Dagur - 23.12.1999, Page 13
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999- 29
L
Stundin okkar. Stúlkan sú sem hér
sést, sem er nú orðin harðfullorðin
kona, var á upphafsárum Sjónvarpsins,
ásamt hrafninum sem er með henni á
myndinni, stjarna í Stundinni okkar,
barnatíma Sjónvarpsins. Hvað var
þetta tvíeyki kallað?
Þórbergur. Meðal margra góðra bóka Þórbergs
Þórðarsonar er meistaraverkið Sálmurinn um blóm-
ið, þar sem fjallað er „um líf lítillar manneskju í
þessum háskalega heimi," einsog sagði í ritdómi.
Hvað nefndi Þórbergur stúlkuna sem var aðalsögu-
persónan (þessari bók?
Ásgeir. „Trúin á þjóðina, traust á almenning, er
grundvöllur stjórnskipulags vors,'1 sagði Ásgeir Ás-
geirsson þegar hann tók við embætti forseta Is-
lands. Hann var annar forseti lýðveldisins. Fólkið
velur forsetann, voru einkunnarorð stuðnings-
manna Ásgeirs í hatrömmum kosningum þar sem
hann sigraði með naumum meirihluta. Á hvaða
árum var Ásgeir forseti íslands?
Davíð. Haustið 1919 sendi Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi frá sér sína fyrstu Ijóðabók. Bækur Dav-
íðs urðu margar, en um Davíð sagði Halldór Lax-
ness að hann hefði lifað;....í þeirri Ijóðlist sem var
einsog töluð út úr hjarta þjóðarinnar." Hvað hét
þessi fyrsta bók Davíðs og hvar er Fagriskógur,
bærinn sem hann kenndi sig við?
Helgafell. Um fell þetta hafa sagnir spunnist, en
þjóðtrúin ráðleggur þeim sem ætla að ganga á það
í fyrsta sinn að þeir skuli hefja göngu sína frá leiði
Guðrúnar Ósvífursdóttur og sé ekki litið aftur né
orð talað á leiðinni geti maður fengið uppfylltar
þrjár óskir sínar, þó aðeins að þær séu góðs hugar,
engum sagðar og að biðjandinn snúi í austur. Hvar
á landinu er Helgafell?
Vala. Sú frækna stúlka, Vala Flosadóttir, hefur
heillað þjóðina uppúr skónum fyrir frækin íþrótta-
afrek sín og ekki síður prúðmannlega og látlausa
framkomu sína. I hvaða grein keppir Vala og í
hvaða sjávarþorpi fýrir vestan er hún uppalin, þar
sem faðir hennar er sóknarprestur?
LAND OG
ÞJÓD
Sigurður Bogi
Sævarsson
skrifar
Sem fyrr er í þættinum
Landi og þjóð efnt til
jólagetraunar þar sem í
boði eru góðar bækur.
Það er að þessu sinni
Nýja bókafélagið
Þjóðsaga sem leggur til
vinningana, sem eru
góðar bækur sem for-
lagið sendir frá sér fyrir
þessi jól. Þetta eru Bók
aldarinnar eftir frétta-
mennina Gísla ð'Iartein
Baldursson og Olaf Teit
Guðnason, Moskvulfn-
an eftir Arnór Hanni-
balsson og Nú heilsar
þér á Hafnarslóð eftir
Aðalgeir Kristjánsson.
Eru bækur þessar í
nokkru samræmi við
efni þessara þátta, fjalla
um landið og þjóðina.
Svör við þessum tólf
spurningum skal senda
fyrir 19. janúar næst-
komandi og utanáskrift-
MOSKVU
* LÍNAN
Dagur,
Land og þjóð - jólagetraun
Strandgötu 31,
600 Akureyri.
Jafnframt má senda svörin á faxnúmer-
ið 460 6171 eða á á netfangið sigur-
dur@dagur.is, þá ekki sem viðhengi.
Svör:
1.____
fslenski hundurinn. Við þekkjum öll íslenska fjár-
hundinn, sem er með uppsperrt eyru og hringaða
rófu og er „lifandi listaverk" einsog Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráðherra komst eitt sinn að orði í
þingræðu. Hvað hét hundur Gunnars Hámundar-
sonar sem segir frá í Njálu, en hundurinn var drep-
inn um leið og Gunnar í atlögunni miklu á Hlíðar-
enda?
Á Saurunt. Á útmánuðum 1964 fóru miklar sagnir
að spinnast um eyðibýli það sem hér sést, þegar
undur og tákn fóru þar að gerast og leirtau og
húsmunir að færast þar úr stað án þess að mann-
leg hönd kæmi nærri. Atburóir þessir áttu sér þó
jarðbundnar skýringar þegar málið var krufið til
mergjar. Hvar á landinu eru Saurar?
Akureyrarkirkja. Yfir miðbæinn á Akureyri gnæfir
kirkjan glæsilega sem upp að eru 113 tröppur.
Kirkjan er alla jafna aðeins kölluð Akureyrarkirkja,
en stundum er hún lika kennd við prestinn og
þjóðskáldið sem þjónaði á Akureyri frá 1885 til
1900. Hver var hann?
Auður. Líf og starf Auðar Auðuns varð til að marka
djúp spor í jafnréttisbaráttu íslenskra kvenna, en
hún var borgarstjóri í Reykjavík 1959 og 1960,
ásamt Geir Hallgrímssyni, og ráðherra 1970 - 1971
og varð fyrst íslenskra kvenna til þess að gegna
ráðherraembætti. Hvaða ráðherraembætti gegndi
hún?
2.
3,.
4,.
5,
6,
7,
8,
Flugmaðurinn. Hann var einn fræknasti flugkappi
landsins og flaug þangað sem aðrirtöldu ekki fært,
einkum þegar nauð lá við og sjúkir þurftu að kom-
ast undir læknishendur. Var flugmaður þessi fyrir
vikið stundum nefndur „líftrygging fólksins í land-
inu“. Hann lést í flugslysi árið 1973. Hver var hann?
Skemmtiparið. Þessir félagar,
búktalari og brúðan hans, voru
fyrir um 40 árum einir vinsælustu
skemmtikraftar landsins. Búktalar-
inn er nú látinn fyrir nokkrum
árum og brúðan er komin á Þjóð-
minjasafnið. Eftirlíking þeirra sást í
Stuðmannamyndinni Með allt á
hreinu, þar sem þeirvoru nefndir
Ingvar og Gylfi. Hvað hét þetta
skemmtipar?
9,
10,
11,
12,
Nafn:
Heimili: