Dagur - 26.11.1999, Blaðsíða 13

Dagur - 26.11.1999, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 2 6. NÓVEMBER 19 9 9 - 13 Xk^MT. ÍÞRÓTTIR Grótta/KR lagði Islands- meistara Stjomiumar Fjórir leiMr fóra fram í fyrstu deild kveirna í handbolta í fyrrakvöld, þar sem Grótta/KR, topplið deildarinnar, vann sigur á íslands- og bikarmeisturum Stjöraunnar á Seltjam- arnesi. Víkingar, sem era í öðra sæti deildar- innar, gerðu sitt fjórða jafntefli gegn Haukum í Hafnarfirði. Grótta/KR vann í fyrrakvöld sex marka sigur á Islands- og bikar- meisturum Stjörnunnar þegar lið- in mættust í íyrstu deild kvenna á Seltjarnamesi. Grótta/KR heldur þar með toppsætinu í deildinni með fimmtán stig og er nú með eins stigs forskot á Víking, sem á sama tíma gerði 18-18 jafntefli við Hauka í Hafnarfirði. Víkingsstelp- urnar eru því enn taplausar í deild- inni, en hafa gert fjögur jafntefli. Ungar og efnilegar FH-stelpur, sem í upphafi leiktíðar var spáð sigri í deildinni, unnu átta marka sigur á Fram í Kaplakrika, 31-23 og unnu þar með sinn fjórða Ieik á tímabilinu. Fjórði leikurinn fór svo fram í Mosfellsbæ, þar sem IR- ingar unnu auðveldan fjórtán marka sigur á botnliði Afturelding- ar, 14-28. Afturelding er enn án stiga í deildinni, en reynslulítið lið þeirra hefur fengið á sig 317 mörk í níu Ieikjum og skorað 148. Stjaman leiddi í fyrri hálfieik Þrátt fyrir sex marka sigur Gróttu/KR gegn Stjörnunni á Sel- tjarnarnesinu, voru það Stjörnu- stelpurnar sem höfðu yfirhöndina framan af leiknum og höfðu þær eins mark forskot í Hálfleik 9-10. Fairney lokaði niarkinu I seinni hálfleiknum tók Fanney Rúnarsdóttir, markvörður Gróttu/KR, svo til sinna ráða og hreinlega lokaði á Garðabæjarlið- ið, sem skoraði ekki nema Ijögur mörk í seinni hálfleiknum á með- an Grótta/KR með þær Öllu Gor- korian og Agústu Bjömsdóttur í broddi fylkingar skoruðu ellefu mörk. Stjarnan átti ekkert svar við öflugum varnarleik heimaliðsins og það sem fór í gegn lenti í örugg- um höndum Fanneyjar, sem varði alls 22 skot í leiknum. Þær Alla og Agústa voru allt í öllu í sóknarleik Gróttu/KR og skoruðu þær tólf af mörkum liðs- ins, eða sex mörk hvor. Hjá Stjörnunni bar mest á Nínu Björnsdóttur og var hún lang markahæst með sjö mörk. Helga varði þrjátíu skot Helga Torfadóttir, markvörður Vík- ings, gerði enn betur en Fanney hjá Gróttu/KR og varði alls 30 skot í jafnteflisleiknum gegn Haukum í Hafnarfirði. Heimaliðið byrjaði betur í leiknum og náði mest þriggja marka forskoti, sem Vík- ingum tókst að minnka í eitt mark fyrir leikhlé, 12-11. Víkingsstelpurnar héldu upp- teknum hætti í bytjun seinni hálf- leiks og náðu þá að komast mest tveimur mörkum yfir. Þær héldu forystunni f leiknum allt þar til um ein mínúta var til Ieiksloka, en þá tókst Haukum að jafna Ieikinn í 18-18, sem varð Iokastaðan. Mikið var um mistök í leiknum og sérstaklega voru liðunum mis- Iagðar hendur í sóknarleiknum, þar sem bæði töpuðu boltanum hvað eftir annað. Hjá Haukum áttu þær Hanna Stefánsdóttir og Harpa Melsted bestan leik, þar sem Harpa átti mjög góðan leik í vöminni á með- an Hanna var markahæst með sjö mörk. Hjá Víkingi átti Helga markvörð- ur bestan leik en einnig var Guð- munda Kristjánsdóttir sterk og var hún markahæst með sex mörk. Dagný skoraði ellefu mörk Hraðaupphlaupin voru allsráðandi í Kaplakrika þegar FH vann örugg- an átta marka sigur á Fram. Gest- irnir áttu ekkert svar við eldsnögg- um FH-stelpunum, sem höfðu náð átta marka forskoti í hálfleik, 17-9, þar sem flest mörkin voru skoruð eftir hraðaupphlaup. Þar var Dagný Skúladóttir fremst í flokki, en hún skoraði alls ellefu mörk í leiknum og átti stjömuleik. Einnig voru þær Björk Ægisdóttir og Drífa Skúladóttir sprækar og gerðu séx mörk hvor. Grunninn að sigrinum lagði þó Jólanta Slapikiene, markvörður FH, sem átti mjög góðan leik og var fljót að grýta fram í hraðaupp- hlaupin. Hjá Fram var Marina Zoveva best eins og svo oft áður og var hún markahæst með sjö mörk. Kafrín með eHefu mörk IR-ingar unnu sinn þriðja sigur í deildinni þegar þær burstuðu Aft- ureldingu með fjórtán marka mun, 14-28, í Mosfellsbænum, eftir að staðan var 4-13 í hálfleik. Aftur- elding átti aldrei möguleika í Ieikn- um og aðeins spurning hve ÍR- mörkin yrðu mörg. Katrín Guðmundsdóttir varð markahæst ÍR-inga með ellefu mörk og Jóna Ingimundardóttir gerði fimm. Hjá Aftureldingu skoraði Jolanta Limbaite mest, eða sex mörk og María Ottósdóttir fjögur. ÚrsHt Haukar - Víkingur FH - Fram 18-18 31-23 Grótta/KR - Stjarnan UMFA - ÍR 20-14 14-28 Staðan Grótta/KR 9 7 1 1 208:161 15 Víkingur 9 5 4 0 191:159 14 Valur 9 6 1 2 212:154 13 Haukar 9 4 3 2 210:177 11 FH 9 4 2 3 215:179 0 ÍBV 8 4 2 2 199:170 10 Stjarnan 10 5 0 5 254:228 10 Fram 9 4 0 5 207:206 8 ÍR 9 3 0 6 154:194 6 KA 8 0 1 7 133:186 1 UMFA 9 0 0 9 148:317 0 Kraumar undir John Gregory Margt bendir til þess að dagar John Gregorys séu taldir hjá Aston Villa. Það hefnr þegar myndast biðröð eftir stólnum hans á Villa Park. Eftir arfaslakt gengi Aston Villa í haust eru stjórnar- og stuðnings- menn félagsins alvarlega farnir að hugsa um þátt John Gregorys í gengi liðsins. Stuðningsmennirnir vilja hann burt nú þegar en Doug Ellis, stjórnarformaður Villa, hugsar ráð sitt þó þolinmæði hans sé þegar á þrotum. Tapið gegn erkiljendunum í Coventry var súr bikar að bergja á í Birmingham. Ekkert nema sannfærandi sigur í næsta leik, gegn Everton á Goodi- son Park, getur bjargað sæti Gregorys. Það var einmitt eftir góðan sigur á Everton sem hjólið fór að snúast afturábak hjá Villa á síðustu leiktíð. „Eg fer ekki frá Villa Park nema ég verði rekinn," sagði knattspyrnustjórinn í síðustu viku. Það er spurning hvort hann verði neyddur til að taka sunnu- dagslestina í leit að nýju starfi. Kom frá Wycombe Til gamans má geta þess að John Gregory kom til Aston Villa í febr- úar 1998 frá annarrar deildar lið- inu Wycombe, sem Guðjón Þórð- arson og félagar hjá Stoke City Iéku gegn á þriðjudaginn. Hann var knattspyrnustjóri Iiðsins í 16 mánuði og þurfti Doug Ellis, stjórnarformaður Villa, að greiða Wycombe 100 þúsund pund til að leysa hann undan samningum við félagið. , Biðröö eftir staxixnu Berskir fjölmiðlar hafa aldrei látið sér neitt manniegt óviðkomandi. Þeir eru þegar farnir að spá í spil- in hver taki við taumunum á Villa Park í næstu viku og hafa eftir- taldir verið nefndir til sögunnar: Terry Venebles, Glenn Hoddle, Joe Kinnear, Roy Evans, John Toshack, Greame Souness, Mart- in O’Neil og Brian Kidd, Terry Venebles hefur mikla reynslu, bæði í enska boltanum og alþjóðlegum fótbolta. Hins vegar hefur hann aldrei skilið annað eftir sig en lið f sárum og því ekki góður kostur þegar til lengri tíma er litið. Glenn Hoddle þykir flinkur þjálfari en efast er um hæfileika hans í samskiptum við Ieikmenn eftir óeininguna sem var í hans tíð hjá enska landsliðinu. Joe Kinnear sannaði sig sem frábær þjálfari hjá Wimbledon, þar sem hann kom slöku liði í fremstu röð. Þar sem karlinn er hjartveikur er tæplega hægt að treysta honum fyrir stórliði eins og Aston Villa, þar sem miklar væntingar og kröfur eru gerðar til liðsins. Hjá Wimbledon var Vögg- ur hinsvegar öllu feginn. Roy Evans þykir alltof mikill „players friend“. Það sem varð honum að falli hjá Liverpool var agaleysið í leikmannahópnum. Hann er einnig orðaður við Blacburn og hefur lýst áhuga sín- um á að starfa á Ewood Park. Enginn efast um hæfileika John Toshack. Hingað til hefur hann ekki viljað taka við liði á Englandi fyrir þá vasapeninga sem þar eru borgaðir miðað við Evrópu. Greame Souness reif Rangers upp á rassinum á sínum tíma. Síðan hefur leið Skotans legið niður á við og hann hefur verið rekinn frá öllum þeim félögum sem hann hefur komið nálægt eft- ir veru sína á Ibrox. Hann þykir mjög þver og leiðinlegur í mann- legurn samskiptum. Martin O’NeiI er samnings- bundinn Leicester City þó grunnt sé á því góða milli hans og stjórn- ar liðsins. Á síðustu árum hefur hann sannað sig sem einn af snjöllustu stjórunum í enska bolt- anum. Þar er því feitan gölt að flá fyrir öll úrvalsdeildarliðin. Brian Kidd misheppnaðist al- gerlega hjá Blackburn þrátt fyrir að fá alla þá leikmenn og peninga sem hann vildi. Sir Alex Ferguson hafði sennilega rétt að mæla þeg- ar hann sagði að Kidd væri of veikur karakter til að honum væri treystandi sem knattspyrnu- stjórna. Stuðningsmenn Aston Villa verða nú að bíða og sjá hvort Gregory hressist. Geri hann það ekki verður spennandi að sjá hver verður eftirmaður hans á Villa Park. Þar er ein besta staðan í enska boltanum. — GÞÖ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.