Alþýðublaðið - 18.02.1967, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 18.02.1967, Blaðsíða 7
BREYTING til batnaðar virð- ist nú eiga sér stað í sambúð ríkis og' kirkju í Póllandi. Sér- legur sendimaður Páls páfa, Ag ostino Casaroli, dvelst um bessar mundir í Varsjá og ræðif við trúarleiðtoga og fulltrúa stjórnar ínnar og kömmúnistaflokksins um möguleika á því að endi verði bundinn á deiluna, sem á sér langa sögu. Casaroli fór tvívegis til Póllands í fyrra í sömu erinda gerðum, og tvirðast heimsóknirn ar hafa stuðlað að bættn sam- búð kaþólsku kirkjunnar og pólska rilcisins. Snemma í þessum mánuði fór pólskur preláti, Boslaw Komi- nek erkibiskup í heimsókn til Páfagarös og gekk á fund páfa Ferðalag hans þótti tíðindum sæta þar sem hann er fyrsti pólski kirkjuhöfðinginn sem feng ið hefur að ferðast úr landi síðan deilur kaþólsku kirkjunn- af og pólska ríkisins hófust. Ýmislegt fleira hefur bent til þess að sambúð ríkis og kirkju í Póllandi fari nú batnandi. Fyrr í þessum mánuði hermdu fréttir, sem að vísu eru óstaðfestar, að forseti Póllands, Edward Oehab, hefði þekkzt boð um að heim- sækja Pál páfa í Vatíkaninu. í þessu sambandi er heimsókn Nik olai Podgornys, forseta Sovét- ríkjanna, til páfa á dögunum mjög mikilvæg. Þá er greinilegt að áhrif Pófagarðs í alþjóðamál- um hafa vaxið mjög að undan- förnu. Heimsókn Podgornys var sögu legur viðburður, því að það hefur aldrei áður gerzt að þjóðhöfð- ingi kommúnistaríkis hafi gengið á fund páfa. Forsetinn ræddi við páfa um stöðu kaþólsku kirkj unnar í Sovétríkjunum. F.kki er talið ólíklegt, að Agostino Casa roli haldi til Sovétríkjanna að af- lokinni heimsókn sinni til Pól- lands og ræði við sovézk yfir- völd í framhaldi a£ viðræðum páfa og Podgornys forseta. ★ KLÖGUMÁL GANGA Á VÍXL. Deila kirkju og ríkis í Póllandi liófst fyrir alvöru 1965, þegar Wladyslaw Gomulka var skipað. ur forsætisráðherra og aðalritari pólska kommúnistaflokksins og Stefáni kardinála Wyszynski var sleppt úr fangelsi, þar sem hann hafði setið í haldi á Stalínstím anum. Hámarki náði deilan þegar þess var minnzt í fyrrasumar, að 1000 ár voru liðin frá því að kristni var innleidd í Póllandi og pólska ríkið stofnsett. Þá rituðu 36 pólskir biskupar bréf til þýzkra biskupa með samþykki kardínála Og hvöttu til þess að Þjóðverjar og Pólverjar sættust heilum sátt um. Jafnframt lögðu þeir áherzlu á, að „kirkjan ætti að vera varn armúr gegn austri." Stjórnin hóf gífurlegá áróðurs herferð gegn kirkjunni. Wyszyh- slci kardináli var borinn þeim sökum, að hann væri „borgari Vatikansins, en ekki pólskur borg ari“, og auk þess var hann sak- aður um að nota kirkjuna sem tæki í pólitískri valdabaráttu. Kardinálinn svaraði árásunum í nokkrum prédikunum, þar sem hann fordæmdi hið kommúnistíska stjórnarfar og stefnu kommún- ista. Hann hélt fram sjálfstæði kirkjunnar, gagnrýndi iagabreyt- ingar, sem leitt hafa til þess að fóstureyðingar eru leyfðar í Pól- landi, og fordæmdi bann það, sem sett liefur verið við trúar- bragðakennslu í skólum. í desember hótaði stjórn kommúnista að loka sex presta- skólum, þar sem kirkjan vildi ekki samþykkja að fulltrúar rík- isins hefðu eftirlit með kennsl- unni. Þessi tilraun fór út um i þúfur, en síðan hafa deiluaðilar Wyszynsky kardínáli. Myndin er tekin í Róm fyrir tveim árum. Páll páfi og Boslaw Kominek, fyrsti pólski kirkjuhöfðinginn sem leyft hefur verið að fara úr landi síðan deilur pólska ríkisins og kaþólsku kirkjunnar hófust. reynt að komast að varanlegu samkomulági. ★ STERKUR PERSÓNULEIKI Vegna þess að Wyszynski kar- dináli er mjög sterkur persónu- leiki, hefur deila rikis og kirkju í Póllandi verið miklum mun harðari en í Sovétríkjunum. 85 af hundraði pólsku þjóðarinnar eru ennþá sannfærðir kaþólikkar, og kirkjan hefur ótrúlega sterk tök á þjóðinni. Sérstaklega eru áhrif hennar mikil í sveitaþorp- um, þar sem morgunmessan á sunnudögum er ennþá aðalvið- bui'ður vikunnar og áhrif prest- anna eru gífurlega sterk. ,,Það ríkir strangur agi í en hann er ekkert samanborið við aga þann, sem ríkir í kirkjunni. Hann er eins strangur og aginn j prúss neska hernum á sínum tíma.“ Þetta sagði einn af embættis- mönnum kommúnistastjórnarinn- ar fyrir skömmu. Hann bætti því Við, að því færi fjarri að allir prestar fylgdu Wyszynskio að málum, en agans vegna neyddust þeir til að lesa hirðisbréf þau, . gem hann sendi þeim reglulega fyrir söfnuðina í ldrkjunum. í hirðisbréfunum er alla jafnan sveigt óbeinlínis að stjórninni og „hver getur efazt um, að þau hafi ekki áhrif á fólk, sem í aldaraðir hefur skoðað kirkjuna sem eina stöðuga yfir- vald sitt og dettur ekki í hug að véfengja það, sem prestar hennar boða,“ sagði embættismað ★ A KROSSGOTUM í stærri bæjum og höfuðborg- inni, Varsjá, er afstaða fólks til kirkjunnar smám saman að breytast Þótt Pólverjar séu enn mjög trúhneigðir, líta marg ir svo á, að biskuparnir hafi blandað sér í stjórnmál, þegar þeir sendu þýzku biskupunum sáttabréfið og að á þetf.a hafi ekki verið hægt að fallast. Aðr ir sjá ekkert athugavert við það, þótt kirkjuhöfðingjar reyni að stuðla að sáttum þjóða á milli og friði í heiminum. En pólska stjórnin cr mjög fjandsamleg Vest ur-Þjóðverjum, þótt önnur Austur Evrópuríki efli nú samskiptí sín við þá og Bonnstjórnina sé öll af vilja gerð að bæta sambúðina við Austur-Evrópu, ekki sízt síð an jafnaðarmenn komust í ríkis- stjórn. Hér er því um viðkvæmt mál að ræða. Nú er aftur á móti vilji til þess að komast að samkomulagi, bæði af hálfu kirkjunnar og rík isins, og eru viðræður pólskra yfirvalda og Páfagarðs liður í þessari viðleitni Hins vegar er ailt á huldu i|n það, hvaða skilyrði Wyszynski og Gomulka setja fyrir samkomul|gi. Takist ekki samkomulag, eykst spennan að öllum líkindum á ný. Koparpípur og Rennilokar. Fittings. Ofnkranar, Tengikranar, Slöngukranar, Blöndunartæki. Burstafell byggingavöruverzlun| Réttarholtsvegi 3. Sími 3 88 40. 18. febráar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐI0 J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.