Dagur - 03.02.2000, Blaðsíða 5

Dagur - 03.02.2000, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 3. FEBROAR 2000 - S FRÉTTIR > Veikir ínwnd kvotakerfísins Sala Þorsteins Vil- helmssonar á hlut sin- mn í Samherja fyrir rúma 3 miUjarða kveikir í kvótaand- stæðingum. - Halldór Ásgrímsson utanrík- isráðherra segir svona dæmi veikja ímynd kvótakerfisins. Fátt er meira umtalað hér á landi síðustu daga en sú staðreynd að Þorsteinn Vilhelmsson, fyrrum Samherjaeigandi, gengur nú út úr fyrirtækinu og selur 20% hlut sinn í því fyrir rúmlega 3 millj- arða króna eftir 1 7 ára starf. Framsóknarmenn sögðu fyrir kosningar í vor að þeir vildu koma sérstökum skatti á kvóta- hagnað manna sem væru að ganga út úr útgerð. Halldór As- grímsson var spurður hvernig þau mál stæðu nú? VeiMr kvótakerfíð „Það er rétt að við höfum talað fyrir því og það er tiltölulega ein- falt að eiga við það ef um er að ræða beinar sölur á eignum. Hins vegar þegar um hlutahréfa- sölu er að ræða, eins og á sér stað hjá Þorsteini Vil- helmssyni, þá eru vandkvæði á því. Það gengur ekki að í gangi séu mismunandi reglur á þessu eftir því um hvaða atvinnu- grein er að ræða. Um gæti verið að ræða hluta- bréfasjóði sem eiga í mismun- andi eignum," sagði Halldór. Hann sagðist telja að málið væri leysanlegt ef um beinar söl- ur væri að ræða en mjög flókið ef um er að ræða sölu á hlutabréf- um og margir efuðust um að þetta standist jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Halldór var spuður hvort hann teldi það veikja kvótakerfið í hugum almennings þegar menn horfa á mann ganga út úr út- gerðarfyrirtæki með rúma 3 milljarða eftir 17 ára starf? „Eg tel að það veiki það enda er þctta einn stærsti galli þess. Hitt er svo annað mál að menn eru að hagnast á ýmsu öðru hér á landi. Til dæmis sú umræða sem verið hefur í kringum starfs- menn nokkurra fjármálastofn- ana, sem hafa verið að kaupa og selja hluta- bréf f sínu starfi. Þannig að það er hægt að græða á fleiru í heimin- um en sjávarútvegi," sagði Hall- dór Asgrímsson. Aíiiema eignarkvótann „Þetta dæmir kvótakerfið á þá vísu sem við í Frjálslynda flokkn- um höfum margsinnis bent á,“ sagði Sverrir Hermannsson. Hann tók hins vegar skýrt fram að þeir Samherja-frændur væru harðduglegir menn sem væru alls góðs maldegir. Það væri kerf- ið sem væri brogað. Jóhann Arsælsson sagði að það væri alvarlegt mál að hægt væri að draga út úr útgerðinni svona gífurlegar upphæðir. „Það er því engin önnur lausn á svona málum en að afnema gjafakvótann, svo einfalt er það,“ sagði Jóhann Ársælsson. Guðjón A. Kristjánsson sagði að þetta sýndi best hversu óeðli- leg eignarmyndun væri í kerfinu. „Þett sýnir glöggt að stjórnvöld hafa, með gjafakvótanum, fært mönnum óeðlilega fjármuni, sem eru að hafa afgerandi áhrif á búsetu í þessu Iandi. Kristján Pálsson sagði að við lifðum um þessar mundir í þjóð- félagi sem væri algerlega óút- reiknanlegt. Menn þytu upp eða dyttu til botns í eignum. Það væri ef til vill spurning hvort eðlilegt sé að menn hagnist svona mikið bara á kvútakerfinu. Hann sagðist hins vegar telja Samherjamenn dugnaðarforka í stjórnun síns fyrirtækis. — S.DÓR Frá heimsókn ráðherrans til ICES. David Griffith, Hans Lassen og Árni M. Mathiesen. Amií Köben Nýlega heimsótti Arni Mathiesen sjávarútvegsráðherra Alþjóða hafrannsóknarráðið, ICES, í Kaupmannahöfn. Ráðið á sér langa sögu, var stofnað árið 1902, og aðild að því eiga 19 fiskveiðiríki beggja vegna Norð- ur-Atlantshafs, þeirra á meðal Island. David Griffith fram- kvæmdastjóri stofnunarinnar tók á móti ráðherranum ásaml þeim Keith Brander og Hans Lassen, yfirmönnum við stofn- unina. Hlutverk ráðsins er að efla hafrannsóknir, þróa og sam- ræma rannsóknaáætlanir, dreifa niðurstöðum rannsókna og gefa vísindalega ráðgjöf. í því sam- bandi má benda á að stór hluti af niðurstöðum Hafrannsókna- stofnunar eru sendar ICES til álitsgjafar og upplýsingar. Með Árna í för voru Þorsteinn Geirs- son, ráðuneytisstjóri í sjávarút- vegsráðuneytinu, og Jón B. Jón- asson skrifstofustjóri. Halldór Ásgrímsson telur að salan á þriðjungshlut í Samherja muni veikja ímynd kvótakerfisins. Þýðing úr norsku veldur uppþoti AII snarpar umræður urðu utan- dagskrár á Alþingi í gær vegna ummæla upplýsingafulltrúa Norsk Hydro á Stöð 2 á dögun- um um að þeir NH-menn stefn- du að 480 þúsund tonna álveri á Reyðarfirði. Því var haldið fram af stjórnarandstæðingum að í umræðunum um Fljótsdalsvirkj- un og álver á Reyðarfirði á Al- þingi fyrir jól hafi iðnaðarráð- herra sagt að einungis væri um 120 þúsund tonna álver að ræða. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- ráðherra sagði að talsmaður NH, Knudsen, hefði ekki orðað þetta svona heldur hefði þýðingin á því sem hann sagöi í viðtalinu ekki verið rétt. „Hann sagði aðeins að 120 þúsund tonna álver væri erfiðara og 480 þúsund tonna álver væri hagkvæmara. Ég get ekki annað en virt þessa skoðun hans og er reyndar þeirrar skoðunar að ís- lensk stjórnvöld séu áhugasöm um að stækka þetta álver ef það reynist hagkvæmt, en það er ekki hægt að tryggja það í samningum við NH að það verði gert,“ sagði Valgerður. Ekkert nýtt? Það var Kolbrún Halldórsdóttir sem hóf umræðuna vegna um- mæla fýrrnefnds Knudsen, upp- lýsingarfulltrúa Norsk llydro, í sjónvarpsviðtalinu. Margir tóku til máls í umræðunni og héldu stjórnarsinnar því fram að ekkert nýtt hefði komið fram í þessu máli og því væri umræðan full- komlega óþörf. 1/algerður Sverrisdóttir. Stjórnarsinnar voru á öðru máli. Ossur Skarphéðinsson benti á að í umræðunum fyrir jól hefðu stjórnarsinnar og iðnaðar- ráðherra ekki viljað tala um 480 þúsund tonna álver, þegar hann hefði bent á að hvað íægi undir í virkjanamálum ef stefnt væri að svo stóru álveri. Þá hefði iðnað- arráðherrann þáverandí sagt að aðeins væri um að ræða 120 þúsund tonna álver. „Það sem um er að ræða er að menn eru hér með lævi og blekk- ingum að fara ákveðna ieið til að ná öllu svæðinu N-A Vatnajökuls undir raforkuframleiðslu. Fyrst vilja þeir fá Fljótsdalsvirkjun og þegar þeir hafa ’einu sinni laskað Kolbrún Halldórsdóttir. landið með henni þá er auðveld- ara að fá fram samþykki til að fara í Kárahnjúkavirkjun. Síðan ef málið er skoðað í samhengi þá er verið að tala um Eyjabakkana, Kárahnjúkavirkjun og það er líka verið að tala um Jökulsá á Fjöll- um og þar með Dettifoss og síð- an bætist við virkjun í Bjarna- flagi. Er það þá svo að mönnum finnist það ósanngjarnt af okkur stjórnarandstæðingum og spyrja hvað hér sé á seyði. Hafa íslensk stjórnvöld gefið NH formleg eða óformleg \ilyrði fyrir því að ráð- ist verði í þessar virkjanir," spurði Össur Skarphéðinsson. Því neitaði Valgerður Sverris- dóttir iðnaðarráðherra, — S.DOR Gen.is oö Vesturfarasetrið í samstarf Ættfræðifyrirtaeldð Gen.is og Vestur- farasetrið á Hofsósi hafa skrifað undir samstarfssamning, þar sem Vesturfarasetrið kaupir þjónustu af Gen.is með uppsetningu ættfræði- grunns með sérstakri áherslu á fólk af íslenskum ættum í N-Ameríku. Samningurinn er liður í metnaðar- fullri uppbyggingu Vesturfaraseturs- ins, þar sem stefnt er að því að veita alhliða þjónustu fyrir fólk sem vill Tryggvi Pétursson stjórnarformaður grafast fyrir um ætlingja sína; bæði Gen.is og Valgeir Þorvaldsson for- fyrir fólk vestra sem er af íslenskum stöðumaður Vesturfarasetursins ættum og fyrir fólk hér heima sem skrifa undir samstarfssamninginn. vill forvitnast um afkomendur ætt- ingja sem Uuttust vestur á sínum tíma. „Við sáum fram á að þurfa að byggja upp okkar eigin ættfræðigrunn, en þessi samningur flýtir fyrir um 5 ár. Við viljum standa undir þeim væntingum sem til okkar eru gerðar, meðal annars í samningi okkar við ríkisstjórnina, þar sem okkur er falin víðtæk þjónusta," segir Valgeir. Uppbygging Vesturfaraseturs á Hofsósi hefst í sumar. Mikill áhugi er fyrir svona þjónustu vestra. - FÞG Olíuleit? I fyrra var unnið úr dýptarmælingum, sem Sjómælingar lslands gerðu út af Norðurlandi varðandi hugsanleg setlög þar, sem olíu gæti verið að finna. Dýptarmælingarnar segja tii um hvar setlögin eru þykkust hvar olíu væri hugsanlega helst að finna. Valgerður Sverrisdóttir sagði að allt væri þetta í mikilli óvissu en að hún hefði mikinn áhuga fyrir því að setja þetta í ákveðinn farveg, þannig að málið kæmist á hreyfingu. Hún bendir á að í mörg ár hefði verið ýjað að því að olíu væri að finna út af Norðurlandi. Því væri full ástæða til að skoða málið betur ef það væri ekki þeim mun kostnaðarsamara. - S.DÓR Samið við Kínverja Fastanefnd Islands hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WFO) í Genf, hef- ur nýverið gengið frá samkomulagi milli íslenskra og kínverskra stjórn- valda, sem felur í sér að Kínverjar Iækka tolla á sjávarafurðum og öðrum iðnaðarvörum sem Island selur til Kína úr 25 - 30% niður í 10 - 15%. Tollalækkanirnar koma að fullu til framkvæmda á árunum 2001 - 2005 el’tir vöruflokkum. Samkomulagið er árangur samningaviðræðna milli ís- lenskra og kínverskra stjórnvalda sem átt bafa sér stað um nokkurt skeið í tengslum við umsókn Kína um aðild að Alþjóðaviðskiptastofnuninni og gengur í gikli þegar aðildin verður að veruleika, væntanlega um mitt þetta ár.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.