Dagur - 21.10.1999, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 - 3
Greiðslumatið
er órauuhæft
Eh'n Sigrún Jónsdóttir forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármái heimiianna
íbúðalánasjóðux er að
lána út á aUs óraun-
hæft greiðslumat að
mati forstöðumanns
Ráðgjafarstofu um
fjármál heimilanua.
„Það er ekki nóg að hafa
greiðslumat - það verður að vera
raunhæft. Og það er langt frá því
að svo sé með það greiðslumat
sem Ibúðalánasjóður er að leggja
til grundvallar lánveitingum sín-
um í dag. Þar er miðað við tölur
um framfærslukostnað fjöl-
skyldna sem eru fjarri lagi og ekki
líklegt að nokkurt heimili lifi á til
lengdar, þannig að greiðslumatið
á ekki við nein rök að styðjast,"
segir Elín Sigrún Jónsdóttir, for-
stöðumaður Ráðgjafarstofu um
fjármál heimilanna, sem kveðst
sérstaklega hafa varað við því að
nota lágar viðmiðunarupphæðir
Ráðgjafarstofu til grundvallar
greiðslumati.
SérstaMega varað við
Ibúðalánasjóður vísar um fram-
færslukostnað til reynslutalna frá
Ráðgjafarstofunni. „Já, það er
vísað til okkar tölulegu for-
sendna, en bara tekinn hluti af
þeim,“ segir Elín. En það hafi
margsinnis verið ftrekað að Ráð-
gjafarstofan sé að vinna með
fólki sem er að reyna að vinna sig
út úr greiðsluvanda, og leggi þess
vegna til grundvallar þær lægstu
tölur um framfærslukostnað fjöl-
skyldna sem hugsanlegt sé að
komast af með tímabundið.
„En það fólk sem er að taka
húsnæðislán í dag er að reyna að
greiðslumeta sig til framtíðar og
þá er algerlega óraunhæft að
leggja þessar tölur okkar til
grundvallar. I rauninni eru þetta
svo lágar upphæðir að það lifír
enginn á þeim. Viðmiðunartölur
Ibúðalánsjóðs eru samt ennþá
lægri en okkar tölur - enda höf-
um við sérstaklega varað við því
að leggja þær til grundvallar,“
segir Elín.
Speirnt upp fasteignaverðið
Hjá Ibúðalánasjóði hafa menn
samt fagnað stórum minnkandi
vanskilum núna að undanförnu?
„Ég held að það gleymist í þessu
samhengi að taka tillit til fjölda
lána sem hefur verið skuldbreytt
og fryst og ekki hvað síst að í
ágúst á þessu ári var vaxtabótum
fjölmargra skuldajafnað á móti
vanskilum hjá sjóðnum," segir
Elín.
I kjölfar breytts greiðslumats
og viðbótarlána hefur fjöldi lág-
launafólks bæst í hóp þeirra sem
kaupa íbúðir á almennum lána-
kjörum? „Já, sem aftur hefur leitt
til mikillar hækkunar á fast-
eignaverði - vegna þess að þarna
hefur bæst við stór kaupenda-
hópur sem ekki hefði staðist
greiðslumat samkvæmt eldri
reglum, sem ýmsum þóttu nú
allt of frjálslegar. En það er Ijóst
að lánareglurnar eru mun frjáls-
legri í dag. Greiðslumat er gott -
en það verður að vera raunhæft
til þess að það hafí eitthvert leið-
beiningargildi," segir Elín, sem
óttast enn útbreiddari erfiðleika
ef eitthvað mundi slá í bakseglin
í efnahagslífinu. - HEI
Skoðum
skýrsluna
„Það er margt áhugavert þar og
við skoðum það allt með opnum
huga,“ segir Pétur Bolli Jóhann-
esson, sveitarstjóri í Hrísey, um
skýrslu um nýsköpun í gagna- og
fjarvinnslu, sem nýlega var
kynnt. Hann segir ekki búið að
ákveða neitt í þeim efnum varð-
andi Hrísey en á listanum sé
fullt af verkefnum sem gætu
hentað Hríseyingum eins og
öðrum. „Við vinnum í þessu íjar-
vinnslumáli eins og öðru og það
er ekki hægt að segja annað en
að það er bjart ffamundan í
þeim efnum," segir Pétur Rolli,
en staðfest er að Hríseyjar-
hreppur hefur Ioforð frá Is-
lenskri miðlun um að fyrirtækið
setji þar upp starfsstöð ef verk-
efni finnast. „Þetta snýst um
verkefnisöflun fyrst og fremst.
Annað er í hendi,“ segir Pétur
Bolli. - Hl
Jámblendið fær
aðvömnarbréf
Gult spjald. Minnt á
ákvæði starfsleyfis
vegna mengunar-
vama. Enga bólstra
að sjá í gær.
HoIIustuvernd ríkisins hyggst
senda stjórn Járnblendiverk-
smiðjunnar á Grundartanga í
Hvalfirði aðvörunarbréf, þar sem
minnt er góðfúslega á ákvæði
starfsleyfisins með tilliti til
mengunarvarna. Þetta bréf kem-
ur í framhaldi af þeim mikla út-
blástri á kísilryki og vatnsgufu
sem hefur verið frá verksmiðj-
unni vegna viðvarandi bilana
sem verið hafa í reykhreinsibún-
aði í þriðja ofni hennar.
Sérstakar aðstæður
Hermann Sveinhjörnsson, for-
stjóri Hollustuverndar ríkisins,
segir að ef ekkert gerist og ekki
tekst að koma í veg fyrir þessa
bilun, þá sé hugsanlega viðbúið
að verksmiðjan verði að draga úr
starfsemi þriðja ofnsins. Hann
segir þó aðstæður verksmiðjunn-
ar í þessu máli vera dálítið sér-
stakar vegna þessarar bilunar
sem orðið hefur í reykhreinsi-
búnaðinum og þess að eltki sé
hægt að komast að biluninni
nema því aðeins að hafa ofninn í
gangi. Af þeim sökurn sé ekki
annað hægt en að sýna verk-
smiðjunni svona hæfilegan
skilning til að byrja með að
minnsta kosti. Enda telur Her-
mann að stjórnendur Járnblendi-
verksmiðjunnar hafi staðið sig
vel í mengunarvörnum í gegnum
tíðina. Aftur á móti sé það mjög
áberandi og stuðandi þegar út-
blásturinn sé jafn rnikill og raun
hefur orðið síðustu daga. Hann
sagði í gær að svo virtist sem
dregið hefði verulega úr þeirn
miklu bólstrum sem lagt hafa frá
verksmiðjunni frá sl. helgi. I það
minnsta var enga bólstra að sjá
frá verksmiðjunni út um glugga
forstjórans í höfuðstöðvum Holl-
ustuverndar í Armúlanum í gær,
enda mun hafa verið dregið úr
virkni ofnsins. - GRH
Nýr framkvæmdastjóri Gilfélagsins
Dögg Matthíasdóttir verður næsti framkvæmda-
stjóri Gilfélagsins en fyrst um sinn í hálfu starfi á
móti núverandi framkvæmdastjóra, Finni Magnúsi
Gunnlaugssyni. Ekki hefur verið gengið formlega
frá ráðningu Daggar en það verður gert á næstu
dögum. Dögg stundar nú nám á ferðaþjónustusviði
rekstrarfræðibrautar Háskólans á Akureyri og segir
spennandi að geta tengt námið og þær aðferðir sem
hún lærir og notar við námið við það starf sem fram
fer á vettvangi Gilfélagsins. Boðar þetta hugsanlega
breyttar áherslur í starfi Gilfélagsins? „Vonandi,
allavega eru þeir að leita til mín með þessa tengingu
í huga, tengingu við háskólann, rekstrarfræði og
ferðaþjónustusviðið," segir Dögg. Dögg mun verða í
hálfu starfi þangað til hún lýkur námi í júní á næsta
ári en síðan í fullu starfi í framhaldi af því. - HI
Dögg Matthías-
dóttir verður
næsti fram-
kvæmdastjóri
Gilfélagsins.
mynd: brink
Melaskóli emsetinn
Með glæsilegri nýbyggingu við
Melaskóla hefur skólinn verið ein-
setinn, fjórði grunnskólinn í Reykja-
vík í haust. Skólastjóri Melaskóla
fékk nýlega lyklavöldin að nýrri
byggingu úr hendi borgarstjóra. I ný-
byggingunni eru 15 kennslustofur
auk annarra rýma. I skólanum eru
nú 580 börn í 1. til 7. bekk. Við skól-
ann starfa 44 kennarar, auk skóla-
stjóra og aðstoðarskólastjóra og á
þriðja tug annarra starfsmanna. Byggingin er alls um 1.500 fermetr-
ar að flatarmáli og kostnaður við framkvæmdina nam 230 milljónum
króna.
Nýbyggingin við Melaskóla.
Þjóðin klnfín í klámbúlluináluin
Mjög skiptar skoðanir eru um
hvort þingmenn eigi að setja lög
til að loka svokölluðum klám-
búllum eða nektardansstöðum.
Hátt í tvö þúsund notendur
greiddu atkvæði á Vísisvefnum
um eftirfarandi spurningu Dags:
A Alþingi að loka „klámbúllujt-.
um" með Iögum? Svarendur
skiptust í tvo jafna flokka - 50%
sögðu já og 50% nei.
Nú er hægt að svara nýrri
Dagsspurningu á vcfnum,
svohljóðandi: Sýna nýju gögnin
að kjarnorkuvopn hafi verið
igeymd á Islandi? Slóðiú .er .vjsjiijs,
Fjölmiðlaþing 1999
Aðalfundur Fjölmiðlasambandsins verður haldinn nk. laugardag á
Hótel Borg. Um 60 þingfulltrúar frá sex aðildarfélögum samhandsins
sitja fundinn sem jafnframt er Fjölmiðlaþing 1999. Félögin eru
Blaðamannafélag Islands, Félag bókagerðarmanna, Félag grafískra
teiknara, Rafiðnaðarsamband Islands, Starfsmannasamtök Ríkisút-
varpsins og Verslunarmannafélag Reykjavíkur.
A Fjölmiðlaþingi verða tvö meginmál til unrfjöllunar. Rætt verður
um framtíð og stöðu Fjölmiðlasambandsins, en við undirbúning kom-
andi kjarasamninga hafa verið töluverðar unrræður um samvinnu og
samstarf aöildarfélaganna. Þá verður einnig sérstök umræða um sanr-
rij,na.Sjónvarps, tiilyu og síma og stejrtu samJrapdsins v þcim efnum.