Alþýðublaðið - 18.02.1967, Page 11
ksRitstiórTOm Eidsson
ÍR vann KFR og KR ÍKF
í 1. deild í körfubolta
ingar, sem skipa nú efsta sætið
í mótinu, hafa mjög góðu og vel
leikandi liði á að skipa, en ÍFK
virðist ætla að verða erfitt að
ná árangri, þótt ekki skorti bar-
áttuviljann í liðið.
ÍR:KFR 73:52
Leikur þessara liða hafa oft-
ast verið jafnir og skemmtilegir
og svo var einnig nú. í fyrstu
virtist leikurinn ætla að verða
jafn, liðin skiptust á um að
skora, en um miðjan hálfleikinn
hafði ÍR náð forystu, sem þeir
juku lítið eitt til loka leiksins.
Þeir léku mjög vel á köflum og
nýttu vel langskot ásamt gegn-
umbrotum bakvarðanna. KFRi
ingar veittu harða mótspyrnu all
an leikinn og léku oft mjög veL
Bar mest á F.inari og Ólafi, en
Marinó og Þórir sáu um að
skora.
í hálfleik var staðan 35:20 fyr-
ir ÍR, eða annars svipaður þeim,
fyrri. Einkenndi leik liðanna
mikill- hraði í sókn og vel nýtt
tækifæri.
KFR lék svæðisvörn, sem oft
hefur komið þeim í góðar þarfir,
en hún er ekki vel til þess fall-
in að stöðva lið, sem. einkum
byggir sókn sína á langskotum,
eins og ÍR gerir.
ÍR-ingar léku maður-á-manil
vörn allan leikinn, sem hentar
Framhald á 14. síðu.
! LANDSLIÐSÆFINGARI !
KÖRFUKNATTLEIK !
EFTIRTALDIR leikmenn hafa
verið valdir til æfinga vegna
landsleiks í körfuknattleik við
Dani hinn 2. apríl n.k.:
Frá Ármanni: Birgir . Örn
Birgis, Hallgrímur Gunnai|-
son og Kristinn Pálsson.
Frá ÍR: Agnar Friðriksson,
Birgir Jakobsson, Hólmsteinn
Sigurðsson, Jón Jónasson, Pét
ur Böðvarsson, Skúli Jóhanns-
son og Tómas Zoega.
Frá KFR: Einar Matthíasson,
Marinó Sveinsson og Þórir
Magnússon.
Frá KR: Ágúst Svavarsson,
Einar Bollason, Gunnar Gunn-
arsson, Guttormur Ólafsson,
Hjörtur Hansson, Kolbeinn
Pálsson og Kristinn Stefáns-
son.
Leikmenn þessir eru tutt-
u'gu talsins. Úr þessum hópi
verður síðan valinn 10 manna
hópur til að mynda landslið ís-
lands í fyrrigreindum landsleik.
Það er landsliðsnefnd KKÍ sem
flokk þennan velur, en í nefnd-
inni eiga sæti: Helgi Jóhann-
esson, landsliðsþjálfari, Guð-
mundur Þorsteinsson og Þráinn
Scheving.
Á fimmtudagskvöld fóru fram (
tveir leikir í fyrstu deild íslands
mótsins í körfuknattleik.
Fyrst léku ÍR og KFR og KR
og ÍFK.
Fyrri leikurinn var skemmti-
legur og vel leikinn á báða bóga.
ÍR hafði greinilega yfirburði í
leiknum, KFR-ingar sýndu oft
góðan leik.
Síðari leikurinn var hins vegar
ekki eins skemmtilegur og sá
fyrri, til þess var styrkleikamun
urinn á liðunum of mikill. KR-
Handbolti
um helgina
Beztu menn IR í leiknum við KFR, Birgir Jakobsson meff boltann
og Agnar Friffriksson til hægri.
Firmakeppni TBR
fer fram í dag
Úrslitaleikur firmakeppni TBR,
fara fram í íþróttahúsi Vals, í
hefst kl. 2 í dag og hefst kl. 2 e.h.
Til úrslita leika 16 eftirtalin fyr-
írtæki:
1. Radióstofa Vilbergs og Þor-
steins, Laugav. 72.
2. Axel Sigurgeirsson, Barma-
hlíð 8.
3. Trygging h.f., Laugav. 178.
4. Harmonikuhurðir h.f., Lind-
argötu 25.
5. Sportval Laugav. 48.
i 6. Biljardstofa Skipholti 2.
7. Rakarastofa Vilhelms Ing-
ólfssonar, Lönghlíð.
8. TTésmiðja Birgis Ágústsson-
ar, Brautarholti 6.
9. Morgunblaðið, Aðalstræti 6.
Framhald á 14. síðu
Borðtennisdeild
NÆSTU LEIKIR íslandsmótsins í
handknattleik verða að Háloga-
♦landi laugardaginn 18. febrúar kl.
20.15. Leikið verður í eftirtöldum
flokkum: 2. flokkur kvenna A-rið-
ill: Valur—Víkingur. 2. deild
kvenna: Breiðablik—Grindavík.
1. flokkur karla A-riðill. Ármann
—FH. Víkingur—Valur.
Sunnudaginn 19. febr. kl. 20.15
í Laugardalshöllinni verður svo
1. deild karla haldið áfram og leika
þá þessi félög: Ármann—FH og
Valur —Fram.
Staðan í 1. deild karla er þessi:
FH 5 5 0 0 10 118— 74
Valur 6 4 0 2 8 128-109
Fram 5 3 0 2 6 109— 75
Vík. 5 2 0 3 4 90— 92
Haukar 5 2 0 3 4 92-100
Ármann 6 0 0 6 0 89 — 176
Ungur piltur nær
góðum árangri í
sundi á Akranesi
Akranesi, 16. febr. Hdan.
Sundmót Gagnfræðaskóla Akra-
ness fór fram í Bjarnalaug sl.
þriðjudag. Alls voru keppendur
nm 120 og náðist góður árangur
í mörgum greinum.
Finnur Garðarsson setti tvö ný
Akranesmet, i 50 m skriðsundi á
27.3 sek. og 100 m skriðstundi á
1.00:1 min. Þessi 'árangur Finns
er mjög athyglisverður, þar sem
hann er aðeins 14 ára gamall. Það
skal tekið fram að lengd sund-
íaugarinnar á Akranesi er 12,5 m.
Finnur vann á mótinu títilinn
Sundkóngur GSA, en Sigurlaug
Jóhannsdóttir varð Sunddröttn-
Ing.
Ármanns stofnuð
í dag
Ákveðið hejur verið að stofna
Borðtennisdeild innan Glímufé-
lagsins Ármanns. Stofnfundur
deildarinnar verður í dag laugar-
dag kl. 4 síðdegis í félagsheimili
Ármanns við Sigtún.
Stjórn Ármanns hefur þegar
fest kaup á þremur borðtennis- |
borðum ásamt tilheyrandi og
munu æfingar í borðtennis fara
fram í Ármannsfelli við Sigtún.
í íþróttahúsinu við Sigtún er mátu
lega stór salur fyrir þessi þrjú
borð. Einnig eru þar böð og góð
snyrtiherbergi.
Þeir sem áhuga hafa fyrir því
að iðka borðtennis á vegum Glímu
félagsins Ármanns eru vinsamleg-
ast beðnir að mæta á stofnfundin-
um, í félagsheimilinu kl. 4 síð-
degis í dag.
Keppt er um þessi verfflaun í Firmakeppni TBR í dag.
18. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 1|,