Dagur - 02.11.1999, Blaðsíða 5
tikwíT.
X&^ur.
FRÉTTIR
eeet Haawtavít'A .& anaKat3\Q\«<3 -L
l’RIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999 - S
Tekjutap og
aukín útgjold
Krossanesverksmiöjan er meðal þeirra viðskiptavina Ralveitu Akureyrar sem
menn óttast að muni snúa sér að olíu.
Orkuskortur Lauds-
virkjuuar á rafveitur.
Getur flýtt fyrir verð-
hækkimum hjá Orku-
húi Vestfjarða. Stórir
kúimar á Akureyri
horfa til olíu. Áhrif á
tiltrú fjárfesta á stór-
iðju.
Skortur á ótryggðu rafmagni hjá
Landsvirkjun og 25-30% verð-
hækkun á því til að fæla kaup-
endur frá eykur útgjöld Orkubús
Vestfjarða um 2-3 milljónir
króna á mánuði. Hjá Rafveitu
Akureyrar er það spurning
hvenær stórir viðskiptavinir telja
rafmagnsverðið vera of hátt mið-
að við olíu. Þarna eiga í hlut öll
helstu og stærstu iðnfyrirtæki á
svæði rafveitunnar. Þegar svo er
komið blasir við verulegt tekju-
tap hjá Rafveitu Akureyrar sem
getur hlaupið á tugum milljóna
króna. Innan orkugeirans velta
menn því fyrir sér hvort það geti
ekki haft áhrif á tiltrú fjárfesta á
stóriðju ef umframorka, eða
varaafl Landsvirkjunar í ótryg-
gðri raforku sé ekki meira en
raun ber vitni um.
Flýtir fyrir verðlagsbreyt-
ingu
Kristján Haraldsson, orkubú-
stjóri Orkubús Vestfjarða, segir
að þessi verðhækkun á raf-
orkunni þýðir einfaldlega aukin
útgjöld fyrir þá, eða fljótt á litið
um 2-3 milljónir króna á mánuði
yfir veturinn. A síðasta vetri nam
t.d. aukinn kostnaður Orkubús-
ins vegna olíukaupa um 40-50
milljónum króna vegna skorts á
ótryggðu rafmagni frá Lands-
virkjun inná kyndistöðvar fjar-
varmaveitna þess. Hinsvegar sé
eðli þessa markaðar með þeim
hætti að það má alltaf búast við
verðhækkunum ef vatnsbúskap-
urinn sé slæmur og jafnvel því að
skrúfað sé fyrir þessa orku. Krist-
ján segir að að svo stöddu muni
þessi verðhækkun ekki hafa í för
með sér breytingar á orkuverði
til neytenda. Aftur á móti sé ekki
því að leyna að þetta ástand get-
ur flýtt fyrir verðlagsbreytingum
til hækkunar á orkuverði til neyt-
enda á Vestfjörðum. Á meðan
rýrir þetta ástand óneitanlega
sjóði Orkubúsins. Hann segir að
menn hafi hinsvegar reiknað
með því í áætlunum þess að
þetta ástand gæti komið upp eft-
ir því hver staðan sé í vatnsbú-
skap Landsvirkjunar.
Keimxr sér illa
Svanbjörn Sigurðsson, rafveitu-
stjóri Rafveitu Akureyrar, segir
að þessi verðhækkun á ótrygga
rafmagninu frá Landsvirkjun
komi sér illa fyrir veituna. Enn
sem komið er þá sé rafmagnið
ennþá lægra í verði en olían. Ef
Landsvirkjun fer með rafmagns-
verðið uppí þriðja þrep á gjald-
skránni sé hætt við því að stórir
viðskiptavinir rafveitunnar sjái
hag sínum betur borgið með því
að keyra á olíu í stað rafmagns.
Þessir viðskiptavinir séu m.a.
Krossanesverksmiðjan, Mjólkur-
samlag KEA, Hita- og Vatnsveit-
an og Víking og önnur iðnaðar-
fyrirtæki á svæðinu. Þegar svo sé
komið minnkar raforkusalan hjá
veitunni með tilheyrandi tekju-
tapi, sem getur hlaupið á tugum
milljóna króna. Svanbjörn segist
hafa það eftir Landsvirkjun að
staðan í vatnsbúskapnum og þar
af leiðandi í afhendingu á
ótryggðri orku sé verri en í fyrra.
Af þeim sökum sé hætt við því að
Landsvirkjun hreinlega skrúfi
fyrir þetta rafmagn eins og gerð-
ist í fyrravetur. - GRH
Úlfar Þormóðsson.
Útfar ætl-
ar í mál
Ulfar Þormóðsson rithöfundur
og fyrrverandi framkvæmdastjóri
Gallerís Borgar hefur ákveðið að
höfða meiðyrðamál gegn Olafi
Inga Jónssyni forverði vegna um-
mæla Ólafs í tengslum við rann-
sókn á meintum fölsuðum mál-
verkum.
Vegna frétta um nokkur áætl-
uð fölsuð málverk í eigu Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins og al-
mennt um þann mikla fjölda
málverka sem nú sætir rannsókn
hjá Efnahagsbrotadeild Ríkislög-
reglustjóra, hefur Ólafur Ingi
bent á að mörg þessara verka
hafi verið seld í Gallerí Borg á
tíma fyrri eigenda og fram-
kvæmdastjóra gallerísins. Þau
ummæli \ill Ulfar ekki sætta sig
við.
„Eg er alls óhræddur við mál-
sókn Ulfars, sem ég hef reyndar
ekki nefnt á nafn vegna þessara
frétta. Sannleikurinn mun koma
í ljós. Eg vil að öðru leyti ekki tjá
mig um þetta mál að svo
stöddu,“ segir Ólafur Ingi í sam-
tali við Dag. - FÞG
70% kaupenda Bún-
aðarbankans kvöddu
INNLENT
Rúmlega 64 þúsund af þeim
rúmlega 93 þúsund einstakling-
um sem keyptu hlutabréf í Bún-
aðarbankanum, eða 68,8%
kaupendanna, hafa selt bréfin
sín á þeim skamma tíma sem lið-
inn er frá útboðinu. Flest bendir
til þess að stærstur hluti þessara
seljenda bréfanna hafi selt strax
og þá með skammtímagróða í
huga, en miðað við þróun gengis
bréfanna hefði gróðinn orðið
mun meiri af því að bíða með
sölu.
I svari Finns Ingólfssonar við-
skiptaráðherra við fyrirspurn Jó-
hönnu Sigurðardóttur kemur
fram að af þessum 93.363 sem
keyptu bréf í Búnaðarbankanum
séu nú „aðeins“ 29.174 eftir eða
tæpur þriðjungur. Brotthvarf
nýrra hluthafa í FBA er einnig
mikið; þar keyptu 10.734 í
hlutafjárútboði, en nú hefur
hluthöfum fækkað niður í 3.773
eða um 65%. I útboði Lands-
bankans keyptu 12.112 hlut í
bankanum, en þessum hluthöf-
um hefur fækkað niður í 6.934
eða um 43%. Landsbankanum
tókst því best þessara banka að
halda í þessa nýju hluthafa.
Gengi bréfa í þessum bönkum
hefur hækkað töluvert frá útboð-
unum. Það var 1,9 hjá Lands-
banka en er samkvæmt svari ráð-
herra 3,6. I Búnaðarbankanum
hefur gengið hækkað úr 2,15 f
4,5 og í FBA hefur gengið hækk-
að úr 1,4 í 2,8. - FÞG
Umsóknarfrestur til þess að
sækja um embætti héraðsdýra-
lækna sem landbúnaðarráð-
herra, Guðni Agústsson, skipar í,
rann út 20. október. 30 umsókn-
ir bárust um 14 embætti og verð-
ur skipað í embættin frá 1. des-
ember nk. Nokkrir sækja um
fleiri en eitt embætti. Um ný-
skipan embætta er að ræða sam-
kvæmt lögum nr. 66/1998 um
dýrálækna og heilbrigðisþjón-
ustu við dýr.
Um Austur-Húnaþingsum-
dæmi sótti Sigurður H. Péturs-
son; um Austur-Skaftafellsum-
Hæmi QÓtti Kiartan Hreinssmv.
1 & 2 sóttu Aðalbjörg Jónsdóttir,
Jón Pétursson og Kjartan
Hreinsson; um Austurlandsum-
dæmi syðra sótti Hákon Hans-
son; um Borgarfjarðar- og
Mýraumdæmi sóttu Gunnar
Gauti Gunnarsson, Gunnar Örn
Guðmundsson og Guðbjörg Þor-
varðardóttir; um Dalaumdæmi
sótti Sigurbjörg Ó. Bergsdóttir;
um Gullbringu- og Kjósarum-
dæmi sóttu Björn Steinbjörns-
son, Einar Otti Guðmundsson,
Guðbjörg Þorvarðardóttir, Sigur-
borg Daðadóttir, Steinn Steins-
son og Gunnar Örn Guðmunds-
son: um Skaoafiarðar- ot> Evia-
Schiöth, Ármann Gunnarsson,
Einar Otti Guðmundsson, Ólaf-
ur Valsson og Björn Steinbjörns-
son; um Snæfellsnesumdæmi
sækir Rúnar Gíslason; um Suð-
urlandsumdæmi sækja Bergþóra
Þorkelsdóttir, Katrín H. Andrés-
dóttir og Sigurborg Daðadóttir;
um Vestfjarðaumdæmi 1 & 2
sækir Sigríður I. Sigurjónsdóttir;
um Vestur-Húnaþingsumdæmi
sækir Egill Gunnlaugsson; um
Vestur-Skaftafellsumdæmi sækir
Gunnar Þorkelsson og um Þing-
eyjarumdæmi 1 & 2 sækja Bárð-
ur Guðmundsson og Vignir Sig-
urólason. - GG
Níu félög sameiuast í Hafnarfirði
Níu stjórnmálafélög innan Al-
þýðubandalags og Alþýðuflokks,
auk Samtaka um kvennalista og
Óháðra, sem starfa innan
Fjarðarlistans, hafa stofnað
bæjarmálafélag Samfylkingar-
innar í Hafnarfirði.
A stofnfundinum skrifuðu
formenn allra félaganna undir
stofnyfirlýsingu þess efnis að
meginmarkmið hins nýja félags Formenn níu stjórnmáiaféiaga undirrituðu
sé að hefja sjónarmið frelsis, um peigjna stofnyfírlýsingu nýrrar Sam-
jafnréttis, kvenfrelsis, félags- fyikingar í Hafnarfírði.
hyggju og jafnaðar til vegs í -----------------
þjóðfélaginu.
Gunnar Svavarsson nýkjörinn formaður sagði í samtali við Dag að
stærsti áfanginn hafi verið að ná öllum þessum félögum saman í ein
samtök. „Félagsmenn Samfylkingarinnar úr öllum félögunum eru um
tvö þúsund og stuðningshópurinn fer stækkandi. Það er ljóst að
stuðningur bæjarbúa við málefni og markmið Samfylkingarinnar var
mikill í síðustu bæjarstjórnarkosningum, enda fengu þau framboð
sem að henni standa flest atkvæði," sagði Gunnar.
Stoke sagt í höfn
Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings, sagðist í samtali við Dag í
gær telja að Stoke-málið væri í höfn. Eigendur félagsins hefðu dregið
úr kröfum sínum og komist að samkomulagi við íslensku fjárfestana.
Fulltrúar Kaupþings voru þá á leiðinni til landsins eftir viðræður í
Stoke um helgina. Sigurður sagðist reikna með frekari tilkynningum
um málið í dag. Aðspurður hvort Guðjón Þórðarson væri enn inni í
myndinni sem þjálfari sagðist Sigurður líta svo á. Þetta ætti eftir að
skýrast betur.
Samkvæmt heimildum Dags er samsetning íslenska fjárfestahóps-
ins sú sama nema hvað að Áburðarverksmiðjuhópurinn, með Harald
Haraldsson í Andra í broddi fylkingar, er hættur við. Sneri sá hópur