Dagur - 12.02.2000, Blaðsíða 12
12- LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
Njarðvík í toppsætið
Grindvíkingar misstu í fyrrakvöld
toppsætið í úrvalsdeild karla í
körfuknattleik, þegar þeir töpuðu
með 11 stiga mun, 71-60, gegn
Haukum í Hafnarfirði. A sama
tíma unnu Njarðvíkingar 22ja
stiga sigur, 77-99, á Snæfelli í
Stykkishólmi og komust þar með í
toppsæti deildarinnar með 24 stig,
eða jafnmörg og Grindvíkingar, en
eiga leik gegn KR-ingum til góða.
Með sigrinum á Grindvíkingum
komust Haukar í þriðja sæti deild-
arinnar með 24 stig, eða jafnmörg
og Tindastóll sem er í fjórða sæt-
inu eftir 19 stiga heimasigur, 81-
60, á Skallagrími í fyrrakvöld. KR-
ingar sem á sama tíma unnu 8
stiga heimasigur á Þór, 79-71, eru
f fimmta sæti deildarinnar með 22 stig og eiga eins og áður sagði eft-
ir að leika gegn Njarðvíkingum. Keflvíkingar eru í sjötta sæti deildar-
innar með 16 stig, eftir eins stigs sigur, 87-88, á Hömrunum í Hvera-
gerði, sem eru í sjöunda sætinu með jafnmörg stig og Keflvíkingar. A
eftir Isfirðingum, sem eru í áttunda sætinu með 12 stig og eiga einn
leik til góða gegn botnliði IA, er Skallagrímur með jafnmörg stig í ní-
unda sætinu og síðan Snæfell og Þór í tíunda og ellefta sæti með 10
stig. Skagamenn eru svo á botninum sem áður með aðeins tvö stig.
KR-ingar unnu nauman sigur gegn
Þórsurum í vikunni. Þeir mæta
Njarðvíkingum í toppslagi deild-
arinnar innan tíðar í frestuðum
leik.
Hamakova á Stórmót ÍR
Pavla Hamakova frá Tékklandi, sem hefur náð þriðja besta heimsár-
angri í stangarstökki kvenna í vetur, hefur þegið boð IR-inga um að
taka þátt í Stórmóti IR sem fer fram í LaugardalshöII 5. mars n.k.
Pavla, sem náði best 4,35 m innanhúss í fyrravetur, stökk 4,43 m á
móti í Wuppertal í Þýskalandi í byrjun febrúar og hefur þar með
sannað sig sem einn af bestu stangarstökkvurum kvenna í heiminum.
Þetta eru góðar fréttir fyrir Völu Flosadóttir, sem fær þá örugglega
verðuga keppni á mótinu, en Pavla sem er jafn gömul Völu, vann
hana á móti fyrr í vetur, þegar þær stukku báðar sömu hæð, en Pavla
í færri tilraunum. Pavla er önnur stórstjarnan sem hefur ákveðið að
taka þátt í Stórmóti IR, en áður hefur Svíinn Kristjan Olsson, Evr-
ópumeistari unglinga í hástökki þegið boð IR-inga, auk þess sem
Tomas Dvorak, heimsmethafi og tvöfaldur heimsmeistari í tugþraut
hefur sýnt því mikinn áhuga.
Fýlupúkar í fremstu víglínu
Andy Cole, framherji Manchester
United, upplýsti í gær að meira en
tveggja ára þögn milli hans og
Teddy Sheringham muni ekki
koma niður á samvinnu þeirra, ef
þeim verður stillt upp í fremstu víg-
línu þegar United sækir Newcatle
heim á St. James Park í dag. Þeir
félagar, sem leiddu sóknina í sigur-
leiknum gegn Coventry um síðustu
helgi, hafa ekki talast við síðustu
tvö árin, eftir deilur sem upp komu efir úrvalsdeildarleik gegn
Bolton. Eftir framistöðuna gegn Coventry má ætla að fýlupúkunum
verði falið að sjá um markaskorunina gegn Newcastle í dag, en þar
gæti Cole hugsanlega skorað sitt 100. mark fyrir United, ef hann yrði
svo heppinn að senda boltann tvisvar í netið, eins og hann gerði gegn
Coventry.
United hefur unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum liðanna á St.
James Park, en undir stjórn Bobby Robsons hefur Newcastle náð
meiri festu í leik sinn og eru síðan ósigraðir á heimavelli. Dauðapar-
ið, eins og þeir Alan Shearer og Duncan Ferguson eru kallaðir, munu
mjög líklega hefja leikinn fyrir Newcastle, þrátt fyrir smávægileg
meiðsli þeirra beggja eftir síðasta leik. „Þeir eru okkur mjög mikilvæg-
ir í þessum Ieik, sem verður örugglega sá erfiðasti síðan ég kom til
Newcastle," sagði Robson.
Leeds, sem er í öðru sæti deildarinnar með 47 stig, sex stigum á eft-
ir United, mætir Tottenham á Elland Road í Leeds í dag. Leeds hef-
ur aðeins náð einu stigi úr síðustu fjórum leikjum og þarf því nauð-
synlega á öllum stigunum að halda í dag, þar sem næstu lið sækja að.
Arsenal sem er í þriðja sæti deildarinnar með 44 stig, fær á morg-
un Liverpool, sem er í fjórða sætinu með jafnmörg stig, í heimsókn á
Highbury og er þar búist við hörkuleik. Wenger mun loks geta stillt
upp sínu sterkasta liði, ef frá er talinn Nwankwo Kanu, sem enn er í
Afríku og svo er spurning með Marc Overmars sem hefur átt við smá
meiðsli að stríða. Eldd veitir af miðað við framistöðu Liverpool í síð-
asta leik, þar sem liðið vann 3-1 sigur á Leeds. Gerard HouIIier mun
stilla upp sama Iiði á morgun, með þá Patrik Berger og Titi Camara
í fremstu víglínu í fjarveru Michael Owen og Robbie Fowler.
Leiktr helgarinnar:
Laugardagur: Chelsea - Wimbledon, Coventry - Sunderland,
Everton - Derby, Leeds - Tottenham, Newcastle - Man. United,
Sheff. Wed. - Southampton, Watford - Leicester,
West Ham - Bradford.
Sunnudagur: Arsenal - Liverpool.
Mútiuddgurr AÍiddleshrl--*Aston Villa,' ' •
Sheringham og Cole.
ÍÞROTTIR Á SKJÁNUM
Laugard. 12. febrúar
Handbolti
Kl. 10:45 Þýski handboltinn
Magdeburg - Lemgo
Kl. 16:30 Leikur dagsins
Haukar - FH
Fótbolti
Kl. 14:20 Þýska knattspyman
Unterhaching - Bayern Munchen
Körfubolti
Kl. 12:00 NBA-tilþrif
Fótbolti
Kl. 12:30 Alltaf í boltanum
Kl. 14:45 Enski boltinn
Newcastle - Man. United
íþróttir
Kl. 17:00 íþróttir um allan heim
Hnefaleikar
Kl. 22:35 Hnefaleikakeppni
Sýnt frá keppni í Manchester.
Meðal þeirra sem mætast eru
Mike Tyson og Julius Francis.
Sunnud. 13. febrúar
Fótbolti
Kl. 15:45 Enski boltinn
Arsenal - Liverpool
Kl. 19:25 ítalski boltinn
Lazio - Parma
Golf
Kl. 18:00 Golfmót í Evrópu
Körfubolti
Kl. 23:00 NBA-Ieikur vikunnar
ÍÞRÓTTIR UM HELGINA
Laugard. 12. februar
■ HANDBOLTI
Urvalsdeild karla
Kl. 17:00 HK - Stjaman
Kl. 16:30 Haukar-FH
Urvalsdeild kvenna
Kl. 16:30 UMFA - Víkingur
Kl. 13:30 ÍBV - ÍR
2. deild karla
Kl. 16:00 Fjölnir - Fram b
■ körfubolti
Urvalsdeild kvenna
Kl. 16:00 KFÍ - Tindastóll
Kl. 14:00 Keflavík - Grindavík
1. deild karla
Kl. 16:00 Selfoss - ÍS
Kl. 15:30 ÍV- Höttur
■ blak
1. deild karla - Undanúrslit
Kl. 16:30 Þróttur - ÍS
■ FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Meistaramót Islands
Hefsta í Baldurshaga kl. 09:30 og
að Varmá kl. 13:30. Heldur áfram
á sunnudag kl. 10:00 að Varmá.
Suunud. 13. februar
■handbolti
Úrvalsdeild karla
Kl. 20:00 Fram - KA
Úrvalsdeild kvenna
Kl. 20:00 FH - Stjarnan
Kl. 18:00 Haukar - Fram
■körfubolti
Úrvalsdeild karla
Kl. 20:00 ÍA - Tindastóll
Kl. 20:00 Skallagr. - Haukar
Kl. 20:00 Grindavík - KR
Kl. 20:00 Þór Ak. - Hamar
Kl. 18:00 Keflavík - Snæfell
Kl. 20:00 Njarðvfk - KFÍ
Úrvalsdeild kvenna
Kl. 13:30 KFÍ - Tindastóll
1. deild karla
Kl. 15:00.Stjarnan.—Valut - . , .
♦ y V Jt. T. X. i .. % .. •'«. ja ... k. „ i # ■
Sími 462 3500 • Hólabraut 12 • www.nett.is/borgarbio
Laugard. kl. 17 & 21
Laugard. kl. 21
Sunnud. kl. 17 & 21
Sunnud. kl. 21
Mánud. kl. 17 & 21
HAUNTEDfJJJI
Laugard. kl. 15,17 og 19
Sunnud. kl. 13,15,17 og 19
Mánud. kl. 17 og 19
Laugard. ki. 21 og 23
Sunnud. kl. 21 og 23
Mánud. kl. 21 og 23
Laugard. kl. 17
'I Sunnud. kl. 15&17
Mánud. kl. 17 & 19
Sunnud. kl. 15
Miðaverð 300,- kr.
□Dl00»*rl
D I G I T A t
j| DOUBI.F
Ijeopardy
Laugard. kl. 19
Sunnud. kl. 19
Mánud. kl. 23
Laugard. kl. 19
• Sunnud. 19,mánud. kl. 19 ,
- •• ■* - - - - * ■ -i i_:_:_
Laugard. m/ísl. tali kl. 17
Sunnud. m/ísl. tali kL 17
... «?, ...... ,t.. .
THE BONE COLLECTOR
Laugard. kl. 23
Sunnud. kt. 23
Mánud. kl. 17
Laugard. kl. 21 og 23.15
Sunnud. kl. 23.15
Mánud. kl. 21 og 23.15
Laugard. kl. 15
Sunnud. kl. 13 og 15
TILBOÐ miöaverö 300 kr.
FORSÝNING SUNNUDAG
KL. 21