Dagur - 22.01.2000, Blaðsíða 6
22 - LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000
Hver er staðan?
Mikil umræða hefur
verið í gangi að undan-
förnu um stöðu ís-
lenska karlalandsliðs-
ins í handknattleik,
sem nú tekur þátt í úr-
slitakeppni EM í Króa-
tíu. Sitt sýnist hverjum,
en flestir virðast á
þeirri skoðun að liðið
eigi þar ekki mikla
möguleika.
Það er ljóst, þrátt fyrir minni
væntingar en oft áður, að fólk
gerir ákveðnar kröfur til ís-
lenska handknattleikslands-
liðsins í úrslitakeppni EM í
Króatíu og draumurinn um
sæta sigra blundar í mörgum.
Þeir bjartsýnustu vænta þess
að liðið tryggi sér sæti bæði á
HM í Frakklandi á næsta ári
og einnig á OL í Sydney í
haust, en þeir svartsýnustu ____
búast við að liðið komi heim
með öngulinn í rassinum.
Einn maður stendur þó teinréttur upp úr
efasemdunum, en það er Þorbjörn Jens-
son, landsliðsþjálfari, sem sagði fyrr í vet-
ur að strákarnir ættu eftir að koma á
óvart í keppninni.
Til að ræða málin, um stöðu boltans og
væntingar í Króatíu, hafði Dagur sam-
band við þá Alfreð Gíslason, Geir Hall-
steinsson og Hilmar Björnsson, sem allir
hafa mikla reynslu af landsliðsmálum. Al-
freð og Geir sem leikmenn til margra ára
og Hilmar sem þjálfari.
Fjárvana hreyfing
Hilmar Björnsson, kom tvisvar á þjálfara-
ferli sínum að þjálfum Iandsliðsins. Fyrst
á árunum 1968-1972 og svo aftur á árun-
um 1980-1983. Hann segir að þróunin í
boltanum undanfarin ár beri þess merki
að hreyfingin sé fjárvana. „Það á ekki
bara við um HSI, heldur lfka félögin. Allir
bestu Ieikmennirnir fara erlendis og fé-
lögin sem ala þá upp fá lítið sem ekkert
fyrir sitt uppbyggingarstarf. A móti þurfa
félögin svo að borga þeim leikmönnum
sem eftir eru heima ýmsar sporslur, auk
þess sem erlendir leikmenn á fullum
launum eru fengnir til að fylla í skörðin.
Þessir leikmenn eru að spila lykilhlutverk
með félögunum og halda þar af leiðandi
ungum og efnilegum strákum á bekkn-
um. Ef við gefum okkur að þessir útlend-
ingar séu tíu þá er það Ijóst að tíu færri
Islendingar eru á uppeldisstöðvum bolt-
ans. Þetta er þróun sem er okkur engan
veginn til framdráttar og á eftir að skaða
okkur,“ segir Hilmar.
Landslið íslendinga í handknattleik sem nú keppir á EM í Króatiu.
upp í boltanum, sem eru þeir
Olafur Stefánsson, Dagur Sig-
urðsson og Patrekur Jóbannes-
son, en bæði Patrekur og Dagur
hafa átt í meiðslum og það gæti
sett strik í reikninginn. A góðum
degi eru þessir leikmenn á
heimsmælikvarða og á því bygg-
ist vonin. Svo er það spurningin
um Duranona, sem virðist koma
illa undan jólum. Hann getur
unnið leiki á góðum degi, en
mér sýnist hann sé ekki í sínu
besta formi þessa dagana. Það
veikir liðið líka mikið að þeir
Bjarki Sigurðsson ogAron Krist-
jánsson skuli ekki vera með.
Miðað við þetta ástand og þann
stutta undirbúningstíma sem
liðið fékk þá tel ég raunhæft að
ná þriðja til fjórða sæti í riðlin-
um. Ég tel möguleikana gegn
Svíum og Bússum litla sem
enga, en töluverða gegn Dön-
um, Slóvenum og Portúgölum
ef sjálfstrausið verður í lagi.“
Innra starfið ekki gott
„ Innra starfið hefur eldd verið
nógu gott, þar sem gamli
skuldadraugurinn er enn að
íþyngja mönnum. Það má aldrei
slaka á í uppbyggingunni, hún þarf sífellt
að vera í gangi, annars fáum við það í bakið
eftir á. En framtíðin er björt og við eigum
fullt af ungum of efnilegum leikmönnum
bæði stráka og stelpur sem sýna mikinn
áhuga. Þessu fólki verum við að sinna og
skapa þeim verkefni í yngri landsliðunum.
Það er framtíðin," sagði Geir.
Vona það besta
Alfreð Gíslason, þjálfari Magdeburg í
Þýskalandi, sem Iék með Iandsliðinu á ár-
unum 1980-1993, sagðist vona það besta
fyrir strákana. „Þeir eru að fara í hörku-
keppni við sterkustu þjóðir heims, sem
verður mjög erfið. Þeir hafa margir verið
mjög óheppnir með meiðsli í vetur og hafa
sumir átt í öðrum vandræðum hjá liðum
sínum hér í Þýskalandi. Ekki síst skytturn-
ar, sem er mjög slæmt fyrir okkur, þar sem
þær hafa yfirleitt verið okkar helsta tromp í
stórkeppnum. Eg tel okkur vera vel setta
með Olaf Stefánsson og vandamálið þá
frekar vinstra megin og á miðjunni, þar
sem bæði Dagur og Patrekur hafa verið
meiddir og því ekki í besta formi. Tobbi er
þó með góðan hóp í höndunum og spurn-
ing hvort honum tekst að ná upp stemmn-
ingu. Hann hefur verið að gera góða hluti
og þessi kjarni er nú kominn með það góða
reynslu að hann ætti að geta staðið sig. Ég
hefði ekki stórar áhyggur af þessu ef allir
væru í lagi, en þar sem ástandið er eins og
það er, þá getur auðvitað brugðið lil heggja
vona.“
Ungir miðað við Svía
„Ég er ekki sammála því sem heyrst hefur
að kominn sé tími á endurnýjun í liðinu.
Ég tel aftur á móti að það sé alveg á réttu
róli og ef við miðum okkur til dæmis við
Svía, þá er liðið nokkuð ungt og kjarninn á
besta aldri. Það sem vantar uppá er frekar
innra starfið heima. Lítið er gert fyrir bolt-
ann og landsliðið er í hálfgerðu svelti. Það
skelfir mig því að hugsa til framhaldsins ef
dæmið gengur ekki upp í Króatíu. Þá Iiggur
í raun ekkert annað lyrir en byrja upp á
nýtt, sem gæti reynst okkur erfitt. Þessi
keppni er okkur því mjög mikilvæg og
strákarnir verða að fá góðan stuðning. Það
þekki ég frá mínum landsliðsferli, en þá
félik landsliðið mun meiri athygli og stuðn-
ing en strákarnir eru að íá í dag. Að mínu
viti er Tobhi að spila vel úr því sem hann
hefur og ég vona bara að þeir standi sig. Ef
allt smellur saman þá tel ég að þeir ættu
góða möguleika á þriðja sætinu í riðlinum.
En þa þurfa skvtturnar að hlómstra og
vonandi hjálpar hungrið þar til," sagði Al-
freð. -EK
Jákvæð og neikvæð reynsla
„Hvað varðar valið á landsliðinu, þá hefur
mikið verið talað um reynslu. Hún getur
verið mismunandi og hún getur bæði verið
jákvæð og neikvæð. Ég tel einmitt að
nokkrir af þeim leikmönnum sem spila er-
lendis hafi ekki þá jákvæðu reynslu sem til
þarf. Þeir hafa alls ekki fengið að spila
nægilega mikið upp á síðkastið og verið
meira og minna meiddir. Þetta kalla ég nei-
kvæða reynslu sem er ekld nógu gott fyrir
hópinn. Þess vegna hefði ég talið heppi-
legra að velja fleiri leikmenn f hópinn sem
spila og standa sig vel hér heima, þó þeir
hafi minni reynslu. Hún er þó alla vega já-
kvæð,“ segir Hilmar.
Spuming um getu
„Þær væntingar sem gerðar eru til Iiðsins í
dag geta hins vegar verið til góða. Þegar
væntingarnar eru minni eins og nú virðist
vera, hafa þær áhrif á spennustigið hjá
leikmönnum, sem getur haft góð áhrif þeg-
ar í slaginn er komið. Þetta er þó alltaf
spurning um getu, hún verður að vera til
staðar. En ég er viss um að allir reyna sitt
besta, það gera allir á svona stórmótum og
þá er það spurningin hvort getan er næg og
hvort menn ganga heilir til skógar. Við
verðum þó að horfa jákvætt til keppninnar
og standa með okkar mönnum, öðruvísi
gengur þetta ekki. Raunhæf niðurstaða úr
riðlinum er kannski fimm til sex stig og
þriðja sætið. Við ættum að ráða við Dani
og Portúgali, en verðum að passa okkur á
tíu. „Það litla sem ég sá til liðsins fýrir EM,
sem reyndar var aðeins æfingaleikur við
I Iaf narfjarðarú rval í Kaplakrika, lofaði alls
ekki góðu. Þar sá maður ákveðna veikleika
hjá liðinu. Það er ljóst að Júlíus Jónasson
og Geir Sveinsson skilja eftir sig skörð í
varnarleiknum og eins var sóknarleikurinn
engann veginn sannfærandi. Mér fannst
þessi leikur svo skömmu fyrir keppnina,
segja heilmikið um stöðuna. Lykilmenn eru
alls ekki í nógu góðri leikæfingu og það
vantaði heilmikið uppá bæði í vöm og
sókn.“
Ragnar mesta efhið
„Hvað varðar valið á liðinu þá er ég
óhress með að Þorbjörn skyldi ekki hafa
valið Ragnar Óskarsson í Iiðið. Hann er
eitt mesta efnið í boltanum í dag og á
skilyrðislaust að vera í hópnum. Ég er
ekki sammála honum um að ekki sé hægt
að nota nýliða í svona stórkeppnum. Ein-
hvers staðar verða menn byrja og talandi
um reynslu, þá verður hún ekki til á vara-
mannabekknum í Þýskalandi. Ég hefði
hiklaust skilið eftir tvo til þrjá leikmenn
sem leika erlendis og hafa lítið fengið að
spreyta sig og þess í stað valið stráka sem
hafa verið að standa sig hér heima. Ég tel
að það hefði verið betri blanda með
kjarnanum og hefði frískað verulega upp
á hópinn. Það hefði líka haft góð áhrif á
boltann hér heima og gefið honum meira
gildi,“ segir Geir.
Alfreð Gíslason.
Geir Hallsteinsson.
Fræðslan í molum
„Það er ljóst að við þurfum nú að
staldra við og endurskoða allt innra
starf hreyfingarinnar. Þar þarf að gera
áherslubreytíngar og það gengur ekki að
draga lappirnar öllu lengur. Fræðslu-
málin eru í molum, bæði gagnvart þjálf-
un og almennri kynningu á íþróttinni.
Ekki síst landsbyggðinni, þar sem
íþróttahúsin hrannast upp án þess að
handboltinn fái þar næga athygli, segir
Hilmar.
„Undirbúnigur landsliðsins fyrir EM,
endurspeglar einmitt vel þetta slæma
ástand. Liðið fær engan veginn næg
verkefni eða tíma til undirbúnings og ef
við berum okkur saman við aðrar þjóðir
sem eru með í keppninni, þá standa
þær allt öðru vfsi að hlutunum. Enda er
keppnin mjög mikilvæg þegar við lítum
fram á veginn og hefur í raun allt að
segja um verkefnin á næstunni, þar sem
bæði er verið að keppa um sæti á
Olympíuleikum og HM."
Slóvenum. Ég tel nokkurn vegin vonlaust
að vinna Svíana, en sé smá von á móti
Rússum ef stemmningin verður í lagi,“
sagði Hilmar.
Lofar ekki góðu
Geir Hallsteinsson sem á II8 landsleiki að
bald og skoraði í þeim alis 531 mark, hefur
hæfilega mildar væntingar til liðsins í Króa-
Hilmar Björnsson.
Besti þríhymingurínn
„Varðandi væntingarnar í Króatíu," segir
Geir, „þá vil ég ekki vera svo svatsýnn að
strákarnir muni ekki standa síg. Það er oft
svo að þegar va*ntingarnar eru minni að þá
gerast hlutirnir og ég er sannfærður um að
þeir munu herjast. Við erum með í liðinu
besta þríhyrninginn sem lengi hefur komið