Alþýðublaðið - 14.02.1967, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 14.02.1967, Blaðsíða 16
rAT m) Tíminn og eilífðin Nú líður varla sá dagur, að blöð in birti ekki framboðslista ein- fiversstaðar að á landinu, og er þó <ekki nema febrúar enn, en kosning ar eiga ekki að fara fram fyrr en í 'júní. Áður fyrr tíðkaðist yfirleitt elcki að framboð væru tilkynnt fyrr ’ten mánuði í mesta lagi tveim mán fyrir kjördag, en nú eru flest- framboð tilkynnt með fjögurra til sex mánaða fyrirvara, og áður hef vv undirbúningur að þeim staðið yf ir i tvö til þrjú ár eða jafnvel leng ur. Það er til dæmis ekki ólíklegt að nú þegar séu menn farnir að leggja fyrstu drög að framboðum jfyrir þær kosningar, seim eiga að fara fram eftir fjögur ár, nú þeg ar framboðin í ár eru sem óðast farin að skríða saman. Sjálfsagt telja menn að þessi tmikli fyrirvari með framboðin sé til bóta, og getur vel verið að svo sé að nokkru leyti. En það eru tvær hliðar á hverju máli, eins og kellingin sagði, 'og jafnvel fleiri en tvær á sumum. Og því fer ekki hjá því að fylgi líka vissir gallar, 'hve snemma er brugðið við. Það er ekkert líklegra en menn verði til dæmis búnir að steingleyma því í júní hverjir voru tilkynntir fram bjóðendur í janúar eða febrúar. Að vísu má gera ráð fyrir að tilraun- ir verði gerðar til að minna fólk á það og koma í veg fyrir slíka gleyms,ku,cn þær aðferðir, sem þá er oftast beitt, eru líka tvíeggj aðar. Það er nefnilega engan veg- inn tryggt að menn muni eftir þeim, sem þeir eru oftast minntir 'á, og það er líka hætt við að hrifn- ingin með frambjóðendur dvíni nokkuð eftir því sem framboðið stendur lengur. Menn hafa að vísu talsvert góða æfingu í því hér á landi, að tala sig upp í eldmóð og baráttu'hita fyrir einhverju eða einhverjum, en sú veiklun stend- ur þó sjaldnast nema í takmark- aðan tíma í einu. Af þessum sök- um getur líka verið dálítið vafa- Matthías A. Mathiesen Maður er nefndur Matthías. Mikið er hann laus við þras og huggulegur að heyra og sjá. í Hafnarfirði sveit hann á. Þótt fari aðrir með flærð og vél og fjandskapist og reisi stél, áran er jafnan um hann hrein eins og Morgunblaðs-ritstjórnargrein. samt að hafa kosningaslaginn of lengi; mönnum verður kannski 'batnað, þegar kjördagur rennur upp, og þá er aldrei að vita, hvað kann að gerast. En það er ekki ráð nema í tíma sé tekið, og tíminn er dýrmætur; það vita þeir manna bezt, sem allt kunna að meta til fjár. Tíminn er líka ágæt söluvara hér á landi, ekkert síður en eilífðin, frænka hans, sem hefur löngum verið mikil gróðalind, þeim sem kunn að hafa að notfæra sér hana. Fyrir helgina var tíminn auglýstur baki brotnu í útvarpinu og almenningi gefinn kostur á að kaupa sér skerf af honum, sjálfsagt á tækifæris- verði. Öðruvísi gat Baksíðan að minnsta kosti ekki skilið auglýs ingu, sem marglesin var í útvarp í síðustu viku. Þar var boðið fram tómstundaefni, en það vita allir að tómstundir eru gerðar úr tíma, og tómstundaefni getur því auðvitað ekki verið neitt nema tíminn. Orðið er hugsað á nákvæmlega sama hátt og kjólefni og forsetaefni, sem eru efni í kjól og forseta. Það fylgdi ekki með livort tíminn væri þarna seldur í afmörkuðum einingum eða í lausu máli, en ef seljandinn veit ir viðskiptavinum sínum góð þjón ustu þá hlýtur að vera unnt að fá hartn í hverju því formi, sem menn óska. Þai skeði í Texas fyrir nokkr uni ögum, að hjónaefni voru gei saman í hjónaband. Tíminn. Mér þykir aldeilis vera kom- ið fljör í trúarlífið. Prestarn- ir eru farnir að ræða uin kristna trú. Nú lialda kommarnir bara listavöku. Það þorir enginn að minnast á menningu nema við táningarnir. Ég held það sé ekki rétt að rússakommarnir séu eins og radísur, rauðir að utan og hvítir að innan. Ég held að þeir séu svartir að innan.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.