Dagur - 16.10.1999, Page 19
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 - 35
Krakkar hafa kastað snjóboltum í hvorn annan um árþúsundaskeið, en stundum hafa boltarnir hitt dauð-
lega hluti. Fyrir suma ökumenn er það alvarlegt afbrot, sem kallar á viðbrögð, að senda snjóbolta í bíl.
Skömmu eftir há-
degi þriðjudaginn
13. nóvember
1962 voru
skólakrakkar að
leika sér í snjó-
boltaleik við
Blönduhlíð í
Reykjavík. Æsku-
gleðin leyndi sér ekki og það
jók á ánægjuna að kasta í
hreyfandi skotmörk - bílana
sem áttu leið hjá. Flest okkar
umberum slíkan hasar f krökk-
unum, þótt mörg okkar pirrist.
Þennan dag ók hjá og fékk
snjóbolta í bíl sinn sálfræðing-
ur, sem ákvað að taka sér upp-
eldislegt hlutverk fyrir hendur.
Sálfræðingurinn var við Blönduhlíðina í
bíl sínum og var að bíða eftir eiginkonu
sinni og kvaðst bafa tekið eftir tveimur
drengjum að hnoða snjóbolta. Konan
kom og hann ók af stað, en þá kastaði
annar drengjanna snjó í bifxeiðina. Sál-
fræðingurinn stöðvaði hana þegar, fór út
og handsamaði drenginn, sem reyndist
vera 8 ára. Hann þröngvaði honum nauð-
ugum í aftursæti bílsins og ók af stað, en
eiginkonan yfirgaf fljótlega bílinn.
Sálfræðingurinn ók síðan með dreng-
inn á stofu sína við Tjarnargötu og fór
með hann inn. Sálfræðingurinn reyndi
því næst að hringja í föður drengsins, en
það tókst ekki og hringdi hann þá í móð-
ur hans. Sú brást ævareið við erindinu og
hringdi þegar í stað í lögregluna.
Uppeldislegt markmið
Drengurínn 8 ára átti ekki bara sárreriða
móður, heldur var hann í ofanálag sonur
borgardómara. Það vissi sálfræðingurinn
ekki þegar lögregluþjóna bar að garði í
sama mund og hann var að senda dreng-
inn frá sér með leigubíl til skólastjóra
Hlíðaskóla. Hann skýrði svo frá að hann
hefði „ætlað sér að koma drengnum til
foreldra hans og óska þess, að vandað
yrði um við hann, en móðir drengsins
hafí orðið mjög æst og hann hafí ekki
getað rætt málið á þessum grundvelli".
Hann hafnaði því að hafa beitt dreng-
inn neinum harðræðum „og hann hafi
ekki orðið fyrir áverkum af sínum völd-
um. Markmiðið með aðgerðum sínum
hafi verið uppeldislegt og miðað að því að
koma í veg fyrir, að drengurinn endurtæki
óknytti sína.“
Sálarlausir sálfræðingar
Sálífæðingurinn gaf síðan skriflega
skýrslu um málið og þar kvað hann
drenginn hafa „æpt nokkuð, á meðan
hann setti hann inn f bifreiðina, en róazt
svo og sagt deili á sér. Hann kvaðst hafa
spurt drenginn að því „hvort honum
hefði ekki verið bannað að henda snjó í
bíla, en drengurinn hafi neitað því“. I
skýrslu þessari lýsti ákærði því, að móðir
drengsins hafi verið mjög æst í símtali
þeirra „og talið drenginn í mikilli hættu
hjá sálarfræðingi, þar sem sálarífæðingar
væru allir sálarlausir. Hann hafi síðan
náð í föður drengsins símleiðis og hann
verið mjög kurteis, en þótt miður, að
hann hefði farið með drenginn á skrif-
stofu sína.
Vitnisburður móðurinnar var á aðra
lund. Hún hafi vissulega reiðst við sím-
talið og hafi „nokkur orðaskipti" farið
þeirra á milli. Hún hafnaði uppeldislegu
gildi aðgerða sálfræðingsins algjörlega og
taldi að um hreint barnarán værí að
ræða. Og með ofbeldi, sagði hún; dreng-
urinn hafi eftir atburð þennan haft kúlu
á enni og rispur á hálsi og úlnlið og sagst
hafa fengið ákomur þessar í viðureigninni
við sálfræðinginn. Hún sagði drenginn
hafa neitað að hafa kastað snjó í bifreið-
ina, en sálfræðingurinn lagt að honum að
viðurkenna það.
Martraðir á nóttunni
Vottorði var framvísað um mar og rispur
á drengnum, en móðirin bar að hann
hefði orðið fyrir áfalli af þessu atviki.
„Hann hafi verið slæmur á taugum á eft-
ir, vaknað upp um nætur og hrópað:
Hann er að taka mig, og annað svipað.
Hann hafi tekið til að væta rúm, sem ekki
hafi komið fyrir í mörg ár, verið órólegur
og lausari við nám en fyrr“. Taldi móðirin
að hann hafi fyrst jafnað sig eftir þrjá
mánuði.
Rannsóknarlögreglan talaði við þrjú
börn sem höfðu verið nærstödd við
Blönduhlíðina og taldi eitt þeirra sig hafa
séð drenginn kasta snjóbolta í bílinn.
Skólastjóri Hlíðaskóla gaf um það
skýrslu, að þegar hann tók við drengnum
úr leigubílnum hafi sér ekki þótt laust við
að drengurinn væri hræddur, en hann
einskis spurt. Kennari drengsins bar fyrir
dómi að drengurinn hefði daginn eftir at-
burðinn komið í skólann „nokkuð miður
sín, fölur j'firlitum og, að því er virtist,
með mar og bólgu á enni. Næstu viku
hafi hann verið áberandi utan við sig og
sótzt námið verr en áður“. Hann hafi þó
náð sér og sé góður nemandi.
Tók sér löggæsluvald
Sálfræðingurinn var ákærður vegna töku
drengsins og lögðu foreldrar hans fram
200 króna kostnaðarreikning af læknis-
skoðun og 10.000 króna bótakröfu (þá-
gildandi verðlag) „vegna áverka og þján-
inga og röskunar á heimilisfriði", en
þeirri bótakröfu mótmælti sálfræðingur-
inn. Halldór Þorbjarnarson sakadómari
taldi að engar sannanir hafi komið fram
um að drengurinn hafi kastað snjó í bif-
reið hins ákærða. Hann hafi handsamað
drenginn og „farið að líkt og hann færi
með löggæzluvald. Að vísu er eigi með
öllu ljóst, hvar draga skuli mörkin fyrir
athafnafrelsi manna að þessu Ieyti. En
þegar Iitið er til allra atvika málsins, svo
sem þess að ákærði tók drenginn hönd-
um gegn vilja hans fyrir utan heimili
hans, færði hann inn í bifreið sína, gerði
hvorki aðstandendum drengsins né lög-
reglu viðvart að sinni, heldur ók með
drenginn til skrifstofu sinnar f miðbæn-
um og tók hann þar inn með sér, verður
að líta svo á, að hann hafí tekið sér opin-
bert vald, sem hann ekki hefur“.
Halldór dæmdi sálfræðinginn í 2.500
króna sekt til ríkissjóðs. Hann taldi
ákærða bótaskyldan og taldi þjáningabæt-
ur hæfilega ákveðnar 3.000 krónur.
Akærða var auk þess gert að greiða sakar-
kostnað, sem ekki var lægri en 9.000
krónur. Hæstiréttur áréttaði að ósannað
væri að drengurinn hafi orðið fyrir
meiðslum vegna meðferðar ákærða á
honum. Hins vegar beitti Hæstiréttur
strangara refsiákvæði gagnvart frelsis-
sviptingunni. En niðurstaðan var látin
standa óröskuð.
Akureyrarkirkja. Meðal einkenna Ak-
ureyrarkirkju eru tröppurnar sem upp
að henni liggja. En hvað eru þær eig-
inlega margar.
Gestur Einar. Með léttleika stjórnar
Gestur Einar Jónasson útvarpsþætti
sínum sem er á dagskrá Rásar 2 eftir
hádegi, alla virka daga. Hvað heitir
þátturinn?
Á Siglufjarðarleið. Nýlega er lokið
miklum vegaframkvæmdum á leiðinni
til Sigufjarðar, þar sem vegurinn var
lagfærður í Almenningum þar sem á
hann féllu miklar skriður í sumar sem
lokuðu veginum um hríð. Hvað heitir
staðurinn?
Hillary. Mikið var um dýrðir þegar
Hillary Clinton, forsetafrú Bandaríkj-
anna, var á ferð hér á landi um sl.
helgi. Hvenær var einhver af forsetum
Badaríkjanna - eða úr skylduliði hans
- á ferð hér á landi?
Forsætisráðherrann. Hvaða ár sat
Tryggvi Þórhallsson í stól forsætisráð-
herra - og hver var systir hans, þekkt
kona og allt að því tiginborin?
LAND OG
ÞJÚD
1. Hverjir eru sendiherrar íslands í
Þýskalandi og Finnlandi og Kína?
2. Hver var það sem orti svo? „Yfir kald-
an eyðisand / einn um nótt ég sveima. /
Nú er horfið Norðurland / nú á ég
hvergi heima.“
3. Hvar á landinu er Álftafjörður?
4. Hvað hét risinn sá sem þjóðsagan
segir að hafi búið í Bláfelli, sem er við
Kjalveg?
5. Hvaða ár varð Ásgeir Ásgeirsson for-
sætisráðherra?
6. Hvaða ár var það sem íslendingar
unnu heimsmeistaratitilinn í brigde,
Bermúdaskálina, sem landinn fagnaði
svo mjög, meðal annars Davíð Oddsson
með eftirminnilegri ræðu í Leifsstöð?
7. Hver er kappinn sá sem síðustu árin
hefur gegnt embætti formanns í Lækna-
félagi íslands, en hefur nýlega látið af
því?
8. Hver er sagan á bak við Spánverja-
vígin svonefndu hér á landi?
9. Við hvern eru Gvendarbrunnar, þaðan
sem neysluvatn Reykvíkinga var í ára-
tugi tekið, kenndir?
10. Hvar á landinu er byggðarlagið
Rauðilækur?
Sigtröti'Bogi
skrifar
■jepjnquiBjp|9| buóoa jnpnej ja uias 'suue(>|æ| ujn^oq e jnpuats ‘snq uraej 6o enqj |6nt bj>(>|ou jn|at uias ‘p!6epep66Ag n|sfeB||BAje6uBa J jraAspueq 6o -Bt|0H
j ma jn>|æ|epnea up/s Bo -ujg 'ot 'ioqsuieA sjbuub |epaui ecj ip6jA 6o p|0 'et p pipuB| uin tsipepjaj uueq ua ‘uiniop e tes uias uosejy dn>|S!q punuipng p!AJ!puua>| nja jiujeuumg -nu!pæASjn>|jaujp!9H b uin|oqjoq jn pi>|ai eðanepe pecj ja nu
ua 'jb uepjs b uibjj p|>|a} e6u!>|jA>|Aaa ujba jba uepeci 6o >|jABÍ>|Aaa piA ubjo )uiuib>|s jjpunnpajdsddn jb|>|!ui ma jeuumqBUuaAg ’6 -uuidpq B)æjddn pe pw ujbjj )sepjeq u6g J uossnu6e[/\| uy >|>(a6 6o Aapg/ j uu|q 6o ipjqejAa j jeuue ‘jjuöaA
njOA ejjjacj jedoq jjsai 'je)euj |!) jas npuæj 6o umdpq j njpj ‘6ue6jaA e )S!>|ejq npjoq uias uuauis)ojqd!>|s moA j|uje>|seg 'umpjpfjisaA b uuacmpmAieAq j|>|sau>|seq nqeíjc) uin moA j|u6aA je6ac| gigj pqsneq moA u!6jAefjaAueds '8 'uossmofg
jnpunuipng y 'J66L PMP jba epaq -g '2661 Qh? Ejjaqppjsqæsjoj pjeA uossjjaésy Jja6sy 'S 'Joc|6jag -y unpua)s uueq p|A dJ0c|jn>|jAepns uias jecj ‘uinpjp[j)saA e 6o uinpjpfj)snv uinpjaAueuuns e |j) öiuu^a ja jnpjofjetjiy neQ j jnjsaA ujbjjb
oas uepecj pupj)se6o>|s uin 6o |ui|pqs!>|>|/)S JP J3 PPBJ Je6acj e>|e pe jnpjaA uujQÚpfj juáj 'npjaAuepjou !saus||ajæus p uuunpjofj qsejsne ja jnpjofjeyiy 'g -p|B>|SB||B[j uossupr uef)su» z 'Buj» j uossijög Jnjeig 6o jpueiuuy j uosspunuiö^s sn
-j|aujo» ‘uossnjöjs Jnpunuijöui ja !pue|e>|sAq j spue|S| ejjaqjpuas 'i 'B)asjoj jeuossjiaösy sj|a6sy euo» ‘njjejasjoj ‘jqjopsueqjpq ejpa jba sueq jqsAs '2E611!1 Z.361 tunume e ejjaqpejsqæsjoj jba uoss||eqjoq !a66Ají, 'B|>|!ui uu!punje6o)pra|
e !))æuj ueöag p|e6uoa Je6acj '9861 pu? !pue| e jaq fumpjaj e !iasjojef>|ijepueg moA)seþjs, 'jaús6uo» , ueAeui jqiAg , 'nas jæcj jb6jbui aAq iujamæjcj }sne|epua ps pecj pcj epua 'uinpnuijaq uin66mo )uiæA>|uies eil ma jemnddoji, :joas