Alþýðublaðið - 18.02.1967, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 18.02.1967, Blaðsíða 4
igNnfimiiflrangMmi) Ritstjórar: Gylfi Gföndal (áb.) og Ber.edikt Gröndal. — RitstjórnarfulK. trúi: EiCur Guðnason — Símar: 14900-14903 — Auglýsingasími: 14906, ASsetur AlþýðuhúsiS við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu- .blaðsins. — Áskriftargjald kr. 105.00. — í lausasölu kr. 7.00 eintakið, Útgefandi Alþýðuflokkurinn. Barlómur og traust STÚDENTAR gengust nýlega fyrir umræðufundi itm sjávarútvegsmál. Meðal ræðumanna á fundinum var Jón Ármann Héðinsson, sem nú skipar annað sæti á framboðslista Aljþýðuflokksins í Reykjanes- kjördæmi. Hafði Jón fram að færa í erindi sínu marg ar athyglisverðar upplýsingar um útgerðarmál, sem sjaldan heyrist minnzt á. Má nefna það dæmi, að umboðsmenn fyrir erlendar skipasmíðastöðvar fái 2,5 til 5% af brúttóverði nýrra báta og hafi skatt- lagt bátaútveginn um tugi milljóna á fáum árum. í upphafi máls síns ávarpaði Jón Ármann stúdent- iana sérstaklega, og sagði: „Mjög mikið er talað um afla og tekjur þeirra, er veiða, oft á tíðum. En svo koma útgerðarmenn saman, og þá kveður við annan tón, nær undantekningalaust neikvæðan, og að allt sé að fara í strand. Svona tal ár eftir ár hefur að minni hyggju ill áhrif á unga menn, og þið stúdent- ar góðir, sem fyrr eða síðar eigið eftir að koma út í atvinnulífið, kunnið að hafa þá hugmynd um út- vegsmenn og reksturinn á fiskvinnslustöðvum, að þar sé allt í kaldakoli og ekki fýsilegt að leita sér sérþekkingar fyrir starfsgreinar sjávarútvegsins. Eg nefni þetta til að forða frá þessum misskilningi og "vildi mega hvetja sem flesta til að athuga um at- vinnuhorfur í sávarútvegi okkar. Sannarlega vantar okkur hæfa menn til starfa í þessari atvinnugrein. I öllum þáttum hennar er þörf fyrir dugnaðarfólk." Þessi orð Jóns Ármánns voru þörf hugvekja. Það er nauðsynlegt að halda fast hagsmunamálum sinnar starfsgreinar, en sífelldur barlómur ár eftir ár getur gert alvaríegt tjón. Þess vegna ættu forystumenn út- vegs og fiskiðnaðar að íhuga þessi aðvörunarorð Jóns Ármanns ekki síður en stúdentarnir, sem hann á- varpaði. Stólar og stríð NOKKURT UMTAL er um varnarmál íslands og dvöl varnarliðsins í iandinu um þessar mundir. Hefur málið verið rætt á almennum fundum og á Alþingi, og er ekkert nema gott um það að segja. Ungir framsóknarmenn hafa gengið fram fyrir skjöldu hinna eldri flokksbræðra sinna í þessu máli, og háðu þeir umræðufund við ungkommúnista. Gerð ist það helzt tíðinda á fundinum, að framsóknar- mönnum tókst að fá Ragnar Arnalds til að játa, að hann mundi geta stutt ríkisstjórn, þótt hún hefði brottför varnarliðsins ekki á stefnuskrá sinni. Það vita menn af reynslu vinstri stjórnarinnar að alþýðu- bandalagsmenn sátu þar hinir ánægðustu án þess að minnast á brottför hersins fyrr en undir stjórnarlok. Hitt er athyglisvert, að yngsti og ákafasti þingmaður þeirra. sérstaklega í varnarmálum, skuli lýsa yfir fyr irfram, að hann mundi breyta eins. KONUDAGURINN er á sunnudaginn. Munið blómin fyrir eiginkonuna og unnustuna á Konudaginn. Blómaframleiðendur. Bílar til sölu og leigu BfLAKAUP Böar vtó allra hæfl. KJör vlð allra hæfL OplÖ UI kl. 9 á hverjn kvöUL BÍLAKAUP Skúlagötu 55 vlð Sanöari Siml 15812. Hverfisgötu 103. Sími eftir Iokun 31160. foiíasoiloi Bergþórugötu 3. Símar 10032 og 20070. á krossgötum ★ ISLENZKIR viðskiptahættir. Kunningi okkar kom reiður og rasandi inn á ritstjórnina fyrir nokkrum dögum og lét svo ummælt, að seint virtust íslenzkir kaupsýslumenn ætla að læra almennilega við- skiptahætti. Hann hafði nokkru áður farið inn í raftækjaverzlun og keypt þar lítinn borð- lampa fyrir hálft annað þúsund króna. Var þetta fallegur lampi á fæti úr íslenzku hraunkeramik. Lampinn var greiddur og honum síðan pakkað vandlega inn í verzluninni. Kunningi okkar fór síðan heim með lampann, því um kvöldið átti að gefa liann í afmælisgjöf. Jú, jú. Hann fór með lampann og sá sem hann var gefinn tók upp pakkann og leizt ljómandi vel á gripinn, en svo þegar átti að fara að kveikja á gripnum kom í ljós, að engin var í honum peran! Þetta var íslenzkum kaupsýslu- mönnum líkt, sagði þessi kunningi okkar, þeir kunna að smyrja á vöruna, en að þeim detti í hug jafn .sjálfsagt og einfalt atriði og að láta peru fylgja dýrum lampa, það er af og frá. — Við getum eiginlega ekki annað en verið þessum kunningja okkar sammála, beint til fyrirmyndar. svonalagað er ekkl ★ SJÓNVARP. - I Sjónvarpsnotandi skrifar: ..Ég horfði með athygli á kvikmyndina um Bandaríkin í sjónvarpinu, ekki sízt eftir myndina um Sovétrík in, er Þjóðviljinn kvartaði sáran undan. Verð ég að segja, að ekki dró hinn brezki höfundur fram það bezta í fari Ameríkumanna og þungir voru áfellisdómar hans um marga forustumenn lands- ins og mikið gert úr öfgakenndum tízkufyrir- brigðum. Hins vegar fór minna fyrir því jákvæða, eins og hinni voldugu framleiðslu og tækni eða þeim mikla meirihluta þjóðarinnar, [sem jiffr friðsamlegu og kristilegu lífi, stundar sína at- vinnu og heldur ríkinu gangandi, Það er sennilega ekkert hlutlaust mat til, þegar um slík efni sem þetta er að ræða. Þess vegna var, þrátt fyrir allt, mjög fróð- legt að sjá þessar brezku myndir, sem hinn rófc- tæki og grimmi penni, Malcolm Muggerridge, ritstýrði. Við munum án efa fá að sjá nóg af myndum frá ýmsum löndum, sem sýna þau í ljósl viðkomandi valdhafa, þótt svona efni fái að fljótá með.” mmmmá 18. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.