Dagur - 26.02.2000, Page 2
2 - LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR 2000
ro^tr
FRÉTTIR
Fatnadurinn verður seldur til styrktar
þurfandi íAfríku
Söfiiun
áfotum
Rauði kross íslands stendur fyr-
ir landssöfnun á notuðum fatn-
aði til styrktar baráttunni gegn
alnæmi í Afríku, í samstarfi við
OIís, Gámaþjónustuna, Sam-
skip og Sjónvarpshandbókina.
Safnað verður í dag og á morgun
og tekið við fatnaði á fjölmörg-
um stöðum um land allt. Allir
sem eiga afgangsfatnað eru
hvattir til að styðja gott málefni
með þessu móti og mega fötin
sem gefin eru vera óflokkuð.
Fatnaðurinn er seldur óflokkað-
ur beint til útlanda og mun sölu-
andvirðið renna í Hjálparsjóð
RKÍ til styrktar baráttunni gegn
alnæmi í sunnanverðri Afríku.
Alnæmi er orðið helsta dánaror-
sök Afríkubúa og nú er svo kom-
ið að heilu samfélögin eru að
kikna undan þessum þöglu
hamförum sem hafa þegar lagt
sextán milljónir manna að velli,
þar af ellefu milljónir manna í
Afríku sunnan Sahara. Rúmlega
átta milljónir barna í Afríku hafa
misst móður eða báða foreldra í
helgreipar alnæmis. - HI
S ellafieldmálid
áfall fyrir Breta
Halldór Ásgrímsson
sagði eftir fnndinn
með Robin Cook í gær
að ljóst væri að það
sem gerðist í SeUafi-
eld væri mikið áfaU
fyrir bresku ríkis-
stjómina. Bretar vilja
reyna að endurheimta
traust vegna þessa
máls.
Halldór Asgrímsson utanríkis-
ráðherra átti í gær fund með
Robin Cook, utanríkisráðherra
Rretlands, í London, þar sem ör-
yggis- og varnarmál sem og
ástandið f kjarnorkuverinu í
Sellafield voru til umræðu.
„Varðandi Sellafieldmálið tjáði
ég Cook það að við Islendingar
hefðum alltaf verið á móti þess-
ari stöð og yrðum það áfram. Eg
sagði honum að við værum and-
vígir slíkum rekstri við hafið og
teldum að það yrði alltaf hættu-
legt. Cook ítrekaði að það væri
þeirra stefna að halda áfram að
draga úr þeirri mengun sem
Áfall fyrir Breta
Robin Cook benti á varðandi
Sellafield að þar starfa 10 þús-
und manns og að þetta samfélag
væri algerlega háð þessari starf-
semi. Hitt lægi ljóst fyrir að það
væri í þágu Breta að sem mest
traust ríkti í þessu.
„Það er mér alveg ljóst að það
sem gerðist í Sellafield verinu er
mikið áfall fyrir bresku ríkis-
stjórnina og að þeir eru að sjálf-
sögðu mjög ósáttir við það sem
þarna hefur gerst. Það kom fram
að Cook hefur fullan skilning á
ótta okkar sem búum norðan við
þá. Hann sagðist vita að íslensk-
ur fiskur væri mjög góður og
ómengaður og því skilja ótta okk-
ar og að við vildum ekki taka
neina áhættu í þessu sambandi,"
sagði Halldór.
Hann sagði að fundurinn hefði
verið bæði góður og gagnlegur.
Þeir utanríkisráðherrarnir hefðu
Iíka rætt um öryggis- og varnar-
mál og það sem er að gerast í
Evrópusambandinu. Það liggi
fyrir hugmyndir sem séu ásætt-
anlegur grundvöllur fyrir frekara
starfi og Bretar hafí heitið því að
vinna mjög náið með okkur að
því máli. - S.DÓH
Halldórsagði Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands að Islendingar hefðu
alltafverið á móti kjarnorkuverinu ÍSellafield og yrðu það áfram.
kæmi frá stöðinni. Þeir teldu að
mögulegt væri að ná því niður í
núll á næstu 20 árum. Ég sagðist
telja það allt of langan tíma og
fór þess á leit við hann að þessu
yrði hraðað. Hann sagðist myndi
að sjálfsögðu gera það en hann
vildi ekki vera með yfirlýsingar
sem hann gæti svo ekki staðið
við þótt það væru hagsmundir
Brcta að gera þetta á sem
skemmstum tíma,“ sagði Halldór
Asgrímsson í samtali við Dag eft-
ir fundinn í gær.
Segj a pass við
skattakröfum
Atviiiniilífíð til hlés.
Neitar að tjá sig. Ólík
ar hugmyndir í skatta-
iii álimi. Krafan um
rökstuddar uppsagnir
greiðir ekki fyrir.
Ari Edvvald framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, SA, segir
að hugmyndir þeirra um skatt-
kerfið í heild séu verulega frá-
brugðnar þeim sem verkalýðs-
hreyfingin hefur haldið á Iofti.
Hann segir að atvinnulífið styðji
það að skattkerfið sem tekjuöfl-
un fyrir ríkið verði sem einfald-
ast. Það sé því grunnafstaða at-
vinnurekenda að félagsmálaþátt-
urinn sé leystur á öðrum vett-
vangi. Þessutan sé krafan um
fjölþrepa tekjuskattkerfi fráhvarf
frá staðgreiðslu sem þeim hugn-
ast ekki.
Neita að tjá sig
Framkvæmdastjórinn segir að
samtökin hafi ekki komið að um-
ræðu verkalýðshreyfingarinnar
um skattamál á hendur ríkinu í
tengslum við gerð kjarasamn-
inga. Af þeim sökum sé ekki
tímabært að tjá sig um það. Þar
er þess krafist að hækkun skatt-
leysismarka sé í samræmi við
hækkun launa og dregið verði úr
jaðaráhrifum í skattkerfinu
vegna tekjutengingar barnabóta.
Hann segist ekki geta svarað
því á þessari stundu hvort at-
vinnurekendur muni styðja við
bakið á verkalýðshreyfingunni í
þessum kröfum á hendur ríkinu
til að koma í veg fyrir að hugsan-
legar launahækkanir renni að
hluta til beint í ríkissjóð. Það sé
vegna þess að óskir verkalýðs-
hreyfingarinnar í þessum efnum
muni á sínum tíma verða metnar
af stjórnvöldum og þá með hlið-
sjón af því útliti sem þá verði um
það hvort samningar náist al-
mennt á vinnumark-
aðnum. Hann vill
heldur eld<i tjá sig um
það hvort atvinnurek-
endur muni þrýsta
eitthvað á stjórnvöld
til svara kröfum
verkalýðshreyfingar í
skattamálum til að
það gæti liðkað til fyr-
ir gerð kjarasamn-
inga.
Greiöir ekki fyrir
Samtök atvinnulífsins
telja ennfrémur að
krafa verkalýðshreyf-
ingarinnar á hendur
stjórnvöldum um full-
gildingu á samþykkt
Alþjóðavinnumála-
stofnunarinnar, ILO,
númer 1 58 muni ekki greiða fyr-
ir samningum. Þar er kveðið á
um að ekki sé hægt að segja upp
starfsfólki án rökstuðnings. Ari
Edwald segir að þetta muni hafa
f för með sér aukinn kostnað,
draga úr áhuga fyrirtækja á
nýráðningum auk þess sem þetta
mundi bitna á sveigjanleika
vinnumarkaðarins. I það heila
tekið mundi þetta einna mest
bitna á atvinnumöguleikum ungs
fólks. Hann bendir á að örfá Evr-
ópuríki hafi fullgilt þessa sam-
þvkkt. Það séu fyrst og fremst
ríkiíAfríku. - GRH
Færeyingar veiða aftur lax í sjó
Færeyingar hara fengið úthlutað 260 tonna Iaxakvóta í sjó og hafa
þegar hafið veiðar. Tíu ár eru liðin síðan Færeyingar hættu að veiða
villtan lax í sjó, en þá greiddi verndarsjóður villtra laxategunda fær-
eyskum útgerðarmönnum sem höfðu laxveiðileyfi verulegar fjárupp-
hæðir gegn því að hætta laxveiðum í sjó. Meirihluti þess lax sem Fær-
eyingar veiða er ættaður frá Noregi, en einnig héðan.
Alþjóðastofnunin NASCO, sem ísland á aðild að, gefur út þennan
kvóta til Færeyinga, og telja þeir sem að uppkaupunum stóðu að ekki
hafi tekist að ákveða kvótann í samræmi við niðurstöður vísinda-
manna. Þessar laxveiðar Færeyinga muni fljótlega hafa mjög slæm
áhrif á laxagengd í austfirskum laxveiðiám og þá um leið eftirspurn
cftir veiðileyfum í þeim, en fjölmargir hafa tekjur af laxveiðum og
sölu laxveiðileyfa fyrir austan. - GG
Bamasáttmáli í möppu
Þórhildur Líndal, umboðs-
maður barna, afhenti í gær
fyrstu eintökin af möppu
er hefur að geyma Barna-
sáttmála Sameinuðu þjóð-
anna. Nemendur í 5. bekk
Austurbæjarskóla voru
þeir fyrstu er fengu möpp-
urnar. Þær eru gefnar út
hér á landi f tilefni af 10
ára afmæli sáttmálans,
sem fjallar um grundvall-
armannréttindi barna yngri
en 18 ára. Við afhendingu mappanna var kynnt smásagnasamkeppni
meðal 10 ára barna sem RÚV og Umboðsmaður barna efna til.
Brýtur KSÍjafnréttisIög?
Á fundi jafnréttisnefndar Akureyrarbæjar í vikunni var samþykkt að
fela jafnréttisfulltrúa að óska eftir því við Jafnréttisráð að kannað
verði hvort þriðja grein leikmannasamnings Knattspyrnusambands
íslands brjóti í bága við jafnréttislög. I a-lið þriðju greinar leikmanna-
samnings KSÍ segir: „Leikmannasamning er heimilt að gera til allt að
fjögurra keppnistímabila í Landssímadeildinni og allt að þriggja
keppnistímabila í 1. deild karla, en ekki í öðrum deildum karla eða
kvenna.“ - HI