYRKJU
FÉLAGS ÍSLANDS
Að'alfundur Garðyrkjufél. íslands
var haldinn 19. þ.m. í Reykjavík.
í stjórn félagsins voru kosnir:
Formaður Kristinn Helgason
Grundargerði 9, varaform. Ragn-
heiður Bjöi-nsson, Freyjugötu 43,
ritarí Ólafur B. Guðmundsson,
Langagerði 96, gjaldkeri Gunn-
laugur Ólafsson, Laugavegi 162,
meðstjórnandi Einar I. Siggeirs-
son, Stórholti 30.
Ingólfur Davíðsson magister
baðst undan endurkjöri í stjórn
félagsins, en hann hefur verið rit-
ari félagsins í 25 ár og jafnlengi
ritstjóri Garðyrkjuritsins, sem er
ársrit félagsins. í þessu tilefni og
fyrir hin margvíslegu störf í þágu
félagsins, samþykkti aðalfundur-
inn með lófataki að gera Ingólf að
heiðursfélaga Garðyrkjufélags ís-
lands.
Félagið var mjög athafnasamt ó
'árinu sem leið, og virðist árang-
urinn hafa komið fljótt í ljós þar
sem félagatalan jókst um 50% á
árinu.
Hinar fróðlegu og skemmtilegu
skoðunarferðir, sem félagið efndi
til á sl. sumri, voru mjög vinsælar.
Skoðaðir voru skrúðgarðar í Rvík,
Kópavogi og Hafnarfirði.
Einnig hélt félagið 5 umræðu-
fundi um ýms .efni t.d. fræsán-
ingu, dreifplöntun, vorverk í
■ skrúðgörðum o. fl. Einnig voru
sýndar kvikmyndir og litskugga-
myndir úr fallegum görðum og
af einstökum blómum.
Stærsta verkefni félagsins á ár-
inu var að ráðast í bókaútgáfu.
Bók þessi er hugsuð sem einskon-
ar handbók eða uppsláttarbók fyr-
ir skrúðgarðaeigendur og mun
koma út í vor, en nafn bókarinn-
ar hefur ekki verið ákveðið.
Bókin er í 7 köflum sem heita:
Skipulagning skrúðgarða (Reynir
Vilhjálmsson skrúðgarðaarkitekt),
Jarðvegur og áburður (Einar I.
Siggeirsson magister), Grasflatir
(Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri),
Runnar og tré (Óli Valur Hans-
son ráðunautur), Fjölærar jurtir
(Jón Rögnvaldsson garðyrkjufræð-
ingur), Steinhæðaplöntur (Ólafur
B. Guðmundsson lyfjafræðingur),
Ljaukjurtir (Kristinn Gulösteins-
son garðyrkjufræðingur), Sumar-
blóm ISiguöður Albert Jónsson
garðyrkjufræðingur).
Ritstjóri bókarinnar er Óli Val-
ur Hansson ráðunautur.
Ýmislegt fleira hefur félagið lát
ið til sín taka.
Á hinu nýbyrjaða ári hyggst fé-
lagið, sem er félag áhugafólks um
garðyrkju, auka félagatöluna og
verður reynt að gera verulegt á-
tak í þessu efni.
AÐALFUNDUR ÖLDUNNAR
73. AÐALFUNDUR Skipstjóra-
og stýrimannafélagsins Öldunnar
var haldinn 3. febrúar 1967. —
Formaður félagsins, Guðmundur
H. Oddsson, setti fundinn og
minntist látinna féiagsmanna, og
heiðruðu fundarmenn minningu
þeirra með því að rísa úr sætum.
Konráð Gíslason var kjörinn
fundarstjóri.
Eftirfarandi tillögur voru sam-
þykktar samhljóða:
I. Þar sem síldveiðisamningar
félagsins ná ekki til skipa
nema að 500 brúttotonnum,
samþykkir fundurinn að fela
. stjórn félagsins að leita nú
þegar »samningaviðræðna við
LÍÚ um samninga á síldveiði-
skipum yfir 500 brúttótonn.
2. Samþykkt var að skora á
stjórn FFSÍ að vinna að því,
að endurkosið verði í bygging/ j
arnefnd Sjómannaskólans, fyr-
ir þá er fallið liafa frá í
nefndinni, svo að húft geti
orðið starfliæf, þar sem telja
má að starfi nefndarinnar sé
enn ekki lokið, með ófullgert
skóiahús og ófrágengna skóla-
lóð.
3., Þá var stjórn félagsins falið
að láta ganga frá reglugerð
um lífeyrissjóð fyrir félags-
menn.
4. Samþykkt var að skora á
Seyðisfjnrðarkaupstað, að hann
gangist fj'rir því, að nú þegar
verði hafizt handa um að koma
á stofn Sjómannastofu á Seyð-
isfirði, sem yrði tilbúin til af-
nota fyrir sjómenn á næstu
sumarsíldveiðum.
5. Þá var og samþykkt að mæla
eindregið með fyrirkomulagí
hæstv. alþingismanns Sigurðar
Bjarnasohar um læknisþjón-
ustu til handa sjómönnum á
síldveiðiflotanum, og lögð á-
herzla á að læknirinn geti haf-
ið starf strax og sumarsíldveið-
ar hefjast næsta vor.
Eins og tekið er fram í grein-
argerð frumvarpsins, er knýj-
andi þörf slíkrar þjónustu. —
Dæmi um slysa- og veikinda-
tilfelli á síidveiðiflotanum,
bæði ný og gömul, eru mörg
hver óhugnanleg, þar sem eigi
hefur verið fyrir hendi eðlileg
eða nauðsyleg aðstoð sjúkum
éða særðum. Við viljum einn-
ig benda á, að á íslenzka síld-
veiðiílotanum eru nú um 2500
— 3000 manns við skyldustörf,
þess eðlis, að slysahætta er
stöðugt fyrir hendi. Það má og
telja það fullvíst, að skipstjór-
ar og skipshafnir síldveiðiflot-
ans muni ætíð reiðubúnar til
að veita alla þá aðstoð, sem
þeim er mögulegt, til þess að
tilætlaður árangur náist í þess-
um efnum.
Framhald á 15. siðu.
;rmum með breiðari líningu. Við
nig í smástúlkuscíi.
Bifreiðaeigendur
Klæðum allar gerðir bifreiða. — Eigum til allt í
BRONCO. — Einnig nýsmíði og réttingar.
BÍLATRYGGINGAR SF.
Auðbrekku 49, Kópavogi. — Sími 38298.
Hillubúnaður — úr bökunarlökkuðu stáli.
Stálvaskar og borð — margar gerðir.
Blöndunartæki — fyrir eldhús og böð.
Perstrop-harðplastplötur — fjölbreytt litaval.
Perstrop-plastskúffur með rennibrautum
ódýrar og hentugar í fataskápa o.fl.
Serpo-vörur: raufafyllir, flísalím o.fl.
é
Góðar vörur — gott verð — góð bílastæði.
Smiðjubúðin
við Háteigsveg. — Sími 21220.
ÚTGERÐARMENN
VÉLSTJÓRAR
Vanti yður lensidælu, spúldælu, kælivatnsdælu,
eða dælu til annarra hluta í bátinn þá munið að
dælurnar með
gúmmihjóHTnum
eru vinsælustu dælurnar í flotanum.
Mikið úrval. — Stærðir %—2”.
Með og án kúplingar. Með og án mótors.
Ódýrar og handhægar. Varahlutir jafnan
fyrirliggjandi.
Sisli ©l xSofítisett if.
Vesturgötu 45. — Símar: 12747 og 16647.
TRAUSTUR og ÓDÝR
STATBONBÍLL burðarþo! Kg. 825
TRYGGIÐ YÐUR TOYOTA
JAPANSKA BIFREIÐASALAN H.F.
Ármúla 7 — Sími 34470
14. febrúar 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9