Dagur - 21.10.1999, Blaðsíða 10

Dagur - 21.10.1999, Blaðsíða 10
10- FIMMTVDAGUR 21. OKTÓBER 1999 SMÁAUGLÝSINGAR Til sölu Til sölu eru IKEA-kojur f fullri lengd úr furu, seljast ódýrt. Upplýsingar í síma 461-3777 og 898-3300. Húsnæði óskast____________________ Öska eftir herbergi til leigu á Akureyri. Upplýsingar í síma 464 1486 eða 861 2629. Húsnæði í boði____________________ Til leigu húsnæði f Kaupangi á 2. hæð. Hentugt fyrir skrifstofur og fl. Upplýsingar gefur Axel í síma 462-2817 og 462-4419 eftir kl. 18.00. Skrifstofuhúsnæði Til leigu 200 ferm. skrifstofuhúsnæði á besta stað á Akureyri, Hafnarstræti 82, 2. hæð. Leigist annað hvort í heilu lagi eða í smærri einingum. Nánari upplýsingar í síma 894 2967. Samhygð Samhygð samtök um sorg og sorgarvið- brögð á Akureyri og nágrenni verða með opið hús í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju fimmtudaginn 21. október kl. 20.00. Sr. Þor- grímur Daníelsson á Grenjaðarstað talar um hjónaskilnaði og fleiri sorgaráföll. Samtökin fyrirhuga að vera með starf í minni hópum þar sem fólk getur hitt þá sem orðið hafa fyrir svipuðum áföllum. Við höfum fengið fagfólk okkur til aðstoðar. Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald. Stjórnin. Ökukennsla Kenni á nýjan Mercedes Benz A-class (litla Benzinn). Útvega öll náms- og prófgögn. Kenni allan daginn, á kvöldin og um helgar. Anna Kristín Hansdóttir, ökukennari Þingvallastræti 18 heimasími 462-3837 GSM 893-3440. VÐ ERUM MIÐSVÆÐIS MELVEGUR 17 • HVAMMSTANGA SÍMI 451 2617 • FAX 451 2890 Sýnishorn af bílum og tækjum á sýningarsvæði Hyundai Stavex 7 manna Diesel 4x4 árg.99 Subaru Legacy nýr árg. 99 Landrover douplecap 5 cyl. Diesel árg. 99 Nissan Diesel 4x4 árg. 99 Suzuki Grand vitara 6 syl. nýr árg. 99 Suzuki Balleno st. 4x4 nýr árg. 99 MMC douple cap 4x4 árg.95 Subaru Legacy árg.90 Hyuandai Elantra árg. 95 Hyuandai Sonata árg. 97 Lada Sport árg. 88 Grand Cherocy 6 syl. árg. 93 Toyota Turing árg. 95 Ford Explorer árg. 91 MF 4255 95ha 4x4 árg. 99 Ford newholland 6640 4x4 árg. 96 Ford newholland 5635 árg.97 Rúlluvél Wermer 504 árg. 99 Pökkunarvél K 7335 árg. 99 Pökkunarvél Tangó árg. 99 Sláttuvélar Kunn GMD 700 árg. 99 Niemeyer Eurodiese 260 árg. 99 Sturtuvagn 8,5 tonn Muavél nyemaier RS 340-DA árg. 99 Springmaster hestaflutningakerra árg. 99 Vegna mikillar sölu vantar allar gerð- ir af bílum og tækjum á söluskrá. ‘Tmðsíunet Framkvæmdastjóri Fræðslunets Suðurlands Auglýst er laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra Fræðslunets Suðurlands frá og með 1. janúar 2000. Fræðslunet Suðurlands er nýstofnuð sjálfseignar- stofnun sem að standa 34 aðilar; sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. Markmið Fræðslunetsins er að stuðla að því að Sunnlendingar geti stundað háskólanám í heimahéraði í samvinnu við háskólastofnanir og efla hverskonar símenntun og fullorðinsfræðslu á Suðurlandi. Starfssvið: Framkvæmdastjóri sér um daglegan rekstur og mótun starfseminnar í samvinnu við stjórn. Menntun og hæfniskröfur: Umsækjandi þarf að hafa háskólamenntun og reynslu af stjórnunarstörfum. Æskilegt er að umsæk- jandi hafi þekkingu og reynslu á sviði fræðslumála, m.a. hvað varðar símenntun og fullorðinsfræðslu. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi. Skriflegar umsóknir þar sem tilgreind er menntun, aldur og fyrri störf sendist stjórn Fræðslunets Suðurlands, Austurvegi 56, 800 Selfossi fyrir 5. nóvember 1999. Upplýsingar um Fræðslunet Suðurlands er að finna á heimasíðu www.sudurland.is/fraedslunet. Nánari upplýsingar um starfið veitir formaður stjórnar, Þorvarður Hjaltason í síma 482-1088. ■ - ■ www.visir.is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR Ðaffur Heildarkostnaður við bygginguna er áætlaður rúmar 200 miiijónir, sem er 47 milljónum hærri upphæð en upphaf- lega var lagt upp með. - mynd: brink SkautahöU rís á Akureyri Starfsmenn SJS verktaka á Akur- eyri vinna þessa dagana við að reisa sperrur á Skautahöllina nýju. Að jafnaði hafa starfað 10- 14 manns við bygginguna og segir Jón Björnsson verkstjóri að verkið gangi þokkalega en sé eitthvað aðeins á eftir áaetlun. Fyrirtækið á að skila Skautahöll- inni tilbúinni í mars en Jón vildi ekki fullyrða um hvort það tæk- ist. Upphaflega var áætlað að Skautafélag Akureyrar gæti hafið æfingar á svellinu þann 14. nóv- ember. Jón segir að ekki geti orð- ið af því en vonast þó til að æf- ingar geti hafist fyrir áramót. Þrátt fyrir þær tafir ættu skauta- menn að geta fagnað því þegar höllin verður komin í gagnið því þá þurfa þeir ekki að treysta á veðrið á keppnisstað þegar ís- hokkímenn úr Reykjavík koma norður, heldur aðeins á ferða- veðrið þannig að sunnanmenn komist norður. Heildarkostnaður við bygging- una er áætlaður rúmar 200 milljónir, sem er 47 milljónum hærri upphæð en upphaflega var lagt upp með. Bæjarráð sam- þykkti í sumar að bæta þeirri upphæð við vegna þess að ákveð- ið var að byggja stærra hús en f upphafi var tekin ákvörðun um. Bygging skautahallar á Akureyri var á stefnuskrá allra stjórnmála- flokkanna fyrir kosningarnar í fyrra. — HI LeikskólafuUtníi verður ráðiim Ákveðið hefur verið að ráða leik- skólafulltrúa að Grunnskóla- deild Akureyrarbæjar og er Krist- ján Þór Júlíusson bæjarstjóri bjartsýnn á að úr deilu bæjarins og leikskólakennara leysist. I vikunni átti bæjarstjóri fund með leikskólastjórum vegna deilumála þessara aðila, en frá þeim hefur Dagur áður greint. Eftir þennan fund er bæjarstjór- inn bjartsýnn á að lausn sé í sjónmáli. Hann lýsti því yfir á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag, eftir fyrirspurn frá Marsibil Fjólu Snæbjörnsdóttur, að eftir fundinn með leikskólastjórunum væri ekki ástæða til að óttast að um þjónusturof yrði að ræða í þessum málaflokki eins og hald- ið hafi verið fram. Kristján benti á að megin kröfur Ieikskólakenn- ara hafi verið þær að leikskóla- fulltrúi yrði ráðinn á grunnskóla- deildina og að yfirmaður deildar- innar væri leikskólakennari. Hann sagði að til þessa hafi ekki starfað leikskólafulltrúi hjá bæn- um, en hins vegar deildarstjóri Ieikskóladeildar. Hugmyndin væri að á grunnskóladeildinni myndi starfa starfsmaður sem sæi um leikskóladeildina þótt ýmis önnur þjónusta og ráðgjöf flyttist til fjölskyldudeildar og Háskólans á Akureyri. Varðandi yfirmann deildarinnar sagðist Kristján ekki telja nauðsynlegt að hann væri leikskólakennari og uppeldismenntun önnur ætti þar ekki síður við. Guðmundur Ómar Guð- mundsson, bæjarfulltrúi fram- sóknar, kvaddi sér einnig hljóðs á fundinum í gær og fagnaði þessari stefnubreytingu bæjaryf- irvalda, að ráða IeikskólafuIItrúa og vonaðist hann jafnframt eftir að lausn næðist í þessu máli sem fyrst. Árangur í „30 km hverfi66 Framkvæmdir sem miða að því að lækka umferðarhraða í tveim- ur hverfum á Akureyri, Suður- Brekkunni og Innbænum, ganga vel og sýna mælingar að umferð- arhraði hefur Iækkað um 6-10 kílómetra á klukkustund að sögn Gunnars Jóhannessonar, deild- arverkfræðings hjá Akureyrarbæ. Líkur eru á að framkvæmdum ljúki f næstu eða þarnæstu viku við þann hluta sem meiningin var að gera á þessu ári en síðan verður lokið við framkvæmdina næsta vor. Ekki hefur verið ákveðið hvaða hverfi verður tekið fyrir næst. „Við höfum verið með Hlíða- hverfið í huga og það er bara út frá talningu á slysum. Hlíðar- hverfið er verst að því leyti,“ seg- ir Gunnar, en endanlega er það pólitísk ákvörðun hvaða hverfi verður tekið og hve miklir fjár- munir verða til umferðaröryggis- mála. Skipulagsnefnd hefur hinsvegar velt fyrir sér lækkun á umferðarhraða á Eyrinni. Á þessu ári ver bærinn tíu milljónum til þeirra mála, sem að hluta fóru til að setja upp um- ferðarljós á mótum Skógarlund- ar og Þingvallastrætis sem kveikt var á um liðna helgi ásamt fram- kvæmdum við umrætt „30 kíló- metra“ hverfi. Gunnar segir að ef sama upphæð verður til ráð- stöfunar á næsta ári ætti að vera hægt að taka heilt hverfi á næsta ári, hvort heldur það verður Oddeyrin eða Hlíðahverfið. — HI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.