Dagur - 03.02.2000, Blaðsíða 11

Dagur - 03.02.2000, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2000 - 11 lÁ DABSKRÁ Háskóli Islands. Fyrirlestrar H.I. I dag fímmtudaginn 3. febrúar ld. 12:05 til 13:00 flytur Jón Ólafur ísberg sagnfræðingur er- indi á hádegisfundi Lífeðlis- fræðistofnunar um Dr. Peter Anton Schleisner og samverka- menn hans í kaffistofu á 5. hæð í Læknagarði, Vatnsmýrarvegi 16. Kl. 12:30 verður haldinn fræðslufundur að Tilraunastöð H.I. í meinafræði, Keldum, í bókasafninu í miðhúsi. Valgerð- ur Andrésdóttir, líffræðingur, Keldum, flytur erindið Mæði- visnuveira sem módel fyrir HIV KI. 16:00 verður haldin mál- stofa véla- og iðnaðarverk- fræðiskorar undir heitinu „Verðbréf og verkfræði" í húsi verkfræðideildar Háskóla Is- Iands að Hjarðarhaga 2-6, í stofu 158. Jón Helgi Egilsson, framkvæmdastjóri Verkfræði- hússins hf., mun fjalla um að- ferðir sem þróaðar hafa verið til að greina áhættu og arðsemis- líkur og til að spá fyrir um breyt- ingar á verðbréfamarkaðinum. Kl. 16:15 flytur Gunnar Guð- mundsson, sérfræðingur í lungnasjúkdómum, fyrirlestur- inn: „Frumuhvatar (cytókín) í heysótt" í málstofu læknadeild- ar. Málstofan fer fram í sal Krabbameinsfélags íslands, efstu hæð. Kaffiveitingar verða frá ld. 16:00. ■krossgátan Lárétt: 1 eldsneyti 5 skreytin 7 skömm 9 oddí 10venja 12 viðkvæmu 14annriki 16 tónverk 17 dregur 18 skynsemi 19 fljótfæri Lóðrétt: 1 vai 2 klúryrði 3 hafna 4 farfa 6 róleg 8 áleit 11 kjánar 13óvættur 15gagn Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 sver 5 leyfi 7 oddi 9 ið 10 priks 12 illu 14dys 16ein 17 ráðin 18 þil 19 puð Lóðrétt: 1 skop 2 eldi 3 reiki 4 efi 6 iðrun 8 dreyri 11 sleip 13 linu 15 sál ■gengib Gengisskráning Seölabanka Islands 2. febrúar 2000 Dollari 73,82 74,22 74,02 Sterlp. 118,94 119,58 119,26 Kan.doll. 50,81 51,13 50,97 Dönsk kr. 9,635 9,689 9,662 Norsk kr. 8,93 8,982 8,956 Sænsk kr. 8,412 8,462 8,437 Finn.mark 12,0569 12,1319 12,0944 Fr. franki 10,9286 10,9966 10,9626 Belg.frank. 1,7771 1,7881 1,7826 Sv.franki 44,54 44,78 44,66 Holl.gyll. 32,53 32,7326 32,6313 Þý. mark 36,6529 36,8811 36,767 Ít.líra 0,03703 0,03726 0,03714 Aust.sch. 5,2097 5,2421 5,2259 Port.esc. 0,3576 0,3598 0,3587 Sp.peseti 0,4309 0,4335 0,4322 Jap.jen 0,6805 0,6849 0,6827 irskt pund 91,0235 91,5903 91,3069 GRD 0,2158 0,2172 0,2165 XDR 99,18 99,78 99,48 EUR 71,69 72,13 71,91 ÖNDUNARSÝNAMÆLAB ný tœkl lögreglu gegn ölvunarakstrl Eftir eínn eí aki neinn! FRÉTTIR Dóp ekkert tíltökumál? Daníel Snorrason yfirlögregluþjónn vill hvetja foreldra og alla til að vera virkilega vel á verði í sambandi við fíkniefni því þau virðast ekki eiga sér nein landamæri lengur. Sex ungmenni, öll í kringum tví- tugt, hafa verið handtekin á Ak- ureyri undanfarna daga vegna fíkniefnamisferlis og alls verið lagt hald á um 40 grömm af amf- etamíni og rúm 20 grömm af hassi. Einn maður var handtekinn eftir hádegi á mánudag og hafði hann í fórum sínum um 25 grömm af amfetamíni og um 20 grömm af hassi. Þetta magn af amfetamíni er með því meira sem lögreglan á Akureyri hefur lagt hald á £ einstöku máli. Vegna þessa magns leikur grun- ur á að efnin hafi verið ætluð til sölu en ekki Iiggur fyrir játning um það. Manninum var sleppt að lokinni yfirheyrslu og húsleit. A föstudagskvöld voru fímm ungmenni kringum tvítugt handtekin vegna gruns um fíkni- efnamisferli, þar af var eitt grun- að um sölu. Lagt var hald á 15 grömm af hassi og þrjú grömm af amfetamíni. Ungmennin voru yfirheyrð strax um nóttina og sleppt úr haldi að lokinni yfir- heyrslu þar sem málið taldist upplýst. Af þessu virðist ljóst að áfram- hald verði á þeirri sprengingu sem varð í fyrra í þróun fíkni- efnamála á Akureyri, en þá fjölg- aði fikniefnamálum meira en tvöfalt frá árinu 1998. Daníel Snorrason, lögreglufulltrúi í rannsóknadeild lögreglunnar, hefur áhyggjur af þessari þróun. „Óneitanlega finnst manni þetta undirstrika hvað staðan er slæm. Það sem ég hef virkilega áhyggj- ur af er hvað þetta virðist orðið almennt og manni finnst eins og mörgu af þessu unga fólki finn- ist þetta ekkert tiltökumál. Ég vil hvetja foreldra og alla til að vera virkilega vel á verði f sambandi við fíkniefni því þau virðast ekki eiga sér nein landamæri lengur. Menn héldu að Akureyri hefði sloppið betur en aðrir bæir, en því miður,“ segir Danfel. — HI KaupmáttarauM 50% á áratuguum Kaupmáttur dag- vinuulauua opinberra starfsmanua ríkis og borgar var að jafnaði 50% meiri á 1. árs- fjórðungi 1999 en árið 1990. Við nær 40 þúsund króna kaup- hækkun á tveim árum var kaup- máttur dagvinnulauna opinberra starfsmanna á 2. Qórðungi síð- asta árs orðinn 37% meiri en tveim árum áður og um 50% meiri en að meðaltali á árinu 1990, samkvæmt útreikningum Kjararannsókanefndar opinberra starfsmanna (KOS). Hér er miðað við hækkun meðallauna allra opinberra starfsmanna ríkis og borgar - sem hækkuðu að vanda misjafnlega - mest hjá þeim Iaunahæstu. Kaupmáttur launa opinberra starfsmanna (eins og annarra) var orðinn mjög lágur árið 1990 og hækkaði mjög hægt næstu fimm árin. En frá 1995 tók hann á harðasprett og var á fyrsta árs- fjórðungi 1999 orðinn 50% meiri en 1990. A þessu árabili hækkuðu dagvinnulaunin úr tæplega 74.800 krónum á mán- uði í 142.500 krónur. Yfirviimaii lítið minnkað Sérstaka athygli vekur, að þrátt fyrir launakerfisbreytingar síð- ustu árin, sem átti að auka hlut dagvinnunnar í heildarlaunum, þá hefur kaupmáttur heildar- íauna aukist næstum eins mikið, eða rúmlega 46%, á þessu ára- bili. Heildarlaunin hafa hækkað úr 108.000 krónum á mánuði í rúmlega 206.000 krónur að jafn- aði - sem þýðir að yfirvinna og önnur laun ríkisstarfsmanna voru að jafnaði rúmlega 64.000 krónur til viðbótar dagvinnu- laununum í fyrravor. „Þangað vill fá sem fé er fyrir“ Kjarastefna ríkisins \arðist í stut- tu máli sú, að kaup þeirra launa- hæstu eigi að hækka mest. Sam- kvæmt því hækkuðu dagvinnu- laun BHM félaga hjá ríkinu um 39% að jafnaði (45.100 krónur) frá 2. ársfjórðungi 1997 til sama tíma 1999. En BSRB félögin fengu „bara“ 28% hækkun (25.100 krónur) á þessu sama tveggja ára tímabili. Heildar- launin hækkuðu hins vegar um 28% þessi tvö ár (52.000 krónur að meðaltali) hjá BHM en 20% (eða 28.500 krónur) hjá BSRB. I fyrravor voru meðaldag- vinnulaun 162.000 á mánuði hjá BHM og heildartekjurnar 236.000 kr. Hjá BSRB voru samsvarandi upphæðir annars vegar 115.000 krónur og 172.000 krónur. — HEI GSM í NauriMu Namibía verður frá og með föstudeginum 4. febrúar 61. landið, þar sem viðskiptavinir Símans GSM geta notað símann sinn. Síminn hefur gert reild- samning við Mobile Telecomm- unications Ltd. (MTC) í Namib- íu, sem veitir GSM-þjónustu víðp.um Jandið. Kerfi MTC nær m.a. til hafnarborganna Lúderitz, Swakopmund og Wal- vis Bay, þar sem umsvif íslend- inga eru talsverð, höfuðborgar- innar Windhoek og þjóðvegarins á milli höfuðstaðarins og Atl- antshafsstrandarinnar. Þetta er 130. vdrki reikisamn- ingur Símans GSM við erlent farsímafélag. Nýlega hafa orðið virkir samningar við Saudi Tel- ecom Companý í Saudi Arabíu, Globe lelecom á Filippsejjum og VIAG Interkom, sem veitir GSM-þjónustu á öllurn helstu þéttbýlissvæðum í Þýskalandi. I. ,:li‘l171''1 | mMri líiftúi BlaiúlUccll ILEIKFÉLAG AKIIRFYRARI Miðasala: 462-1400 ^LESSI I „Blessuö jólin“ - eftir Arnmund Backman. Leikarar: Aðalsteinn Bergdal, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Árni Tryggvason, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, María Pálsdóttir, Saga Jónsdóttir, Sunna Borg, Sigurður Karlsson, Snæbjörn Bergmann Bragason, Vilhjálmur Bergmann Bragason, Þórhallúr Guðmundsson, Þráinn Karlsson. Leikmynd og búningar: Hlín Gunnarsdóttir Ljósahönnun: Ingvar Björnsson Hljóðstjórn: Kristján Edelstein Leikstjóri: Hiín Agnarsdóttir NÆSTU SYNINGAR Laugardaginn 5. febrúar kl. 20.00 Næst síðasta sýning Föstudagurinn 11. febrúar kl. 20:00 Allra síðasta sýning GJAFAKORT - GJAFAKORT Einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir. Munið gjafakortin okkar ■ frábær tækifærisgjöf! ÍLil.ibjbiaugHftimLiiiutuul |lDlDlnHiiliJtöHniiibrilnlnl| ILEIKFÉLAG AKIIRFYRARÍ Miðasalan opin alla virka daga frá kl. 13:00-17:00 og fram að sýninqu, sýninqardaqa. Sími 462 1400. www.leikfelag.is

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.