Dagur - 21.10.1999, Blaðsíða 5

Dagur - 21.10.1999, Blaðsíða 5
F1MMTVDAGVR '2 l'. OKTÓBFR 19 9 9 - 5 Hærrí lairn í flar- viimslu en físki Svo virðist að launakjör fólks sem starfar í fjarvinnslu séu nokkru betri en gengur og gerist í fiskvinnslu. Mánaðarlaim 106 þúsuud króimr fyrir 40 tíma viimuvLku. Sömu laun aUs stað- ar. Hærri lauii með verðmætari verkefn- um. Kjarasamningar í deiglunni. Farið er að huga að gerð kjara- samninga vegna starfsmanna sem vinna við fjarvinnslu á Vest- fjörðum og víðar á vegum Is- lenskrar miðiunar. Svavar Krist- insson, framkvæmdastjóri íyrir- tæksins, segir að mánaðarlaun starfsmanna við úthringingar séu um 106 þúsund krónur brúttó miðað við 40 stunda vinnuviku. Tímakaup í dagvinnu sé um 700 krónur og 915 krónur í næturvinnu. Hann segir að mánaðartekjur fólks geti verið hærri með meiri vinnu. Hann segist hafa það eftir landsbyggð- arfólki að Iaun i fjarvinnslu séu taisvert hærri en t.cl. í fisk- vinnslu að meðtöldum bónus. Kjacasanmmgar í deiglimni Pétur Sigurðsson, formaður Al- þýðusambands Vestfjarða, ASV, segir að gerð kjarasamninga vegna starfsmanna í fjarvinnslu í fjórðungnum séu í deiglunni, enda hefur ASV óskað eftir því að samningar séu gerðir. Það mun síðan koma í ljós hvort það séu almennu verkalýðsfélögin eða verslunarmannafélögin sem koma að þeim viðræðum fyrir hönd starfsfólksins. Ilann segist ekki vita til þess að neinir kjara- samningar hafi verið gerðir vegna starfsfólks í fjarvinnslu á öðrum landsvæðum. Hinsvegar sé meirihlutinn sem hefur ráðið sig til starfa í fjarvinnslunni í Isa- fjarðarbæ úr almennu verkalýðs- félögunum. Hann segist vera sannfærður um það að fjar- vinnslan sé búhót fyrir atvinnu- lífið og byggðaþróunina þar vestra og raunar sé þessi at- vinnugrein eini ljósi punkturinn í atvinnulífinu á svæðinu. I því sambandi bendir hann á að það sé ekki á hverjum degi að þar sé stofnað fyrirtæki sem veitir um 50 manns atvinnu á þessum síð- ustu og verstu tímum. Sömu laun alls staðar Svavar Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Islenskrar miðlun- ar, segir að fyrirtækið kappkosti við að eiga gott samstarf við stéttarfélögin á þeim stöðum sem fyrirtældð starfar. Þá sé það stefna fyrirtækisins að borga sömu laun úti á landi og á höf- uðborgarsvæðinu. Honum segist ekki hafa þótt það eftirsóknar- vert þegar sveitarstjórnarmenn úti á landi hafa talið það kosti fyrir Islenska miðlun koma í þeirra heimabyggðir vegna þess að þar séu lægri laun og lægri húsaleiga. Hinsvegar sé það eft- irsóknarvert að fá til starfa gott fólk sem sé tilbúið að vinna við fjarvinnsluna og stuðla að upp- byggingu fyrirtækisins. Þá sé við því að búast að laun í fjarvinnslu fari hækkandi eftir því sem verk- efnin verða verðmætari, Hann býst við að svo geti orðið hjá Is- lenskri miðlun eftir 1-2 ár, eða jafnvel fyrr. - GRH Úlafur Ragnarsson. Ný stjóm Vöku-Hdgafells Ný stjórn Vöku-Helgafells hf. hefur verið kjörin og er tekin til starfa. Formaður stjórnar er Olafur Ragnarsson, fyrrum framkvæmdastjóri, sem mun sinna stjórnarformennskunni í fullu starfi. Varaformaður er Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Viðskiptaháskólans í Reykjavík, og meðstjórnendur eru Böðvar Þórisson, markaðs- og sölustjóri Flögu, Kristján Birgir Thorlaci- us lögmaður og Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur og for- stjóri Advanta. Bernhard A. Pet- ersen viðskiptafræðingur hefur nýlega hafið störf sem frarn- kvæmdastjóri Vöku-Helgafells og vinnur hann ásamt Ólafi Ragnarssyni að mótun nýs skipurits fyrirtækisins og nauð- synlegri endurskipulagningu rekstrarins. Meðal helstLs verkefna nýju stjórnarínnar verður að útfærti þá stefnu sem mörkuð hefur verið um aukin umsvif íýrirtæk- isins á sviði útgáfu og miðlunar. Sparisjóöir sagðir með tilboö í FBA Mikilspenna ríkir á fjármálamarkaði yfir því hverjir bjóða íbankann en sam- kvæmt því sem Dagur kemst næst er talið líklegast að sparisjóðirnir og Kaupþing muniskila inn tilboði. Þaö skýrist í dag hverjir ætla að hjóða í FBA. Fjárfestar hafa verið hikandi. Gengi hréfa hefur lækkað. I dag hefst útboð Ríkiskaupa á 51% hlut ríkisins í FBA með því að tilboð verða gerð heyrinkunn. Síðasti frestur til að skila inn til- kynningum rennur út kl. 14. Mikil spenna ríkir á fjármála- markaði yfir því hverjir hjóða í bankann en samkvæmt því sem Dagur kemst næst er talið líkleg- ast að sparisjóðirnir og Kaupþing muni skila inn tilboði. Þegar rætt var við Sigurð Einarsson, for- stjóra Kaupþings, og Guðmund Hauksson, sparisjóðsstjóra SPRON, voru þeir þögulir sem gröfin. Vildu þeir hvorki játa því né neita að tilboð kæmi frá þeim. Má túlka það sem vísbendingu um að tilboð komi úr þeirri átt. Erfitt er að meta hvort tilboð komi frá fleiri aðilum. Lífeyris- sjóðir hafa verið nefndir til sög- unnar en fulltrúar þeirra hafa í samtölum við blaðið ekki viljað segja annað en að þeir hafi kann- að málið lítillega, saman eða sitt í hvoru lagi. Nokkurt hik hefur verið á fjár- festum að gera tilboð í FBA, líkt og Dagur greindi frá í síðustu viku. Sem ástæður fyrir því hefur helst verið nefnt að uppsett verð sé hátt en lágmarksgengið á að vera 2,80. Gengi hréfa FBA á Verðbréfaþingi hefur lækkað síð- ustu daga og endaði í gær í 2,69. Önnur ástæða fyrir hiki fjár- festa er sú að þeim finnst mörg- um hverjum tíminn vera stuttur frá því að Ijóst verði hvaða tilboði verður tekið þar til sömu aðilar þurfa að reiða fram staðgreiðslu fyrir hlutinn, sem gæti numið um 10 milljörðum króna. Eins hafa fjárfestar rekið sig á veggi hjá erlendum lánastofnunum sem ekki hafa viljað lána stórfé fyrir aldamótin sökum 2000- vandans. Vonast eftir tveimur tilboðum Hreinn Loftsson, formaður einkavæðingarnefndar, sagðist í samtali við Dag vonast eftir þátt- tökutilkynningu frá a.m.k. tveim- ur hópum. Farið yrði yfir þær til- kynningar og ef þær uppfylltu skilyrði sölunnar yrði tilkynnt um fjölda hópa í í næstu viku. „Ef á hinn bóginn reynist nauðsynlegt að lagfæra einhver atriði tilkynninganna hafa við- komandi aðilar frest til loka næstu viku til að bregðast við því. Ekki verður greint frá sam- setningu hópa fyrr en við opnun tilboða," sagði Ilreinn. Aðspurður hvort hann yrði fyr- ir vonbrigðum ef einungis kæmi tilboð frá sparisjóðunum sagði Hreinn að vonbrigðin yrðu þá í því fólgin að ekki væri mikil keppni um hréfin. „A hinn bóg- inn væri það mikið ánægjuefni tækist að selja bankann og ljúka þar með einkavæðingu hans.“ Vegna fréttar í hlaðinu skal það leiðrétt að endanleg tilboð í bankann eiga ekki að berast fyrir 1. nóvember. Hið rétta er að full- trúum þeirra fjárfestahópa sem uppfylla skilyrði um þátttöku verður í síðasta lagi afhent til- boðseyðublað þann 1. nóvember nk. Tilboðum þarf svo að skila í síðasta Iagi 5. nóvcmber og þann dag verða þau opnuð. - BJB Frjáls afgreiðslutími í Reykjavík Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í gær að rramlengja frjálsan af- greiðslutíma veitingastaða í borginni. Fyrir þremur mánuðum var slíkt leyfi veitt 20 veitingahúsum til reynslu en nú hefur leyfið verið veitt til níu mánaða. Þó nær það ekki til Grjótaþorps nú eins og það gerði f upphafi. Leyfið gildir frá föstudegi til sunnudags og hefur lög- reglan lýst yfir mikilli ánægju með reynsluna af þessu fyrirkomulagi. Sveitabæir utan sambands Um 78 sveitabæir ná sjónvarpsútsendingum RUV illa eða alls ekki samkvæmt upplýsingum sem fram komu hjá Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra í fyrirspurnatíma á Alþingi í gær. Það var Einar K. Guðfinnsson sem spurði um málið. Ráðherrann byggði svör sín á upplýsingum frá RUV. Reiknað er með að endurbætur á kerfinu síð- ustu þrjú ár hafi komið um 10 bæjum til góða. Bætt þjónusta við nýbúa Félagsmálaráðherra, Páll Pétursson, hefur ósk- að eftir tilnefningum í nefnd sem yrði falið að kanna grundvöll fyrir stofnun landsmiðstöðvar, eða þjónustu- og fræðslumiðstöðvar um mál- efni útlendinga. Ráðherra kynnti málið á fundi ríkisstjórnar sl. þriðjudag. Stefnt er að því að nefndin skili tillögum sem lagðar verða fyrir ríkisstjórn eigi síðar en 1. mars nk. I greinargerð kemur fram að verkefni slíkrar miðstöðvar geti orðið margvísleg en þau miða að því að auðvelda útlendingum aðlögun og þátttöku í íslensku samfélagi. I því sambandi sé m.a. bent á margþætta upplýsingaþjónustu, ýmsar leiðbeiningar og ráðgjöf, túlka- og þýðingarþjónustu, umsjón með grunnámskeiðum og fræðslu, undirbúningi með komu flóttamanna og þjónustu við þá í samstarfi við flóttamannaráð og Rauða kross Islands, margþætta menningarstarfsemi og aðstöðu fýrir ýmsa aðila sem starfa að málefn- um útlendinga. SamfyUdngarfimdur á Reykjanesi Kjördæmisráð Alþýðuflokks og Alþýðubandalags á Reykjanesi, ásamt Reykjanesanga Kvennalistans, standa fýrir opnum kjördæmisráðs- fundi í kvöld í Hraunholti í Hafnarfirði kl. 20. Rannveig Guðmunds- dóttir flytur ávarp og erindi flytur Kristrún Hcimisdóttir. Þingmenn sitja svo fyrir svörum í pallhorðsumræðum undir stjórn Jóhanns Geir- dals. Allt samfj'lkingarfólk er velkomið á fundinn. Páll Pétursson, félagsmálaráðherra

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.