Alþýðublaðið - 18.02.1967, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 18.02.1967, Blaðsíða 9
Siliirra með konu sinni Jo. Nýju Apollo-geimfararnir Þeir þrír geimfarar, sem eiga að taka við Apollo-geimfarinu hafa verið valdið. Þeir eru Walther M. Schirra, Walter Cunningham og Donn F. Eiseele. Ekkert hefur enn verið látið uppskátt um það, hvenær þeir fara sína fyrstu geim ferð. Fréttir frá Kennedyhöfða segja það verða eftir nokkra.mán- uði, kannski eftir eitt ár. Schirra hefur áður farið í geimferðir, en þeir Cunningham og Eiseele hafa ekki farið í geimferð á'ður, — og verður þetta því frumraun þeirra. Þessir þrír geimfarar taka við af þeim Grissom, White og Chaffee, sem nýlega- brunnu inni í Apollo- geimfari eins og flestir munu minnast. Stjórnandi geimfarsins verður Walter M. Schirra, sem er 43 ára gamall. Hann fór sína fyrstu geimferð árið 1962, og aðra geimferð fðr þann í fyrra í Gem- ini 6. Walter Cunningham er byrj- andi í geímferðum. Hann var val- inn fyrir fáum árum í geimfara- skólann, en var áður majór í flug- hei'num. I Yngstur af þessum þremur er Don F. Eiseele og hann er líka byrjandi — og var áður majór í flughernum. t> Gunningiiam með konu sinni Lou- Ellu o g börnum, Kimberly og Brian. Don F. Eiseele með konu sinni. Endurskoðunin beinist einkum að eftirfarandi atriðum: 1. Hvort rjúfa skuli tengsl-slökkvi liðs við sjúkraflutninga. 2. Hvort Reykjavikurborg eigi í framtíðinni sjálf að sjá um að nægilega margar sjúkrabifreið- ir séu ávallt til. 3. Hvort ekki sé hagkvæmt 15 ten'gja þessa starfsemi við Slysa varðstofu og slysadeild Borgar- spítala. einkum með tilliti til þjálfunar starfsliðs. 4. Hvort unnt sé að koma á sam- vinnu við n'ágrannasveitarfélög um framkvæmdir. Fyrir því samþykkir borgar- stjórn að kjósa 5 manna nefnd sem hafi það verkefni að endur- skoða þetta mál í heild og gera tillögur til borgarstjórnar um framtíðarskipan þess. Nefndin sé þannig skipuð: borg arlæknir, slökkviliðsstjóri, yfir- læknir Slysavarðstofu Reykjavík- ur, fuiltrúi frá Reykjavíkurdeild Rauðá Kross íslands, fulltrúi frá Læknafélagi Reykjavíkur. Ég vona að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins geti fallizt á þessa breytingartillögu mína, sem ég tel að taki ákveðnari af- stöðu og lýsi betur en tillaga þcirra hvaða meginstefnu ber að fylgja í þessu máli. Ef tillaga mín naer ekki frám að ganga mun ég gera tiilögu um orðalagsbreytingu á till. b. S. um það að í stað borg- arlæknis þá standi yfirlæknir Slysavárðstofu og í stað fulltrúi R.K.Í. standi fulltrúi Reykjavik- urdeildar R.K.Í. SJÓMANNAFÉLAG HAFNARFJARÐAR. Aðalfundur félagsins verður haldinn sunnudaginn 19. febrúar kl. 2 e.h. í kaffisal bæjarútgerðarinn ar. Fundarefni: 1. Aðalfundarstörf 2. Önnur mál. Stjórnin. Fulltrúaráðsfundur í Keflavík Fulltrúaráð Aiþýðuflokksfélagsins í Keflavík heldur fund mánudaginn 20. febrúar kl. 20,30 í Ungmennafélagshúsinu uppi. Fundarefni fjárhagsáætlun Keflavíkurbæjar 1967. Félag ar eru hvattir til að fjölmenna. STJÓRNIN. Almennur lífeyris- sjóður iðnaðarmanna Umsóknir um lán úr sjóðnum skulu hafa borizt stjóðstjórninni fyrir 1. marz n.k. Um sóknareyðublöð og lánareglur má fá á skrif stofu Landssambands iðnaðarmanna, Iðnaðar bankahúsinu 4. hæð, skrifstofu Iðnaðarmanna félagsins í Hafnarfirði, Linnetstíg 9, Hafnar firði og skrifstofu Iðnaðarmapnafélags Suður nesja, Hafnargötu 26, Keflavík. . Stjórn Almenns lífeyrissjóðs iðnaðarmanna. Hjúkrunarkonur óskast Hjúkrunarkonur vantar í taugasjúkdóma- deild Landspítalans. Allar nánari upplýsingar / veitir forstöðukona Landspítalans í síma 24160 og á staðnum. Reykjavík, 16. febrúar 1967 Skrifstofa ríkisspítalanna. Aðstoðarlæknisstaða Við Barnaspítala Hringsins í Landsspítal anum eru lausar þrjár aðstoðarlæknisstöður frá 1. apríl, 1. júní og 1. október 1967. Stöð urnar veitast til 6 mánaða. Laun samkvæmt samningum Læknafélags Reykjavíkur og sjtórnarnefndar ríkisspítalanna. Umsóknir með upplýsingum um aldur, námsferil og fyrri störf sendist stjórnarnefnd ríkisspítal anna, Klapparstíg 29 fyrir 18. marz 1967. Reykjavík, 16. febrúar 1967. Skrifstofa ríkisspítalanna. 18. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.