Dagur - 22.01.2000, Blaðsíða 14

Dagur - 22.01.2000, Blaðsíða 14
30 LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2000 Tkgpr Skæð inflúensa hef- ur lagt ófáa íslend- inga í rúmið síðustu vikurnar, en sóttin er nú á undanhaldi. Læknar vara við úðalyfi og segja bólusetningar sígilt ráð. Er ný veirusótt á heimsvísu í nánd? „Bólusetningar gegn inflú- ensu eru alltaf það sem dugar best og því vil ég vara við því að að notkun inflú- ensulyfsins Relenza sé ein- hver allshetjarlausn,“ segir Ólafur Hergill Oddsson, hér- aðslæknir á Norðurlandi. Sú skæða inflúensuveira sem „Óvíða ílöndum heims eru bóiusetningar við flensu meiri en einmitt hér og ég vil undirstrika mikilvægi þeirra, “ segir Ólafur Hergiii Oddsson héraðslæknir á Norðuriandi hér i viðtalinu. mynd: -sbs. braggast eftir það segir Ólafur að sjálf- sagt sé fyrir fólk að leita læknis. Um veikindi eldra fólks segir Ólafur Hergill að bólusetn- ingar gegn inflúens- unni sé það sem hann hafi tröllatrú á. „Óvfða í löndum heims eru bólusetn- ingar við flensu meiri en einmitt hér og ég vil einmitt undirstrika mikilvægi þeirra,“ segir hann og bæt ir við að ekki sé hægt sé að útiloka in- flúensu þrátt fyrir bólusetningu, en sótt- in verði þó í flestum tilvikum vægari þar sem fólk myndi mótefni eftir bólu- setningu. farið hefur einsog eldur í sinu yfir landið hefur ekld síður gert usla á nyðra, en ann- arsstaðar á landinu. Það er þó mat Ólafs Hergils að veiran sé heldur á undanhaldi þessa dagana. Leggi þá í rúmið Hjá Heilsugæslustöðinni á Akureyri voru af völdum inflúensunnar skráð 86 tilfelli í desember og rúmlega 300 það sem af er janúar. Mun fleiri hafa þó lagst í rúmið af völdum inflúensunnar en þessar tölur gefa til kynna, því góðu heilli þurfa ekki allir að leita Iæknis þó flensan leggi þá í rúmið. En forföll fólks frá vinnu hafa ver- ið mikil. KEA og dótturfyrirtæki þess eru væntanlega fjölmennustu vinnustaðirnir á Akureyri og segir Heiðrún Jónsdóttir, starfsmannastjóri KEA, talsvert hafa verið um forföll starfsfólks vegna inflúensu síð- ustu daga og nokkrir aðrir atvinnurekend- ur sem blaðið ræddi við hafa svipaða sögu að segja. Hiti, bólgur og ertingarhósti Inflúensan illræmda sem leggur svo marga í rúmið um þessar mundir er af A- stofni og lýsir sér með hita á bilinu 38 til 41 stig. Fylgikvillar geta verið bólgur, eins og til dæmis eyrnabólgur, barka- bólgur, nefholubólgur, lungnabólgur og ertingarhósti getur komið í kjölfar veik- indanna. Óiafur Hergill segir að þegar inflúensa hafi varað í einhverja daga fari umræða um hana að verða almenn úti í samfélaginu og í fjölmiðlum og þannig fái margir upplýsingar um hvað gera skuli. Inflúensan getur varað frá tveimur og upp í sjö daga - en fari fólk ekki að Margir hafa að undanförnu komið á Heilsugæslu- stöðina á Akureyri og fengið þar sprautu gegn innflúensu, en sprautan er það ráð gegn flensunni sem læknar teija að virki best. Af myndinni mætti ráða að fólkið væri á raftækjaútsöiu í ELKO. mynd: -brink. Hægt í sakirnar Á síðustu dögum hafa borist fréttir um nýtt lyf til varnar inflúensu sem er komið á markað hérlendis. Relenza heitir lyfið og er tekið inn í úðaformi. Fregnir bárust í vikunni af því að landsliðsmenn í hand- bolta hefðu fengið að taka Iyfið inn til þess að þeir gætu frískir og fjörugir lagt í leik- ferð til Króatíu, en Ólafur Hergill leggur hins vegar áherslu á, að rétt sé að fara hægt í sakirnar með notkun þessa nýja Iyfs, þannig að það verði sem lengst gagn- legur valkostur í glímunni við inflúensu. I þessu sambandi má minna á, að ónæmi sýkla gegn hinum ýmsu sýklalyfjum er vax- andi vandamál í heiminum. Af og til verður umtalsverð breyting á erfðaefni inflúensuveirunnar og er spænska veikin sem fór um heiminn 1918 til 1919 dæmi um slíkt, en 21 milljón manna lést í þeim faraldri. Ef breytingar á inflúensu- veirunni eru miklar er ekki viðnám fyrir hendi hjá mannfólkinu og þá getur veikin orðið að skæðri heimssótt. Slíkar breyting- ar hafa orðið af og til á öldinni sem er að líða, en ekki síðustu áratugina og óttast margir þetta logn. -SBS. Vondu strákarnir verða vinsælir Árásargirni og uppreisnarandi geta orð- ið til þess að manni er sparkað úr skól- anum en þessir eiginleikar geta líka orð- ið til þess að viðkomandi verður dáðasti krakkinn í bekknum. Þetta hefur komið í ljós í bandarískri rannsókn á vinsælum krökkum í grunnskólanum. Bandarísk grunnskólabörn dást nefnilega að eigin- Ieikum eins og árásargirni, uppreisnar- anda og andfélagslegri hegðun. Um 450 krakkar í 52 bekkjum voru fengnir til að nefna það hvaða lýsingar- orð gilda um hvern bekkjarfélaga þeirra, lýsingarorð og lýsandi nafnorð á borð við samstarfsfús, leiðtogi, íþróttagarpur, áflogahundur, feiminn og það flottast af öllu: „kúl“. Nemendurnir voru einnig fengnir til að gefa sjálfum sér einkunn með lýsingarorðunum og kennarar voru líka fengnir til að gefa hverjum og ein- um einkunn í því formi. Feiminn eða „kúl“ - það getur gert gæfumuninn. Árásargirni = vinsæl? Á grundvelli þessara einkunnagjafa komust sálfræðingar að þeirri niðurstöðu að tveir þriðju þeirra, sem teljast vinsæl- astir, voru dæmigerð fyrirmyndar börn, íþróttagarpar, samstarfsfús, dugleg að læra og til fyrirmyndar í hegðun. Afgang- urinn var hins vegar nöldrandi vanda- málapakki með ófélagslega hegðun. Það er athyglisvert að ekki eru öll árás- argjörn börn vinsæl. Það þurfti eitthvað annað til. Ef barn var til dæmis árásar- gjarnt og feimið þá var það ekki vinsælt f hópnum. Ef það var hins vegar árásar- gjarnt og myndarlegt, árásargjarnt og duglegt í íþróttum, árásargjarnt og vina- legt, svo að eitthvað sé nefnt, þá féll það í kramið... -GHS Trúboðar í röri Parið þurfti nefnilega að vera grafkjurt meðan myndir voru teknar, og það tekur meira að segja drjúgan tíma með svona ægilega mikilli tækni - óþægilegt fyrir mjög æsta. Kæru lesendur, nú er ég stein- hætt að sýna vægð og eys áfram yfir ykkur tækniumfjöllun með Iiffæra- fræðilegu ívafi. Örvæntið þó eigi, undirrituð heldur enn f ein- hverja glóru og lofar að setja ei- Iítið blautlegri orð á prent að viku liðinni. Nú er komið að því að svipta hulunni af leyndardómi innri kynfæra karls og konu í þéttum trúboðasamförum (og þessu hafa einhverjir beðið lengi eftir). Nýlega var gerð feykisnið- ug rannsókn þar sem nýjasta tækni læknavísindanna var notuð til þess að skoða einmitt þetta. Fólk var fengið til að skríða inn í rör og koma sér í trúboðastöð- una, Iimurinn vel inn, og svo voru teknar innri myndir með tækni sem kallast á fínni íslensku segulómun. Með þessu fengust svo skýrar myndir af afstöðu innri kynfæra og grinda trúboða- fólksins, að nú finnst vísinda- mönnunum málið bara klárað - a. m. k. hvað trúboðann varðar. En við vitum nú hvernig vísindin geta hagað sér, við hlæjum iðu- Iega að sannleik gærdagsins svo að kannski er ágætt að hafa var- ann pínulítið á og vera því viðbú- in að skipta um skoðun, það er ekki nema hollt. Sjálfboðaliðar En hvernig í ósköpunum fær mað- ur fólk til að skrfða inn í rör og byrja að ríða? I þessari rannsókn voru það sjálfboðaliðar milli tví- tugs og tæplega fimmtugs, á ann- an tug para, sem hreinlega bauð sig fram eftir að auglýst hafði ver- ið eftir fólki til verkefnisins á sjón- varpsstöð. Rannsakendur gerðu sér grein fyrir því að kannski yrði það erfitt fyrir suma þátttakendur að ná kynferðislegri örvun við þessar einkennilegu aðstæður svo að þeir keyptu eitt glas af VIAGRA og nokkrir karlanna nýttu sér Iitlu bláu pillurnar til að herða stálið. Konurnar máttu gjörasvovel að sjá sjálfar um að rakastigið hækkaði nægilega í þeirra innstu kimum. Svo var riðið í röri en rörið var í sérherbergi og rannsakendur höfðu samband viðelskendurna gegnum talstöð. Svona gæti sam- tal hafa hljómað: „Jæja er hann kominn inn“, „ Já, ahhm“, „Vin- samlega hefjið samfarahreyfing- ar“, „ah, oh, mmm, uh“, „Stöðvið hreyfingar, nú verður fyrsta mynd- in tekin“, „Djö uh, ókei“. Parið þurfti nefnilega að vera grafkjurt meðan myndir voru teknar, og það tekur meira að segja drjúgan tíma með svona ægilega mikilli tækni - óþægilegt fyrir mjög æsta. Hluti paranna náði fullnægingarsamför- um í rörinu en ef það gekk ekki upp var karlinn látinn skríða út og konan látin klára dæmið ein síns liðs, og auðvitað djúpmynduð á meðan. Til að vitna í á góðri stund Pörin fórnfúsu hafa nú lagt sitt af mörkum við að færa lýðum eft- irfarandi upplýsingar: Limurinn tekur á sig lögun bjúgverpils í trúboðasamförum. Um það bil þriðjungur hans er f leggöngum en restin liggur inn og aftur á við í grindarholi karlsins. Limurinn Iiggur f sömu stefnu og hrygg- Iengja konunnar og kóngurinn þrýstist milli blöðrunnar og legs- ins, en ekki í átt að endaþarmi eins og áður var haldið. Fram- veggur legganga konunnar leng- ist og legið lyftist og hallast aftur á við, það stækkar ekki eins og Masters og Johnson ályktuðu eft- ir þreifingarannsóknir sínar. Þessi staða Iegsins helst eftir að fullnæging á sér stað en dvín á ca. 20 mínútum. Þakkir Eg þakka þeim sem sendu mér tölvupóst f vikunni og mun sann- arlega taka til umljöllunar þau efni sem lesendur óska eftir. Net- fangið er kynlifspist- ill@hotmaiI.com. Ragnheiður Eiríksdóitir er hjúkrunarfræðingur

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.