Dagur - 03.02.2000, Page 6
6 -MIÐVIKUDAGUR 3. F E B R Ú A R 2000
ÞJÓÐMÁL
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu 31, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVlK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo og 800 7080
Netfang ritstjórnar: ntstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 KR. A mánuði
Lausasöluverð: iso kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Netföng auglýsingadeildar: greta@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is
Símar auglýsingadeildar: (reykjav(k)563-i6is Ámundi Amundason
(REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYR 1)460-6192 Karen Grétarsdóttir.
Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Simbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyri) 551 6270 (REYkjav(K)
Þrjú þúsund milljómr
í fyrsta lagi
Sala Þorsteins Vilhelmssonar á hlutabréfum sínum í Samheija
mun vafalaust magna enn frekar umræðuna um það mikla
óréttlæti sem í því felst að tiltölulega fáir einstaklingar og fjöl-
skyldur þeirra geti stórlega auðgast persónulega á sameigin-
legri auðlind þjóðarinnar. Enda er þárhæðin risavaxin - meira
en þrjú þúsund milljónir íslenskra króna fengust fyrir hluta-
bréfin. Hætt er við að eitthvað af því mikla íjármagni fari út úr
sjávarútveginum, eins og mörg dæmi eru um hin síðari ár.
1 öðru lagi
Enginn efast um að Þorsteinn Vilhelmsson og fyrrverandi fé-
lagar hans í Samherja eru dugmiklir menn sem hafa byggt upp
og rekið fyrirtækið af mildum krafti og kunnáttu. Fyrir það
eiga þeir hrós skilið og ber auðvitað að hafa af því fjárhagsleg-
an ávinning. En forsendan fyrir öllu saman hjá þeim eins og
öðrum eigendum útgerðarfyrirtækja er sú staðreynd, að þeir
hafa fengið aðgang umfram aðra landsmenn að fiskinum í
sjónum, sem á þó að vera sameiginleg eign þjóðarinnar. A
grundvelli þessara forréttindi hafa ýmsir eigendur útgerðarfyr-
irtækja verið að selja hlutabréf sín og hirða stórkostlega fjár-
muni.
í þriðjalagi
Eins og stjórnmálaástandið í landinu er um þessar mundir
virðast litlar líkur á að hömlur verði settar á auðsöfnum útval-
inna einstaklinga vegna slíkra forréttinda - nema því aðeins að
æðsti dómstóll landsins lýsi núverandi skipan mála andstæða
stjórnarskrá lýðveldisins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið af
fullum þunga gegn öllum breytingum á sægreifakerfinu, og
þótt forystumenn Framsóknarflokksins hafi opnað á þann
möguleika að gera þurfi einhverjar breytingar í réttlætisátt, er
þess vart að vænta að sjálfstæðismenn fallist á það. Eins og í
svo mörgum öðrum réttlætismálum á Islandi hin síðari ár
verður þjóðin því að binda vonir um úrbætur við á þá einstak-
linga sem eru reiðubúnir að sækja rétt sinn fyrir dómstólum.
Elias Snæland Jónsson
S amiylkinguimi
í fyrrakvöld sat Garri einmitt
fyrir framan sjónvarpið sitt og
hlutstaði á þingflokksfor-
menn ræða um þingstörfin. I
þann hóp vantaði raunar, eins
og svo oft áður fulltrúa Frjáls-
lyndra og fulltrúa Framsókn-
arflokksins. Það kom þó ekki
að sök því fulltrúar vinstri-
manna, Rannveig Guðmunds
og Ommi kommi voru í ess-
inu sínu og það sama má
segja um Sigríðu Onnu, sjálf-
stæðiskonuna með taglið. Að
sjálfsögðu fór þetta út í
hálfgert stagl hjá þeim
eins og jafnan, en þó
verður að segja eins og
er að umræðan var þó
á köflum óvengju mál-
efna- og skemmtileg.
Móðganir
Þannig var t.d. löng
samræða milli þeirra
Rannveigar og Ög-
mundar um það hvort Vinstri-
menn væru með eða á móti
velferðarkerfinu, en Rannveig
hafði þá áður leyft sér að
segja eitthvað á þá Ieið að sér-
staða Samfylkingarinnar
fælist m.a. í því að vilja end-
urreisa velferðarkerfið. Ög-
mundur var auðvitað hund-
fúll yfir þessu svo Rannveig
dró í land. En þar með var
tónninn gefinn í móðgunum.
Sjálfstæðiskonan með taglið
sá í hendi sér að þarna hafði
Rannveig hitt á rétta tóninn
með því að móðga Ögmund,
en draga síðan aðeins í land.
Svo Sigríður Anna ákvað að
láta Rannveigu sjálfa fá það
óþvegið, en draga ekkert í
land. Sem móðgunarefndi
varð fyrir valinu hin mikla
ásókn í formannsembætti
Samfylkingarinnar, en sem
V
kunnugt er hafa næstum allir
sem kusu Samfylkinguna í
síðustu kosningum verið orð-
aðir við formannsframboð
þar, og í þessa staðreynd sótti
formaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins vopn sín.
Sótraftamir
Sigríður Anna baunaði því
nefnilega á Rannveigu það
væri heldur ótrúverðugt hve
margir vildu verða formenn.
En orðalagið hennar
óvenju beinskeitt og
til marks um hversu
litla viðrðingu sjálf-
stæðismenn bera fyrir
pólitískum andstæð-
ingum sínum. Sigríð-
ur Anna sagði að sér
virtist sem „allir
sótraftar væru á ílot
dregnir“ í þessum for-
mannsslag. Það er
orðið langt um liðið
sfðan palladómar þingmanna
um aðra þingmenn hafa verið
svo hvassir og ódulbúnir. Sig-
ríður var auðvitað að segja álit
sitt á þeim sem hvað oftast
hafa verið nefndir í þessu
sambandi, mönnum eins og
Össuri, Jóhönnu, Guðmundi
Árna, Margréti Frímansdótt-
ur og raunar meirihluta þing-
flokksins. Vandséð er hvernig
hægt verður í framtíðinni að
kalla forustusveit Samfylking-
arinnar annað en „sótarana“
eftir þessar yfirlýsingar, enda
greinilegt á orðum Sigríðar að
þar eru saman komnir svörtu
sauðirnir á Alþingi. Slíkur er
dómur þeirra sem hafa taglið
og hagldirnar í þingflokki
sjálfstæðismanna.
GARRi
Sigríður Anrta:
Sótraftar á flot
dregnir!
JÓHAIVNES
SIGURJÓNS-
SON
skrifar
Þeir ku ætla að fara að byggja
sjoppu suður 1' Kópavogi. Þar
verður víst þokkalega vítt til
veggja því verslunarrými verður
Iitlir sextíu þúsund fermetrar.
Sem þýðir auðvitað að flæmi úr-
vals gróðurlendis lendir undir
steinsteypu og malbik og verður
ekki endurheimt í náinni fram-
tíð. Þessi náttúruspjöll jafnast ef
til vill ekki alveg á við byggingu
sundpollsins á Eyjabökkum, en
ættu alltént að vera næg til að
reka náttúrverndarmenn á höf-
uðborgarsvæðinu í kröfuspjalda-
málun og mótmælagöngur. Þess-
ar byggingaframkvæmdir eru alla
vega ekki liður í grænu bylting-
unni, svo mikið er víst. Smára-
lind mun musterið heita. Og gef-
ur ýmsa auglýsingamöguleika þá
risið er.
„Þú sæla heimsins Smáralind“,
á þannig örugglega eftir að bylja
milljón sinnum á fagnandi eyr-
um landsmanna í fagurri fram-
tíð.
:tt>,
Þú sæla heimsins
Smáralind!
Stór-Kópavogssvæðið
Talsmenn sjoppunnar telja að
með byggingu hennar séu þeir
að þjóna brýnustu þörfum lands-
manna, eða að minnsta kosti
íbúa stór-Kópavogssvæðisins.
Það byggja þeir
meðal annars á því
að: „í löndum allt 1'
kringum okkur og
víðar er verulegur
þrýstingur og eftir-
spurn í svona hús“,
eins og einn þeirra
sagði í Degi í gær.
Þeir vilja reyndar
minna tjá sig um það hvort þrýst-
ingur og eftirspurn eftir svona
sjoppu sé verulegur á íslandi.
Óg þeir slá úr og í þegar rætt er
um hugsanlegt offramboð á
verslunarplássi á svæðinu. En á
sama hátt og kristnir tauta æfin-
lega: „Vegir guðs eru órannsak-
anlegir," þegar þeir eru reknir á
gat í guðfræðinni, þá svara
Smáralindar-postularnir: „Mark-
jriritAi- WirllM’W. ’W.
aðurinn er æðsti dómarinn í
þeim efnurn", aðspurðir um of-
framboð og umframþörf í versl-
unarrými á höfðuborgarsvæðinu.
Heittrúaðir eru allir af sama
sauðarhúsi, hver svo sem trúar-
brögðin eru.
Sexmilljarða
sjoppa
En hér hangir ýmis-
legt fleira á spýt-
unni. Aðspurður
um forsendur fyrir
því að byggja sjoppu
fyrir sex milljarða í
Kópavogi, tiltók talsmaðurinn
reyndar nokkur atriði, m.a.
íbúaþróun. Og þar liggur náttúr-
lega landsbyggðarhundurinn
grafinn. Þessi framkvæmd bygg-
ir örugglega ekki síst á spádóm-
um um þróun þjóðflutninga frá
landsbyggöinni og suður á
næstu árum. Það er nefnilega
brýnt hagsmunamál verslunar-
risa Iandsins að flóttamanna-
WWJlíJJfcWto/itó.iM
straumurinn suður verði sem
stríðastur í framtíðinni. Það
verður því við ramman reip að
draga fyrir ríki og sveitarfélög að
ætla að snúa þróuninni við. Því
hverjir ráða í þessu landi, ef ekki
þeir sem aurana eiga? Þetta
byggir sem sé allt á nokkuð
traustum grunni og strfður
straumur gulls á örugglega eftir
að renna í Smáralindina með tíð
og tíma, í réttu hlutfalli við
flóttamannastrauminn í dýrðina
fyrir sunnan. Enda eins og tals-
maður hinnar sælu heimsins
sjoppulindar segir í Degi: „Allar
rannsóknir og upplýsingar er-
lendis frá benda ótvírætt til þess
að með auknum frítíma og hærri
lífaldri, þá sæki almenningur sí-
fellt meira í svona verslunarhús".
Vér óskum í auðmýkt almenn-
ingi lengri vinnutíma og styttri
ævi, ef svo er komiö fyrir ís-
lenskri þjóð að sjoppurölt er orð-
ið að hennar helsta takmarki og
svaraið
Fara borgaryfirvöld í
Reykjavíh offari gegn
köttum?
Hlldur Helga Sigurðardóttir
sjónvarpskona.
„Ég hef átt
margar góðar
kisur um
dagana og
vona því að
vel og mann-
úðlega verði
að þessu
átaki staðið.
Þó að ég sé
oft tortyggin á yfirvöld finnst mér
afar ólíklegt að borgaryfirvöld
hafi sest niður og skipulagt ein-
hverskonar helför gegn einni
dýrategund, af hreinni mann-
vonsku, einsog sumir vilja vera
láta. Hinsvegar finnst mér skrýtin
„dýravinátta" felast í því að vilja
að glorsoltnir og grimmir villi-
kettir vafri um borgina í vetrar-
kuldanum.“
Kjartan Magnússon
borgaijuUtníi.
„Það er ekk-
ert að því að
fækka flæk-
ingsköttum í
borginni en í
þessu sem
öðru verður
yfirvaldið að
gæta mildi
og hófsemi
svo heimiliskettir verði ekki af-
lífaðir í misgripum. Ekki er nóg
með að of margir kettir séu á
kreiki í borginni að mati borgar-
stjórans. Nú er hún einnig húin
að finna út að það sé of mikið líf
í Miðbænum og vill því fækka
fólki þar með því að margfalda
stöðugjöld og sektir."
Stefán Ásgrímsson
biaðamadur.
„Út af fyrir
sig er í lagi
að það gildi
einhverjar
reglur um
kattahald,
ekki síður en
hundahald.
En að fara út
í einhverjar
kattaveiðar í anda Hitlers, og það
meira að segja í skítakulda febrú-
ar, er brútalt. En í ljósi reynsl-
unnar verður varla tauti komandi
við borgaryfirvöld í þessu máli -
frekar en ýmissi annarri dellu sem
þau hafa unnið í nú seinni árin.“
Jóhanna Harðardóttir
hundadeigandi.
„Kattaeig-
endur eiga
að gæta
sinna katta
og bera
ábyrgð á
þeim, rétt
einsog við
hundaeig-
endur ger-
um. Sjálf á ég kött, sem er eyrna-
merktur - þannig að ef kötturinn
týndist væri hægt að hafa sam-
band við mig og ég kæmi og sækti
hann. Nauðsynlegt er að fólk hafi
kannski þriggja daga frest til að
vítja um ómerkta ketti sína sem
veiddir eru í gildru, - en megin-
málið er að hafa verður einhvern
hemil á kattahaldi í borginni."
<()U sftfti ii ‘mtHHAd- -ÚöbWnhÞw'yi