Dagur - 17.02.2000, Qupperneq 12
12- FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000
Diupir
ERLENDAR FRETTIR
Wolfgang Sdtauble
segir af sér
Þrýstingur vex
stöðugt á forsætis-
ráðherraim í Hessen
að segja lika af sér.
Wolfgang Scháuble tilkynnti í
gær afsögn sína úr tveimur
hélstu embættum Kristilega
demókrataflokksins í Þýska-
landi, þ.e. bæði sem formaður
flokksins og formaður þing-
flokksins. Scháuble sagði í gær
að þessi ákvörðun yrði vonandi
til þess að auðveldara verði fyr-
ir flokkinn að ná sér upp að
nýju eftir fjármálahneykslið
undanfarnar vikur.
Rætt hefur verið um að Ang-
ela Merkel, framkvæmdastjóri
flokksins, sé líklegur arftaki
Scháubles í embætti flokksfor-
manns. Formaður þingflokksins
er þó líklegast að verði
Friedrich Men, sem verið hef-
ur varaformaður.
Scháuble heldur því statt og
stöðugt fram að hann beri enga
ábyrgð á fjármálahneykslinu,
en þurfti að viðurkenna að hafa
tekið á móti peningaframlagi
frá vopnasalanum Karl-Heinz.
Schreiber. Hann neyddist til að
segja af sér eftir að ljóst var að
flokksfélagar hans treystu hon-
um ekki Iengur til þess að taka
á málunum svo trúverðugt
þætti.
I þýska sambandslandinu
Hessen vex einnig stöðugt
þrýstingur á Roland Koch for-
sætisráðherra að segja af sér
embætti, en landsdeild CDU í
Wolfgang Scháuble á tali vlð Angelu Merkel, en hún er meðal þeirra
sem koma til greina sem eftirmaður hans.
Hessen ber ábyrgð á stórum
hluta fjármálahneykslisins.
Koch sagðist þó í gær ætla að
sitja sem fastast og sagðist hafa
fullan stuðning ílokksins til
þess. Hann boðaði að á næstu
vikum muni hann fara fram á
traustsyfirlýsingu þingsins, og
sagðist þess fullviss að hún
fengist.
Frjálsir demókratar, sem eru
samstarfsflokkur CDU í lands-
stjórninni í Hessen, hefur hins
vegar verið að tapa töluverðu
fylgi samkvæmt skoðanakönn-
unum fyrir að slíta ekki stjórn-
arsamstarfinu. Ljóst er að sá
þrýstingur fer vaxandi frekar en
hitt.
Wolfgang Scháuble tók við
sem formaður Kristilega
demókrataflokksins í Þýska-
landi í árslok 1998, en hefur
verið formaður þingflokksins
frá því 1991. Forveri hans í
báðum þessum embættum var
enginn annar en Helmut Kohl,
en hann var formaður flokksins
í aldarfjórðung og kanslari
Þýskalands í sextán ár. Þeir
voru nánir samstarfsmenn um
langt skeið, en heldur hefur
versnað vinskapurinn frá því
uppvíst varð um leynireikning-
ana sem Kohl ber að stórum
hluta ábyrgð á en Scháuble seg-
ist ekkert hafa vitað um.
Svo virtist sem almennur létt-
ir hafi ríkt í gær meðal flokksfé-
laga Scháubles vegna ákvörð-
unar hans um að segja af sér.
Flokksfélagarnir lofuðu hann
lyrir að taka þcssa ákvörðun og
sömuleiðis Iuku þeir lofsorði á
störf hans í flokknum.
HEIMURINN
McCain og Bush rökræða
í sjónvarpinu.
Flokksbræðux í hár
saman
BANDARÍKIN - Repúblikanarnir John
McCain og George W. Bush, sem báðir
sækjast eftir því að verða forsetafram-
bjóðandi flokksins, komu fram í einvígi í
bandarísku sjónvarpi á þriðjudagskvöld.
Þar létu þeir ýmislegt flakka og var ekki
annað að sjá en að þeim þætti stundum
sjálfum nóg um hamaganginn. McCain er
þekktur fyrir að vera óhræddur að tjá sig í fjölmiðlum, en fullyrti í
sjónvarpsþættinum að kosningabarátta hans byggðist ekki á því að
níða niður andstæðinginn heldur væri um jákvæða málefnabaráttu
að ræða. Bush sagði hins vegar að sumar ásakanir McCains væru
svo ómerkilegar að neðar væri ekki hægt að komast.
Rússland og Nató hefja samskipti á ný
RUSSLAND - George Robertson, framkvæmdastjóri Nató, átti í gær
fundi með rússneskum ráðamönnum og fagnaði því að samskipti
væru væru hafin á ný. Hann ræddi m.a. við Vladimír Pútín, sem
gegnir stöðu forseta Rússlands, Igor Ivanov utanrfkismálaráðherra
og ígor Sergejev varnarmálaráðherra. Algjörlega slitnaði upp úr sam-
bandi Rússlands við Nató eftir að Kosovostríðið hófst, þegar herþot-
ur Nató gerðu árásir á Júgóslavíu í óþökk Rússa. Robertson sagði
bæði Rússa og Nató hafa lært ýmislcgt á því sem gerðist. Rússnesku
ráðamennirnir sögðust þó eiga erfitt með að taka upp samskipti við
Nató að nýju. Jevgení Prímakov, fyrrverandi forsætisráðherra, benti
þó á að Rússar ættu í raun ekki neitt val þarna. Hins vegar var eldd
að sjá að Téténíustríðið stæði í vegi lýrir því að tengsl hæfust á ný.
Vilja heilhrigdisgagnagruim í Noregi
NOREGUR - Norskir vísinaamenn hafa lýst eindregnum vilja sín-
um til þess að komið verði upp miðlægum gagnagrunni á heilbrigð-
issviði í Noregi. Hugmyndin er að erfðafræðilegar upplýsingar ásamt
upplvsingum úr læknaskrám og þjóðskrá verði færðar í gagnagrunn-
inn. 1 Bretlandi eru samskonar mál sömuleiðis nokkuð á veg komin
og hópur breskra vísindamanna vill hefjast handa strax á næsta ári
við að koma upp gagnagrunni með erfðaupplýsingum.
Piiiodiet er
heilaskemmdiir
I læknaskýrslu Pinochets
segir að hann þjáist m.a. af
sykursýki og nýlega til-
kominni heilahrörnun.
Dagblöð á Spáni birtu í gær út-
drætti úr skýrslu lækna sem
skoðuðu fyrir skömmu Augusto
Pinchet, fyrrverandi einræðis-
herra í Chile.
Spænski rannsóknardómar-
inn Baltasar Garzon, sem upp-
haflega fór fram á framsal Pin-
ochets, neitaði því í gær að
hafa lekið skýrslunni í fjöl-
miðla. I skýrslunni fullyrða
læknarnir fjórir, sem rannsök-
uðu Pinochet, að hann hafi
orðið fyrir alvarlegum heila-
skemmdum sem gera honum
ókleift að fylgjast með í réttar-
höldum, hvað þá að taka
ákvarðanir varðandi málflutn-
ing við réttarhöldin.
Að sögn læknanna er bæði
skammtímaminni og iangtíma-
minni Pinochets skcrt. Minnis-
leysið gerir honum meðal ann-
ars erfitt fyrir að skilja flóknar
setningar og spurningar.
Sömulciðis á hann erfitt með
að tjá sig skýrt og skilmerki-
lega.
Heilaskemmdirnar stafa m.a.
af tveimur heilablóðföllum
sem Pinochet fékk síðastliðið
haust, eftir að hafa verið tæpt
ár f vörslu bresku lögreglunnar.
Dómstóll í London komst í
vikunni að þeirri niðurstöðu að
breskum stjórnvöldum bæri að
afhenda þeim ríkjum, sem far-
ið hafa fram á framsals Pin-
ochets, afrit af læknaskýrsl-
ÍÞRÓTTIR
SR vann Bjömiim í fyrsta leik íslands-
mótsins í íshokkí
Islandsmótið f íshokkí hófst um helgina með leik Bjarnarins og SR
(Skautafélags Reykjavíkur) og fór leikurinn fram á sunnudagskvöldið
í Skautahöllinni í Laugardal. Leiknum lauk með 2-7 sigri SR, eftir að
staðan í (ý'rra leikhléi var 1-0 fyrir Birnina, en í því seinna 1-4 lyrir
SR. Lcikurinn, sem fór rólega af stað, var nokkuö fast spilaður og
þurfti dómari leiksins, Magnús Finnsson, að vísa fimm leikmönnum
af velli í 10 mínútur.
Mörk SR í leiknum skoruöu Sigurður Sveinn Sigurðsson 2, Vla-
dimir Nikoleviz Baranov 2 og þeir Elfar Jósteinsson, Hallur Árnason,
Jónas Rafn Stefánsson og Guðmundur Rúnarsson eitt mark hver.
Mörk Bjarnarins skoruðu Sigurður Einar Sveinbjörnsson og Jón
Ragnar Jónsson.
Keflvödngar leika gegn úrvalslidi KSÍ
Atli Eðvaldsson, Iandsliðsþjálfari, hefur valið sextán manna úrvalshóp
KSI sem mun leika vígsluleik gegn Keflvíkingum, þegar Reykjanes-
höllin verður formlega vígð á laugardaginn. Athöfnin í höllinni hefst
kl. 14:00, en leikurinn mun vera á dagskrá kl. 16:00.
Urvalshópurinn: Markverðir: Birkir Kristinsson, ÍBV og Fjalar Þor-
geirsson, Fram. Aðrir leikmenn: Sigurður Orn Jónsson, KR, Sigþór
Júlíusson, KR, Þórhallur Hinriksson, KR, Ingi Sigurðsson, IBV, Stein-
grímur Jóhannesson, ÍBV, Sigurvin Ólafsson, Fram, Valur Fannar
Gíslason, Fram, Gunnlaugur Jónsson, IA, Jóhannes Þ. Harðarson, IA,
Óli Stefán Flóventsson, Grindavík, Hlynur Birgisson, Leiftri, Marel
Baldvinsson, UBK, Gylfi Einarsson, Fylki, og Veigar Gunnarsson,
Stjörnunni.
Borðtennislandsliðið ásamt Hu Dao Ben, þjálfara. F.h.: Adam Harðarson,
Guðmundur £ Stephensen, Markús Árnason og Hu Dao Ben.
Borðtennislandsliðið til Malasíu
íslenska borðtennislandsliðið í karlaflokki, sem skipað er þeim Adam
Harðarsyni, Guðmundi E. Stephensen og Markúsi Arnasyni, sem all-
ir eru lélagar í Vfkingi, heldur til Kuala Lumpur í Malasíu í næstu
viku þar sem liðið tekur þátt í heimsmeistaramóti landsliða í borð-
tennis. Keppni á mótinu hefst þann 19. fcbrúar og stendur til 26.
febrúar, en þátttökuþjóðirnar eru um 100 af þeim 183 sem eru í al-
þjóða borðtennissambandinu. Mótherjar íslcnska liðsins í fýrstu um-
ferð mótsins eru Ástralía, Israel og Uzbekistan. Þjálfari liðsins er Kín-
veijinn Hu Dao Ben.
Yorke ekki með gegn Leeds
Nú er ljóst að Dwight Yorke ÍTamherji Manchester United getur ekki
leikið með United gegn Leeds á sunnudaginn, þegar liðin mætast í
leiknum mikilvæga í ensku úrvalsdeildinni. Dwight Yorke sem nú er
staddur með landsliði Trinidad og Tóbagó í Bandaríkjunum, þar sem
liðið leikur í Mið-Ameríkukeppninni, hafði áður fengið leyfi knatt-
spyrnusambands Trinidad til að leika gegn Leeds og eftir að Trinidad
hafði tapað 4-0 gegn Mexikó, þótti Ijóst að ekkert væri í veginum. En
nú hefur hagur Trinidad vænkast f keppninni, eftir að liðið vann 4-2
sigur á Guatemala og knattspyrnusambandið þvf krafist þess að Yorke
verði áfram með landsliðinu í keppninni. Ekki síst vegna þess að Yorke
átti mjög góðan leik gegn Guatemala og skoraði lokamark leiksins.
Landsliðsþjálfarinn hefur því farið fram á að Yorke verði áfram með
landsliðinu eins lengi og það kemst áfram í keppninni.
Útsala hjá Newcastle
Bobby Robson, framkvæmdastjóri Newcastle, hefur sett 13 leikmenn
liðsins á sölulista og þar á meðal þá Stephen Glass og Silvio Maric.
Robson er að hreinsa til eftir Ruud Gullit og ætlar sér í staðinn að ná
í sterkan miðjuleikmann áður en lokað verður á leikmannaskipti í
næsta mánuði. Robson verður að fara þcssa leið þar sem sjóðir félags-
ins eru þurrausnir eftir kaupin á þeim Kevin Gallacher og Diego
Gavilan. Þeim Glass og Maric, sem var keyptur til liðsins frá Króatía
Zagreb fyrir 3,5 milljónir punda í tíð Gullits, hefur verið tilkynnt um
að þeir verði seldir og sama er að segja um 1 I aðra leikmenn. Þar hafa
verið nefndir þeir Carl Serrant, Des Hamilton og Garry Brady úr að-
alliðinu, auk markvarðanna Lionel Perez, John Karelse og Ian Mart-
in.
Robson vill ekki viðurkenna þann orðróm að hann sé á eftir Neil
Sullivan, markverði Wimbledon og segist ekki ætla að kaupa nýjan
markvörð fýrir Shay Given eða Steve Harper. „Það sem okkur vantar
er sterkur miðjuleikmaður og sú leit er hafin,“ sagði Robson.