Dagur - 03.02.2000, Blaðsíða 12

Dagur - 03.02.2000, Blaðsíða 12
12 - FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚA R 2 000 ERLENDAR FRÉTTIR Forseti Austur- ríMs hugsar sig um Wolfgang Schussel og Jörg Halder á bladamannafundl í gær. Forsetinn viH að þeir undirriti yfirlýsingu um trúnað við lýðræðið áður en af stjórnarmyndun getur orðið. ÍÞRÓTTIR j Ríkharður Daðason skoraði sigurmarkið gegn Finnum. Sigur á Fiimum ísraelsstjóm kallar heim sendiherra sinn frá Austurríki. Thomas Klestil, forseti Austur- ríkis, hefur tekið sér frest þang- að til í dag, fimmtudag, til þess að skýra frá því hvort hann fall- ist á stjórnarmyndun Þjóðar- flokksins og Frelsisflokksins. Aður en ákvörðun verður tekin vill hann þó að Jörg Haider, for- maður Frelsisflokksins og Wolf- gang Schiissel, formaður Þjóð- arflokksins, undirriti yfirlýsingu um „Grundvallarverðmæti evr- ópsks lýðræðis". Yfirlýsing sem þessi mun vera einsdæmi við stjórnarmyndun í Evrópu og þótt víðar væri leitað. Ljóst er því að forsetinn er tregur til þess að fallast á þátt- töku Frelsisflokksins í stjórn- inni, og hann hefur ekkert full- yrt um það hvort hann sættist á stjórnina þótt yfirlýsing verði undirrituð. Hann á þó erfitt um vik þar sem engin önnur lausn hefur fundist á stjórnarkreppu í kjölfar þingkosninga í haust. Haider og Schiissel gengu á fund forsetans í gær til þess að leggja fyrir hann hugmyndir sínar að nýrri ríkisstjórn. Forsetinn hefur sjálfur varað við því í fjölmiðlum að Austur- ríki gæti borið af því tjón á al- þjóðavettvangi ef stjórn yrði mynduð með aðild Frelsis- flokksins. Meðal annars hefur hann sagt að það orðalag sem Frelsisflokkurinn notar að jafnaði geri hann óhæfan til þess að gegna nokkru pólitísku embætti. Forsetinn segir enn- fremur að það væru mistök að líta á erlenda gagnrýni á Haider og Frelsisflokkinn sem rógsherferð eina. Haider hefur reyndar gagn- rýnt Kleistel vegna þessarar af- stöðu hans og fullyrðir að for- dæming erlendra ríkja á nýju samsteypustjórninni sé að ein- hverju leyti runnin undan rilj- um sjálfs forsetans, og sömu- leiðis kanslara landsins, Vikt- ors Klima. Engu að síður scgist Haider reikna með því að for- sctinn staðfesti nýju stjórnina. Jafnframt hefur Haider farið hörðum orðum um viðbrögð erlendra rfkja og sakað þau um ólýðræðisleg vinnubrögð í því sambandi. Israelsstjórn kallaði í gær heim sendiherra sinn frá Aust- urríki í mótmælaskyni við stjórnarmyndunina. Utanríkis- ráðherra Israels líkti þróuninni í Austurríki við plágu, sem væri að láta á sér kræla. Fjölmörg önnur ríki hafa gagnrýnt það að Frelsisflokkur- inn taki þátt í ríkisstjórn, en Haider hefur aflað sér athygli og vinsælda með glannalegum yfirlýsingum um nasismann og Hitlersþýskaland, þótt hann hafi heldur verið að skapa sér ábyrgari íniynd upp á síðkastið. Stefna flokksins gagnvart út- lendingum þykir jafnframt draga dám af nýnasisma. Fyrir þingkosningarnar í haust sagði l laider að fyrri yf- irlýsingar sínar hafi margar hverjar verið villandi og bað Gyðinga í Austurríki afsökunar á lofsorðum sínum um nasista- tímabilið. Hann tók það skýrt fram að hann væri fylgjandi lýðræðisskipulagi og hygðist fara í einu og öllu að leikregl- um Iýðræðisins. Fjórtán aðildarríki Evrópu- sambandsins, þ.e. öll aðildar- ríkin nema Austurríki, hafa hótað því að sniðganga Austur- ríki í samstarfi sínu komist Frelsisflokkurinn í stjórn. Framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins kom einnig sam- an af þessu tilefni og ætlar að fylgjast grannt með verkum nýju stjórnarinnar með tilliti til skuldbindinga aðildarrfkja sambandsins varðandi mann- réttindamál og lýðræði. íslenska karlalands- liðið í knattspymu byrjar velundir stjóm Atla Eðvalds- sonar, landsliðsþjálf- ara, og vann í gær 1-0 sigur á Finnum, eftir markalaust jafntefli gegn Norðmönnum á mánudaginn. Islenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu vann í gær sanngjarnan 1-0 sigur á Finnum í öðrum leik sínum á Norðurlandamótinu, sem þessa dagana fram fer á La Manga á Spáni. Ríkharður Daðason, leikmaður Vikings í Noregi skoraði sigurmarkið í leiknum í lok fyrri hálfleiks eftir harða hríð íslesnka liðsins að marki Finna. Helgi Kolviðsson komst upp að endamörkum, þar sem hann gaf boltann fyrir markið á Heiðar Helguson, sem náði góðu skoti, en markvörður Finna varði. Þaðan barst boltinn til Hermanns Hreiðarssonar sem gerði næstu tilraun. Enn vildi boltinn ekki inn og lenti nú á varnarmanni Finna og þaðan fyrir fætur Ríkharðs Daðasonar sem skoraði auðveldlega af stuttu færi. Fimm breytingar Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálf- ari, hafði gert fimm breytingar á liðinu frá því í leiknum gegn Norðmönnum á mánudaginn og komu þeir Bjarki Gunnlaugsson, Arnar Viðarsson, Þórður Guð- jónsson, Sverrir Sverrisson og Birkir Kristinsson, markvörður, nú inn í byrjunarliðið, sem auk þeirra var skipað þeim Her- manni Hreiðarssyni, Pétri Mar teinssyni, Rúnari Kristinssyni, Helga Kolviðssyni, Ríkharði Daðasyni og Heiðari Helgusyni. Við þreytingarnar varð sóknar- leikurinn mun beittari og allt annað að sjá til liðsins heldur en gegn Norðmönnum á mánudag- inn. Finnar byrjuðu leikinn þó mun betur og virtust ætla að klára dæmið strax í upphafi leiks, en þá tóku okkar strákar heldur betur við sér og tóku nú öll völd á vellinum og uppskáru sigurmarkið sem áður er lýst. Þórður óheppinn Finnar mættu ákveðnir til leiks í seinni hálfelik, en eins og í þeim fyrri datt botninn sniátt og smátt úr leik þeirra þegar leið á hálf- leikinn. Okkar menn komu þá grimmir inn í leikinn og voru óheppnir að bæta ekki við öðru marki, þegar Þórður Guðjónsson var nálægt því að skora eftir að hafa leikið á finnska markvörð- inn. En hann missti boltann of langt frá sér og finnsku vörninni tókst að hreinsa frá á síðustu stundu. Þegar langt var liðið á hálfleik- inn var Hauki Inga Guðnasyni skipt inná fyrir Ríkharð Daða- son, en Haukur var svo óhepp- inn að meiðast aðeins þremur mínútum síðar og varð þá að yfirgefa völlin eftir stutt gaman. Tryggvi Guðmundsson tók stöðu Hauks Inga í sókninni og skömmu síðar var Sigurði Erni Jónssyni skipt inná fyrir Bjarka Gunnlaugsson. Norðmeim uimu Daiii Norðmenn og Danir léku einnig á mótinu í gær og þar unnu Norðmenn 4-2 sigur, eftir að hafa fengið á sig mark strax á 28. sekúndu leiksins. Markið skor- aði Peter Lassen, eftir slæm varnarmistök Henning Berg, sem ætlaði að senda boltann til baka á Frode Olsen, markvörð. Berg bætti svo fyrir mistökin þegar hann jafnaði leikinn á 50. mínútu. Fimm mínútum síðar náði Andreas Lund svo 2-1 for- ystu fyrir Norðmenn sem þeir héldu þar til Sören Andersen jafnaði fyrir Dani í 2-2, þegar aðeins um tvær mínútur voru til leiksloka. Það nægði Norð- mönnum til að tryggja sér 4-2 sigur í leiknum, með sjálfmarki Danans Allan Olesen og öðru marki Andreas Lund á síðustu sekúndunum. Næsti leikur Islands er gegn Færeyingum á morgun. Úrslit leikja í gærkvöld Enski boltinn Bikarkeppnin: Leicester - Aston Villa 1 -0 Úrvalsdeildin: Sheff. Wed. - Man. United 0-1 Handbolti Úrvalsdeild karla: ÍBV - FH 26-24 Úrvalsdeild kvenna: Fram - Afturelding 42-1 5 ÍR-Valur 18-27 Grótta/KR-FH 19-24 Stjarnan - Haukar 23-20 Vikingur - ÍBV 15-19 HEIMURINN Grosní virðist fallin RÚSSLAND - Rússneski herinn reiknar með því að vera fljótlega búinn að ná Grosní, höfuðborg Téténíu, á sitt vald. Téténsku skæruliðarnir sögðust hafa yfirgefið borgina á þriðjudag, en svo virðist sem einhverjir bardagar hafi áfram átt sér stað. Skærulið- arnir virðast hafa orðið fyrir miklu manntjóni. Basajev, einn helsti foringi þeirra, virðist hafa slasast á fæti, en misjöfnum sögum fer af því hversu alvarleg þau meiðsli eru. Orörómnr um valda- rán í Indónesíu INDÓNESÍA - Miklar sögur ganga um það í Indónesíu að herinn sé að undirbúa valdarán. Undir þessar sög- ur hefur ýtt að Wiranto, fyrrverandi hershöfðingi og núverandi ráðherra, neitaði að verða við beiðni Abdurra- hmans Wahids forseta um að segja af sér. Wahid fór fram á það við Wiranto að hann segði af sér í kjölfar þess að skýrsla um mannréttindabrot á Aust- ur-Tímor kom út, en þar er Wiranto bendlaður við vígasveitirnar sem fóru um með ofbeldi á eyjunni í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði. Wiranto fyrrverandi hers- höfðingi. Barak og Arafat hittast í dag ISRAEL - Ehud Barak forseti Israels og Jasser Arafat leiðtogi Palestfnumanna hittust í gær til þess að ræða deilumál sín. Rík- isstjórn ísraels gekk í gær frá áætlun um afhendingu 6,1% af landsvæði Vesturbakkans í viðbót, en Arafat og aðrir leiðtogar Palestfnumanna þurfa fyrst að gefa samþykki sitt áður en lengra verður haldið. Stúdentaóeirðir í Mexíkó MEXÍKÓ - Óeirðir brutust út í Mexíkóborg í gær í tengslum við verkfall stúdenta í stærsta háskóla landsins. Stjórnvöld segja að tugir manns hafí særst í átökunum og hátt á þriðja hundrað manns verið handtekinn. 400 manna lögreglulið var sent til þess að stilla til friðar, en til átakanna kom milli tveggja hópa stúdenta. Verkfall stúdenta hefur nú staðið í fjóra mánuði. Atökin í gær urðu milli hóps stúdenta, sem vildi snúa sér á ný að lærdóminum og annarra sem vildu halda áfram verkfalli.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.