Dagur - 31.12.1999, Blaðsíða 25

Dagur - 31.12.1999, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999 - 4 1, ÁRAMÓTALÍFIÐ í LANDINU Aramótabrennur ef veður leyfir Áramótabrennur verða með hefðbundnum hætti í Reykjavík svo fremi sem veður leyfir. Sérstakur starfshópur hefur unnið að öryggisráðstöfunum fyrir áramótin. Kveikt verður í öllum brennum í Reykjavík á sama tíma eða kl. 20.30 nema brennunni við Sel- ásblett, þar verður kveikt í bál- kestinum kl. 18.00 og verða brennurnar og staðsetning þeirra auglýstar sérstaklega í fjölmiðlum á morgun og á gaml- ársdag. Við brennur verða víða uppá- komur svo sem söng- og tónlist- aratriði af ýmsu tagi og eru borgarbúar hvattir til að fara að brennu í sínu hverfi. Verði mjög hvasst og vindátt óhagstæð er hugsanlegt að hætta þurfi við að brenna einhverja af bálköstun- um og verður það þá sérstaklega auglýst í útvarpi. Þar sem Iang- tímaveðurspá er mjög óhagstæð fyrir gamlársdag er almenningur beðinn um að fylgjast vel með fréttum og tilkynningum í ljós- vakamiðlum varðandi viðburði á gamlársdag. Búast má við að lögreglan þurfi að stýra umferð bíla þar sem flestir verða á ferðinni, svo sem við Geirsnef, við Oskjuhlíð, Kveikt verður á brennum klukkan 20.30 á gamlárskvöld nema bálkestinum við Selásblett. Þar verður kveikt klukkan 18. á Ægissíðu og jafnvel víðar. Eru ökumenn beðnir að sýna þolin- mæði og tillitsemi. Ganastígur við Öskjuhlíð ruddur A undanförnum árum hefur verulegur fjöldi fólks lagt leið sína í Oskjuhlíðina nálægt mið- nætti til að njóta útsýnis yfir borgina. Þar verður að þessu sinni flugeldasýning ef veður leyfir á vegum Orkuveitu Reykjavíkur og Menningarborg- arinnar sem hefst kl. 23.35 og stendur í um það bil fimm mín- útur. Staðsetningin verður end- anlega ákveðin með tilliti til vindáttar, en verður líklega vest- an við Perluna. Neðra bílastæð- ið við Perluna er lokað vegna framkvæmda og hefur lögreglan ákveðið í samráði við borgaryfir- völd að beina allri umferð að og frá Perlunni að hringtorginu við Suðurhlíð og lokaaðkeyrslum að Perlunni um leið og bílastæðið er orðið fullt. Lögreglan vill því benda sér- staklega á aðra möguleika, sem er að aka um Suðurhlíð og Vest- urhlíð niður að Nauthólsvík, en vegna umferðartafa á Bústaðar- vegi getur verið betra að fara Flugvallarveg að Loftleiðahótel- inu. Bent skal sérstaklega á bíla- stæði við Flugvallarveg, við Lof- leiðahótel, malarastæði við ræt- ur Öskjuhlíðar skammt frá Loft- leiðahótelinu og bílastæðið nið- ur við Nauthólsvík. Göngustígur upp Öskjuhlíðina að vestan frá Loftleiðahótelinu er upplýstur og verður búið að ryðja snjó af honum ef þörf kref- ur og hann sandborin til að færð verði sem best. Sérstakur starfshópur hefur unnið að öryggisráðstöfunum fyrir áramótin, safnað saman upplýsingum um viðburði og það helsta sem er á döfinni á gamlárskvöld til að geta verið í viðbragðsstöðu ef með þarf. Flelstu aðilar eru; Orkuveitan, Vatnsveitan, gatnamálastjóri, slökkviliðið og Almannavarnir Reykjavíkur og nágrannasveitar- félaga. Góð tengsl eru á milli þessara aðila og munu menn skiptast á upplýsingum svo sem um vaktir, Qarskipti og aðrar ör- yggisráðstafanir. — W Ráðherrann. Guðni Ágústsson, einsog aðrir frambjóðendur Framsókn- arflokksins, tók sig saman í andlitinu fyrir kosningarnar sl. vor og fór á sjálf- styrkingarnámskeið. Guðni lét vel af námskeiðinu og sagði að því loknu, að hann líktist hverjum? Fleyið. Fyrir um tuttugu árum voru lög Gylfa Ægisssonar „það sem fólkið vill" þar sem sungin voru sjómannalög af ýmsum toga. Hvað hét hljómsveitin sem Gylfi hélt úti? Matthildingar. Hvað heita kapparnir þrírsem sáu um Útvarp Matthildi í Ríkisútvarpinu fyrir um tæpum þrjátiu árum? Ríó. Hvað heita kapparnir þrír sem skipa Ríó-Tríóið, einsog það hefur ver- ið síðustu áratugina? Finnur. Úr hvaða litla þorpi úti á landi er Finnur Ingólfsson ættaður, þar sem hann er jafnframt uppalinn? LAND OG ÞJÓÐ 1. Geta kaffivélar flogið? 2. Hvenær borðaði Stekkjastaur hnetustaur? 3. Hver voru þau sígildu kveðjuorð sem Hemmi Gunn notaði ævin- lega í lok skemmtiþátta sinna sem voru á dagskrá Sjónvarpsins í tíu vetur? 4. Hvert var það þarfaþing sem allir voru að leita að í kvikmyndinni Sódóma Reykjavík og varð í raun útgangspunktur í allri myndinni? 5. Hve hár er jólasveinninn Stúfur? 6. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir hefur verið orðuð við forsetafram- boð á næstu árum. Hver verða slagorð hugsanlegs forsetafram- boðs hennar? 7. í hvernig rúmi sefur Ólafur Ragn- ar Grímsson? 8. Hvað hétu bræðurnir þrír sem bjuggu á Bakka í Svarfaðardal og segir frá í frægri þjóðsögu? 9. Hvað heitir Bubbi Morthens fullu nafni? 10. Hverjir áttu í hlut þegar fréttist að lygnasti maður landsins var sagður vera að segja þeim trú- gjarnasta ævisögu sína? uinpujq xas i uio>| jn uios bujs nöpsjAæ ju/fsjBpjoq jBjsqjocj jpöBS ujbs !S9us||8jæus b jsgjd uossupBjpq sujy 'JS pw jjb J9 j?h oi'SU9i|jJO|A| uossupsux ujoíqsy '6 '!B|9h 6o Jn>|P!3 '!|sjg '8 'jUJnj6!AS n69|B6u!uujj|!i z '9661 pup ujnun6u!uso>j j jBunsj uossnu6B|/\| Jptjjsy jpBjou pjo6b|S buibs U9 - jBuusq spoquiBJjBj9SJOj !pjo6B|s pB MpsjsBSsgg uinbjjj/y bj96 pB jjpj ‘JBunjqjjAspuBq upjjsjoj J9 ‘nuna jépjjBjs JnpBuiu^g 'uossnqdos >HJpuj QB ssgcj j;>|es J!>)Aq j>j|cy '9 Bjjp 6o uujg g u!6up/qsjBy i> ,,'SS9|q 'ssgJjs JJ9>|>J9 ‘sssjq pu9A“ '8 jnBjsnjguq !pBpJoq jnBjsBfqqgjs uigs psq jba umun|o[ y z 'uinnqjBtæq jb pbuub jbqb||b>) |9jp|B njg uu|6bp ueÍQiuj uin |jfojn>iv b jnpjou BUioq ujgs s6n|jspuB|S| 6o spuB|Sj söBipjönid jB|9AJBun|jæB lAþ ‘b69|jbuubs oas sBnfu jb|9A!Jjb>| j |BPJA|A1 J >ua * 'upsjEpjpq'jnjBio 6o uosbuv jsn6v ‘uossjnjsd i6|9h Jisq ma juq JiujsddBx-oiy , 'ujBÍppj uuuBJoq 6o uoss6nB|uung'ujBJH ‘uossppo piABa , iuunujo(jsB|BH ? uiujoqV, 'Bpu9JBpi|H b uBuunn, ('.. i j jB ;íiji! lOBBBna innugrurrýa Jilio/ia unud r/q oA .n'inliijþl i ' -gnBgiiJOÖi i eri&ounu eehsb nmgGbiov nrns Btlámóiur ÞjLOI V jdmL nrtiij jv -joÁg/ /ruo - bö(í Gjggyd noa ibbæf go aniguul i afhCI .muni 'HitUaisqlbjri Ð9A -ifii/ipyj* -lij ^od i -ermkrmtuiet,' truiiúoð

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.