Dagur - 06.11.1999, Side 12

Dagur - 06.11.1999, Side 12
12 - LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 19 9 9 Evrópumeistarar United lentu í sterkasta riðlinum I gær var dregið í milliriðla (16-Iiða úrslit) Meistaradeildar Evrópu, þar sem leikið verður í fjórum fjögurra liða riðlum. Ljóst er að Evrópumeist- arar Manchester United lentu þar í sterkasta riðlinum, með Fiorentina, Valencia og Bordeaux á meðan Barcelona, sem margir spá Evrópumeist- aratitlinum, Ienti í mun Iéttari riðli með Sparta Prag, Porto og Elerthu Berlín. Samkvæmt reglum keppninnar var liðunum sextán sem komust áfram úr fyrstu lotunni, raðað í fjóra potta með eftirfarandi hætti: Sigurlið riðl- anna í potta 1 og 2 eftir styrkleika og síðan liðin sem lentu í öðru sæti í potta 3 og 4 eftir sömu reglu. Eitt lið úr hveijum potti var svo dregið í hvern milliriðil, en þó aldrei nema eitt frá hverri þjóð í sama riðil. Auk þess voru þau lið sem áður höfðu leikið saman í fyrri riðlunum ekki dreg- in saman í milliriðlana. Pottur 1: Man. United, Lazio, Barcelona og Real Madrid. Pottur 2: Chelsea, Rosenborg, Valencia og Sparta Prag. Pottur 3: Bayern Múnchen, Feyenoord, Bordeaux og Porto. Pottur 4: Fiorentina, Marseille, Dynamo Kiev og Hertha Berlín A-ríóill Barcelona Sparta Prag Porto Hertha Berlín Drátturiim: B-riÓill Man. United Valencia Bordeaux Fiorentina C-ríÓill Real Madrid Rosenborg Bayern Múnchen Dynamo Kiev D-ríÓill Lazio Chelsea Feyenoord Marseille Fyrsta umferð verður leikin 23. og 24. nóvember. Kemst Sunderland í toppsætið? Athyglisverðasti leikur helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni er án efa leik- ur Sunderland og Middlesbrough, sem fer fram á River Stadium í dag. Sunderland, sem er í þriðja sæti deildarinnar með 27 stig, stendur þar frammi fyrir möguleikanum á að komast í efsta sæti deildarinnar, svo framarlega sem úrslit í Ieikjum Leeds og Manchester United, sem nú eru í efstu sætunum, verði þeim hagstæð. Leeds, sem er í efsta sætinu með 29 stig, á útileik gegn Wimbledon á morgun og Manchester United, sem er í 2. sætinu með 27 stig eða jafnmörg og Sunderland, á heimaleik gegn Leicester í dag. Peter Reid, framkvæmdastjóri Sunderland, sem útnefndur var fram- kvæmdastjóri októbermánaðar, hefur í vetur leitt Sunderland til besta ár- angurs sem liðið hefur náð síðan árið 1955. Hann veit að liðið verður að sýna sitt besta í dag til að landa öllum þremur stigunum og það ætlar hann sér með markahrókinn Kevin Phillips í fremstu víglínu. Phillips, sem skoraði fimm mörk í fjórum leikjum októbermánaðar, verður þó örugglega í góðri gæslu varnarmanna Boro og má ætlað að það verði hlutskipti þýska varnarjaxlsins Christian Ziege að gæta kappans. Sex frá Leeds í enska 21-árs landsliðinu Eftir þreytandi ferðalag til Mosvku í fyrradag, þar sem Leeds vann góð- an sigur á Lokimotiv Moskva í Evrópukeppni félagsliða, mætir hið unga lið Devids O’Leary liði Egils Drillo Olsens, Wimbledon, á Selhurst Park í London í dag. Þó Donamir séu nú í sjötta neðsta sæti deildarinnar hafa þeir aðeins tapað einum af tíu síðustu Ieikjum sínum í deildinni og eru því til alls líldegir með Hermann Hreiðarsson í hjarta varnarinnar og harðjaxlinn Hartson í fremstu víglínu. Einnig er Iíklegt að Egil Olsen muni stilla upp Norðmanninum, Kjetil Wahler, sem er sá fjórði sem hann kaupir til liðsins frá heimalandinu, frá því hann tók við fram- kvæmdastjórastöðunni af Joe Kinnear. David O’Leary, sem nú hefur 40 milljónir punda í vasanum til leik- mannakaupa, vonar að ungu strákarnir haldi áfram á sömu braut og haldi liðinu áfram í toppsætinu, eins og þeir hafa gert síðustu vikumar. Frammistaða þeirra hefur vakið mikla athygli og nú er svo komið að sex þeirra hafa verið valdir í 21-árs Iandsliðshóp Englands sem leikur gegn Júgóslövum í Evrópukeppninni þann 14. nóvember n.k. Það eru þeir Robinson, Mills, Woodgate, Bowyer, Bridges og Smith, sem allir eiga framtíðina fyrir sér. Ferguson langar á toppinn Sir Alex Ferguson, stjóri United, sem norfir löngunaraugum á toppsætið, fær Leicester sem er í fimmta sætinu í heimsókn á Old Trafford í dag. Liðsmenn United em án efa fullir sjálfstrausts efir góða útkomu úr riðla- keppni meistaradeildarinnar, þar sem þeir urðu sigurvegarar D-riðils eft- ir sigurinn á Sturm Graz á miðvikudaginn. Leikmenn Leicester verða þó engin lömb að Ieika sér við og eru örugglega ákveðnir í að velgja Evrópu- meisturunum undir uggum. LeiMr helgarinnar Laugardagur: Aston Villa - Southampton, Bradford - Coventry, Liverpool - Derby, Man. United - Leicester, Middlesbrough - Sunderland, Sheff. Wed. - Watford Sunnudagur: Chelsea - West Ham, Newcastle - Everton, Tottenham - Arsenal, Wimbledon - Leeds Stuðningsmenn Frakka hittast á Glaumhar Urslitaleikur heimsmeistaramótsins í Rugby, milli Astralíu og Frakklands fer fram í dag í Cardiff í Wales. Undanúrslitaleikir mótsins fóru fram um síðustu helgi, en þar unnu Astralir 27-21 sigur á Suður-Afríku og Frakk- ar unnu Ný-Sjálendinga 43-31. Stuðningsmenn Frakka ætla að hittast á Glaumbar (Tryggvagötu 20), í dag kl. 1 5:00 og fylgjast með úrslitaleiknum í beinni útsendingu. ÍÞROTTIR Á SKfÁNUM Laugard. 6. nóv. Fótbolti Kl. 14:25 Þýski boltinn B. Dortmund - B. Leverkusen Handbolti Kl. 16:30 Leikur dagsins Valur - Afturelding Fótbolti Kl. 12:00 Alltaf í boltanum Kl. 14:45 Enski boltinn Middlesbrough - Sunderland Keila Kl. 17:45 Freyjumótið Utsending frá keilumóti sem ný- lega var haldið í Keilu í Mjódd. Hnefaleikar Kl. 22:50 Hnefaleikakeppni Þar mætast m.a. Julio Cesar Chavez og Willie Wise. Sunnud. 7. nóv. Kðrfubolti Kl. 12:20 NBA-Ieikur vikunnar Fótbolti Kl. 12:45 Skoski boltinn Rangers - Celtic Kl. 15:45 Enski boltinn Wimbledon - Leeds Kl. 18:00 Meistarak. Evrópu Fjallað almennt um keppnina og farið yfir leiki. Kl. 19:25 ítalski boltinn Torino - Juventus Golf Kl. 21:20 Golfmót í Evrópu ÍÞRÓTTIR UM HELGINA Laugard. 6. okt. ■KÖRFUBOLTI Urvalsdeild kvenna Kl. 18:00 Keflavík - Grindavík 1. deild karla Kl. 14:00 Höttur - ÍR Kl. 13:00 Selfoss - Stjarnan Phandbolti Urvalsdeild karla Kl. 17:00 HK - Víkingur KI. 16:30 Valur - Afturelding Urvalsdeild kvenna Kl. 16:00 ÍR - KA KI. 16:30 Stjarnan - Afturelding Kl. 15:30 Fram - ÍBV Kl. 17:00 Grótta/KR - Haukar Kl. 15:00 Víkingur - Valur Bikarkeppni karla Kl. 15:00 Njarðvík - KA 2. deild karla Kl. 16:00 Fjölnir - Grótta/KR Kl. 13:30 Fram b - Völsungur Suuuud. 7. nóv. ■ körfubolti Urvalsdeild karla Kl. 20:00 Hamar - Þór Ak. Kl. 20:00 KFÍ - Njarðvík Kl. 20:00 KR - Grindavík Kl. 20:00 Tindastóll - ÍA Kl. 16:00 Haukar - Skallagr. Kl. 20:00 Snæfell - Keflavík Urvalsdeild kvenna Kl. 18:00 KR - ÍS 1. deild karla Kl. 20:00 Valur - Stafholtstung. ■ handbolti Urvalsdeild karla Kl. 20:00 Fram - FH Kl. 20:00 Haukar - ÍBV 2. deild karla KI. 19:00 ÍR b - Selfoss Kl. 14:00 Fjölnir - Völsungur ■ blak 1. deild kvenna Kl. 14:00 Þróttur- ÍS ROBERtS RICHARDGERE RUNAWAYBRIDE Maggie á viö smá vandamál aö stríöa, hún strýkur úr öllum brúðkaupunum sínum og blaöamaöurinn Ike ætlar aö segja öllum heiminum frá vandamáli hennar. RÁÐHÚSTORGI SÍMI461 4666 TÍHX Sýnd laugard. kl. 18, 21 og Sýnd kl. 21 og 23.15 Sýnd um helgina kl. 15 og 16.15

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.