Alþýðublaðið - 18.02.1967, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 18.02.1967, Blaðsíða 16
rja iimno) Deild eða ekki deiid? Einu sinni í hálfum mánuði Jcoma saman til fundar í glæstum sal þeir vísu menn, sem við Reyk víkingar höfum kjörið til að Stjórna málefnum höfuðborgarinn ar Er þar eins og gefur að skilja valinn maður í hverjum stól. Fund ir þessir hefjast að jafnaði um íimm leytið og standa oft langt fram á kvöld og stundum fram undir morgun, ef mönnum er mik ið niðri fyrir. Vegna þess hve líður langt á jnilli funda er það alls ekki ó- •algengt í borgarstjórninni, að inenn flytji þar tillögur um mál sem eru löngu afgreidd, eða búið ■er að leysa. Þetta eykur bara á ánægjuna. Til marks um áhuga Reykvík tnga á málefnum borgarinnar er sjálfsagt að geta iþess,' að það ikemur nær aldrei fyrir að borgar ar slæðist á áheyrendapalla eru sæti þar þó mörg og ólíkt þægi- legra en á pöllum Alþingis. Það «r í mesta lagi að nokkrir bústn ír borgarembættismenn velgi stól ana, sé verið að ræða einhver mál, sem heyra undir embætti þeirra. Það getur margt skemmtilegt skeð á fundum borgarstjórnarinn ar í Reykjavík Á síðasta fundi upp hófst til dæmis bráðskemmtileg deila um það hvort ákveðin deild væri til í heilsuverndarstöðinni. Af hálfu meirihlutans var því hald ið fram að deildin væri til. En einhverjir talsmenn minnihlutans báru brigður á þessa fullyrðingu og gerðist einn þeirra meira að segja svo djarfur að spyrja hvað umrædd deild hefði mikið hús rými í Heilsuverndarstöðinni og hversu marga starfsmenn hún hefði. Rák þ’á fulltrúa meirihlutans í rogastanz. Sá sem fyrir svörum varð kvaðst engu um þetta geta svarað, en hann hamraði samt á því að umrædd deild væri víst til, hvað sem liði öllum ósvífn um spurningum minnihluta manna Þá var á það bent á fundin um að ef þessi deild væri til, þá hefði algjörlega gleymzt að A ,N V S > s N S s s V s s s Björn Jónsson Þekkist Akureyrar-Björn einatt hvar sem fer hann, harður í sókn og seigur í vörn. Og sultarlegur er hann. í gríð og erg hann geysist fram og girnist sízt að hangsa. Þótt upp hann stundum hefji hramm, er hjartað gott í bangsa. S S s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s VS s s s s s s s s s s s s s s vígja hana í allri vígslugleðinni í fyrravor. Þar hefur borgarstjóra og embættismönnum hans aldeil is orðið á í messunni og er hér um ófyrirgefanlega frammistöðu að ræða sé það rétt að þessi deild starfi óvígð. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra, en vonandi ber borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavík þó gæfu til að bæta úr þessum mistökum fyrir næstu kosningar. Það er óþarfi að taka það fram að þetta umræðuefni entist borg arfulltrúum langa hríð, þ.e. hvort þessi ágæta deild, sem liafa átti afskipti af atvinnusjúkdómum væri til eður ei. Engin fékkst þó lausn á málinu síðastliðinn fimmtudag og geta borgarfulltrúar vafalaust haidið á fram að ræða þetta mál á að minnsta kosti tveim næstu fund um í lok umræðnanna um þetta at hyglisverða mál síðastliðinn fimmtudag var samþykkt enn at- hyglisverðari tillaga frá meirihluta borgarstjórnar. Tillagan var að sjálfsögðu um að efla deildina, sem enginn virtist raunverulega vita hvort væri til eða hvar væri. — Það hafa allir sín plön, þegar þeir byrja að byggja. — Gætið yðar, þegar þér stigið út, — Það er liált. 60 pólitískir biskupar komu saman til fundar í Varsjá í dag og hlýddu á erindi Ag- cstino Casaroli, sem er sér- fræðingur Vatikansins í Róma borg í málefnum Austur-Evr- ópu. Ég hef reynt aö fylgjast mcð trúmáladeilunum sem gengið hafa yfir undanfarið eftir beztu getu og er nú svo kom- ið að ég lief ekki hugmynd um hvort ég er kristinn eða hundheiðinn. Svaka var sniðug fréttin mn alla háskólaprófessorana sem ekki náðu barnaskólaprófinu. Ég hugsa að kennarablókin okkar nái ekki einu sinni prófi inn í bamaskóla. Ég skil vel að karlmenn vilji kvænast, en ég botna ekkert í að þeir skuli ganga út.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.