Dagur - 23.12.1999, Side 9
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999- 25
JÓLALÍF/Ð í LAND/NU
Hvaðan kemur
jólasveinninn?
Rauðhvíti jóiasveinninn sem þrammar ávallt inn í líf okkar í
desember samhliða hinum íslensku grýlusonum á ættir sínar
að rekja til heilags Nikulásar er var erkibiskup á svæði sem nú
er hluti af Tyrklandi. Heilagur Nikulás er iðulega talinn hafa
verið uppi á 4. öld en næstu aldir urðu til margar kraftaverka-
sögur af erkibiskupinum. Nikulás mun hafa verið einn af vin-
sælustu dýrlingunum hér í kaþólsku og það var á fyrri hluta
14. aldar sem ábóti á Munkaþverá setti saman sögu af dýr-
lingnum. Við birtum hér valda kafla úr Nikulás sögu Bergs
Sokkasonar sem annars vegar segja frá því hvernig heilagur
Nikulás bjargar þremur ungum stúlkum frá því að gerast
vændiskonur og er sú saga jafnvel talin vera upphafið að hin-
um gjafmilda jólasveini sem við nú þekkjum. Hins vegar af
konu er verður svo dolfallin yfir heilaga Nikulási að hún
gleymir barni sínu í sjóðandi potti en fyrir kraftaverk Nikulásar
kemst barnið óskaddað úr bullandi vatninu.
Á þessari prentmynd frá síðari hluta 19. aldar kemur Sunnerklaas, eins og heilagur Nikuiás heitir í
Austur-Fríslandi, rídandi meö gjafirsínar. Hinn alþjóðlegi rauðhvíti jólasveinn sem við þekkjum í
dag spratt upp úr innflytjendabylgjunni til Nýja heimsins þar sem blönduðust saman hinn hollenski
Sinterkiaas og sá enski Father Christmas.
Heimild: Saga daganna eftir Árna Björns-
son.
Fátæki maður
vill selja dætur sínar
En er hann hefir þvílíka hluti að hræra
ber svo til að einn kynstór-maður þar í
borginni hefir svo gjörsamlega upp eytt
öllu sínu góssi að með öngu móti hefir
hann líkamlegt viðværi. Hann hafði forð-
um verið fullríkur að fjárhlutum, en sakir
vangeymslu og vondrar ógiftu er hann nú
orðinn fyrirlitlegur sínum kumpánum.
Hann átti þrjár dætur. Voru þær allar
fríðar meyjar og stórlega vel ættaðar. En
þó að þær væri vel bornar og fagurlega
skapaðar, vilja eigi ótiginbornir menn í
þenna punkt eiga þær, saldr þess að þær
voru gjörsamlega fátækar. Má fátæki
maður ekki meður því styðjast að nokkur
vili með löglegum hjúskap hans mágur
gerast. Því tekur hann mjög að reika sál-
ugur í sínum hugrenningum, hvað hon-
um muni tiltækilegast, þvf að honum
verður þungur sinn kviðar hungur og
hörmuleg öreign, því öllu framari sem
hann hafði áður verið sællffari og ríkari.
Það staðfestist með honum þann tíma
sem hu[n]gurinn herðir að öllum megin,
að hann muni gefa upp dætur sínar til
saurlífis sameiginlegrar lostasemi hverj-
um sem vildi, til þess að af þeirra ófögr-
um afla megi hann sitt vesællegt líf
nokkurn veg næra. Og sem hann hefir
þetta óráð upp kveðið, flýgur þetta og fer
þegar í stað um alla borgina, svo að hver
segir öðrum hvað þessi vesælingur ætlar
til ráðs að taka.
Hvar staður aefst
penningum Nicholai
Nú sem heilagur guðs vin Nicholaus
heyrir greinda ófrægð sampínist hann
hjartalega þeim auma manni, er orðinn
var fyrir svo miklu áfelli. Það stangar og
sárlega innan ef svo kyngöfugar meyjar
skulu seljast til hórunar þvers í móti guðs
lögmáli. Því hugsar hann innvirðulega, að
hér mun gefast staður nokkurum hans
penning til hugganar fátækum föður en
frelsis meyjanna, hvar fyrir hann gerir sig
ráðinn til að hugga fátæki þeirra, leyni-
lega allra saman með sínum ríkdómi, að
góðar meyjar firrist fúllífi; hér með er
hann svo einráðinn að hafa öngan vit-
orðsmann þessa verks, utan einn guð, svo
framt að eigi þeim heldur er ölmusuna
þarf vill hann trúa. Því hugleiðir hann
smásmuglega hvern tíma hann megi til
fara að fullkomna sinn vilja.
Nicholaus
algerandi gott verk
Nú í biðstundartíma ölmusunnar setur
meistarinn þess háttar orð af sínum
klerkdómi til áeggjanir að ei hindrist of
mjög framkvæmd hjálparinnar: „Heyr þú,
heilagur guðs þjónustumaður Nicholae",
segir hann, „dvel ei þína góðfysi. Tak
brott sem skjótast fátækt föðurins og leys
mildlega hórunarskemmd dætranna. Þín
hugskotsjörð er hér til fáguð með heilög-
um rist[li], gangi [fram] í tvcfaldan ávöxt,
að af einu hrauði scðist hungranda fá-
tæki, en af öðru leysist meyja portlífi.
Byrg eigi lengur, sæll Nicholaus, þann
ágætis akur sem vor herra hefir plantað í
þínu blessaða brjósti, er fullkomlega er
frjáls af öllu illgresi. Tak upp þinn thes-
aur er fagnandi fyllist meður ríkdómi
mildinnar. Óttast eigi héðan af orðlofs-
götu alþýðunnar, því að syndalogi brennir
eigi það góss út gefið sem almáttigur guð
Iofar og sínu valdi þægilegt gerir, og það
smíði hræðist eigi eilífan eld sem upp er
reist af hæsta höfuðsmið. Nú, þá sníð í
sundur allar dvalir, sæll Nicholaus, alger-
andi gott verk að menn sjái þína gjörð, og
enn heldur skili þína dygð og dýrki föður
þinn allsvaldanda, himneskan, öllu
stýranda án enda ríkjanda.“
Hér lætur Nicholaus síga inn
gullið til fátæka manns
Þessi áminningarorð meistarans fyllir
sæll Nicholaus með sannri góðfysi, því að
nokkura nátt sem aðrir menn eru í svefni
heldur hann vöku fyrir sér, stendur upp
síðan kyrrlega af sæng sinni, takandi gull
mikið af sínu góssi sem áður hafði hann
til búið, bindandi það í einurn dúki,
gengur síðan fram eftir staðnum sem
honum var allt kunnigt, fer þar til hann
kemur að húsi fátæka manns. Hann
gengur umbergis að hyggjandi smá-
smuglega hversu hann fái ölmusuna
fram selt, svo engi megi vís verða og því
næst finnur hann einn glugg lágan og
skaplega mikinn á herberginu, lét þar
síga inn féið hóglega, brott farandi síð-
an leynilega.
Fátæki maður
finnur gullið
Nú sem morginn kemur rís upp hinn fá-
tæki maður, finnandi sk[j]ótlega gullið;
dylst þó við í fyrstu hvað vera mun og
leysir síðan dúkinn, en síðan hann sér
hvað um er, fyllist hann með svo mikl-
um fagnaði og svo margfaldar þakkir
gerir almáttkum guði, sem hver og einn
má skjótast undirstanda með fám orð-
um, fyrir þau tár er gleðinnar mikilleik-
ur fram hleypti af hans augum, því að
hann skilur sig huggaðan fyrir guðlega
mildi og firrðan eilífu brigsli. Er nú
þegar svo komið hans kosti að maður
velst til að hiðja dóttur hans. Gerir
hann með guðs lögum, giftandi elstu
dóttur sína með þeirri heimanfylgju sem
ástvinur himnakonungs hafði honum
gefið í ölmusu, dragandi af nokkurn
part sér og tveimur dætrum sínum til
atvinnu, hér með eftir Ieitandi alla vega
lágt og opinberlega við hvern mann er
hann átti orð á festa, hver sá mun vera
er svo góðmannlega hafði leynst til hans
herbergja. En þess verður hann vís með-
ur öngu móti, því að þessa háttar trúnað-
ur var undir engis manns tungurætur lag-
inn í borginni. Nú sem hann hefir lengi í
fengist að verða hér um nokkurs vís, gerir
þjónustumaður Jesú líristí, sæll Nicho-
laus, enn sem fyrr, leggjandi honum jan-
fmikið gull meður sömu aðferð í alla
staði sem áður var greint.
Erkibiskupvígsla
Þann tíma snemma dags sem herra
Nicholaus electus er í kirkju kominn og
biskupar búnir til þjónustugerðar, var ein
kona þar innan bæjar er laugaði barn sitt
með þeima hætti að hún setur eina stóra
pönnu á eld, mátulega fulla með vatni.
Tendrar hún síðan eldinn upp með þurr-
um skíðum er hún hafði til borið, og svo
sem flótt er orðið á pönnunni, lætur hún
barnið þar í koma, temprandí svo móður-
lega eldsneytið að barninu var mátulegt.
Og sem hún hefir skíðin að sér lesið fram
til eldsins og situr sem áður var greint,
heyrir hún ldokkur við kveða í staðnum
með hátíðlegri gleði, og því næst kemur
maður inn farandi í herbergið, sá er
henni boðar fagnað borgarinnar, að nú
vígist voldugur herra Nicholaus Mirrensis
erkibiskup. En við þessa sögu verður kon-
an svo glöð og fylld meður fagnaði, að
hún gleymir því öllu er áður gjörði hún.
Sprettur hún upp frá eldinum þegar í
stað að fyrirlátnu barninu, rennandi fram
til kirkjunnar sem hvatast mátti hún. Er
þá byrjuð vígsluþjónusta virðulegs Nicho-
lai. Bíður hún staðfastlega allan tíma, þar
til er embættið lyktast fagurlega á þeim
signaða degi. En eftir það gjört kemur
henni til minnis hversu fljótlega hún hef-
ir skilist við barnið geymslulaust á eldin-
um og rennur þangað til með öllum
skunda. Er þar sú skipan á orðin að eld-
urinn hefir brunnið fram að skíðunum og
síðan Iesið [sig] svo, að nú stendur pann-
an í einum loga, glóandi utan en vellandi
innan, svo að kastar í. Situr þar barnið í
vellunni glatt og ósakað, leikandi sér við
bárurnar er að því risu fyrir uppkast vell-
unnar. Og er móðirin sér þvílíkt stór-
merki, grípur hún pönnuskaftið, renn-
andi fram meður öllum flýti á strætið
með kalli miklu og háreysti, sýnandi
pönnuna með sínum farmi, boðandi lýðn-
um að sjá þar ný stórmerki. Gjörðist nú
þegar mikill fagnaður í guðs fólki, því að
allir skildu fyrir konunnar framburð, inn-
virðulega, að þessi hlutur var af guði gef-
inn fyrir vald og verðleika hins nýorðna
erkibiskups. Gleðjast nú hiskupar af
blessuðum feður og félaga nýlega gefnum
sinni sveit himnesklega. Fagna prestar og
klerkar því að þeir skilja sér gefið elsku-
legt faðcrni. Allur lýður samfagnar sem
góður smali undir góðum hirði.