Dagur - 12.02.2000, Síða 1
Tveir sagðir til
í formaimsslag
SamstarCsmeim þeir-
ra Guðmundar Ama
Stefánssonar og Öss-
urar Skarhéðiussonar
segja þá vera ákveðna
að fara í formanns-
slaginn hjá Samfylk-
ingunni. Ásta Ragn-
heiður og Bryndís
Hlöðversdóttir háðar
volgar í varafor-
mannsslag gegn Mar-
gréti Frímannsdóttur.
„Eg held mínu striki alveg óháð
þessari yfirlýsingu Margrétar Frí-
mannsdóttur," sagði Bryndís
Fllöðversdóttir alþingismaður,
sem ásamt Astu Ragnheiði Jó-
hannesdóttur hefur verið orðuð
við varaformennsku í Samfylking-
unni. Ásta Ragnheiður sagði: „Ég
hef sagt það áður að ég hafi
áhuga á varaformannssætinu.
Þessi yfirlýsing breytir engur
varðandi mínar fyrirætlanir en ég
vil taka fram að ég hef enga
ákvörðun tekið ennþá um hvað ég
geri.“
Margrét Frímannsdóttir hefur
lýst því yfir að hún gefi ekki kost
á sér til for-
mennsku hjá
Samfylkingunni
en að hún gefi
kost á sér sem
varaformaður
flokksins. ffún
segir varafor-
manninn hafa
það hlutverk að
sinna innra
starfi flokksins.
Ffún hafi meiri og betri tengsl við
fólk um allt land en flestir aðrir í
samtökunum og því hafi hún
áhuga á varaformennskunni.
Það má þvf allt eins gera ráð
fyrir all snörpum varaformanns-
slag á stofnfundi Samfylkingar-
innar ef svo fer sem horfir.
Sjóðheitir kandidatar
Ossur Skarphéðinsson sagðist
skilja vel ákvörðun Margrétar.
Fíún hefði staðið vaktina vel og
sem varaformaður ættu hennar
starfskraftar eftir að vera flokkn-
um mikilvægir nái hún kjöri.
Hann sagðist myndi taka endan-
lega ákvörðun um hvort hann
gefi kost á sér í formennskuna á
næstu dögum.
Ossur hefur
sagt að hann
færi ekki fram
gegn Margréti
Frímannsdótt-
ur. Nú er gatan
greið fyrir hann
og þótt hann
segist ekki hafa
tekið ákvörðun
ganga allir nán-
ustu samstarfsmenn hans og vin-
ir út frá því að hann gefi kost á
sér.
Guðmundur Árni Stefánsson,
sem talið er að keppa muni um
formannssætið, sagði að þessi
ákvörðun Margrétar kæmi sér
dálítið á óvart en það breytti
engu varðandi sínar áætlanir.
Hann vildi ekki staðfesta að
hann væri búinn að taka ákvörð-
un um að gefa kost á sér til for-
mennsku. Samkvæmt heimild-
um frá einum af nánustu stuðn-
ingsmönnum Guðmundar Árna
hefur hann þegar tekið ákvörðun
um að gefa kost á sér. Hann bíði
bara eftir því sem hann telur
vera rétta augnablikið að til-
kynna það opinberlega.
Halda sínu striM
Bryndís Hlöðversdóttir segist
enga ákvörðun hafa tekið um að
gefa kost á sér sem varaformaður.
„Ég hef sagt, og stend við það,
að ég hef áhuga á að starfa í
framvarðasveit flokksins en sú
framvarðasveit er nokkuð breið.
Áður en ég tek ákvörðun um
hvort ég gef kost á mér til vara-
formennsku vil ég sjá hvernig
sjálft formannskjörið fer,“ sagði
Bryndís.
„Ákvörðun Margrétar kemur
mér á óvart en hún breytir í
sjálfu sér engu fyrir mig. Ég hef
áhuga á varaformennskunni. Ég
veit að starfið útheimtir mikla
vinnu við innra starf flokksins og
hef áhuga á að sinna því. Því fer
fjarri að ég vísi því frá mér vegna
þessarar yfirlýsingar," sagði Ásta
Ragnheiður. - S.DÓR
Árni Mathiesen yfirgefur
fundarstað.
Raukádyr
Fundur sem Markaðs- og at-
vinnumálanefnd Reykjanesbæj-
ar efndi til í Svartsengi í gær-
morgun um tvöföldun Reykja-
nesbrautarinnar varð sögulegur
fyrir þær sakir að Árni
Mathiesen, starfandi sam-
gönguráðherra og þingmaður
kjördæmisins, rauk á dyr í fússi.
- Sjá ítarlega umfjöllun á hls.
8-9.
í tilefni af menningarborgarárinu héldu nemendur og kennarar Rimaskóla menningardag hátíðlegan í skólanum í
gær og opnuðu dyrnar upp á gátt. Sýnd voru listaverk nemenda sem unnin höfðu verið á þemadögum í skóian-
um, leikrit flutt, stiginn dans og kór Rimaskóla söng. Einnig var sett upp kaffihús og boðið upp á dýrindis veiting-
ar. Þessir tveir piitar sem kljást við eldspúandi dreka skemmtu sér konunglega.
Sjiikilommíiin »:r
eins ui| f.ilimi eliitir
Baráttan
vlð krabba-
ineiii
Lítið hefur borið á Árna Ragnari
Árnasyni á þingi síðustu misseri
enda kannski eðlilegt, hann hef-
ur þurft að kljást tvisvar sinnum
við krabbamein frá árinu 1995.
Rannsóknir sýna að batahorfur
hans eru góðar. I helgarviðtaii
Dags fjaliar hann um um sjúk-
dóminn og pólitíkina.
Grimmasti og jafnframt hatað-
asti gagnrýnandi landsins og
einn dáðasti leikstjórinn eru
gengin f eina sæng, leiklistinni
til eflingar. Þau standa saman að
forskóla fyrir leikara og áhuga-
menn um leiklist framtíðarinnar.
Helgarblað Dags ræðir við þau
um leiklistina og gagnrýnina.
Nú eru flestir komnir með
GSM síma og vinsælaslir eru
þeir hjá unglingunum. Helgar-
blað Dags hitti hressa krakka í
Olduselsskóla og spjallaði við þá
um gemsana.
„Upphefðin
kemur að inn-
an,“ segir Einar
Már Guð-
mundsson, en
hann var ný-
lega verðlaun-
aður á kvik-
myndahátíðinni
í Gautaborg fyr-
ir handrit sitt
að Englum alheimsins sem Frið-
rik Þór Friðriksson kvikmyndaði.
I viðtali við helgarblað Dags ræð-
ir Einar Már um skáldskap og
ritstörf.
Og svo er það allt hitt efnið:
helgarpotturinn, maður vikunn-
ar, bókahillan, bíórýnin, matar-
gatið, kynlífið, líf og stíll, flugu-
veiðar, sönn dómsmál, land og
þjóð og margt margt fleira.
Góða helgi!
74.900,-
My
RdDIONAUST
Glerárgötu 32 • Akureyri • Sími: 462 3626
skrifstofu- og heimílísfaxtækí
Leitið nánciri upplýsinga hjá sölumönnum okkar