Dagur - 02.11.1999, Blaðsíða 9
I'
T
8 - I’HIVJVDAGU R 2. NÓVEMBEH 1999
- Ðagur
ÞRIDJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1999 - 9
FRÉTTA SKÝRING
Eftírmarkaðiiriim bíður
Eftir að ljóst varð
hverjir buðu í hlut rík-
isins í FBA ríkir nú
mesta spennan yfír því
hvemig þróunin verður
á eftirmarkaði. Stjóm-
arandstaðan telur
ástæðu til að óttast á
meðan stjómarliðar,
formaður einkavæðing-
amefndar og fleiri sofa
rólegir.
Hópur fjárfestanna 26, sem gerði
tilboð í 51% hlut ríkisins í Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins, FBA,
staðfesti síðdegis í gær sölutilboð
frá einkavæðingarnefnd um að
kaupa hlutinn á genginu 2,8 fyrir
alls ríflega 9,7 milljarða króna.
Nafnvirði hlutarins er nákvæmlega
3.468 milljónir króna og er þetta
stærsta einkavæðing sem fram hef-
ur fárið hér á landi til þessa. Hóp-
urinn verður að vera búinn að stað-
greiða hlutinn fyrir 15. nóvember
næstkomandi. Það mun hafa verið
Orca-hópurinn, sem fyrir átti 28%
hlut í bankanum, sem átti frum-
kvæði að samsetningu hópsins
með því að leggja inn þátttökutil-
kynningu. Sjálfurá Orca-hópurinn
óverulegan hlut í tilboðinu fjár-
hagslega.
Alvcg fram á síðustu stundu á
föstudaginn 29. október var verið
að koma hópnum saman og tók
það einkavæðingarnefndina nokk-
urn tíma að ganga úr skugga um að
öllum skilyrðum hefði endanlega
verið fullnægt. Til að tryggja að
engir skyldleikar væru með bjóð-
endum þá fékk nefndin ættfræðing
til liðs við sig. Eins og sjá má á
meðíylgjandi lista er þetta mjög
breiður og fjölbreyttur hópur.
„Stórkostlegur sigur“
Hreinn Loftsson, formaður einka-
væðingamefndar, sagðist í samtaii
við Dag vera ánægður með hvemig
til tókst og sér iitist afar vel á þann
hóp sem bauð (. Ekkert hefði kom-
ið honum á óvart í þeim hópi.
„Bjóðendur eru að huga að fram-
tíðinni og þeir Iíta á FBA sem hag-
stæða langtímafjárfestingu. Eg
óska þeim alls hins besta og vona
að þessi fjárfesting skili þeim góðri
ávöxtun í framtíðinni. FBA er öfl-
ugt og gott fyrirtæki sem hefur á að
skipa óvenju hæfileikaríku starfs-
liði og stjórnendum," sagði
Hreinn.
Hreinn sagði að stjórnvöld gætu
verið ánægð með niðurstöðuna.
Markmið sölunnar hefði verið að
fá fullt verð fyrir allan hlutinn og
stuðla að dreifðri eignaraðild.
„Ef fram fea-sem horfir þá er um
stórkostlegan sigur að ræða, ekki
aðeins fyrir stjórnvöld og skatt-
greiðendur, heldur fyrir alla þá,
sem vilja vinna að frekari einka-
-væðingu og losa ríkið út úr rekstri
sem það á ekki að vasast í. Um leið
hljóta kaupendur og aðrir hluthaf-
ar að vera ánægðir svo ekki sé
minnst á stjórnendur og starfsfólk
FBA,“ sagði Hreinn.
Aðspurður hvort hann óttaðist
að eignasamsetningin riðlaðist á
eftirmarkaði, þ.e. að bankinn endi
á fárra höndum, sagðist Hreinn
ekki reikna með því. Hann ætti von
á því að eignasamsetning í hlut-
hafahópi FBA haldist dreifð þó að
vissulega kunni að verða einhveijar
breytingar á eftirmarkaði.
Fljótt náðist samstaða
Eyjólfur Sveinsson, stjórnarfor-
maður Orca, sagðist í samtali við
Dag vera ánægður með hvernig til
tókst með tilboðsgerðina. Niður-
staðan væri sú besta sem hugsast
gat, bæði fyrir fyrirtækið og hlut-
hafa þess. Hann sagði fljótt hafa
náðst samstöðu í hópnum eftir að
Ijóst varð að aðeins ein þátttökutil-
kynning hefði borist.
Hvort samsetning hópsins ætti
eftir að breytast á eftirmarkaði
sagði E)jólfur ómögulegt að segja
til um á þessari stundu. Fjárfestar
ráðstöfuðu sínum eignum eins og
þeir völdu.
„Eg held að þeir hluthafar sem
þarna koma að, séu allir að hugsa
dæmið til lengri tíma að vinna með
bankanum. Fram undan eru
spennandi tækifæri," sagði Eyjólf-
Lífeyrissjóðir ekki alveg
sammála
Einn af stærri fjárfestunum í hópn-
um er Lífeyrissjóðurinn Framsýn,
eins og kom fram hér að framan.
Stjórnarformaður þar er Þórarinn
V. Þórarinsson, forstjóri Landssím-
ans. Aðspurður af hverju sjóðurinn
hefði tekið þátt í tiiboðinu sagði
Þórarinn því auðsvarað. Skylda
sjóðsins væri að ávaxta þá peninga
scm best sem þar söfnuðust. FBA
væri áhugaverður kostur sem ætti
að geta skilað góðri ávöxtun.
„Þessi banki hefur verið að fara
nýjar leiðir. Með samhentu Iiði
fjárfesta erum við sannfærðir um
að hann eigi að geta orðið enn öfl-
ugri hér á innlendum Ijármála-
markaði og í erlendum verkefn-
um,“ sagði Þórarinn.
Hann sagði umræður hafa farið
fram milli forsvarsmanna lífeyris-
sjóðanna um sameiginlega þátt-
töku í FBA-útboðinu. Eftir þær
viðræður hefðu mismunandi við-
horf innan sjóðanna komið ( Ijós
um það hvað væri ábatasamt og
hvað ekki. Sumir hefðu sýnt FBA
áhuga og aðrir ekki. Þórarinn sagð-
ist vera ánægður með þetta og það
sýndi að lífeyrissjóðir störfuðu ekki
sem ein blokk. Eins væru nokkrir
lífeyrissjóðir komnir í þá stöðu að
geta ekki tekið þátt j verkefnum
sem FBA-útboðinu. Astæðan eru
lagaákvæði sem segja að þeir mega
ekki vera með meira en 35% af eig-
in fé bundið í hlutafé. Margir sjóð-
ir eru, að sögn Þórarins, komnir
upp undir þetta þak, ekki síst
vegna fjárfestinga sinna erlendis.
Þórarinn sagði brýnt að breyta
reglunum, þær væru að hamla því
að sjóðirnir næðu enn betri árangri
fyrir sína sjóðfélaga. Hann sagði
áhuga vera fyrir því innan sjóðanna
að ríkisvaldið breytti reglunum.
Víða erlendis væri Iífeyrissjóðum
heimilt að fjárfesta enn meir í
Uutabréfum, þannig væri hlutfall-
Á meðal fjárfesta í hópnum sem bauð í hlut ríklslns voru þrír afæðstu stjórnendum FBA, auk bankans sjálfs. Reiknað er með að starfsmenn auki sína hluti í bankanum. - mynd: e.ól.
ið í Bretlandi á bilinu 60-70%. Rík-
ið ætti að láta stjórnendum sjóð-
anna eftir að meta áhættuna og
hvar best væri að róa hvcrju sinni.
Breytingax í vændiun
Aðspurður um eftirmarkaðinn
sagðist Þórarinn telja að eignarað-
ildin á FBA yrði áfram dreifð.
Hann sagðist ekki vita um neinn
einn aðila sem væri að leita eftir yf-
irtöku á bankanum. Hvort lífeyris-
sjóðirnir myndu selja aftur sagðist
Þórarinn reikna með að Framsýn
myndi eitthvað minnka sinn hlut.
Sjóðurinn ætti (yrir rúmt 1% og
hlutabréfaeignin ( FBA væri því
komin vel yfir 7%.
„Lífeyrissjóðurinn á einnig 10% í
íslandsbanka þannig að við höfum
verið áhugasamir á þessum mark-
aði. Það hefur skilað góðum ár-
angri fyrir sjóðinn," sagði Þórarinn.
Um það var rætt á sínum tíma að
sameining FBA og Kaupþings gæti
komið til greina, að minnsta kosti
var vilji fyrir því hjá Kaupþingi og
sparisjóðunum þar til þeir seldu
hlut sinn í bankanum til Orca. Nú
er talið að sú umræða geti farið af
stað á ný. Þórarinn V. vildi ekkert
segja um það hvort FBA og Kaup-
þing ættu eftir að sameina kral’ta
sína. Hins vegar ættu breytingar
eftir að eiga sér stað á íslenska fjár-
málamarkaðnum í átt til aukinnar
hagræðingar. Það væri áhugavert
fyrir Iífeyrissjóðina að vera þátttak-
endur í því ferli. „Möguleikar eru
<mikllr dí því. að tuí ,betri> árángri1 í
rekstri á fjármagnsmarkaði á ís-
landi. Þetta er langtímafjárfcsting
hjá okkur, við erum ekki að leita
eftir einhverju sem skilar hagnaði á
morgun,“ sagði Þórarinn V. Þórar-
insson.
Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings, vildi ekkert segja um
það hvort fyrirtækið hefði frum-
kvæði að sameiningarviðræðum
við eigendur FBA. Hann sagði
mestu skipta að bankinn hefði
selst. Fáum væri að þakka það
meira en Kaupþingi og sparisjóð-
unum að áhuginn hefði beinst
svona mikið að bankanum. Sigurð-
ur sagðist ekki hafa skipt um þá
skoðun að mikil hagræðing næðist
fram með þessari sameiningu.
Góðir möguleikar gæfust á tekju-
aukningu þessara fjármálafyrir-
tækja. „En áhuginn reyndist nú
ekki meiri en þetta, í bili að
minnsta kosti,“ sagði Sigurður.
Bankinn áður talinn verðlaus
eign
En hvað skyldu stjórnmálamenn
segja um hvernig til tókst með söl-
una? Við ræddum lyrst stuttlega
við Finn Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, áður en hann
steig um borð í flugvél í London í
gær. Hann sagðist vera ánægður
með söluna, ríkið hefði fengið gott
verð fyrir sinn hlut. Rifjaði Finnur
það upp að á sínum tíma, þegar
FBA varð til, hefði stjórnarand-
staðan í umræðum á Alþingi talið
að um verðlausa eign væri að ræða.
Afhenda ætti sjóðina viðskipta-
bönkunum, en FBA varð sem
kunnugt er til m.a. með samuna
Iðniánasjóðs og Fiskveiðasjóðs.
„Nú er ríkissjóður, og skattgreið-
endur þar með, að fá á annan tug
milijarða fyrir eignina. Þetta tel ég
vera aðalatriðið ( málinu," sagði
Finnur og vildi ekkert segja til um
kaupendurna.
Nú eru bara tveir eftir!
Pétur H. Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, taldi ástæðu
fyrir ríkissjóð og forráðamenn hans
að vera ánægða með niðurstöðuna.
Gott verð hefði fengist fýrir bréfin
og áhuginn í útboðinu sýndi að
verðið hefði Iíklega verið í hærri
kantinum.
„Það er ánægjulegt að einkavæð-
ingin skuli hafa tekist svona og að
það sé búið að selja einn ríkisbank-
ann. Nú eru ekki nema tveir eftir.
Það kom mér reyndar á óvart að
fleiri skulu ekki hafa gert atrennu
með tilboðum. Það kom mér einn-
ig á óvart að almenningi skuli ekki
hafa verið gert kleift að gera tilboð.
Það var alveg opin leið til þess hjá
tilboðsgjafanum að auglýsa eftir
tilboðum frá almenningi til að vera
með. Annars er verðið gott og fyrir
mestu að bankinn skuli vera seld-
ur. Það er algjör tímaskekkja að
ríkið sé að standa ( útlánum á pen-
ingum,“ sagði Pétur.
Aðspurður um samsetningu
hópsins sagði Pétur það vitað mál
að lífeyrissjóðir væru þeir aðilar á
markaðnum sem hefðu langmest
ráðstöfunarfé. Þeir væru að ráð-
stafa 90-100 milljörðum króna á
ári. Þar af væri nettóráðstöfun um
50 milljarðar á ári.
„Menn mega búast við að sjá líf-
eyrissjóðina víðar, bæði í einka-
væðingu og fjárfestingum almennt.
Það gerir enn brýnna að sjóðfélag-
ar, sem raunverulega eiga þessa
peninga, komi að stjórnum lífeyris-
sjóðanna," sagði Pétur.
Varðandi þróun mála á eftir-
markaði með ríkisbréfin sagðist
Pétur ekki hafa skilið ótta margra
við það. Reynslan sýndi að fjárfest-
ar væru ekki að setja of mikið í
einn banka. Skynsamlegra væri að
eiga hluti í mörgum fyrirtækjum og
leggja ekki allt sitt traust á eitt. „Ég
sé ekki að samþjöppun á eignum
verði í þessum banka frekar en
annars staðar. Hjá Islandsbanka er
t.d. engin samþjöppun sem heitið
getur. Lífeyrissjóðir eru þar stórir
og eru það Iíka hjá FBA og mörg-
um öðrum fyrirtækjum."
Bankarnir gætu dagað uppi
Pétur sagði að nú ætti sú vinna að
vera komin á fulla ferð að selja
hluti ríkisins í Landsbanka og
Hreinn
Finnur
fngólfsson.
t r.i
Eyjólfur
Sveinsson.
Þórarinn V.
Þórarinsson.
Sigurður
Steingrímur J.
Einarsson. , Sigfússon.
.... ... .***-- *t. *s. * i aj m. -• -
Pétur H. Guðmundur
BJöndal. Áffli Stefánsson.
Búnaðarbanka. Bankarnir gætu
dagað uppi ef ríkið héldi áfram
eign sinni þar. Samkeppnin væri
orðin svo mikil hjá bönkunum og
tæknin eftir því. Menn gætu tekið
lán í erlendum bönkum heima í
stofu með aðstoð tölvunnar.
„Landslagið er að breytast mjög
hratt. Utibú, sem einu sinni þóttu
vera mikil eign bankanna, eru nú
orðinn myllusteinn um hálsinn á
þeim. Ég hugsa að hefðbundin
bankastarfsemi muni leggjast af að
miklu leyti. Viðskiptin fara bara í
gegnum tölvuna og alla þessa
heimábanka og netbanka. Viðhorf-
in eru gjörbreytt varðandi útlánin.
Nú eru bankarnir í vanda að finna
góða skuldara. Biðstofur fyrir utan
skrifstofu banka- og útibústjór-
anna, sem áður voru troðfullar, eru
núna orðnar tómar, gott ef ekki
horfnar. Góðir skuldarar eru orðn-
ir eftirsóttir viðskiptavinir, menn
sem bankastjórar voru að verjast
hér á árum áður,“ sagði Pétur.
Hann sagði að eftir engu væri að
bíða með einkavæðingu hinna rík-
isbankanna. Markaðurinn þyrfti
engan tíma til að jafna sig eftir
FBA. Ráðstöfunarfé lífeyrissjóð-
anna segði allt sem segja þyrfti,
þeir gætu einir sér gleypt svona
pakka eins og FBA fjórum sinnum
á ári.
„Svo vona ég að erlendir aðilar
fari að Ijárfesta hér líka. Þeir hafa
verið tregir til þess hingað til. Við
fjárfestum miklu meira erlendis
heldur en útlendingar hér á landi,“
sagði Pélur H. Blöndal.
„Sparigluggatjöld“
„Þetta er nú bara staða andartaks-
ins,“ sagði Guðmundur Arni Stef-
ánsson, þingmaður Samlý'lkingar-
innar, þegar Dagur ræddi við hann
utn FBA-útboðið. „Þetta eru spari-
gluggatjöld í frumsölunni til þess
að menn reyni að standa váð stóru
orðin um dreifða eignaraðild. Svo
veit enginn hvað gerist daginn eft-
ir þegar gengið hefur verið frá
frumsölunni. Þess vegna getur
bankinn verið kominn á örfárra
hendur eftir viku. Eg hef verulegan
ótta af því. Við sjáum þróun í þá
veruna bæði hér á landi og erlend-
is,“ sagði Guðmundur Arni.
Hann sagðist alla tíð hafa verið
þeirrar skoðunar að búa ætti til
Iagaramma um sölu af þessu tagi
þannig að eftirmarkaðurinn lúti
einnig lögmálum líkt og frumsalan.
Allt annað væri fráleitt. Það væri
Ktið samhengi ( því að búa til regl-
ur um frumsöluna og leyfa eftir-
markaðnum svo að leika lausum
hala. „Ég b(ð með að reka upp
húrrahróp fyrr en ég sé hvemig eft-
irmarkaðurinn gerir sig.“
Höfum ráðrúm og tíma
Guðmundur Arni taldi eðlilegt að
nú önduðu menn að sér og biðu
með frekari einkavæðingu ríkis-
bankanna. Enginn væri að missa af
neinni lest.
„Við höfum alveg ráðrúm og
tíma. Fram undir þetta hefur
einkavæðingin gengið undir þeim
forsendum að það þurfi að laga
stöðu ríkissjóðs. Það er ekki aðalat-
riði málsins. Ég hef talið sjálfsagt
að ríkið selji þær eignir sem eru á
samkeppnismarkaði og geri það þá
þannig að auka við samkeppnina
en dragi ekki úr henni. Við í Sam-
fylkingunni höfum einnig bent á
að þessar gegndarlausu sölur á
. þenxjutíraum. ýta 1 frckar undir
þensluna heldur en að draga úr
henni," sagði Guðmundur Arni.
„Sýndarmennska“
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstri-grænna, sagðist ekki
hafa svo mikið um sjálfa niður-
stöðu útboðsins að segja. Hún væri
í samræmi við þær aðferðir sem
ríkið valdi. Ljóst væri að sam-
keppnin væri ekki mikil um bank-
ann. Mergur málsins væri hins
vegar sá að út í hött hefði verið að
fara út í söluna við núverandi að-
stæður.
,Auðvitað átti að byrja á því að
móta einhverjar leikreglur í upp-
hafi, ef menn vilja hrófla við eign-
arhluta ríkisins á annað borð, sem
ég tel reyndar að hefði betur verið
ógert í framhaldi af klúðrinu í
sumar og haust. Það er ekkert
nema sýndarmennska að mínu
mati að vera með svona regluverk
og ættfræðiflækjur til að koma í
veg fyrir að menn séu nú ekki of
skyldir. Þetta var svo flókið að þeir
urðu að ráða sér ættfræðing, líkt og
fram hefur komið. Síðan eru engar
reglur um það sem getur gerst dag-
inn eftir að frumsölunni lýkur. Þá
getur þess vegna ein fjölskylda, eða
einn fjársterkur aðili, byijað að
sópa þessum hlut til sín. Þetta er
auðvitað brandari að standa í þess-
um æfingum til að Iáta líta svo út
að vilji sé fyrir dreifðri eignaraðild.
Þetta gagnrýni ég harðast, fyrir
utan vitleysisgang og kák í allri
þessari framkvæmd," sagði Stein-
grímur.
Dæmi engan sigurvegara
Aðspurður hvort forsætisráðherra
hefði beðið ósigur í málinu, í Ijósi
fyrri yfirlýsinga hans um Orca-
hópinn, höfunda þessa tilboðs sem
barst, sagðist Steingrímur ekki vilja
dæma um. Þetta væri ekki spurn-
ing um hver hefði tapað og hver
sigrað. Eins ætlaði hann ekki að
taka þátt í umræðu um hverjir
ættu þarna í hlut, einstaklingar eða
fyrirtæki. „Ég get ekkert að því gert
þótt einhveijir af þessum aðilum
fari í skapið á forsætisráðherra.
Það er hans vandamál. Slík við-
brögð dæma sig sjálf. Mergurinn
málsins er að mér finnst ekki
skipta máli hverjum veitir betur í
áflogunum um þennan eignarhlut,
fyrst að boðið er upp á þau áfiog á
annað borð. Ég dæmi ekki ein-
hvern einn sigurvegara í málinu
eða einn tapara. Mér finnst öll rík-
isstjórnin hafa sett niður fyrir
vinnubrögð sín í þessu máli. Það
mun reynast ríkisstjórninni
skammgóður vermir í þessu tilviki,
líkt og öðrum, að reyna alltaf að
vinna sigra á sjálfri sér,“ sagði
SteingrímurJ. Sigfússon.
Fjárfestamir
tuttugu og sex
Eftirtaldir aðilar staðfestu í gær tilboð sitt (51% hlut ríkisins í
FBA. Nafnvirði bréfanna er 3.468 milljónir króna og söluvirðið
9,7 milljarðar. Kaupendur bréfanna eru alls tuttugu og sex, sjö
h'feyrissjódir, tíu félög, forstjóri og framkvæmdastjórar FBA og
Qórir aðrir einstaklingar, auk bankans sjálfs. Kauphlutur hvers
og eins er eftirfarandi í stærðarröð:
Lífeyrissjóður verzlunarmanna 6,00%
Lífeyrissjóðurinn Framsýn 6,00%
Þróunarfélag íslands hf. 5,50%
FBA hf. 4,70%
Partimonde Holdings Anstalt 4,00%
Hannes Smárason 3,50%
Gunnar Þór Ólafsson 3,00%
Sterkir stofnar ehf. 3,00%
Spectra A.S. 2,60%
Samvinnusjóður íslands hf. 2,20%
Lffeyrissjóður sjómanna 2,00%
Eiríkur Sigurðsson 1,80%
Samvinnulffeyrissjóðurinn 1,30%
Geir Gunnar Geirsson 1,20%
Söfnunarsjóður Kfcyrisréttinda 1,00%
Bjami Ármannsson 0,60%
Lffeyrissjóður Vestmannacyja 0,50%
Lífeyrissjóður Vesturlands 0,50%
Sund hf. 0,50%
Svanbjöm Thoroddsen 0,30%
Tómas Krístjánsson 0,30%
Erlendur Magnússon 0,10%
Fjárfestingarfélagið Gaumur hf. 0,10%
Jón Ólafsson & co sf. 0,10%
Oddeyri ehf. 0,10%
Óháði fjárfestingasjóðurinn hf. 0,10%
Kaupverð í milljónum kr.
1.142,4
1.142,4
1.047,0
894.9
761.6
666.4
571,2
571.2
495,0
418.9
380,8
342.7
247.5
228.5
190,4
114.2
95,2
95,2
95,2
57,1
57,1
19,0
19,0
19,0
19,0
19,0
Til frekari upplýsingar skal þess getið að Partimonde Holdings
Anstalt cr á vegum Gunnars Björgvinssonar, flugvélasala f Lúxem-
borg, Spectra A.S. er verðbréfafyrirtæki, starfrækt á lslandi, Odd-
eyri ehf. er í eigu Þorsteins Más Baldvinssonar, Óháði fjárfestinga-
sjóðurinn hf. er í eigu Eyjólfs Sveinssonar og Sveins R. Eyjólfsson-
ar, Fjárfestingarfélagið Gaumur hf. er f eigu Kristínar Jóhannes-
dóttur, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Jóhannesar Jónssonar, Sund
hf. er Ijárfestingarfélag Gunnþórunnar Jónsdóttur, ekkju Óla í OIís,
og Sterkir stofnar ehf. er fjárfestingarhópur, oft kenndur við Áburð-
arverksmiðjuna.
j' - *' ~‘ - • “-•■ * *;•• •• •• .
I