Dagur - 12.02.2000, Blaðsíða 4
4 — LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
D^wr
i
i
!
r
FRÉTTIR
Þúsundir hektara lands hafa gróið upp, rofabörð lokast og i kjölfarið hefur beitarþol jarða aukist.
Þúsimdir hektara
verið græddir upp
Bæði Landgræðslau og
himdruð bænda eru
áuægðir með samvinim
verkefnið Bændur græða
laudið.
Nær 500 bændur, fleiri en nokkru
sinni áður, tóku þátt í samvinnuverk-
efni bænda og Landgræðslunnar,
Bændur græða landið, og síðasta ári
1999 og var sáð um 940 tonnum af
áburði og rúmlega 1 5 tonnum af gras-
fræi. Það svarar til sáningar í 400 ha.
og að 4.600 ha. hafi verið styrktir með
áburðargjöf á þessu tíunda ári verkefn-
isins. „Hver sá sem ferðast um og er
læs á landið ætti að sjá árangur þessa
mikla starfs. Þúsundir hektara lands
hafa gróið upp, rofabörð lokast og í
kjölfarið hefur beitarþol jarða aukist,"
sagði Guðrún Schmidt fulltrúi Land-
græðslunnar á ráðunautafundi Bænda-
samtakanna sem haldinn var nú í vik-
voru mjög eða frekar ánægðir með
verkefnið og enginn óánægður. Af
svarmöguleikum af hverju þeir tækju
þátt í verkefninu sögðu 26% það vera
til að bæta ásýnd sveita Iandsins, 25%
vegna umhverfissjónarmiða og 24%
eru í þessu verkefni til að skila Iandinu
í betra ástandi til næstu kynslóðar. En
aðeins 7%; vegna fjárhagslegs ávinn-
ings, álíka margir sögðu þetta vera til
að bæta ímynd bænda - en enginn
sagðist standa í þessu verkefni vegna
félagslegs þrýstings.
Athygli vakti að tveir þriðju hlutar
landgræðslubændanna ólust upp á
jörðinni sem þeir búa á og alls 90% í
sveit. Nær 60% þeirra stunda sauðfjár-
rækt og 30% framleiða mjólk. Flest
verkefnin eru í Suður-Þingeyjarsýslu,
Skagafirði og Vestur-Skaftafellssýslu.
Bændurnir eru flestir að græða upp
mela og rofabörð, en flagmóar, sandar,
moldir, aurar og slcriður eru líka algeng
uppgræðslusvæði. Þeir vilja helst fá
meiri fræðslu og leiðbeiningar af hálfu
Landgræðslunnar.
Til að bæta ásýnd landsins
Skoðanakönnun meðal landgræðslu-
bænda sem Guðrún Schmidt sagði frá
á fundinum leiddi í ljós að 95% þeirra
Ruddinn og moðið gulls í gildi
Um 90% stunduðu uppgræðslu á jörð
sinni áður en þeir byrjuðu í þessu
Iandgræsðluverkefni, einkum með því
að bera gamalt hey og moð í rofsár og
dreifa búíjáráburði. Enda töldu flestir
þeirra jarðvegseyðingu mikið vandamál
á Islandi. MikiII meirihluti bændanna
notar áfram þessar aðferðir og fleiri,
meðal annars að stinga niður rofabörð
og sá lúpínu, til viðbótar tilbúna
áburðinum frá Landgræðslunni - en án
hans gætu þeir minna gert.
Landgræðslan telur að vegna mót-
framlaga bænda, sem áburður, vinna,
tæki, þekking og fleira, skili verkefnið
margföldum árangri miðað við það sem
hún gæti framkvæmt á beinan hátt
með sama fjármagni. Guðrún Schmidt
segir niðurstöður könnunarinnar
benda til að mikilvægt sé að stórefla
þetta samstarf. Stundum bæri við að
litið sé á bændur sem blóraböggla af
jarðvegs- og gróðureyðingarvandamál-
inu. Nauðsynlegt sé hins vegar að litið
sé á þátttöku þeirra sem hluta af lausn
á eyðingarvandanum og ölluga sam-
herja í endurheimt landkosta. - Síð-
ustu árin hefur Landgræðslan stefnt
að því að flytja meira af verkefnum
heim í héruð, meðal annars með því að
ráða bændur sem verktaka til að dreifa
áburði og grasfræi innan landgræðslu-
girðinga. - HEI
Það hefur vakið athygli menn-
ingarvitanna í heita pottinum
að Páll Valsson, sem í vikmrni
fékk hin íslensku bókmeimta-
verðlaun, naut engra opinberra
styrkja við það að skrifa ævi-
sögu Jónasar Hallgrímssonar.
Sem kmmugt er þykir bók Páls
inikiö stórvirki og því áttu menn
almennt von á þvl að vinnan við hana hefði hlot-
ið náð fyrir augum skömmtunarstjóra menning-
arstyrkja. Svo var ekki. Umsóknum um slíkt var
hafnað á sama tíma og aðrir hafa notið allt að
3ja ára launa fyrir sambærileg verk svo ekki sé
talað um þá sem styrktir eru til minni verka...
Útganga Árna Mathiesen af
fundi í Svartsengi í gær vakti að
vonuin athygli í pottinum. Árni
sem alla jafna er bara sjávarút
vegsráðherra er nú í fjarvem
Sturlu Böðvarssonar líka tíma-
bundiim samgönguráðherra og í
pottinum hafa ineiin bætt við
þriðja embættinu, sem er starf-
andi útgönguráðherra...
Framganga Áma Jolinsen í mál-
efnum Rafmagnsveitu ríkisins á
Alþingi í vikunni hefur valdð
miJda athygli, enda ekki vana-
legt að stjómarþingmaður hjóli
í ráðherra samstarfsflokks Iíkt
og Ámi gerði í Valgerði Sverris-
dóttur. í pottinum skýra menn
málið þannig að þegar málið
komst í fjölmiðla var ekki búið aö upplýsa nema
hluta stjómarmanna um málið, og var Ámi einn
þeirra stjómarmanna Rarik sem ekki vissi af
þvi. Fullyrt er að honum hafi ekki þótt það
viðrðingu sinni samboðið og þvi bmgðist illa
við...
V
Árni
Johnsen.
Árni
Mathiesen.
Páll
Valsson.
FRÉTTAVIÐTALID
Friðrik M.
Hamldsson
leiðsögutridður.
Ríflega 100 leiðsögumenn
hafa fetað ífótspor lækna,
listamanna og arkitékta og
skorað á Norsk Hydro og norsk
stjómvöld að hætta við þátt-
töku í álveri á Reyðarfirðifyrst
ekkifarifram lögformlegt
umhveifismat.
Uggandi um hag ferðaþjónustu
- Hvað kemur til að þið sendið þetta bréf
frá ykkur?
„Við fundum okkur knúin til að koma
þessum boðskap á framfæri þar sem við höf-
um áhyggjur af þessum stórvirkjana- og ál-
versframkvæmdum. Við finnum fyrir
áhyggjum okkar viðskiptavina, sem eru
ferðamenn, og ekki síst hjá erlendum ferða-
mönnum sem undrast það að við skulum
fórna einstökum náttúruverðmætum á Eyja-
bökkum, sem eru stærsta ósnortna víðerni í
Vestur-Evrópu. Flestum okkar, sem sendum
bréfið, finnst líka nóg komið það sem er ver-
ið að gera á fleiri svæðum sem lögð eru und-
ir vatn, og nefni ég þá Sprengisand, Þjórsár-
ver og Kvíslárveitur. Okkur ofbýður að allt
land sé Iagt undir, þegar ekki er þörf á því og
ekkert er hlustað á tillögur um aðrar lausn-
ir.“
- Þið eruð semsagt uggandi um hagferða-
þjónustunnar?
„Já, það er okkar aðaláhyggjuefni."
- Eru ferðamenn mikið að spyrja ykkur
út í þessi áform stjórnvalda og lýsa yfir
áhyggjum sínum?
,,Viðbrögðin sem við fáum, sem flækjumst
sem mest um landið dg'Upp á hálendið, eru
eindregin í þá átt að við megum til með að
varðveita hlutina án þess að mannshöndin
komi of mikið nærri. Náttúran dregur fjöld-
ann allan af fólki hingað til landsins, án
þess að ég sé að segja að allir útlendingar
séu svona þenkjandi. En bæði ferðaskrif-
stofur erlendis, og einstaklingar þrá það að
komast út í óbyggða náttúru. Þetta fólk býr
ekki við þessar aðstæður, verandi í stórborg-
um og á afar þéttbýlum svæðum."
- Reikniði með að Norðmenn hlusti á
ykkar raddir?
„Við vitum það í raun og veru ekki. Við
dreifðum þessu vítt og breitt til ráðamanna
í Noregi. Eftir því sem fleiri standa að svona
erindum vonum við að þeir líti betur á mál-
ið. Ekkert af þessu tagi hafði verið sent héð-
an frá Islandi frá því um áramót þannig að
okkur fannst kominn tími til að eitthvað
gerðist. Við viljum sýna að hér sé ekki öll
andstaða dauð og við séum hætt að blása.“
- Er þetta bréf sent með vitund og vilja
stjómar Félags leiðsögumanna?
„Félagið sjálft stendur ekki að þessu og
það er eðlilegt að svo sé. Þetta er stéttarfé-
lag sem er ekki endilega að berjast á þessum-
vettvangi heldur fyrir'ókkaé kjöíDfH'ög'féft'-
indum. Það eru einstaldingar innan félags-
ins sem standa að þessu. Eg geri ráð fyrir að
hugur stjórnarmanna félagsins sé misjafn
eins og alls staðar annars staðar. Við gerum
ekki kröfu um að félagið gefi út svona yfir-
lýsingu sem okkar heildarsamtök."
- Þetta erfólk á öllum aldri, sumir á ní-
ræðisaldri, og aföllu landinu?
„Já, já, þetta er breiður og góður hópur.
Það er nefnilega merkilegt hvað það er gott
úthald hjá leiðsögumönnum. Þetta er fólk
úr öllum stéttum. Við segjum að þetta séu
100 leiðsögumenn en við fengum 120 nöfn
á listann, sem fylgdi bréfinu. Síðan má
benda á það að Vigdís Finnbogadóttir, fýrr-
um forseti, er heiðursfélagi okkar leiðsögu-
manna. Hún stendur áreiðanlega með okk-
ur í hjarta sínu en það er kannski ekki víst
að hún hefði viljað leggja nafn sitt við Iist-
ann.“
- Er þér kunnugt um fleiri starfshópa
sem eru kantiski að thuga að gera það
sama og þið?
„Miðað við það sem maður hefur heyrt frá
öðru fólki í greininni, s.s. starfsfólki á ferða-
skrifstofum og bílstjórum; þáveru margir á
’MÍöifiú 'línu og við.“ - 6jfe
I,