Dagur - 03.02.2000, Side 2
2 -FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2000
. FRÉTTIR
VansMl og uppboð
með minnsta moti
Umsýslukostnaður
íbúðaláuasjóðs í lág-
marki og vextirnir
ráðast á markaði og
afgreiðslutímiun er
kominn niður fyrir
viku segir Guðmund-
ur Bjamanson,
forstjóri íbúðalána-
sjóðs.
„Eg held að það sé einhver mis-
skilningur og mótmæli því að
það séu aðrir betur til þess falln-
ir að veita þessa þjónustu en
Ibúðalánasjóður," svaraði Guð-
mundur Bjarnason forstjóri
íbúðalánasjóðs er undir hann
voru borin orð bankastjóra
Landsbankans í Morgunblaðinu
um að bankar og sparisjóðir
væru betur til þess fallnir að
stunda smásölu á fjármagns-
markaðnum en Ibúðalánasjóður
eða til dæmis tryggingafélög.
Mátti á honum skilja að Ibúða-
lánasjóður ætti stærstan þátt í
þenslunni á húsnæðismarkaðn-
um á síðasta ári vegna gífurlegr-
ar útlánaaukningar.
Vextimir ráð-
ast á markaði
Guðmundur
hafnar því en
minnir á að
Ibúðalánasjóður
eigi lögum sam-
kvæmt að stuðla
að því að allir
landsmenn geti
búið við jafnrétti
í húsnæðismál-
um, hvar sem
þeir búa á land-
inu. Sjóðurinn
hafi litla mögu-
leika á að tak-
marka eftir-
spurnina, nema
þá með lokun
eða vaxtahækkunum. En vextir
Ibúðalánasjóðs ráðist að veru-
legu leyti af kröfum markaðar-
ins. Þar selji hann sín húsnæðis-
bréf og þangað fari líka húsbréf-
in.
Mjög hagkvæm stofnun
„Hins vegar höfum við getað
haft fremur lága vexti, vegna
þess að við rekum þrátt fyrir allt
mjög hagkvæma stofnun.
Kannski að hluta til vegna þess
að við sérhæfum
okkur í útlánum
til íbúðarhús-
næðis. Allur um-
sýslukostnaður
er þar af Ieiðandi
í lágmarki og út-
lánatöp einnig
lítil. Síðast en
ekki síst er okkur
gert að reka
stofnunina á lág-
markskostnaði
en hins vegar
engar kröfur
gerðar til okkar
um að skila eig-
endunum sjóðs-
ins ákveðnum
arðskröfum, eins
og vissulega hvílir á hlutafélög-
unum, þeirra á meðal bönkun-
um. Þar að auki held ég að
reynslan sýni - þrátt fyrir erfið-
leika í upphafi - að sjóðurinn
hafi staðið sig bærilega vel. Af-
greiðslutíminn er kominn niður
fyrir viku, ef allt er í lagi. Við
eigum góð samskipti við bank-
ana og fasteignasalana. Skil á
lánum eru góð - vanskil og upp-
boð með því minnsta um langt
árabil. Því ég skil ekki þennan
kvörtunartón," sagði Guðmund-
ur.
Um 8.S00 lán í fyrra
Gagnrýni á að farið sé að veita
fólki fullt Ián burtséð frá fjáreign
í fyrri íbúð svarar Guðmundur
að rétt hafi þótt breyta fyrri
reglugerð vegna mikils mis-
ræmis og óréttis. Áður hafi
menn átt rétt á óskertu láni þótt
þeir ættu tugi og jafnvel hund-
ruð milljóna í hvers konar verð-
bréfum væru eignirnar bara ekki
í íbúðarhúsnæði. „Þetta fannst
okkur hvorki eðlilegt né sann-
gjarnt. Ekki eigi að skipta máli í
hverju eignirnar þínar eru fólgn-
ar."
Guðmundur segir lán Ibúða-
Iánasjóðs hafa aukist hlutfalls-
lega minna í fyrra en útlán bank-
anna til einstaklinga, samkvæmt
áætun Landsbankans. Lántak-
endur voru um 8.500 á árinu
hvar af tæplega 1.200 áttu rétt á
viðbótarláni, sem námu um 1,5
milljónum kr. að meðaltali. - HEI
Hálskóli íslands i Reykjavík
Kvartar en
kærirvart
„Við höfum ekki ákveðið neinar
sérstakar aðgerðir á þessu stigi
málsins, nema að við höfum rit-
að menntamálaráðuneytinu og
munum einnig á næstu dögum
senda Háskólanum í Reykjavik
formlegt erindi þar sent við ósk-
um eftir skýringum og hvetjum
þá eindregið til að endurskoða
þessa ákvörðun," sagði Magnús
B. Baldursson, aðstoðarmaður
rektors Háskóla Islands. En
hann var spurður hvort HI hafi
ákveðið einhverjar aðgerðir í
kjölfar ákvörðunar fyrrum Við-
skiptaháskólans að breyta nafni
sínu í Háskólinn í Reykjavík -
sem af sumum er talið bjóða
upp á nafnarugling milli háskól-
anna í framtíðinni.
Spurður um hugsanlega mál-
sókn sagði Magnús að réttar-
staða Háskólans í þcssu máli
væri talin fremur óljós. Til væri
nokkuð sem héti hefðarréttir, en
það væri ekki mjög harður réttur
fremur en til dæmis siðferðileg-
ur réttur. - hei
Spít alaupp stokkun
Frá stjórnarfundi sjúkrahúsanna igær. Guðný Sverrisdóttir: „Þó taiað sé um að
verið sé að skera og skera þá er ég viss um að sumar deildir muni fá meiri
pening en áður“.
Róttæk uppstokkun er framund-
an á starfsemi stóru sjúkrahús-
anna í Reykjavík, Landsspítalans
(LS) og Sjúkrahúss Reykjavíkur
(SR). Sameiginleg stjórnarnefnd
sjúkrahúsanna hélt fund síðdegis
í gær og var þar ekki búist við
endanlegum ákvörðunum um
uppstokkunina, en samkvæmt
þeim tillögum sem Iiggja fyrir má
þó búast við verulegum breyting-
um á næstu mánuðum.
Einna stærstu breytingarnar
felast í því að færa æðaskurð-
lækningar frá LS til SR, þar sem
ný æðaskurðlækningadeild verð-
ur opnuð í mars, og því að færa
því sem næst allt geðsvið SR yfir
til LS. Fyrir fundinn sagði Guð-
ný Sverrisdóttir formaður stjórn-
arnefndarinnar að fjallað yrði um
fjárhagsáætlanir sjúkrahúsanna
og nýtt stjórnskipulag, en ekki að
vænta stórra ákvarðana á fundin-
um.
í ljós hefur komið að einn far-
þeganna í flugvél Alaska Airlines,
sem fórst við vesturströnd
Bandaríkjanna fyrr í vikunni, var
af íslenskum ættum. Hann hét
Karl Karlsson og var búsettur í
San Francisco, lyrruin lögreglu-
þjónn á sextugsaldri. Hann flutti
10 ára gamall til Bandaríkjanna
og móðir hans býr enn vestra.
Karl á ömmu á lífi í Reykjavík,
Hansínu Jónsdóttur, sem nú
syrgir barnabarn sitt. Eiginkona
Karls, Carol Karlsson, fórst
einnig með vélinni en þau voru
að koma úr fríi í Mexíkó.
Ekki er útilokað að önnur
hjón, Robert og Lorna Thor-
grintson, sem fórust í þessu flug-
slysi, tengist íslandi en það nær
Sjukrahótel og heima-
þjónusta
„I nútíma þjóðfélagi þarf að hafa
allt uppi á borðinu í leitinni að
bestu aðferðinni til að veita
bestu þjónustu fyrir sem minnst-
an pening. Markmiðið er ekki
þá lengra aftur. Afi Roberts var
O.B. Thorgrimsson, þekktur Iög-
maður í Seattle, sem fæddist þar
í borg árið 1874. Enn í dag er
starfandi lögmannsstofa með
hans nafni. Langafi Roberts gæti
því hafa verið af íslenskum ætt-
um, án þess að það hafi fengist
staðfest. Jón Marvin Jónsson,
ræðismaður íslands í Seattle,
sagði þó í samtali við Dag að
hann hefði verið búinn að fá vit-
neskju um fslenskan bakgrunn
Thorgrimson-fjölskvldunnar
værí það tilfellið. Um fráfall Ro-
berts og Lornu er fjallað í Seattle
Times í gær, auk annarra þekktra
íbúa Seattle sem fórusl í flug-
slysinu.
endilega svokallaður niðurskurð-
ur, því þó talað sé um að verið sé
að skera og skera þá er ég viss
um að sumar deildir muni fá
meiri pening en áður, þótt mark-
miðið sé sparnaður í heild,“ sagði
Guðný. - FÞG
Nafti
komumar
sem lést
Nafn konunnar sem lést í
umferðarslysi á Reykja-
nesbraut við Kúagerði í
fyrradag er Anna Margret
Pétursdóttir Einihlíð 12.
Hún var 41 árs og Iætur
eftir sig eiginmann og son.
Dóttir Önnu Iést í bílslysi
við gangbraut í Hafnarfirði
á síðasta ári.
íslenskættaður
10% hærri „hama-leiguhætur“
Hámarks húsaleigubætur til einstæðs mreldris með 3 börn og lágar
tekjur hækka um fjórðung frá ársbyrjun 2000, samkvæmt tilkynn-
ingu frá félagsmálaráðuneytinu, sem í samráði við Samtök sveitarfé-
laga hefur breytt reglugerð um húsaleigubætur. Með breytingunni
sé fyrst og frémst leitast við að bæta hlut barnafólks sem lcigir. Ann-
ars vegar með því að hækka tillit til barna um 2.000 krónur á mán-
uði á hvert barn og hins vegar með því að hækka hámarks húsaleigu-
bætur úr 21.000 krónum í 25.000 krónur.
Það ætti einnig að koma barnafólki til góða að framvegis geta líka
bætur numið 1 5% af leigu umfram ákveðið hámark í stað 12% áður.
Að mati ráðuneytisins hækka húsaleigubætur um 6,5% að meðaltali
en um 10% að meðaltali til barnafólks - mest til þeirra sem eiga
mörg börn og búa við háa húsaleigu. -hei
500 námsmenn á skrá
AIIs um 500 manns eru á skrá hjá Atvinnumiðstöð námsmanna um
þessar mundir og er það fólk í leit að verkefnum, hlutastörfum eða
fullri vinnu. Þetta er með því mesta sem gerist á þessum tíma árs, því
að jafnaði eru um 200 námsmenn á skrá yfir vetrartímann. Fram
kemur í frétt frá Atvinnumiðluninni að hér sé um ræða til dæmis fólk
sem lauk stúdentsprófi nú um áramótin og sé að leita sér að starfi
fram á haust, háskólafólk sem ætli að taka sér hlé frá námi í einhvern
tíma - og enn aðrir sem vilji ná sér í aukapening eða tengja nám sitt
og lokaverkefni úti í atvinnulífinu. - SBS.
Thermo Plus stækkar
Frysti- og kælibúnaðarfyrirtækið Thermo Plus í Reykjanesbæ, sem
hóf framleiðslu á síðasta ári, hefur opnað skrifstofu í Bretlandi og
stefnir að því að vera með söluskrifstofur í tólf löndum utan Islands
fyrir árslok. Sölumál fyrirtækisins hafa gengið vel og hafa nú þegar
tekist samningar um sölu á frysti- og kælitækjum til stórra breskra
verslunarkeðja á borð við Sainsbury's, Tesco, Iceland og fleiri. Þetta
góða gengi Thermo Plus gerir það að verkum að starfsmönnum verð-
ur fjölgað úr 20 í 50 á næstunni. Ársvelta fyrirtækisins árið 2000 er
áætluð ríflega hálfur milljarður. Kristinn Jóhannesson er nýráðinn
framkvæmdastjóri framleiðslusviðs, en hann mun starfa að uppbygg-
ingu Thermo Plus.
Dettifoss til Þýskalands
Eimskip hetur gengið frá sölu á ms. Dettifossi. Kaupandi er skipafé-
lagið Baum í Nordenheim í Þýskalandi. Söíuverðið var 249 milljónir
króna og söluhagnaður Eimskips áætlaður um 120 milljónir. Félagið
keypti Dettifoss árið 1991 en skipið var smíðað árið 1982 í Þýska-
landir Oettiloss-var í siglingum milli Islands og Evrópu jiar til á síð-
asta ári að hann var í lciguverkefnum erlendis þat til httnn var.sejcjqr, ,