Dagur - 22.01.2000, Blaðsíða 21
r
X^ui-
LAUGARDAGVR 22. JA\ lIAR 2 000 - 37
R i A fl 1 \ ( 1 1 3 1 L Ý S 1 N 1 1 A R
S T Y R K I R STYRKIR STYRKIR
UNESCO
VERKEFNASTYRKIR
UNESCO 2000-2001
I fjárhagsáætlun Menningarmálastofnunar Sameinuðu
þjóðanna, UNESCO, er fé til verkefnastyrkja sem
stofnanir, félög og samtök í aðildarlöndum UNESCO
geta sótt um. Verkefnin þurfa að falla undir viðfangsefni
UNESCO á sviði menntamála, menningarmála, vísinda
og fjölmiðlunar. I umsókn skal vísa til greina í
verkefnaáætlun UNESCO. Þetta styrkjakerfi kallast
6Participation Programme &.
Hvert aðildarland getur sótt um styrk til 15 verkefna og
skal raða þeim í forgangsröð. Engin trygging er fyrir því
að íslenskar umsóknir hljóti styrk.
Styrkir eru einkum veittir til verkefna sem geta leitt til
áframhaldandi alþjóðasamstarfs. Verkefni sem tengjast
málefnum kvenna, æskufólks, Afríku og þeim
þróunarlöndum sem verst eru sett, njóta forgangs, en
þessi svið eru forgangsverkefni UNESCO.
Styrkir eru veittir til að:
• halda ráðstefnur og fundi, námsstefnur og
námskeið (þýðingar- og túlkakostnaður,
ferðakostnaður þátttakenda, sérfræðiaðstoð);
• gefa út rit, einkum þýðingar á ritum UNESCO;
• fá sérfræðings- og ráðgjafaraðstoð;
• afla tækja og búnaðar.
Styrkþegar þurfa að senda skýrslu og reikningsskil til
UNESCO að verkefni loknu.
Umsóknareyðublöð fást hjá UNESCO-nefndinni,
menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Umsóknum skal skila á sama stað.
íslenska UNESCO-nefndin fjallar um íslenskar umsóknir
sem berast áður en þær verða sendar til skrifstofu
UNESCO í París þar sem ákvörðun um styrki er tekin.
UMSÓKNARFRESTUR: 1.mars 2000
íslenska UNESCO-nefndin,
21. janúar 2000
d T B 0 Ð
I
I
I
UTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er
óskað eftir tilboðum í endurmálun í ýmsum
fasteignum Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn eru seld á skrifstofu okkar á
kr.1000,-
Opnun tilboða: 9. febrúar 2000, kl. 14:00 á
sama stað.
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er
óskað eftir tilboðum í viðhald á Lyftum í
Grunnskólum Reykjavíkur
Útboðsgögn eru seld á skrifstofu okkur á kr.1000
Opnun tilboða: 9. febrúar 2000, kl. 11:00 á
sama stað.
F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum
í verkið "Nesjavallavirkun-loftinntak"
Verkið felst í efnisútvegun, smíði, flutningi til
Nesjavalla og uppsetningu á loftinntaki og
tilheyrandi loftstokkum. Loftinntakið er 3,6 m í
þvermál, 21,3 m að hæð og að mestu smíðað úr
ryðfríu stáli. Heildarstálþungi er 35,8 tonn.
Verkinu skal vera lokið fyrir 01.10.2000.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 10.000
kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 15. febrúar 2000, kl. 11.00 á
sama stað.
ÍNNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
F,
Brt
Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík - Sími 552 5800
Bréfsími 562 2616 / 561 1120. Netfang: isr@rhus.rvk.is Veffang:
www.reykjavik.is/innkaupastofnun - 660169-4079
' '5 C-
k Menntamálaráðuneytið
flgjÍ
Auglýsing um styrki úr
Endurmenntunarsjóði
grunnskóla 2000
Auglýst er eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð
grunnskóla árið 2000. Sjóðurinn er í vörslu
menntamálaráðuneytisins og sér þriggja manna stjórn um
að meta umsóknir og gera tillögur til menntamálaráðherra
um styrkveitingar. Til úthlutunar að þessu sinni eru 22
milljónir króna, þar af eru 8 milljónir ætlaðar sérstaklega til
endurmenntunar á sviði upplýsingatækni í grunnskólum.
Um framlög úr sjóðnum geta sótt þeir sem hyggjast
standa fyrir endurmenntun fyrir grunnskólakennara á árinu
2000, t.d. kennaramenntunarstofnanir, skólaskrifstofur,
sveitarfélög, skólar, félög og fyrirtæki.
Pær umsóknir einar koma til mats sem sýna að byggt sé á:
• að endurmenntunartilboð mæti þörfum grunnskólans
• skólastefnu og aðalnámskrá
• fagmennsku og gæðum
Sjóðurinn veitir ekki fé til ferða og uppihalds kennara sem
njóta endurmenntunarinnar.
í umsóknum skal gefa ítarlegar upplýsingar um hvers
konar endurmenntunartilboð umsækjandi hyggst bjóða
fram, m.a. markmið námsins, stað og tíma, áætlaðan
fjölda þátttakenda, skipulag kennslu, stjórnun,
ábyrgðarmann og annað það sem máli kann að skipta við
mat á umsókn. Einnig skal leggja fram sundurliðaða
kostnaðaráætlun.
Þegar fyrir liggur ákvörðun um hverjir fá styrk, verður
gerður sérstakur samningur um hvert
endurmenntunarverkefni þar sem fram kemur m.a. lýsing
á markmiðum og fyrirhugaðri framkvæmd og hvernig
greiðslum verður háttað.
Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 18. febrúar
2000.
Upplýsingar um Endurmenntunarsjóð grunnskóla, reglur
sjóðsins o.fl. er að finna á heimasíðu
menntamálaráðuneytisins
www. mrn.stjr.is.
Menntamálaráðuneytið, 19. janúar 2000.
www.mrn.stjr.is
• y .-. Ars •
-T Menntamálaráðuneytið
* plijBl iú,
Auglýsing um styrki úr Þróunar-
sjóði leikskóla 2000-2001
Auglýst er eftir umsóknum í Þróunarsjóð leikskóla.
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarvekefnum í
leikskólum með hliðsjón af nýrri aðalnámskrá leikskóla.
Með þróunarverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og
nýbreytni í uppeldisstarfi. Um styrk geta sótt
sveitarstjórnir og aðrir rekstraraðilar leikskóla,
leikskólastjórar og leikskólakennarar. Sækja má um styrk
til nýrra verkefna og verkefna sem þegar eru hafin.
Styrkumsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu í
síðasta lagi 18. febrúar næstkomandi á þar til gerðum
eyðublöðum, sem liggja frammi í afgreiðslu
menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík. Umsóknareyðublað, reglur sjóðsins o.fl. er
einnig að finna á heimasíðu menntamálaráðuneytisins
www.mrn.stjr.is.
Nánari upplýsingar eru veittar í menntamálaráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið, 19. janúar 2000.
www.mrn.stjr.is
mm-i Menntamálaráðuneytið
Auglýsing um styrki úr
Þróunarsjóði
grunnskóla skólaárið 2000-2001
Samkvæmt 1. gr. reglna um Þróunarsjóð grunnskóla
(Stjtíð. B. nr. 657/1996) eru árlega veittir styrkir úr
sjóðnum til þróunarverkefna í grunnskólum landsins.
Starfsmenn grunnskóla geta sótt um auglýst verkefni en
einnig geta aðrir aðilar sótt um að því tilskyldu að
verkefnin nýtist grunnskólum.
Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki
til þróunarverkefna skólaárið 2000-2001 á eftirtöldum
sviðum sem njóta forgangs við úthlutun.
A. íslenska
Auglýst er eftir umsóknum um þróunarverkefni þar sem
lögð er áhersla á íslenskukennslu og þjálfun íslensku í
öllum námsgreinum grunnskóla. Einkum er óskað eftir
verkefnum þar sem lögð er áhersla á heildstæða
íslenskukennslu í grunnskóla allt frá upphafi skólagöngu.
Forgangs njóta við úthlutun verkefni þar sem annars
vegar meðferð talaðs máls, tjáning og samskipti og hins
vegar lestur og lesskilningur og læsi almennt eru í
öndvegi og að tölvu- og upplýsingatækni sé beitt í
kennslunni. Islenska sem annað tungumál fyrir nemendur
með annað móðurmál en íslensku, fellur undir þennan
flokk.
B. Lífsleikni
Auglýst er eftir umsóknum um þróunarverkefni þar sem
áhersla er lögð á lífsleikni í grunnskólum. Forgangs njóta
verkefni þar sem um er að ræða heildarstefnumótun
skóla á sviði lífsleikni, lífsleikniáætlanir skóla sem hluta af
skólanámskrá, lífsleikni sem sérstaka námsgrein og
lífsleikni í öllu skólastarfi. Lögð er áhersla á þátttöku alls
skólasamfélagsins í þeirri stefnumótun, þ.e. starfsfólks
skóla, fulltrúa nemenda og foreldra og samstarf við aðila
utan skóla.
C. Erlend tungumál
Auglýst er eftir umsóknum um þróunarverkefni þar sem
áhersia er lögð á kennslu erlendra mála í grunnskóla.
Sérstök áhersla er lögð á verkefni þar sem mótaðar eru
aðferðir við að vekja og viðhalda áhuga nemenda á
tungumálanámi. Áhersla er á þróunarverkefni þar sem
meðferð talaðs máls er í öndvegi og ritþjálfun með
markvissri nýtingu tölvu- og upplýsingatækni. Einnig njóta
forgangs verkefni á sviði byrjendakennslu í ensku, þ.e. í
5. og 6. bekk grunnskóla.
Nánari upplýsingar eru veittar í menntamálaráðuneytinu.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu á
sérstökum umsóknareyðublöðum sem liggja frammi í
ráðuneytinu og á skólaskrifstofum. Umsóknareyðublöð er
einnig að finna á heimasíðu menntamálaráðuneytisins:
www.mrn.stjr.is
Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 18. febrúar
2000.
Menntamálaráðuneytið, 19.01 2000.
www.mrn.stjr.is
www visiris
FYRSTUR MEO FRÉTTIRNAR